Stjórnmál
27. Desember 2008
HVERS VEGNA SEGJA ÓSATT?

...Eins og fram kemur greiddi Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar atkvæði gegn því að sérréttindi þingmanna, ráðherra og „æðstu embættismanna" yrðu afnumin og þeir settir undir sama fyrirkomulag og almennt gildir um starfsmenn ríkisins. Því nefni ég Árna Pál sérstaklega að ég sá heimasíðuskrif hans þar sem hann dregur upp allt aðra mynd og segir í ofanálag að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi beitt sér gegn afnámi sérréttindalaganna...
20. Desember 2008
SKRÁĐ VÖRUMERKI?

Í umræðu á Alþingi í dag furðuðu margir sig á því hvernig það geti farið saman að ráðast gegn grunngildum jafnaðarmennsku og kenna sig um leið við jöfnuð. Þetta gerir Samfylkingin, sem mér er sagt að heiti jafnframt Jafnaðarmannaflokkur Íslands...Ég skal játa að ég fékk eftirþanka eftir að vekja á þessu máls í þinginu í dag og fletti því upp á heimasíðu Samfylkingarinnar hvað hún í raun heitir. Viti menn, hvergi fann ég minnst einu orði á Jafnaðarmannaflokk Íslands. Ég veit hins vegar að ég hef oft heyrt flokksmenn Samfylkingarinnar slá um sig með stóra jafnaðarmanna-nafninu, ekki síst fyrir kosningar. Kannski hefur...
16. Desember 2008
ÁLYKTUN ÖRYRKJA OG NÝJA SÉRRÉTTINDAÚTGÁFAN

Tvennt markvert gerðist í dag. Annað var að Öryrkjabandalag Íslands sendi frá sér ályktun með þungum áfellisdómi yfir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Síðan var hitt að þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde kynntu nýja sérréttindaútgáfu á lífeyriskjörum ráðherra, þingmanna og „æðstu embættismanna" sem svo eru oft nefndir. Annars vegar hefur ríkisstjórnin ákveðið að skerða lögbundnar hækkanir til aldraðra og öryrkja frá næstu áramótum að telja. Á hinn bóginn hefur hún ákveðið að láta undan þrýstingi um afslátt á eigin sérréttindum. En viti menn, það á ekki að gilda frá áramótum heldur frá og með 1. júlí næsta sumar! Öryrkjarnir skulu skertir strax og af fullum þunga, en Geir og Ingibjörg ....
9. Desember 2008
VARAĐ VIĐ FASISMA Á SMUGUNNI

...Þegar ræðumenn segja að öll „stjórnmálastéttin“ eigi að víkja fatast þeim flugið. Þeir sem alhæfa gegn stjórnmálum fara óþægilega nærri Mússólíní. Í því ástandi sem nú ríkir í samfélaginu hafa margar þjóðir sokkið ofan í einhvers konar fasisma. Það er hryllingur og við verðum að vanda okkur svo hér byggist upp eitthvað betra. Reiðin þarf að verða til þess að lýðræðið eflist á allan hátt, að völd og áhrif fólks á umhverfi sitt og samfélag aukist og styrkist. En þá þurfum við líka að tala af sanngirni. Það bera ekki „allir stjórnmálamenn“ ábyrgð á ástandinu, þetta er ekki öllum stjórnmálaflokkum eða stefnum að kenna, það er einfaldlega rangt. Sumir hafa talað fyrir auknu lýðræði og varað við ástandinu sleitulaust öll hin síðari ár. Þá vantaði fleiri raddir í hópinn, við vorum hrópandinn í eyðimörkinni....
23. Nóvember 2008
VANTRAUST RĆTT Á ALŢINGI Á MORGUN

Samkomulag náðist um það í dag að á morgun fari fram umræða á Alþingi um vantraust á ríkisstjórnina. Ég sé á netinu að sá misskilningur er uppi að umræðan fari fram á þriðjudagskvöld og að deilt sé um tímasetningu. Svo er ekki. Sá valkostur var vissulega ræddur að hafa umræðuna á þriðjudagskvöld en niðurstaðan varð sú eftir viðræður þingflokksformanna og forseta í dag að hún skyldi fara fram á morgun enda eðlilegast að líta á vantraustið sem dagskrártillögu sem taka beri fyrir þegar í stað. Um endanlegar tillögur forseta Alþingis um fyrirkomulag umræðnanna náðist ágætt samkomulag. Fróðlegt verður að heyra hvernig stjórnarmeirihlutinn kemur til með að ...
21. Nóvember 2008
REYNA ŢAU AĐ KAUPA SÉR FRIĐ MEĐ ŢVÍ AĐ FÓRNA SAMHERJUM?

...Engu að síður héldu þau út í heim í slagtogi með stærstu eigendum bankanna og stjórnendum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Sigurði Einarssyni til að segja fjárfestum á sameiginlegum fundum með þeim, m.a. í New York og Kaupmannahöfn, að allt væri í himnalagi. Fólk og fyrirtæki gætu óhrædd haldið áfram að fjárfesta ... Þegar haft er í huga að skuldasöfnunin varð mest eftir þessar áróðurs- og auglýsingaferðir þeirra Geirs og Ingibjargar, hlýtur að vakna spurning um pólitíska ábyrgð þeirra. Það væri vesalt af þeirra hálfu að reyna að bjarga eigin skinni með...
20. Nóvember 2008
TALAĐ TIL VINSTRI Í BRESKA VERKAMANNAFLOKKNUM

Ræða flutt á ráðstefnu Labour Representation Committe London 15. november.
Við stofnun Verkamannaflokksins breska var nafngiftin Labour Representation Committe. Nú skipuleggur vinstri armur flokksins sig undir þessu heiti og leggur þar með áherslu á ræturnar gagnstætt „Nýja Verkamannaflokki" þeirra Tonys Blair og Gordons Brown sem þykir kominn langt yfir til hægri í viðleitni sinni til að „nútímavæða" flokkinn. Opnunarræðu ráðstefnunnar flutti hin aldna kempa og foringi vinstri aflanna til langs tíma,Tony Benn. Næstur kom ég en aðrir ræðumenn á boðaðri dagskrá voru ...
19. Nóvember 2008
PÓLITÍK EĐA FAGMENNSKA?
Birtist í Morgunblaðinu 17. 11. 08
Pólitík og fagmennsku hefur verið stillt upp sem andstæðum í umræðu um ný bankaráð hinna endurreistu ríkisbanka. Það er vafasöm nálgun. Eftir að búið er að kafkeyra fjármálakerfi landsins með jafn hrikalegum afleiðingum og raun ber vitni, heyrist talað um hættuna sem stafi af því að hleypa Alþingi að stjórn bankanna. »Bankaráðin flokkspólitísk á ný« segir í fyrirsögn Fréttablaðsins fyrir nokkrum dögum. Vandlætingartónninn er augljós...
16. Nóvember 2008
„SAGNFRĆĐI" BIRGIS DÝRFJÖRĐ
13. Nóvember 2008
SESTIR UNDIR STÝRI Á BLÚSSANDI FERĐ TIL FORTÍĐAR

