Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

28. Desember 2007

GÆFULJÓS YFIR HAFNARFIRÐI

flugeldar1
Hafnfirðingar hafa nú sagt að þeir vilji öðlast hlut í Orkuveitu Reykjavíkur og ganga þar með til samstarfs við OR í orkumálum. Með þessu eru Hafnfirðingar að leggja áherslu á að þeir vilji að orkumál verði algerlega á hendi opinberra aðila og er það pólitísk afstaða sem VG og Samfylking sameinast um. Þetta er að mínum dómi mikilvæg ákvörðun og vonandi vegvísir inn í framtíðina.
Vonandi mun Samfylkingin í Hafnarfirði íhuga stuðning við tillögur sem Guðrún Ágústa hefur borið fram fyrir hönd VG í Hafnarfirði um umfangsmiklar úrbætur á sviði velferðar-, skipulags- og umhverfismála. Samfylkingin í Hafnarfirði hefur nú samþykkt...

22. Desember 2007

MENNTAMÁLARÁÐHERRA: SJÁLFSTÆÐISMENN KUNNA AÐ EINKAVÆÐA!


...
En á meðal annarra orða, hvað er það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert svona afskaplega vel? Er Þorgerður Katrín að tala um sölu SR-mjöls; hneykslið sem hlaut áfellisdóm Ríkisendurskoðunar? Eða er hún að tala um einkavinavæðingu ríkisbankanna eða sölu Pósts og síma? Er kannski verið að tala um nýjasta afrekið, Þróunarfélagið á Keflavíkurflugvelli, þar sem margt bendir til að stórfelld spilling sé til staðar, jafnvel hrein og klár lögbrot? Þar stýrir Sjálfstæðisflokkurinn vissulega  för.  Hann kann þetta segir varaformaður  Sjálfstæðisflokksins! Og Samfylkingin fær klapp á kollinn, námsfús  nemandi í Stjórnarráðinu í læri hjá hinum kunnáttusama kennara. Skyldu kjósendur Samfylkingarinnar vera ...

16. Desember 2007

PERSÓNUR OG PÓLITÍK


...Ég  hef sannfæringu fyrir því að kröfur um frekari samdrátt séu sjúkrahúsinu beinlínis hættulegar, auk þess sem ég hef fært fyrir því rök að áframhaldandi niðurskurður sé til þess fallinn að knýja heilbrigðiskerfið út í einkarekstur. Við lok umræðunnar á Alþingi - undir þinglokin - óskaði ég eftir því að forsætisráðherra svaraði fyrir stefnu stjórnarinnar í þessum efnum.  Lítið var á svörum hans að græða. Hann sakaði mig  um útúrsnúninga og kvað ummæli mín um störf framkvæmdastjóra SA á Landsspítalanum  vera einkar ósmekkleg án þess þó að færa fyrir því málefnaleg rök.  Röksemdum mínum svaraði hann ekki . Lét nægja að beina að mér ásökunum.
Hvað Vilhjálm Egilsson áhrærir, kvaðst ég þekkja hann sem...

14. Desember 2007

SÖGULEG ÞINGLOK


Þinglokin voru söguleg að því leyti að í fyrsta sinn frá því ég kom á Alþingi um miðjan tíunda áratuginn neitar stjórnarmeirihlutinn að taka nokkuð tillit til stjórnarandstöðu. Þannig hafði VG beint þeim tilmælum til oddvita ríkisstjórnarflokkanna - og þá fyrst og fremst til forsætisráðherrans - að til endurskoðunar yrði sú ákvörðun að heimila heilbrigðisráðherra  að ráða til starfa  forstjóra nýrrar söluskrifstofu heilbrigðismála á grundvelli bráðabirgðaákvæðis í lögum um almannatryggingar...

12. Desember 2007

ÞINGSKAPAMEIRIHLUTINN Á ALÞINGI


Fáheyrt er að reynt sé að gera viðamiklar breytingar á þingskapalögum gegn mótmælum stærsta stjórnarandstöðuflokksins. VG hefur margítrekað lýst vilja til breytinga á þingskapalögum og lagt fram hugmyndir þess efnis, en jafnframt óskað eftir því að þingið gefi sér rúman tíma til að ná niðurstöðu... Á þetta hefur hinn nýi þingskapameirihluti ríkisstjórnarflokkanna, Framsóknarflokks og Frjálslyndra ekki fallist og tekið höndum saman um að þvinga málið í gegn með hraði. Öllum frekari viðræðum um útfærslur á frumvarpinu var afdráttarlaust hafnað á fundi allsherjarnefndar í kvöld...

