Stjórnmál
28. Desember 2007
GÆFULJÓS YFIR HAFNARFIRÐI

Hafnfirðingar hafa nú sagt að þeir vilji öðlast hlut í Orkuveitu Reykjavíkur og ganga þar með til samstarfs við OR í orkumálum. Með þessu eru Hafnfirðingar að leggja áherslu á að þeir vilji að orkumál verði algerlega á hendi opinberra aðila og er það pólitísk afstaða sem VG og Samfylking sameinast um. Þetta er að mínum dómi mikilvæg ákvörðun og vonandi vegvísir inn í framtíðina.
Vonandi mun Samfylkingin í Hafnarfirði íhuga stuðning við tillögur sem Guðrún Ágústa hefur borið fram fyrir hönd VG í Hafnarfirði um umfangsmiklar úrbætur á sviði velferðar-, skipulags- og umhverfismála. Samfylkingin í Hafnarfirði hefur nú samþykkt...
22. Desember 2007
MENNTAMÁLARÁÐHERRA: SJÁLFSTÆÐISMENN KUNNA AÐ EINKAVÆÐA!

...En á meðal annarra orða, hvað er það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert svona afskaplega vel? Er Þorgerður Katrín að tala um sölu SR-mjöls; hneykslið sem hlaut áfellisdóm Ríkisendurskoðunar? Eða er hún að tala um einkavinavæðingu ríkisbankanna eða sölu Pósts og síma? Er kannski verið að tala um nýjasta afrekið, Þróunarfélagið á Keflavíkurflugvelli, þar sem margt bendir til að stórfelld spilling sé til staðar, jafnvel hrein og klár lögbrot? Þar stýrir Sjálfstæðisflokkurinn vissulega för. Hann kann þetta segir varaformaður Sjálfstæðisflokksins! Og Samfylkingin fær klapp á kollinn, námsfús nemandi í Stjórnarráðinu í læri hjá hinum kunnáttusama kennara. Skyldu kjósendur Samfylkingarinnar vera ...
16. Desember 2007
PERSÓNUR OG PÓLITÍK

...Ég hef sannfæringu fyrir því að kröfur um frekari samdrátt séu sjúkrahúsinu beinlínis hættulegar, auk þess sem ég hef fært fyrir því rök að áframhaldandi niðurskurður sé til þess fallinn að knýja heilbrigðiskerfið út í einkarekstur. Við lok umræðunnar á Alþingi - undir þinglokin - óskaði ég eftir því að forsætisráðherra svaraði fyrir stefnu stjórnarinnar í þessum efnum. Lítið var á svörum hans að græða. Hann sakaði mig um útúrsnúninga og kvað ummæli mín um störf framkvæmdastjóra SA á Landsspítalanum vera einkar ósmekkleg án þess þó að færa fyrir því málefnaleg rök. Röksemdum mínum svaraði hann ekki . Lét nægja að beina að mér ásökunum.
Hvað Vilhjálm Egilsson áhrærir, kvaðst ég þekkja hann sem...
14. Desember 2007
SÖGULEG ÞINGLOK

Þinglokin voru söguleg að því leyti að í fyrsta sinn frá því ég kom á Alþingi um miðjan tíunda áratuginn neitar stjórnarmeirihlutinn að taka nokkuð tillit til stjórnarandstöðu. Þannig hafði VG beint þeim tilmælum til oddvita ríkisstjórnarflokkanna - og þá fyrst og fremst til forsætisráðherrans - að til endurskoðunar yrði sú ákvörðun að heimila heilbrigðisráðherra að ráða til starfa forstjóra nýrrar söluskrifstofu heilbrigðismála á grundvelli bráðabirgðaákvæðis í lögum um almannatryggingar...
12. Desember 2007
ÞINGSKAPAMEIRIHLUTINN Á ALÞINGI

