Stjórnmál
29. Apríl 2007
FRAMSÓKNARFLOKKURINN BRÝTUR BLAÐ Í AUGLÝSINGAMENNSKU

Framsóknarflokkurinn auglýsir nú ágæti sitt af miklu kappi og hvetur landsmenn til að kjósa flokkinn í komandi kosningum. Þetta gera aðrir flokkar einnig. En Framsóknarflokkurinn sker sig úr að tvennu leyti. Í fyrsta lagi ríður hann á vaðið með að innleiða auglýsingar sem hafa það að markmiði að skrumskæla andstæðinga flokksins, gera lítið úr þeim persónulega og afbaka málflutning þeirra. Þetta er þekkt úr bandarískri stjórnmálabaráttu. Vestanhafs hefur þetta sætt gagnrýni sómakærs fólks og hér á landi hefur til þessa enginn viljað leggja nafn sitt við slíka lágkúru. Þar til Framsóknarflokkurinn gerir það nú. Af þessu tilefni vil ég votta forsvarsfólki flokksins...
26. Apríl 2007
VILL SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN EKKI LÆRA AF REYNSLUNNI?
Birtist í Morgunblaðinu 25.04.07
...Í tímaritinu Verktækni sem samtök verkfræðinga gefa út er að finna afar athyglisverða umfjöllun um danska skýrslu sem segir markaðsvæðingu raforkugeirans hafa verið "fíaskó" fyrir notendur. Verð hafi hækkað um þriðjung, fyrirtækjum á markaði hafi fækkað með tilheyrandi fákeppni. Í tímariti verkfræðinga er rakið hvernig ...Ef það er nú svo að færa eigi heilbrigðiskerfið inn á markaðstorgið í ríkari mæli en verið hefur verða menn að svara spurningum á borð við þessar:
1)Yrði það betra fyrir notendur þjónustunnar, það er að segja alla notendur, ekki einhverja útvalda?
2) Yrði það betra fyrir greiðendur þjónustunnar, hvort sem um væri að ræða sjúklinginn sjálfan eða skattgreiðendur almennt.
3) Yrði það betra fyrir starfsmenn almennt, ekki útvalda starfsmenn, heldur alla starfsmenn?...
...Í tímaritinu Verktækni sem samtök verkfræðinga gefa út er að finna afar athyglisverða umfjöllun um danska skýrslu sem segir markaðsvæðingu raforkugeirans hafa verið "fíaskó" fyrir notendur. Verð hafi hækkað um þriðjung, fyrirtækjum á markaði hafi fækkað með tilheyrandi fákeppni. Í tímariti verkfræðinga er rakið hvernig ...Ef það er nú svo að færa eigi heilbrigðiskerfið inn á markaðstorgið í ríkari mæli en verið hefur verða menn að svara spurningum á borð við þessar:
1)Yrði það betra fyrir notendur þjónustunnar, það er að segja alla notendur, ekki einhverja útvalda?
2) Yrði það betra fyrir greiðendur þjónustunnar, hvort sem um væri að ræða sjúklinginn sjálfan eða skattgreiðendur almennt.
3) Yrði það betra fyrir starfsmenn almennt, ekki útvalda starfsmenn, heldur alla starfsmenn?...
26. Apríl 2007
ÓSKAÐ EFTIR STUÐNINGI Í FJARÐARPÓSTI

...Kjördæmið tekur til Hafnarfjarðar, Kópavogs, Garðabæjar, Álftaness og Seltjarnarness. Nokkur blöð eru gefin út í kjördæminu og höfum sent inn greinar þar sem við hvetjum kjósendur að veita okkur brautargengi í komandi kosningum. Í Fjarðarpóstinum sem út kom í vikunni var að finna slíkar hvatningargreinar frmabjóðenda VG...
25. Apríl 2007
VATNIÐ, FRELSIÐ OG BARÁTTUKRAFTURINN

