Stjórnmál
24. Júní 2007
TÍMAMÓT Í BRETLANDI OG ÞVERSÖGNIN BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON

Gordon Brown hefur nú tekið við af Tony Blair sem formaður Verkamannaflokksins í Bretlandi. Mér er það mjög minnisstætt þegar Tony Blair komst til valda sem forsætisráðherra Bretlands. Það var í kosningum hinn 1. maí árið 1997. Ég flutti þá ræðu á Ingólfstorgi í Reykjavík – á baráttudegi verkalýðsins - og bar ég þá saman Ísland og Bretland þess tíma...Eitt er þó breytt. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar var vitni að breytingunum 1997 og einnig nú. Það er að vísu rétt að á báðum augnablikum klappaði hann fyrir því sem var að gerast, mátti reyndar varla vatni halda af hrifningu á Blair í útvarpsviðtölum. Nú klappar sami Björgvin fyrir Brown, hinum nýja leiðtoga og segir að ...
22. Júní 2007
UMHVERFISRÁÐHERRA EÐA AÐSTOÐARMAÐUR IÐNAÐARRÁÐHERRA?
Í kvöld var okkur greint frá því í fréttum að umhverfisráðherra geti ekki fullyrt hvort eitt eða fleiri álver rísi til viðbótar þeim álverum sem nú eru fyrir í landinu. Sem kunnugt er fara fulltrúar álauðhringanna nú snuðrandi um landið og leita fyrir sér um hvar þeir geti borið niður; hvar fyrirstaðan sé minnst, hvar síst þurfi að óttast lýðræðið og hvar minnst fé þurfi að bera á fólk og samfélag. Augljóst er að víða er vesaldóminn að finna og víða liggja menn á hnjánum. Ekki átti ég þó von á því að umhverfisráðherra væri líka knékrjúpandi. Eða er 21. Júní 2007
ALCAN OG SAMFYLKINGIN UM ÁSTINA Á ÁLVERUM OG LÝÐRÆÐI

Ekki veit ég hver á metið í ótrúlegum yfirlýsingum þessa dagana Michel Jacques, forstjóri Alcans, sem belgdi sig út í fjölmiðlum og talaði niður til Íslendinga um áform auðhringsins hér á landi, bæjarstjórinn í Hafnarfirði Lúðvík Geirsson, sem Michel þessi segir hafa hvatt Alcan til að stækka álverið á landfyllingu og komast þannig framhjá lýðræðislegri niðurstöðu Hafnfirðinga eða þá forseti bæjarstjórnar og flokksbróðir Lúðvíks í Samfylkingunni, alþingismaðurinn Gunnar Svavarsson. Ég þykist geta fullyrt að almennt hafi fólk staðið agndofa frammi fyrir yfirlýsingum og framgöngu þessara aðila í fjölmiðlum í dag...
16. Júní 2007
AÐFÖR AÐ ÍBÚÐALÁNASJÓÐI
Birtist í Morgunblaðinu 15.06.07.
...Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra kveðst vera til viðræðu um þessar ábendingar því í Blaðinu 13. júní segir að hann ætli að fara yfir þessar hugmyndir: "Ráðherrann segir að gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði tekin alvarlega." Hvað á eiginlega að taka alvarlega? Á að taka alvarlega hvatningu um að takmarka umsvif Íbúðalánasjóðs svo bankarnir geti óhindrað hækkað vexti? Það er þó alla vega framför að viðurkenna að Íbúðalánasjóður haldi vöxtunum niðri – hinu gagnstæða hefur iðulega verið haldið fram. Finnst leiðarahöfundi Morgunblaðsins og viðskiptaráðherra að vextir á húsnæðislánum séu of lágir? Þeir eru núna ...
...Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra kveðst vera til viðræðu um þessar ábendingar því í Blaðinu 13. júní segir að hann ætli að fara yfir þessar hugmyndir: "Ráðherrann segir að gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði tekin alvarlega." Hvað á eiginlega að taka alvarlega? Á að taka alvarlega hvatningu um að takmarka umsvif Íbúðalánasjóðs svo bankarnir geti óhindrað hækkað vexti? Það er þó alla vega framför að viðurkenna að Íbúðalánasjóður haldi vöxtunum niðri – hinu gagnstæða hefur iðulega verið haldið fram. Finnst leiðarahöfundi Morgunblaðsins og viðskiptaráðherra að vextir á húsnæðislánum séu of lágir? Þeir eru núna ...
11. Júní 2007
VALGERÐUR VILDI EINKAVÆÐA RAFORKUGEIRANN
Í morgun var viðtal við Valgerði Sverrsidóttur, varaformann Framsóknarflokksins í RÚV. Þar var komið víða við, m.a. fjallað um einkavæðingu raforkugeirans. Valgerður kvað þjóðina ekki á því máli að einkavæða hann, sjálf hefði hún “aldrei viljað það.” ...Nú vill svo til að þessar fullyrðingar Valgerðar Sverrisdóttur standast ekki. Hún flutti sjálf frumvarp um að gera Rafmagsnveitur ríkisins að hlutafélagi og lýsti því einnig yfir afdráttarlaust að áform væru uppi um einkavæðingu raforkugeirans. Á forsíðu Morgunblaðsins 18. febrúar 2005 staðfestir hún t.d. að áform væru um að ...5. Júní 2007
Opið bréf til oddvita ríkisstjórnarflokkanna: ERU BARA TIL PENINGAR ÞEGAR VIÐSKIPTARÁÐIÐ BANKAR UPP Á?
Birtist í Morgunblaðinu 04.06.07.
Landspítalinn hefur iðulega farið fram á auknar fjárveitingar m.a. vegna endurhæfingardeildarinnar að Grensási. Oftar en ekki hafa forsvarsmenn sjúkrahússins farið bónleiðir til búðar. Nú bregður svo við að tryggingafyrirtækið Sjóvá býðst til þess að koma inn í þennan rekstur, í það minnsta að stækkun deildarinnar að því er fram hefur komið opinberlega. Þessu hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra fagnað ákaflega. Segir hann að sest verði yfir þessi mál. Prýðilegt. Ég vil leyfa mér að hvetja til ítarlegrar og málefnalegrar umræðu um þetta efni. Þar verði öllu ...
Landspítalinn hefur iðulega farið fram á auknar fjárveitingar m.a. vegna endurhæfingardeildarinnar að Grensási. Oftar en ekki hafa forsvarsmenn sjúkrahússins farið bónleiðir til búðar. Nú bregður svo við að tryggingafyrirtækið Sjóvá býðst til þess að koma inn í þennan rekstur, í það minnsta að stækkun deildarinnar að því er fram hefur komið opinberlega. Þessu hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra fagnað ákaflega. Segir hann að sest verði yfir þessi mál. Prýðilegt. Ég vil leyfa mér að hvetja til ítarlegrar og málefnalegrar umræðu um þetta efni. Þar verði öllu ...
3. Júní 2007
SAMT HRUNDU SOVÉTRÍKIN

