Stjórnmál
23. Nóvember 2008
VANTRAUST RĆTT Á ALŢINGI Á MORGUN

Samkomulag náðist um það í dag að á morgun fari fram umræða á Alþingi um vantraust á ríkisstjórnina. Ég sé á netinu að sá misskilningur er uppi að umræðan fari fram á þriðjudagskvöld og að deilt sé um tímasetningu. Svo er ekki. Sá valkostur var vissulega ræddur að hafa umræðuna á þriðjudagskvöld en niðurstaðan varð sú eftir viðræður þingflokksformanna og forseta í dag að hún skyldi fara fram á morgun enda eðlilegast að líta á vantraustið sem dagskrártillögu sem taka beri fyrir þegar í stað. Um endanlegar tillögur forseta Alþingis um fyrirkomulag umræðnanna náðist ágætt samkomulag. Fróðlegt verður að heyra hvernig stjórnarmeirihlutinn kemur til með að ...
21. Nóvember 2008
REYNA ŢAU AĐ KAUPA SÉR FRIĐ MEĐ ŢVÍ AĐ FÓRNA SAMHERJUM?

...Engu að síður héldu þau út í heim í slagtogi með stærstu eigendum bankanna og stjórnendum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Sigurði Einarssyni til að segja fjárfestum á sameiginlegum fundum með þeim, m.a. í New York og Kaupmannahöfn, að allt væri í himnalagi. Fólk og fyrirtæki gætu óhrædd haldið áfram að fjárfesta ... Þegar haft er í huga að skuldasöfnunin varð mest eftir þessar áróðurs- og auglýsingaferðir þeirra Geirs og Ingibjargar, hlýtur að vakna spurning um pólitíska ábyrgð þeirra. Það væri vesalt af þeirra hálfu að reyna að bjarga eigin skinni með...
20. Nóvember 2008
TALAĐ TIL VINSTRI Í BRESKA VERKAMANNAFLOKKNUM

Ræða flutt á ráðstefnu Labour Representation Committe London 15. november.
Við stofnun Verkamannaflokksins breska var nafngiftin Labour Representation Committe. Nú skipuleggur vinstri armur flokksins sig undir þessu heiti og leggur þar með áherslu á ræturnar gagnstætt „Nýja Verkamannaflokki" þeirra Tonys Blair og Gordons Brown sem þykir kominn langt yfir til hægri í viðleitni sinni til að „nútímavæða" flokkinn. Opnunarræðu ráðstefnunnar flutti hin aldna kempa og foringi vinstri aflanna til langs tíma,Tony Benn. Næstur kom ég en aðrir ræðumenn á boðaðri dagskrá voru ...
19. Nóvember 2008
PÓLITÍK EĐA FAGMENNSKA?
Birtist í Morgunblaðinu 17. 11. 08
Pólitík og fagmennsku hefur verið stillt upp sem andstæðum í umræðu um ný bankaráð hinna endurreistu ríkisbanka. Það er vafasöm nálgun. Eftir að búið er að kafkeyra fjármálakerfi landsins með jafn hrikalegum afleiðingum og raun ber vitni, heyrist talað um hættuna sem stafi af því að hleypa Alþingi að stjórn bankanna. »Bankaráðin flokkspólitísk á ný« segir í fyrirsögn Fréttablaðsins fyrir nokkrum dögum. Vandlætingartónninn er augljós...
16. Nóvember 2008
„SAGNFRĆĐI" BIRGIS DÝRFJÖRĐ
13. Nóvember 2008
SESTIR UNDIR STÝRI Á BLÚSSANDI FERĐ TIL FORTÍĐAR

Í gær mættu í Alþingi fulltrúar frá Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, RSE. Þeir komu færandi hendi með nýútkomna bók, Hagfræði í hnotskurn, eftir Henry nokkurn Hazlit. Þessi bók er hvatningarrit fyrir frjálshyggju, sem þessi hægri sinnaða rannsóknarmiðstöð, sér ástæðu til að gefa út núna og færa alþingismönnum að gjöf ....En þeir voru fleiri sem kvöddu sér hljóðs í gær úr þessari átt. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþingsbanka skrifaði grein í Fréttablaðið. Hann er hjartanlega á sama máli og frjálshyggjufélagar hans hjá RSE. Fyrirsögnin á grein Finns er: Horft fram á veginn. Við nánari skoðum kemur í ljós að Finnur heldur sig við fortíðarlausnir, rétt eins og...
5. Nóvember 2008
"NEI, NEI, ŢAĐ HEFUR EKKI VERIĐ RĆTT... EKKI, EKKI, JA,... NEI, NEI"

...Ég gerði grein fyrir því hér á síðunni í gær að þessar ásakanir eru rangar og ómaklegar. Það er því miður að verða daglegt brauð að ráðherrar í ríkisstjórninni fara með ósannindi. Ekki bara útúrsnúninga heldur helber ósannindi. Í gær upplýsti DV um nýjustu yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar af þessu tagi. Hvað skyldi forsætisráðherranum finnast um eftirfarandi fréttaflutning DV? Útúrsnúningar? Það er kominn tími á afsögn ríkisstjórnarinnar. Ekki út af þessu smáræði. Þetta er bara dropi í hafið. Haf ósanninda....
5. Nóvember 2008
RANGFĆRSLUR FORSĆTISRÁĐHERRA

...Staðreyndin er sú að ráð okkar í þessum efnum hafa ekki verið „vel metin" hingað til og því miður ástæða til að hafa efasemdir um framhaldið í ljósi vinnubragða ríkisstjórnarinnar. Hvað tillögur okkar fram til þessa áhrærir nefni ég sem augljósasta dæmið frumvörp um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingasjóða, sem komið hefðu í veg fyrir Icesafe hneykslið. Ef þessi lagabreyting hefði verið samþykkt hefðu verið líkur á að þjóðinni hefðu sparast hundruð milljarðar! Icesafe reikningarnir gengu nefnilega út á að fá til ráðstöfunar sparifé til að fóðra óseðjandi fjárfestingarófreskju sem átti líf sitt undir því að fá stöðugt fjármagnsstreymi til að viðhalda sér..
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