Fáheyrt er að reynt sé að gera viðamiklar breytingar á þingskapalögum gegn mótmælum stærsta stjórnarandstöðuflokksins. VG hefur margítrekað lýst vilja til breytinga á þingskapalögum og lagt fram hugmyndir þess efnis, en jafnframt óskað eftir því að þingið gefi sér rúman tíma til að ná niðurstöðu... Á þetta hefur hinn nýi þingskapameirihluti ríkisstjórnarflokkanna, Framsóknarflokks og Frjálslyndra ekki fallist og tekið höndum saman um að þvinga málið í gegn með hraði. Öllum frekari viðræðum um útfærslur á frumvarpinu var afdráttarlaust hafnað á fundi allsherjarnefndar í kvöld...
9. Desember 2007
KANKAST Á MEÐAN HEILBRIÐGÐISKERFINU BLÆÐIR ÚT

...Svo var að skilja að helsti vandi íslenskra stjórnmála væri hve Vinstrihreyfingunni grænu framboði væru mislagðar hendur. Öðru máli gegndi um ríkisstjórnina. Þar væri alveg sérstaklega gott andrúmsloft enda hefði tekist náið samband með formönnum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar. Agnesi þótti það krúttlegt að sjá þau hvíslast á Geir og Ingibjörgu Sólrúnu á Morgunblaðsmynd í vikunni sem leið... Agnes Bragadóttir og Egill Helgason vilja að Jón Bjarnason þegi... En skyldu þau sem eiga allt sitt undir góðu heilbrigðiskerfi vilja þögn? Skyldi heilbrigðisstarfsfólk vilja láta þagga niður í Jóni Bjarnasyni og öðrum sem setja fram rökstudda gagnrýni og krefjast úrbóta...
4. Desember 2007
SEINHEPPINN KRISTINN
Birtist í Fréttablaðinu 3. des. 2007
„Hér er mikill ys og þys út af litlu tilefni,“ sagði Kristinn H. Gunnarsson, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins við umræður á Alþingi um ný þingskaparlög sem gera ráð fyrir því að horfið verði frá ótakmarkaðri umræðu við aðra og þriðju umræðu um lagafrumvörp. Fyrir sitt leyti hafði þingflokkur VG minnt á að á undanförnum tveimur áratugum hefði einvörðungu orðið verulega löng umræða um EES samninginn, sem ýmsir töldu að stæðist ekki stjórnarskrá Íslands, Kárahnjúkavirkjun, vatnalögin, einkarekinn upplýsingagrunn um heilsufarsupplýsingar, einkavæðingu Landsímans og hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins...
„Hér er mikill ys og þys út af litlu tilefni,“ sagði Kristinn H. Gunnarsson, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins við umræður á Alþingi um ný þingskaparlög sem gera ráð fyrir því að horfið verði frá ótakmarkaðri umræðu við aðra og þriðju umræðu um lagafrumvörp. Fyrir sitt leyti hafði þingflokkur VG minnt á að á undanförnum tveimur áratugum hefði einvörðungu orðið verulega löng umræða um EES samninginn, sem ýmsir töldu að stæðist ekki stjórnarskrá Íslands, Kárahnjúkavirkjun, vatnalögin, einkarekinn upplýsingagrunn um heilsufarsupplýsingar, einkavæðingu Landsímans og hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins...3. Desember 2007
FORRRÆÐISHYGGJU Á ALÞINGI ANDMÆLT

Ekki hefur það gerst í langan tíma að reynt sé að knýja fram breytingar á þingskaparlögum í blóra við þingflokk á Alþingi... Stjórnarmeirihlutinn hefur í ræðum á þingi um hið nýja frumvarp haft á orði að það sé stjórnarandstöðunni fyrir bestu að kyngja skertu málfrelsi og minna athagfnafrelsi í þinginu. „Umhyggja“ af þessu tagi kallast forræðishyggja og er ekki til eftirbreytni, ekki síst þegar um er að ræða reglur sem gilda eiga um lýðræðið... Í dag efndi þingflokkur VG til fundar með fréttamönnum til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