Í gær mættu í Alþingi fulltrúar frá Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, RSE. Þeir komu færandi hendi með nýútkomna bók, Hagfræði í hnotskurn, eftir Henry nokkurn Hazlit. Þessi bók er hvatningarrit fyrir frjálshyggju, sem þessi hægri sinnaða rannsóknarmiðstöð, sér ástæðu til að gefa út núna og færa alþingismönnum að gjöf ....En þeir voru fleiri sem kvöddu sér hljóðs í gær úr þessari átt. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþingsbanka skrifaði grein í Fréttablaðið. Hann er hjartanlega á sama máli og frjálshyggjufélagar hans hjá RSE. Fyrirsögnin á grein Finns er: Horft fram á veginn. Við nánari skoðum kemur í ljós að Finnur heldur sig við fortíðarlausnir, rétt eins og...
5. Nóvember 2008
"NEI, NEI, ŢAĐ HEFUR EKKI VERIĐ RĆTT... EKKI, EKKI, JA,... NEI, NEI"

...Ég gerði grein fyrir því hér á síðunni í gær að þessar ásakanir eru rangar og ómaklegar. Það er því miður að verða daglegt brauð að ráðherrar í ríkisstjórninni fara með ósannindi. Ekki bara útúrsnúninga heldur helber ósannindi. Í gær upplýsti DV um nýjustu yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar af þessu tagi. Hvað skyldi forsætisráðherranum finnast um eftirfarandi fréttaflutning DV? Útúrsnúningar? Það er kominn tími á afsögn ríkisstjórnarinnar. Ekki út af þessu smáræði. Þetta er bara dropi í hafið. Haf ósanninda....
5. Nóvember 2008
RANGFĆRSLUR FORSĆTISRÁĐHERRA

...Staðreyndin er sú að ráð okkar í þessum efnum hafa ekki verið „vel metin" hingað til og því miður ástæða til að hafa efasemdir um framhaldið í ljósi vinnubragða ríkisstjórnarinnar. Hvað tillögur okkar fram til þessa áhrærir nefni ég sem augljósasta dæmið frumvörp um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingasjóða, sem komið hefðu í veg fyrir Icesafe hneykslið. Ef þessi lagabreyting hefði verið samþykkt hefðu verið líkur á að þjóðinni hefðu sparast hundruð milljarðar! Icesafe reikningarnir gengu nefnilega út á að fá til ráðstöfunar sparifé til að fóðra óseðjandi fjárfestingarófreskju sem átti líf sitt undir því að fá stöðugt fjármagnsstreymi til að viðhalda sér..
27. Október 2008
ŢAĐ ER ÓSATT AĐ VIĐ BERUM ÖLL SÖK

...Hvers vegna skyldi ég hnýta aðstoðarmönnum ráðherra við þessa upptalningu? Ætli þau hugrenningartengsl megi ekki rekja til leiðar Fréttablaðsins í dag þar sem höfundur, Björn Ingi Hrafnsson, gerir þjóðina alla að sökudólgum. Björn Ingi var einmitt aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, eins ákafasta einkavæðingarráðherra Framsóknarflokksins. Björn Ingi Hrafnsson trúir okkur fyrir því að hann hafi notið veisluhalda einkavæðingarinnar í botn. Það eigi reyndar við um okkur öll, „sem fannst gaman í veislunni og gott að þurfa ekki lengur að eiga fyrir hlutunum." Björn Ingi segir okkur að við höfum verið „óheppin" en þegar allt kemur til alls berum við „hér öll sök...
26. Október 2008
GEIR OG INGIBJÖRG BRUGĐUST

... Þess í stað hafa oddvitar stjórnarflokkanna stigið upp í næstu þotu til að taka þátt í því að sannfæra sparifjáreigendur um allan heim um að allt væri í lukkunnar velstandi í íslenskum bönkum - óhætt að treysta þeim með heilt þjóðfélag að bakhjarli. Í mars sl. sagði Ingibjörg Sólrún, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, að áhyggjur af íslenskum bönkum væru fullkomlega ástæðulausar...Reyndar gaf Geir í skyn að bankarnir stæðu geysilega vel vegna þess að þeir störfuðu eftir leynilegri formúlu sem ekki yrði gefin upp! Eða hvernig á að skilja viðtalið sem bandaríska sjónvarpsstöðin CNN átti við hann og Morgunblaðið sagði frá 15. mars...
26. Október 2008
INGIBJÖRG OG GEIR BRUGĐUST

...Þau Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörg Sólrún, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, voru bullandi meðvirk. Þau héldu út í heim með útrásarvíkingunum til að tala bankana upp og segja almenningi utanlands þau ósannindi að það væri alveg óhætt að treysta áfram íslenskum bönkum fyrir sparifé því hjá þeim væri allt í himnalagi! Á fundi í Kaupmannahöfn 11. mars sl. þar sem Ingibjörg Sólrún hélt erindi á pepp-fundi með Sigurði Einarssyni, bankastjóra KB banka og fleirum sagði hún...Tveimur dögum síðar var Geir Haarde í New York ásamt Jónir Ásgeiri Jóhannessyni og fleiri íslenskum fjárfestingarbarónum að sannfæra heiminn um að engar brotalamir væri að finna í íslensku bankakerfi...
24. Október 2008
LEIĐSÖGUMENN VÍSA VEGINN...