Í umræðuþætti á Stöð 2 í kvöld minnti Kolbrún Halldórsdóttir, oddviti okkar Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi suður, á eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar þegar til framtíðar er litið: Eignarhald á vatni...Katrín Jakobsdóttir, oddviti VG í Reykjavík norður átti orð kosningabaráttunnar til þessa í umræðuþætti í Kastljósi RÚV í gær. Umræðan fjallaði um menntamál. Fram kom hve víða sýn Katrín hefur á menntamálin eins og reyndar á þjóðmálin almennt. Hún talaði fyrir fjölbreytni í menntakerfinu, nýsköpun og framförum...Ekki verður það sagt um Guðfríði Lilju Grétarsdóttur að hún sé á nokkurn hátt mótsagnakennd! Hún er gegnheil, sjálfri sér samkvæm í öllu og frábær samstarfskona. Ég heimsótti nokkra vinnustaði í dag – suma með Guðfríði Lilju en saman skipum við tvö efstu sætin í Kraganum sem svo er nefndur. Ég fann hve mjög fólk hreifst af málflutningi Guðfríðar Lilju. Fólk finnur baráttukraft hennar og heilindi. Þess vegna er ég bjartsýnn á að kjósendur í Hafnarfirði, Kópavogi, Álftanesi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi – það er að segja kjósendur í Kraganum...
24. Apríl 2007
MISVÍSANDI UMMÆLI RÍKISSTJÓRNARINNAR UM GEÐHEILBRIGÐISMÁL

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem lýst er fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni vegna þess alvarlega ástands sem skapast hefur í málefnum geðfatlaðra barna og unglinga. Hátt í tvö hundruð börn og unglingar eru á biðlistum hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og segja forsvarsmenn deildarinnar að ástandið hafi aldrei verið verra. Foreldrar segja að ástandinu megi líkja við að vera haldið í gíslingu. Staðhæfingar ríkisstjórnarinnar um að þegar hafi verið gripið til aðgerða til að bæta ástandið er ekkert annað en kattaþvottur og eru yfirlýsingar Geirs H. Haarde, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, í útvarpsviðtali í morgun misvísandi og afvegaleiðandi . Forsætisráðherra segir að Barna- og geðdeild Landspítalans verði stækkuð...
20. Apríl 2007
20 ÁRA ÓSLITIN VALDASETA – ÞAÐ MÁ EKKI VERÐA

... Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú setið að völdum í 16 ár samfleytt. Framsóknarflokkurinn hefur setið við kjötkatlana – þannig er stjórnarsetu þess flokks best lýst – í 12 ár. Vill þjóðin meira? Vilja menn enn eitt kjörtímabilið? Vilja menn 20 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins? Væri það hollt fyrir lýðræðið í landinu? Væri það hollt fyrir íslenskt samfélag? Skoðanakannanir að undanförnu gefa þær hrikalegu vísbendingar að ríkisstjórnin kunni að halda velli. Með enn sterkari Sjálfstæðisflokki en veikari Framsókn – nánast komin í göngugrindina svo gripið sé til orðfæris lesenda hér á síðunni. Hvers konar ríkisstjórn yrði þetta? Enn grimmara Íhald ...
18. Apríl 2007
TRYGGJUM GUÐFRÍÐI LILJU GRÉTARSDÓTTUR ÞINGSÆTI !
Í dag var birt á Stöð 2 skoðanakönnum úr Suðvestur-kjördæmi, Kraganum svokallaða. Samkvæmt könnuninni fengi Vinstrihreyfingin grænt framboð 17,4% atkvæða og tvö þingsæti í kjördæminu. Þetta væri þreföldun á fylgi frá kosningunum 2003! Annar þingmaður VG á framboðslistanum stæði engu að síður naumt sem kjördæmakjörinn þingmaður. Minna mætti fylgið ekki vera til að hin galvaska skákdrottning Íslands, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, næði kjöri. Hún yrði að mínu mati einhver öflugasti nýliðinn á Alþingi – og ekki aðeins nýliði, einhver öflugasti þingmaðurinn - ef svo færi að hún næði kjöri. Guðfríður Lilja yrði kröftugur merkisberi velferðar, jafnaðar og kvenfrelsistefnu, sjálfbærrar atvinnu- og umhverfisstefnu auk þess sem hún er einstaklega vel að sér í alþjóðamálum. Þess vegna segi ég af ...16. Apríl 2007
UM TRÚVERÐUGLEIKA STJÓRNMÁLAFRÆÐINGA
Nú reynir heldur betur á stjórnmálafræðingana og félagsfræðingana í háskólum landsins. Þeim verður tíðrætt um trúverðugleika stjórnmálamanna. Stjórnmálamönnum verður hins vegar tíðrætt um trúverðugleika stjórnmálafræðinga. ... Í RÚV skilgreindi Baldur Þórhallsson, kennari í HÍ, vinstri kantinn í stjórnmálum. VG stendur sig vel að hans mati vegna þess að Samfylkingin léði flokknum trúverðugleika. Þetta reyndi hann að styðja sögulegum skýringum frá síðustu öld. ... söguskýring hans kolröng ... Hlutverk stjórnmálafræðinga hlýtur að vera að skoða það sem nú er og þá ekki síður það sem framundan er. Eitt lítið atriði til viðbótar. Baldur Þórhallsson virtist óskaplega kátur yfir því að formaður Samfylkingarinnar skyldi hafa agnúast út í VG. Þetta var að hans mati stefnubreyting sem gæti haft mikilvæga pólitíska ... Síðan mætti halda áfram með aðra spekúlanta úr stjórnmálafræðinni. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor á Bifröst vildi gifta Sjálfstæðisflokk og ...14. Apríl 2007
SÉRRÉTTINDALÖGIN Á LEIÐINNI ÚT?

Það gladdi mig að heyra að Samfylkingin vill nú afnema hið alræmda lífeyrisfrumvarp þeirra Davíðs og Halldórs um sérréttindakjör alþingismönnum og þingmönnum til hagsbóta. Í vetur voru uppi tilburðir um að láta frumvarpið ganga undir lýtaaðgerð. Á það vildi ég ekki fallast og sagði einfaldlega BURT MEÐ LÖGIN.
Eftirfarandi er úr ræðu minni um þetta frumvarp þegar það kom fyrir Alþingi til afgeiðslu: …"Það er vissulega mikilvægt verkefni að taka lífeyrisréttindi alþingismanna og ráðherra til endurskoðunar og á þeim tímapunkti stöndum við. Nú er spurningin í hvaða átt menn vilja halda, áfram eða aftur á bak. Í því frv. sem hér liggur fyrir felst yfirlýsing um það að í stað þess að halda inn í framtíðina er stefnan tekin í afturhaldsátt. Þetta frv. er tímaskekkja, minjar um kerfi misskiptingar og sérréttinda. Í ríkjum austan tjalds birtust forréttindi valdastéttanna m.a. í svokölluðum dollarabúðum. Þar versluðu menn á sérkjörum. Þetta frv. er dollarabúð íslenska lífeyriskerfisins.
Það er alveg rétt sem sagt hefur verið að ...
13. Apríl 2007
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN HEYKIST Á AÐ TALA SKÝRT OG MÁLEFNALEGA
...Er ekki kominn tími til að stjórnmálamenn tali 12. Apríl 2007
MEIRIHLUTI ANDVÍGUR VIRKJUNUM Í ÞJÓRSÁ: HVAÐ ÞÝÐIR ÞAÐ?

Könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Stöð 2 sýnir að meirihluti Sunnlendinga er andvígur virkjunum í syðri hluta Þjórsár. Þetta eru athyglisverðar upplýsingar og mjög líklega vísbending um almennan vilja í þjóðfélaginu. Hvaða ályktanir er rétt að draga af þessu? Jú, nefnilega þær að öllum frekari ákvörðunum um virkjanir í Þjórsá væri rétt að fresta fram yfir kosningar og láta nýrri ríkisstjórn eftir alla frekari stefnumótun í sviði virkjana og stóriðjuframkvæmda.
Landsvirkjun er ekki ríki í ríkinu. Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar og á að lúta forræði hennar. Svona er það alla vega ennþá og vonandi um ókomin ár. Sjálfstæðisflokkurinn er með áform um að ...
10. Apríl 2007
BÆTUM KJÖRIN – BURT MEÐ FÁTÆKT !

Fyrirsögnin hér að ofan er yfirskrift yfirlýsingar sem Vinstrihreyfingin grænt framboð kynnti á fréttamannafundi í dag um forgangsverkefni sem býður komandi ríkisstjórnar fáum við í VG einhverju um ráðið. Ásamt mér kynntu áætlunina þau Álfheiður Ingadóttir, Gestur Svavarsson og Steinunn Þóra Árnadóttir. Í inngangi skjalsins segir: "Misrétti hefur aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum. Á sama tíma og margir hafa auðgast verulega og enn aðrir búa við góð lífskjör er vaxandi hópur settur hjá. Fátækt á ekki að líða í íslensku samfélagi og leggur Vinstrihreyfingin grænt framboð höfuðáherslu á að bæta og jafna kjörin og útrýma fátækt. Auka þarf ráðstöfunartekjur hinna tekjulægstu og taka til gagngerrar endurskoðunar samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og skatta. Það er hlutverk velferðarsamfélagsins að tryggja jöfnuð. Þess vegna leggur Vinstrihreyfingin grænt framboð áherslu á gjaldfrjálsa velferðarþjónustu, aðgengilega landsmönnum öllum."...
9. Apríl 2007
AÐGERÐAÁÆTLUN GEGN FÁTÆKT
...Ljóst er að tvennt þarf að gerast í senn, bæta þarf tekjur lágtekjuhópa og draga úr gjaldtöku í velferðarkerfinu.Vinstrihreyfingin grænt framboð boðar til fundar með fréttamönnum þriðjudaginn 10. apríl klukkan 16 í Kragakaffi en svo nefnum við kosningamiðstöð okkar í Hamraborg í Kópavogi. Þar verður kynnt aðgerðaáætlun VG um hvernig flokkurinn hyggst standa að því að bæta kjör lágtekjufólks og útrýma fátækt í landinu. Að lokinni kynningunni sem fram fer undir yfirskriftinni, BÆTUM KJÖRIN – BURT MEÐ FÁTÆKT , verður ...7. Apríl 2007
FRAMSÓKNARFRÉTTIR Í RÚV