Ágreiningur er ekki úr sögunni í þjóðfélaginu þótt fjölgað sé í stjórnarmeirihlutanum á Alþingi. Þar breytist sáralítið fyrir utan það að helsti merkisberi stjórnarandstöðunnar á þingi, VG, styrkist. Það er líka alrangt að ímynda sér, eins og forseti Íslands gefur í skyn að fjölmiðlaflóran hafi orðið kröftugri eftir daga flokksmiðlanna. Þetta er ekki rétt að mínum dómi. Auk þess ætti það að vera okkur öllum áhyggjuefni hve einsleit pólitísk öfl eiga nú og ritstýra öllum helstu fjölmiðlum landsins! ... Það má vel vera að ráðamenn á Íslandi hvort sem er í stjórnmálum, efnahagslífi eða fjölmiðlum telji sér trú um að nú geti þeir ...
1. Júní 2007
SAMFAGNAR ÖLL SAMFYLKINGIN HEILBRIGÐISRÁÐHERRA?
...Nú hafa Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin myndað ríkisstjórn og féllst Samfylkingin á að afhenda Sjálfstæðisflokknum heilbrigðisráðuneytið ásamt fjármálaráðuneyti. Og nú er kátt í ranni. Nýr heilbrigðisráðherra fagnar ákaft í Morgunblaðinu í dag. Tilefnið er að tryggingafyrirtækið Sjóvá býðst til að stækka Grensásdeild Landspítalans. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segir í Morgunblaðinu í dag að þetta sé vegna þess að fyrirtækin í landinu hafi svo mikinn áhuga á heilbrigði landsmanna. "Síðan eru það fyrirtækin í landinu sem hafa svo sannarlega alla hagsmuni af því að heilbrigði þjóðarinnar sé sem best og ég fagna að ...1. Júní 2007
MORGUNBLAÐIÐ Í ANDSTÖÐU VIÐ STJÓRNARANDSTÖÐU

Athyglisvert er hve mjög leiðarahöfundur Morgunblaðsins er upptekinn við að grafa undan stjórnarandstöðunni og þá einkum Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Í leiðara eftir leiðara er fjargviðrast út í forystu VG og þess nánast krafist að hún hypji sig. Þetta er ósmekklegt en skiljanlegt þegar málið er skoðað í víðara pólitísku samhengi. Við völd í landinu er nú ríkisstjórn sem hefur uppi ýmsa hægri sinnaða frjálshyggjutilburði. Þeir tilburðir njóta velvildar á ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins. Þar er nú ákaft talað fyrir víðtækri sátt í samfélaginu og að sú sátt muni án efa myndast ef ekki væri fyrir vinstri áherslur VG. Og í framhaldi krefst Morgunblaðið þess að...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