Að mörgu leyti er ég sammála því sem formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, þau Geir H. og Þorgerður K. sögðu fyrir síðustu kosningar. Nefnilega að þegar öllu væri á botninn hvolft væri traust efnahagsstjórn brýnt velferðamál. Mér finnst þetta miklu skynsamlegra sjónarmið en við heyrðum frá forsætisráðherranum í vor leið þegar hann lét að því liggja að besta efnahgsráðið væri að gera ekki neitt! Hann fylgdi þeirri hugsun eftir í verki og aðhafðist ekki. Það heitir á fræðimáli að hafa samræmi á milli teoríu og praxis.
En varðandi ...
3. Október 2008
ÚRRĆĐI - ÚRRĆĐALEYSI

Sláandi var munurinn á stjórn og stjórnarandstöðu í umræðum á Alþingi í gær um stefnuræðu forsætsiráðherra. Geir H. Haarde kynnti ekki stefnu ríkisstjórnar sinnar. Hann kynnti stefnuleysi hennar...Stefnuræðan var slétt og felld en ekki meir. Jóhanna Sigurðardóttir var fyrsti ræðumaður Samfylkingarinnar. Við, sem áttum von á því að hún ýtti á afgerandi hátt út af borðinu hugmyndum um að takmarka umsvif Íbúðalánasjóðs, urðum fyrir vonbrigðum. Því viti menn ...Hjá stjórnarandstöðunni kvað við allt annan tón. Hvatt var til samstöðu og samvinnu, að menn snéru bökum saman gegn þeirra vá sem steðjar að okkur. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, vísaði í varnaðarorð VG og tillögur sem fram hafa verið settar af hálfu þingflokksins á undanförnum árum og nú í upphafi þings. Hér er um að ræða alvöru aðgerðir til að taka á alvöruvanda. Á strengi þjóðarsamstöðu slógu einnig ...
3. Október 2008
FIMM STAĐHĆFINGAR GEIRS

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, flutti stefnuræðu ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. Ræðan gerði margan manninn án efa hugsi. Geir sagði m.a. um hremmingar af völdum fjármálakreppunnar:
„Öll eru á sama báti, íslensku bankarnir, fólkið og fyrirtækin..."
Er það svo? Þessir aðilar hafa vissulega ekki verið á sama báti. Gangavörðurinn í barnaskólanum hefur ekki verið á sama báti og bankastjórinn sem lætur borga sér milljarð í stafslokasamning. Á gangavörðurinn nú að gangast í ábyrgð fyrir skuldbindingar milljarðamæringsins? Eru þessir tveir komnir á sama bátinn? Er þetta svona einalt?
„Höldum áfram á þeirri braut sem við höfum markað okkur á undanförnum árum."
Er það virkilega meiningin? Ríkisstjórnin segir að nú megi alls ekki benda á sökudólga, bara hugsa um framtíðina. En eru ...
28. September 2008
RÍKISSTJÓRNIN TEKUR Á VANDANUM - Í SÝNDARGRĆJUM

Heima fyrir gengur allt sinn vanagang, sumir ráðherranna tala um evru, aðrir kynda undir með einkavæðingarhugmyndum á sama tíma og óuppdreginn markaðskaítalismi er búinn að keyra efnahagskerfi heimsins inn í algert öngstræti. Þá bregður líka svo við hagsmunagæslumenn á fjármálamarkaði rísa upp og benda á að allt sé þetta í rauninni Seðlabankanum að kenna. Eigin óráðsía, allt fjárfestingarfylliríið, einkavinavæðingin, glórulausar stóriðjuframkvæmdir...
11. September 2008
GUĐLAUGUR ŢÓR OG FINNUR

.. Harðdrægastur í einkavæðingunni var Finnur Ingólfsson enda hamhleypa til verka. Sá var vandinn. Hann hamaðist með bankana og rafmagnseftirlitið ( þið munið eftirlitið sem Frumherji sinnir nú, fyrirtækið hans Finns). Á þessum tíma var farið að tala um einkavinavæðingu. Póstur og sími var settur á færibandið og Áburðarverksmiðjan var seld - gefin, væri kannski nákvæmara orðalag. Yfirleitt gat Sjálfstæðisflokkurinn hallað sér makindalega aftur í stólnum á meðan Finnur verkstýrði einstökum ferliverkum innan þings og utan. Nú blása aðrir vindar í Framsókn... En þótt Ágúst Ólafur sé liðtækur sem aðstoðarmaður við markaðsvæðingu samfélagsþjónustunar hvílir verkstjórnin á hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra. Hann hefur tamið sér ...
11. September 2008
ALLT UPP Á BORĐIĐ - ALLTAF
3. September 2008
GJÖF ŢJÓĐARHREYFINGARINNAR

Einsog fram hefur komið í fréttum hefur þjóðarhreyfingin fær öllum þingmönnum að gjöf bókina Animal Farm, Dýrabæ, eftir George Orwell. Þessi bók kom út árið 1945 og hafði þá þegar geysileg áhrif. Haft hefur verið á orði að þessi bók Orwells hafi jafnvel haft meiri áhrif en nokkur önnur bók sem út kom á 20. öldinni, Á bókarkápu útgáfunnar sem Þjóðarhreyfingin færði okkur þingmönnum segir að bókin eigi sannarlega erindi við 21. öldina einnig: „ Ekki síst er sagan holl lesning stjórnmálamönnum, þeim sem fara með vald í umboði annarra."
Tilefni gjafarinnar er að minna alþingismenn á að nú sé lag að ...
30. Ágúst 2008
UM HARĐSTJÓRN HUGMYNDAFRĆĐINNAR

...Og fólkið sem hneykslaðist hvað mest á skrifum á þessari síðu á sínum tíma um hvort við kynnum að vera betur komin með hugsunarhátt af þessu tagi utan landsteinanna en innan, segir nú vera fullkomlega skiljanlegt að auðkýfingarnir hugsi sér til hreyfings ef almenningur er ekki reiðubúinn að opna sjóði sína þeim til styrktar og lúti þeim í auðmýkt í stóru og smáu. Sá stjórnmálaflokkur sem stýrt hefur Íslandi inn á þessar glæfralegu brautir heitir Sjálfstæðisflokkur. Óumdeilanlegt er að hann stendur til hægri í stjórnmálum. Þetta er flokkurinn sem gaf bankana, greiddi götu þotuliðsins og hlóð undir gullrassana. Þetta er líka flokkurinn sem lækkað hefur álögur á stóreignamenn og hlaðið gjöldum á sjúkt fólk og fátækt. Næst á dagskrá hjá flokknum er að eyðileggja Íbúðalánasjóð og ...
28. Ágúst 2008
VILJA MAKKA UM EIGIN KJÖR
Birtist í DV 27.08.08.
...En hvers vegna í ósköpunum láta fjölmiðlamenn þau Geir og Ingibjörgu komast upp með þetta blekkingartal um samráð við stjórnarandstöðuna? Og varðandi aðferðafræðina spyr ég hvort fjölmiðlamönnum geti virkilega fundist eðlilegt að þingmenn og ráðherrar makki á bak við tjöldin um eigin sérréttinda-lífeyriskjör eins og formaður Samfylkingarinnar sagði Kastljósáhorfendum að unnið væri að? Hvers vegna er ekki spurt út í þetta? Og einnig hitt, hvers vegna er komið í veg fyrir að greidd séu atkvæði um þær tvær leiðir sem deilt er um, sérréttindaleiðina fyrir þingmenn og ráðherra annars vegar og almenn kjör þeim til handa hins vegar? Ekki svo að skilja að ekki verði séð til þess að atkvæðagreiðsla um þessa tvo ...
21. Ágúst 2008
UPPSKERAN Í HÚS HJÁ LITLU, LITLU FRAMSÓKN