... Auðvitað eru takmörk fyrir því hvað fólk hefur lengi þolinmæði fyrir fréttastofu sem kallar á Halldór Ásgrímsson í viðtal og setur í fréttatíma – þá væntanlega sem sérstaklega fréttnæmt - það mat hans að Framsóknarflokkurinn eigi eftir að sækja í sig veðrið en VG að dala, enda sé VG loftbóla sem eigi eftir að springa! Hvenær á að ræða við alla hina diplómatana? Er búið að leita til Svavars Gestssonar? Það stendur að sjálfsögðu ekkert til. Nei, fyrst er það Halldór Ásgrímsson, síðan kemur
5. Apríl 2007
KOSNINGABARÁTTA AÐ KOMAST Á FULLAN DAMP !
...Allt þetta og meira til mun koma til umfjöllunar og umræðu í kosningabaráttunni sem nú er að komast á fullan damp. Þar stendur í stafni okkar vinstri grænna á þéttbýlissvæðinu á suð-vesturhorninu...4. Apríl 2007
MEIRA MISRÉTTI Í EINKAVÆDDRI ALMANNAÞJÓNUSTU
Óhætt er að segja að Margrét Pála Ólafsdóttir hafi kveikt umræðu í Silfri Egils um síðustu helgi en þar talaði hún fyrir einkarekstri velferðarþjónustunnar. Með því móti mætti frelsa konur undan því oki að vera “vinnukonur” karla eins og nú væri raunin á og einnig bæta hlutskipti þeirra í kjaralegu tilliti. Ég skrifaði pistil um þetta efni hér á síðuna (sbr. HÉR) þar sem ég lýsti gagnstæðum sjónarmiðum. Á vefritinu Múrnum birtist afar athyglisverð grein um þetta efni. Ég birti hana hér að neðan með leyfi höfundar, Berglindar Rósar Magnúsdóttur. Í grein sinni segir Berglind Rós m.a.: “Þetta er ekki skrifað til höfuðs því farsæla starfi sem Margrét Pála hefur staðið fyrir í skólamálum, en hún þróaði einmitt stefnu sína innan almenningsleikskólakerfisins fyrir allmörgum árum, heldur til að vara við því viðhorfi að leysa megi konur úr fjötrum kynbundins launamunar með tæknibrellum. Ef marka má þróunina í BNA er ekkert sem bendir til þess að einkarekstur muni framkalla byltingu í launum kvenna heldur fyrst og fremst aukið launabil innan...
3. Apríl 2007
ENDURNÝJUN OG KRAFTUR Í VG !

Að undanförnu hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð efnt til funda víðs vegar um landið með fulltrúum af framboðslistum flokksins. Frummælendur á fundunum hafa verið frambjóðendur í öðru og þriðja sæti listanna. Einn slíkur fundur var haldinn í gær í Hafnarfirði. Þar töluðu Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (sem skipar 2. sæti VG í Suðvesturkjördæmi), Gestur Svavarsson (sem skipar 3. sæti VG í Suðvesturkjördæmi og Ragnheiður Eiríksdóttir (sem skipar 3. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi). Erindi þeirra voru...Það sem lifir með mér eftir þennan fund er sá mikli endurnýjunarkraftur sem býr í Vinstrihreyfingunni grænu framboði. Það er uppörvandi að hlusta á nýtt fólk – það á við einstaklinga á öllum aldri – sem eru að...
2. Apríl 2007
UM VINNUKONUR OG VINNUMENN
...Reyndar fór því fjarri í Silfri Egils í gær. Þar fór Margrét Pála mikinn og talaði ákaft fyrir einkavæðingu velferðarþjónustunnar. Þá myndi allt gerast í senn: Hægt væri að virkja sköpunarkraftinn í starfsfólkinu, kjörin myndu batna, sérstaklega kvenna sem þar með hættu að vera vinnukonur karla. Það eru þær nefnilega segir Margrét Pála, þær eru vinnukonur karlanna. Þær fóru út af heimilunum, segir hún, til að þjóna körlum áfram sem vinnukonur í skólum og á sjúkrastofnunum. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, samferðarkona mín í VG, sem þátt tók í umræðunum, benti á að málið væri flóknara en þetta og varaði við einkavæðingar patentlausnum af þessu tagi. Sama verður ekki sagt um Kristrúnu Heimisdóttur. Svo var að skilja að þarna væri stefnu Samfylkingarinnar vel lýst. Eitthvað annað en afturhaldsrausið í mönnum á borð við ...
2. Apríl 2007
VIÐSKIPTABLAÐIÐ

Fyrir fáeinum dögum mátti heyra auglýsingar frá Viðskiptablaðinu þar sem spurt var hvort ætla mætti að bankarnir verði fluttir úr landi! Hlustendum var bent á að lesa viðtal við mig í helgarútgáfu blaðsins ef þeir vildu ganga úr skugga um ásetning
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLÆTI
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIÐ VONBRIGÐUM!
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGÐ Í MUNNINN
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓÐ KVEÐJA
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
Jón Jón Jónsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