...Eftir kosningarnar 2006 efndu Framsóknarmenn til uppskeruhátíðar. Þeir fögnuðu að vísu fáum atkvæðum í Reykjavík, en mögulegum aðgöngumiða að kjötkötlum borgarinnar. Á uppskeruhátíð Framsóknar sem haldin var hjá Siv Friðleifsdóttur, þingmanni flokksins, voru þeir gleiðbrosandi, Óskar framsóknarmaður og Guðlaugur framsóknarmaður. Nú er uppskeran, sem Siv segir frá á heimasíðu sinni, komin í hús. Óskar framsóknarmaður orðinn formaður í aðskiljanlegum nefndum og Guðlaugur framsóknarmaður stjórnarformaður í OR.
Eflaust er Framsóknarflokkurinn ánægður. Það er svo hitt að spyrja yfir hverju ...
18. Ágúst 2008
ER RÚV AĐ HJÁLPA INGIBJÖRGU OG GEIR AĐ VIĐHALDA EFTIRLAUNA-SÉRRÉTTINDUM SÍNUM?

...Ömurlegt er að fylgjast með tilraunum ráðherranna tveggja að ná samkomulagi um lágmarksbreytingar á lífeyrislögunum með það fyrir augum að viðhalda sérréttindum sínum. Ég frábið að fjölmiðlar hjálpi þeim í þessu ætlunarverki. Ekki gleyma því að lífeyrislögin alræmdu eru sérstaklega sniðin að hagsmunum ráðherra sem fá 6% af launum sínum fyrir hvert ár í embætti sem ráðherra. Þingmenn fá 3%. Í LSR er rétturinn innan við 2% og í mörgum lífeyrissjóðum minna en 1,5%! Fullkomin sátt? Við hvern? Þingið? Þjóðina?...
10. Ágúst 2008
EFTIRLAUNALÖGIN OG AFSTAĐA EINSTAKRA ŢINGMANNA

...Í mínum huga er málið mjög skýrt. Fyrir þinginu liggur frumvarp frá Valgerði Bjarnadóttur um afnám eftirlaunalaganna. Í frumvarpi hennar er kveðið á um að lífeyriskjör ráðherra, þingmanna og ýmissa embættismanna verði samræmd almennum lífeyrisréttindum starfsmanna ríkisins. Málið er fullfrágengið. Málið er tilbúið til afgreiðslu. Málið er í höndum þingsins...
17. Júlí 2008
ŢURFUM BJARTSÝNA RÍKISSTJÓRN
11. Júlí 2008
GUĐLAUGUR ŢÓR RANGFĆRIR
24. Júní 2008
ŢYKIR ŢJÓĐINNI NÓG KOMIĐ AF AFTURHALDI?

Menn velta því fyrir sér hvers vegna fylgi ríkisstjórnarinnar fari nú ört dalandi...Hér hefur nefnilega verið innleiddur hrá-kapítalismi 19. aldarinnar sem neitar að viðurkenna allt sem heitir samfélag. Þannig hafa bankastjórar talað í mín eyru um ójafnræði á markaði þegar samfélagið vogar sér að reka sameiginlegan Íbúðalánasjóð fyrir alla landsmenn! Frá Brüssel hafa þessir afturhaldsmenn sótt sinn styrk í gegnum EES samninginn sem aldrei skyldi gerður hafa verið. En enda þótt gjaldþrot óheftrar markaðshyggju hljóti að vera hverju barni augljóst virðist ríkisstjórnin staðráðin í að skrönglast áfram með sömu stefnuna, fela fjárglæframönnum raforkugeirann, heilbrigðiskerfið og aðra grunnþætti samfélagsins til rekstrar. Síðasta afrekið er að ...
22. Júní 2008
FJÖLMIĐLAR UPPLÝSI UM HAGSMUNATENGSL STJÓRNMÁLAMANNA

Hinn 12. Júní skrifar Jóhann Hauksson, fréttamaður einkar athyglisverðan pistil á DV bloggið undir heitinu Litla sæta kunningjaþjóðfélagið. Greinin fjallar um tengsl stjórnmálamanna, bein og óbein, við heilbrigðiskerfið - sama heilbrigðiskerfi og Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra einkavæðir sem mest hann má með dyggri aðstoð Samfylkingarinnar. Ég vil þakka fyrir þessa grein. Á daginn kemur að stjórnmálamenn eru sjálfir á kafi í bisniss sem tengist einkavæðingunni. Þeir eru með öðrum orðum hagsmunatengdir í beinhörðum peningum. Það sem ég furða mig mest á er að Jóhann Hauksson skuli vera einn á báti þegar kemur að rannsóknarskrifum af þessu tagi. Hvar er nú Kastljósið, Spegillinn, Ísland í dag, Fréttablaðið, 24 Stundir og Morgunblaðið?
Það er helst að horft sé til
11. Júní 2008
BROTTREKNIR RĆSTITĆKNAR Í VALHÖLL?
3. Júní 2008
HEILBRIGĐISŢJÓNUSTUNNI RÁĐIĐ HEILT?

Þeir félagar Guðlaugur þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, eiga sér draum. Sá draumur er að koma á markaðskerfi fyrir heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Þeir eiga stuðning hjá hægri sinnuðum mönnum í sínum flokkum... Þetta er sama hugsun og „Nýi Verkamannaflokkurinn" undir forystu Tonys Blairs hefur framfylgt í Bretlandi en sá flokkur er í stjórnartíð sinni kominn vel á veg með að koma breska heilbrigðiskerfinu út á markaðstorgið...
1. Júní 2008
GUĐLAUGUR ŢÓR AUGLÝSIR

Í gær birtist auglýsing í Morgunblaðinu frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Auglýst er starf forstjóra „sjúkratryggingastofnunar." Þessi stofnun er ekki til. Kannski er þetta eins konar afsökunarbeiðni því í auglýsingunni er okkur sagt að þar sem Alþingi hafi ekki samþykkt lög um þessa stofnun verði að framlengja umsóknartímann...
27. Maí 2008
Í ELDHÚSI ALŢINGIS

Ræða í Eldhúsdagsumræðum á Alþingi
...En risasvaxnar lántökur án nauðsynlegs uppskurðar í efnahags- og fjármálakerfinu er ráðstöfun sem lítið hjálpar - getur jafnvel verið varasöm ef ekkert annað er að gert. Hið skynsamlega er að skipta upp bönkunum, í þann hluta sem þjónar íslensku atvinnulífi og hinn sem er að gambla á erlendum mörkuðum. Um þetta hafa menn lagt fram einfaldar og skynsamlegar útfærslur. Í upphafi þessa þings lagði Vinstrihreyfingin grænt framboð fram ítarlegar og efnismiklar tillögur um fyrirbyggjandi ráðstafnir og skref sem stíga mætti til að styrkja undirstöður efnahagslífsins. Nú er svo komið í þjóðfélaginu að....
17. Maí 2008
GEIR Í BLEIKU OG BLÁU

Í morgun kom Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fram á fundi í Valhöll, félagsheimili Sjálfstæðismanna. Hann tók sig vel út á mynd frammi fyrir risastórum bleikum og bláum bakgrunni . Það sem mér þótti merkilegast við þennan fund var sú yfirlýsing forsætisráðherra að hann hefði víst verið í vinnunni frá áramótum! Sem kunnugt er voru gárungar byrjaðir að kalla ríkisstjórn þeirra Geirs og Ingibjargar Sólrúnar, Þyrnirós. Kannski var það þess vegna sem forsætisráðherra þótti nauðsynlegt að upplýsa að ríkisstjórnin hafi alls ekki sofið. Sjálfur, kvaðst Geir hafa ...
12. Maí 2008
MISVÍSANDI FRÉTTAFLUTNINGUR OG BLEKKINGARTAL UM EFTIRLAUNAFRUMVARPIĐ

Í gærkvöldi var flutt afar ónákvæm og misvísandi frétt í Sjónvarpinu undir fyrirsögninni Umdeild eftirlaunalög felld úr gildi. Þegar leið á fréttina kom nefnilega í ljós að ekki stóð til að fella lögin úr gildi heldur gera á þeim smávægilegar breytingar....Frá því þessi illræmdu lög voru sett hefur á bak við tjöldin annað veifið verið reynt að ná samkomulagi um lágmarksbreytingar á þeim til að friða almenning. Í mínum huga eru þetta ekkert annað en pólitískar lýtalækningar og loddaraskapur af verstu sort. Þetta eru hins vegar sömu breytingarnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar kynnti í Sjónvarpsfréttum í gærkvöld í upphafi fréttatímans! Það er eftir...
11. Maí 2008
ÓSÝNILEGI MAĐURINN

Mogginn birti skemmtilega mynd í vikunni sem leið. Hún var af skuggamynd af manni. Undir myndinni var upplýst af hverjum myndin var. Flestir held ég þó að hafi getað ráðið gátuna um ósýnilega manninn af sjálfsdáðum. Ósýnilegi maðurinn var nefnilega enginn annar en... Í hádegisfréttum RÚV í dag var viðtal við formann Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Viðtalið gekk út á að sanna fyrir okkur hve mikið þjóðin hefði grætt á því að hafa ríkisstjórn sem gerði ekki neitt... Svo var að skilja að helsta framlag ríkisstjórnarinnar væri aðgerðarleysið og ósýnileikinn. Þar höfum við það. Mogginn reyndist snjallari en við höfðum gert okkur grein fyrir...
16. Apríl 2008
ŢYRNIRÓS

Eitt er dapurlegt í þessu sambandi. Það er ef svo skyldi fara að eftir alla fyrirhöfnina við stjórnarmyndunina fyrir ári við að skapa þá umgjörð að ríkisstjórnin hlyti heitið "Þingvallastjórn" - fréttamennirnir sem þurftu að keyra til Þingvalla á hverjum degi að ljósmynda þau Geir og Ingibjörgu vera að mynda "Þingvallastjórnina" sína gleyma þessu ekki - ef svo skyldi fara að á daginn kæmi að allt þetta hafi verið unnið fyrir gýg. Að "Þingvallastjórnin" sem auglýsingastofurnar áttu að búa til, komi bara til með að heita eftir prinsessu úr gömlu ævintýri...
15. Apríl 2008
...ALDREI Á MEĐAN VIĐ RÁĐUM EINHVERJU
14. Apríl 2008
VÖLDIN HAFA FĆRST TIL AUĐMANNA
Viðtal í Fréttablaðinu 13.04.08Efnahags- og félagslegum ávinningi 20. aldarinnar er ógnað, að mati Ögmundar Jónassonar. Auðmenn deili og drottni á eigin forsendum en ekki samfélagsins og ásælist sífellt fleiri svið til að athafna sig á. Í samtali við Björn Þór Sigbjörnsson kveðst Ögmundur vilja hækka við þá skattana og fela samfélaginu sjálfu að styðja þurfandi. Þeirri víðtæku sátt sem skapaðist um miðbik síðustu aldar um mikilvægi samtakamáttar og almennrar velferðar stendur ógn af gömlum og nýjum sérhyggjulausnum. Þetta er mat Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB og þingmanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem óttast að íslenska samfélagsgerðin skaðist af auknum völdum auðmanna.
8. Apríl 2008
Á LEIĐ Á FUND?

...Samkrullið við fjölmiðlana sem forsætisráðherra stærði sig af á Alþingi er í sjálfu sér umhugsunarvert. Þegar ríkisstjórn í einu landi er farin að efna til auglýsingaferða eins og þau Geir og Ingibjörg Sólrún hafa staðið fyrir að undanförnu með fjölmiðla upp á sína náð og miskunn þá er ástæða til að staldra við. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, ætti að vara sig á hrokafullum viðbrögðum af því tagi sem hann sýndi í þinginu. Auðvitað gerir hvert mannsbarn sér ljóst að í því felst tímasparnaður - og í þeim skilningi hagræði - að stíga upp í einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli í stað þess að ferðast með áætlunarflugi frá Keflavík þegar haldið er til útlanda. Þetta gildir hins vegar um okkur öll, ekki bara...
7. Apríl 2008
ER RÍKISSTJÓRNIN AĐ ÖGRA ŢJÓĐINNI?

Fram kemur í fréttum í dag að forsætisráðherra og viðskiptaráðherra séu á leið til útlanda - í einkaþotu. Fyrir nokkrum dögum var það gagnrýnt harðlega þegar oddvitar ríkisstjórnarflokkanna héldu ásamt föruneyti sínu til Búkarest í Rúmeníu á NATÓ fund í einkaþotu. Þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún sögðust vera að spara tíma. Í þessum ferðmamáta væri einnig fólgið hagræði. Ekki efa ég að svo sé. Það vill hins vegar svo til að þetta myndi eiga við um okkur öll. Það er nefnilega auðveldara og þægilegra að ferðast til útlanda í einkaþotu en að gera einsog við gerum flest, taka áætlunarflugvél frá Keflavík...Heyra mátti á forsætisráðherra að honum mislíkaði gagnrýnin á ferðamáta hans og utanríkisráðherrans. Hann talaði um að...
5. Apríl 2008
FUNDARÖĐ VG: TÖKUMST Á VIĐ EFNAHAGSVANDANN

...Í baráttunni við að verja lífskjör almennings lögðu Vinstri græn fram tillögur á þingi fyrir þremur vikum síðan um víðtækar ráðstafanir í efnahagsmálum. Til að kynna tillögurnar og fá umræður um þær hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð útbúið myndskeið sem vakin hefur verið athygli á hér á síðunni og hleypt af stokkunum fundaröð um allt land undir yfirskriftinni Tökum á efnahagsvandanum: Tillögur Vinstri grænna. Fundurinir eru á eftirtöldum stöðum:...
3. Apríl 2008
SAMRÁĐ Í ANDA BRÉSNEFS
Í tíu-fréttum Sjónvarps í kvöld sátu Rúmeníu-fararnir okkar, Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, sem nú sækja fund NATÓ í Búkarest, fyrir svörum fréttamanna, samferðamanna sinna úr einkaþotunni góðu. Það dugir ekki annað en fá góða „dekkun" frá Búkarest. (Mér er reyndar sagt að fréttamaður Sjónvarps hafi komið frá London og fyrir vikið misst af því að kynnast ferðamáta hefðarfólksins úr Stjórnarráði Íslands). Hvað um það, fréttamannafundurinn, sem virtist haldinn á...
3. Apríl 2008
RÁĐLEGGINGAR UVG

Ung Vinstri-græn hafa útbúið bækling og sent hann með hraðpósti til forsætis- og utanríkisráðherra á NATÓ-fundinn í Rúmeníu þar sem þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttur og Geir H. Haarde eru nú. Þar er að finna leiðbeiningar um það hvernig ráðherrarnir geta komist heim frá Rúmeníu án einkaþotu. Sem kunnugt er létu þau Geir og Ingibjörg Sólrún skattborgarann leigja undir sig og föruneyti sitt einkaþotu til að geta ferðast með stæl til NATO-fundarins. Með í för voru fulltrúar fjölmiðla til að geta þjónað ráðherrunum. Þjóðinni hefur blöskrað flottræfislháttur ríkisstjórnarparsins og segir Auður Lilja Erlengsdóttir formaður UVG á ...
2. Apríl 2008
....OG Í EINKAŢOTU

Í dag héldu oddvitar ríkisstjórnarflokkanna Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar til Búkarest. Tilefnið er að sækja fund í hernaðarbandalaginu NATÓ. Almennt hélt ég að þau hefðu öðrum hnöppum að hneppa en sitja saman fundi um málefni NATÓ. Enginn velkist í vafa um að íslenska þjóðarbúið stendur frammi fyrir alvarlegum erfiðleikum og mikilvægt er að skapa samstöðu um aðgerðir því til varnar. Í því samhengi horfir fólk ekki aðeins til þess sem ríkisstjórnin aðhefst, eða lætur hjá líða að aðhafast eftir atvikum, heldur er líka horft til merkjasendinga úr Stjórnarráðinu. Á undanförnum árum hefur ...
1. Apríl 2008
NÝBREYTNI VG

...Þannig lætur flokkurinn ekki við það eitt sitja að efna til fundaraðar víðs vegar um landið á næstunni til að kynna áherslur sínar í efnahagsmálum heldur er einnig hægt að fá forsmekkinn af fundunum með því að hlýða á mál formanns flokksins í þar til gerðu sjónvarpsávarpi. Með því að smella á slóðina sem hér fylgir má heyra og sjá ávarp Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG þar sem hann ....
18. Mars 2008
VARAŢINGMAĐUR Á HVÍTUM SLOPPI

Skyldi vera eitthvað í Codex edicus læknanna um það hvenær sé við hæfi að koma fram í hvítum læknasloppi í pólitísku viðtali og þá hvenær rétt sé að láta sloppinn hanga á snaganum? Að sumu leyti hefði mér fundist heiðarlegra af Þorvaldi Ingvarssyni, 1.varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins í N-austurkjördæmi að klæðast jakkafötum, jafnvel teinóttum, í fréttaviðtali við Sjónvarpið í kvöld þegar hann talaði fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum... Þorvaldur fór á nokkuð lipran hátt með stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að fjármagn skuli fylgja sjúklingi og nú þurfi að búa í haginn fyrir samkeppni. Ég náði þessu að vísu ekki alveg hjá honum með samkeppnina við útlönd. Sjálfum finnst mér þetta snúa meira...
18. Mars 2008
EFNAHAGSÖNGŢVEITIĐ: AĐGERĐALAUS GEIR OG ISG Í AFGANISTAN

...En hvað gerir ríkisstjórn Íslands? Oddviti annars stjórnarflokksins , forsætisráðherrann, segir að ekkert sé við þessu ástandi að gera. Geir H. Haarde, kom fram í fjölmiðlum í dag til að segja þjóðinni að halda sig með ríkisstjórninni á áhorfendabekkjunum og bíða átekta. Verum bara róleg, sagði Geir forsætisráðherra. Oddviti hins stjórnarflokksins, utanríkisráðherrann, er ennþá fámálli, enda vart við öðru að búast því Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er vant við látin í norðanverðu Afganistan ...Það er við þessar aðstæður sem bankastjóri Landsbankans kvaddi sér hlóðs...
15. Mars 2008
GUĐLAUGUR ŢÓR „PRÍVAT OG PERSÓNULEGA"

Guðlaugur Þór þórðrson, heilbrigðisráðherra, sagði, í kvöldfréttum RÚV, að það væri út í hött að fótur væri fyrir þeim ásökunum þingflokks VG um að hann hefði hafnað því að taka umræðu um málefni Landspítalans í utandagskrárumræðu á Alþingi. Sagði hann það að vísu rétt að ég hefði nefnt þetta við sig „prívat og persónulega" en að öðru leyti væru ásakanir þingflokks VG fráleitar......Þetta kallar Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, að ég hafi „prívat og persónulega" óskað eftir ...
15. Mars 2008
VG ÁLYKTAR - ÁSTA RANGFĆRIR

...Athygli vakti að Ásta Möller, formaður Heilbrigðisnefndar kvaðst ekki getað svarað þessari spurningu!!! Deginum ljósara er að brottvikning Magnúsar er af pólitískum toga, því allir ljúka lofsorði á hann sem óvenju hæfan embættismann. „Glæpur" hans er að neita að gerast viljalaust verkfæri einkavæðingarráðherrans. Að baki pólitískum ákvörðunum á að vera pólitísk ábyrgð. Þá ábyrgð neitar Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra ,að axla. Í vikunni neitaði hann að ...
14. Mars 2008
ŢAU BERA ÖLL ÁBYRGĐ

...Nú veit ég ekkert hvar í flokki þessir tveir menn eru, gætu þess vegna verið stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar. Innan allra flokka er að finna fólk með félagslegar áherslur. Hinar pólitísku hreinsanir sem nú eru greinilega hafnar byggja ekki á flokksskírteinum heldur skoðunum á einkavæðingunni . Aumt er hlutskipti Þögla félagans, Silent partner, en svo er Samfylkingin nú nefnd í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. Það er vegna þess að hún ...
13. Mars 2008
SJÁLFSTĆĐISFLOKKURINN LĆTUR TIL SKARAR SKRÍĐA

Fregnir berast nú um að einkavæðingardeild Sjálfstæðisflokksins sé að hrinda af stað stórsókn í heilbrigðiskerfinu með víðtækum kerfisbreytingum og jafnvel hreinsunum. Félagslega þenkjandi fólki verði vikið til hliðar svo greiða megi götu pólitískra handlangara flokksins. Þótt, Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, stýri þessu að forminu til, er margt sem bendir til að í reynd sé það fjármálafólkið utan ráðuneytisins sem sé að taka yfir. Í dag kom í ljós á Alþingi að ...
27. Febrúar 2008
GUĐLAUGUR ŢÓR OG ŢÖGLI FÉLAGINN

...Heiðarleiki? Ekki finnst mér það. Heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins einkavæðir á bak við tjöldin og afneitar á sama tíma einkavæðingarstefnu flokks síns þegar fjölmiðlar ganga á hann. Samfylkingin er hins vegar hinn þögli félagi, the silent partner einsog Bretar kalla þá sem samþykkja með þögninni það sem þeir þora ekki að gangast við opinberlega. Hinn þögli félagi. Skrítið hlutskipti. Stórmannlegt? Nei, bara Samfylking...
23. Febrúar 2008
FLOKKSRÁĐSFUNDUR VG: LANGLUNDARGEĐ GAGNVART SAMFYLKINGU Á ŢROTUM

...Að því marki sem þessi fundur endurspeglar viðhorfin hjá skoðanasystkinum okkar í þjóðfélaginu er greinilegt að á þrotum er langlundargeðið gagnvart ríkisstjórninni og þá einkum Samfylkingunni sem ýmsir úr þessum ranni stjórnmálanna höfðu haft væntingar um að stæði í ístaðinu í stjórnarsamstarfinu með Sjálfstæðisflokknum. Mat fundarmanna var að hið gagnstæða hefði gerst. Stefna Sjálfstæðisflokksins væri samþykkt, annað hvort með þögn Samfylkingarinnar eða með beinum stuðningi hennar. Dæmi um þetta er úr ályktun um heilbrigðismál þar sem segir meðal annars...
21. Febrúar 2008
ÓSKAĐ EFTIR FRAMHALDSFRÉTT

...En til að byrja með mætti spyrja Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar hvort yfirlýsingar hans á aðalfundi SVÞ séu fráhvarf frá fyrri stefnu í menntamálum ...Þá væri fróðlegt að heyra álit rektorsins í Bifröst hvort honum finnist eðlilegt að allir sem setja á fót háskóla eigi rétt á aðkomu að veski okkar skattgreiðendanna? ...Og Sigurð Jónsson framkvæmdastjóra SVÞ þarf endilega að fá til að útskýra fyrir okkur hvernig hann hyggist spara 1,6 milljarð í heilbrigðiskerfinu á fjórum árum með einkavæðingu...Er nóg að mæta í hljóðstofu og staðhæfa eitthvað út í loftið? Yfirskrift fréttarinnar á RÚV var staðhæfing: „SVÞ: Einkarekstur er hagkvæmari." Er hann það? Hver segir það? Hvar? Alls staðar? Alltaf...?
17. Febrúar 2008
GEIR HITTIR ALLA HELSTU GĆJANA !

...Svo taldi hann þá upp, Evrópusambands-bírókratana og forsvarsmenn NATÓ - hann myndi ræða við sjálfan framkvæmdastjórann! Þetta verður örugglega óskaplega skemmtilegir fundir hjá okkar manni með „gæjunum" í Brussel...Annars er þetta dæmigert fyrir Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu: Öllu reyna þessir systurflokkar í ríkisstjórn að koma út á markað, heilbrigðiþjónustunni, launamyndun hjá hinu opinbera, raforkunni og annarri þjónustu. Síðan er viðkvæðið að stjórnvöld beri enga ábyrgð, það sé bara við markaðinn að sakast ef einhver sé óánægður, menn skuli þá snúa sér til fyrirtækjanna, Alcan og Alcóa, Öldungs hf og Heilsuverndarstöðvarinnar ehf. En er þetta rétt? Er það svona sem við viljum hafa þetta? Vitaskuld ekki! Að sjálfsögðu eiga Alcoa og önnur stóriðjufyrirtæki ekki að ákveða hvernig við ...
14. Febrúar 2008
EIGA EKKI GEIR OG ÁRNI AĐ AXLA ÁBYRGĐ?
Birtist í Morgunblaðinu 13.02.08.
...Leiðin fyrir fjárfesta inn í orkugeirann opnaðist þegar ríkisstjórn Geirs H. Haarde ákvað að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja síðastliðið vor. Þessari ráðagerð var mótmælt harðlega á sínum tíma og áður en gengið var frá kaupunum krafðist þingflokkur VG þess að horfið yrði frá þessari fyrirætlun. Þá var Samfylkingin komin inn í ríkisstjórn í stað Framsóknar, en allt kom fyrir ekki. Hvorki Geir H. Haarde, forsætisráðherra né Árni M. Mathiesen, fjármálaráherra, léði þessu máls og Samfylkingin tók einsog fyrri daginn afstöðu með þögninni...
11. Febrúar 2008
BÍRĆFNI

..Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, gekkst fyrir því að forsætisráðuneytið svaraði því hve miklum fjármunum hefði verið ráðstafað úr ríkissjóði á hálfu ári í aðdraganda síðustu kosninga, frá því í desemberbyrjun 2006 og fram að kosningum í maí vorið 2007. Skýrsla ráðuneytisins birtist í dag...Hver man ekki eftir öllum borðaklippingunum, fréttamannafundunum og yfirlýsingunum á þingi? Vinstrihreyfingin grænt framboð lagði í kjölfar kosninganna til að tekið verði fyrir svona ráðslag með lögum. Óneitanlega gerist áleitin sú hugsun að siðleysi í íslenskum stjórnmálum kunni að vera meira en víða annars staðar. Hvað á annars að kalla ...
9. Febrúar 2008
SÚ SEM AXLAĐI PÓLITÍSKA ÁBYRGĐ

...Í Reykjavík skall hurð nærri hælum síðastliðið haust þegar nokkrir fjármálamenn voru í þann veginn að læsa klóm sínum í Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta tókst að stöðva vegna þess að Svandís Svavarsdóttir oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs svaf ekki á verðinum. Hún axlaði sína ábyrgð með sóma og þeim afleiðingum sem allir þekkja. Það tókst að koma í veg fyrir að eignum almennings yrði stolið. Því miður höfðu þá alltof margir sofið á verðinum. Þar á meðal fulltrúar Samfylkingarinnar. Þeir steinsváfu. Það skýtur því skökku við, að einmitt úr þeim herbúðum sé nú vegið að Svandísi Svavarsdóttur, hún sé búin að taka af sér boxhanskana og hafi valdið vonbrigðum. Á þessa leið mæltist Katrínu Júlíusdóttur í samtali okkar í þættinum Í vikulokin á RÚV í morgun. Svipaðar yfirlýsingar hafa heyrst frá...
7. Febrúar 2008
UTANDAGSKRÁRUMRĆĐA Á ALŢINGI UM LĆKNARITARA

...Umræðan var fróðleg um margt. Hún sýndi ákveðna pólitíska skiptingu á Alþingi. Annars vegar var Vinstrihreyfingin grænt framboð og Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sem tóku afstöðu með læknariturum, með persónuverndinni og með skattborgaranum. Hins vegar var svo einkarekstrarliðið, Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra að sjálfsögðu, Ágúst Ólafur, varaformaður Samfylkingarinnar , sem er óskaplega upptekinn af því að einkavæðing sé í lagi ef skattgreiðandinn borgar brúsann! Svo voru Frjálslyndir sem höfðu skilning á útvistun eða þannig. Óþægilegast þotti mér að hlusta á mína góðu vinkonu, Ástu R. Jóhannesdóttur, tala niður til læknaritara. Vélritunarstörf mætti...
5. Febrúar 2008
SJÁLFSTĆĐISFLOKKUR UNDIRBÝR EINKAVINAVĆĐINGU Á LANDSPÍTALA

...Formúlan er pottþétt: Skattgreiðandinn borgar. Síðan er bara spurningin um að komast í aðstöðu til að maka krókinn. Um það sér Sjálfstæðisflokkurinn. Það verður spennandi að skoða listann yfir þá sem vilja komast yfir nýjasta „útvistunarpakkann" frá LSH. Hve margir skyldu bera sjálfstæðisfálkann við brjóst sér? Eða appelsínugula merkið frá Samfylkingunni? Sá flokkur sem mælist stór nú um stundir reynist þegar á hólminn kemur vera agnarmár. Pínulítil sál sem leyfir spillingunni að hafa sinn gang með þögn sinni. Sú þögn hlýtur að vera hávær í eyrum einhverra kjósenda þess flokks...
22. Janúar 2008
FORSETI ALŢINGIS LEIĐRÉTTUR
19. Janúar 2008
HIN ŢÖGLU SVIK
15. Janúar 2008
ŢÖGLI FÉLAGINN
Birtist í Fréttablaðinu 14.01.08.
Öllum er nú að verða ljóst hvert stefnir á sviði heilbrigðismála. Sjálfstæðisflokkurinn er að komast á fullan skrið með að hrinda heilbrigðisþjónustunni út í einkarekstur. Skoðanakannanir hafa sýnt að þessi stefna nýtur ekki stuðnings þjóðarinnar. Þess vegna er beitt gamalkunnri aðferð: Við erum að gera tilraun með útvistun á starfi læknaritara, segja fulltrúar heilbrigðisráðherra á Landspítala, og að tilrauninni lokinni verður allt ferlið vegið og metið faglega og saglega. Allir vita að eftir að einkafyrirtæki verða búin að koma sér upp starfsemi með aðstöðu og mannahaldi verður illmögulegt að snúa til baka. Þetta eru sömu óheiðarlegu vinnubrögðin og endranær. Þannig er framlag til...
13. Janúar 2008
RITSTJÓRI FRÉTTABLAĐSINS BLĆS Á ŢJÓĐARSAMSTÖĐU Í ALBANÍULEIĐARA

...Í reynd er hann að segja við ríkisstjórnina: Hættið að leita eftir samstöðu með þjóðinni, þið hafið völdin, nýtið þau eftir eigin höfði. Þeir sem staðið hafa í þeirri trú að yfirvegun og víðsýni einkenni skrif Þorsteins Pálssonar þurfa að endurmeta þá afstöðu sína. Síðan er hitt umhugsunarvert, hvort þessi áhugamaður um samstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar beri einhvern kvíða í brjósti þessa dagana og sjái ástæðu til að stappa stálinu í sína menn....Hvern er verið að skamma? Væntanlega þann aðila sem helst hefur tjáð sig í þá veru sem hér er vísað til, nefnilega Seðlabanka Íslands og stjórann þar á bæ, Davíð Oddsson. Þetta kölluðu menn í gamla daga að skamma Albaníu...
12. Janúar 2008
AĐFERĐAFRĆĐIN VIĐ EINKAVĆĐINGU HEILBRIGĐISKERFISINS
Dómus hafði einfaldlega slegið lán fyrir hinu dýra tæki, þangað var síðan leitað um þjónustu, jafnvel af helstu sjúkrahúsum landsins. Málið var í höfn - á kostnað skattborgarans! ...Það sem ég er að færa rök fyrir er að sú formúla sem við höfum komið okkur upp hér á landi er kjörin til einkavæðingar ef yfirstjórn heilbrigðismála í samvinnu við fjárveitingarvaldið er á þeim buxum. Formúlan er þessi: Skattgreiðandinn borgar óháð rekstrarformum sem búa öll við sambærilega réttarstöðu. Síðan er ...
9. Janúar 2008
SJÁLFSTĆĐISFLOKKURINN BYRJAĐUR AĐ EINKAVĆĐA HEILBRIGĐISKERFIĐ
6. Janúar 2008
STÓR EN JAFNFRAMT SMÁ
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIĐ OG RÍKISSTJÓRNIN
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTĆĐIS
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓŢURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HĆKKUĐU
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEĐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EĐLISLĆG PERSÓNURÖSKUN?
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Ţorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIĐILL
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