9. Desember 2007

KANKAST Á MEÐAN HEILBRIÐGÐISKERFINU BLÆÐIR ÚT


...Svo var að skilja að helsti vandi íslenskra stjórnmála væri hve Vinstrihreyfingunni grænu framboði væru mislagðar hendur. Öðru máli gegndi um ríkisstjórnina. Þar væri alveg sérstaklega gott andrúmsloft enda hefði tekist náið samband með formönnum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar. Agnesi þótti það krúttlegt að sjá þau hvíslast á Geir og Ingibjörgu Sólrúnu á Morgunblaðsmynd í vikunni sem leið... Agnes Bragadóttir og Egill Helgason vilja að Jón Bjarnason þegi... En skyldu þau sem eiga allt sitt undir góðu heilbrigðiskerfi vilja þögn? Skyldi heilbrigðisstarfsfólk vilja láta þagga niður í Jóni Bjarnasyni og öðrum sem setja fram rökstudda gagnrýni og krefjast úrbóta...

4. Desember 2007

SEINHEPPINN KRISTINN

Birtist í Fréttablaðinu 3. des. 2007
„Hér er mikill ys og þys út af litlu tilefni,“ sagði Kristinn H. Gunnarsson, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins við umræður á Alþingi um ný þingskaparlög sem gera ráð fyrir því að horfið verði frá ótakmarkaðri umræðu við aðra og þriðju umræðu um lagafrumvörp. Fyrir sitt leyti hafði þingflokkur VG minnt á að á undanförnum tveimur áratugum hefði einvörðungu orðið verulega löng umræða um EES samninginn, sem ýmsir töldu að stæðist ekki stjórnarskrá Íslands, Kárahnjúkavirkjun, vatnalögin, einkarekinn upplýsingagrunn um heilsufarsupplýsingar, einkavæðingu Landsímans og hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins...

3. Desember 2007

FORRRÆÐISHYGGJU Á ALÞINGI ANDMÆLT


Ekki hefur það gerst í langan tíma að reynt sé að knýja fram breytingar á þingskaparlögum í blóra við þingflokk á Alþingi... Stjórnarmeirihlutinn hefur í ræðum á þingi um hið nýja frumvarp haft á orði að það sé stjórnarandstöðunni fyrir bestu að kyngja skertu málfrelsi og minna athagfnafrelsi í þinginu. „Umhyggja“ af þessu tagi kallast forræðishyggja og er ekki til eftirbreytni, ekki síst þegar um er að ræða reglur sem gilda eiga um lýðræðið... Í dag efndi þingflokkur VG til fundar með fréttamönnum til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri...

29. Nóvember 2007

SAMFYLKINGIN: AGNARSMÁ


Mest undrast ég þó hvað þessi flokkur er undarlega fljótur að söðla um í skoðunum og afstöðu. Virðist alls ekki hafa átt erfitt með að fylgja Íhaldinu inn á braut einkavæðingarinnar. Jafnvel í heilbrigðiskerfinu! Ef til vill var þetta alltaf huganum kærast... Þannig flögrar hin lífsglaða Samfylking frá einni sannfæringu til annarrar. Allt eftir því hvað passar hverju sinni. Þetta má kalla að vera léttur á hinum pólitíska fæti, að eiga auðvelt með að söðla um. Sennilega er enginn vandi að gera það, ef menn eru smáir í sér, fisléttir...

3. Nóvember 2007

GOTT HJÁ VALGERÐI

Birtist í Fréttablaðinu 2.11.07
Valgerður Bjarnadóttir er komin inn á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Samfylkinguna. Hún er ein þeirra sem gagnrýnt hafa Eftirlaunafrumvarpið illræmda sem skammtaði  æðstu embættismönnum ríkisins, alþingismönnum og síðast en ekki síst ráðherrum lífeyrisréttindi langt umfram það sem almenningur í landinu býr við. Þessi lög voru gagnrýnd harðlega á sínum tíma og á Alþingi fékk frumvarpið þá einkunn af hálfu undirritaðs, að verið væri að búa til „dollarabúð lífeyrisréttinda“  og var þar skírskotað til aðstæðna, sem sovéskur forréttindaaðall bjó við með aðgangi að sérstökum dollarabúðum...

23. Október 2007

ALMENNINGI GEFIÐ LANGT NEF

Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy, gefur lítið fyrir þennan hóp og þar með lýðræðið. Enda þótt ljóst sé að meirihluti sé fyrir því í borgarstjórn Reykjavíkur að rifta beri þeim siðlausu baktjaldasamningum sem gerðir voru í tengslum við og í framhaldi af "sameiningu" Geysis Green Energy og REI, segir forstjórinn að búið sé að skrifa undir samninga og að menn muni halda sínu striki í samrunaferlinu... Hér talar forstjórinn þvert á lýðræðislegan vilja. Það er ekki nóg með að hann gefi með þessum ummælum nýmynduðum meirihluta langt nef. Hann gefur þorra borgarfulltrúa langt nef því þverpólitískur vilji er greinilega fyrir því...

21. Október 2007

AÐ HORFAST Í AUGU VIÐ AFLEIÐINGAR EIGIN VERKA

...Hvers vegna skyldum við sem barist höfum gegn einkavæðingarstefnu Sjálfstæðisflokksins hafa gert það? Við höfum einfaldlega viljað vernda almannahag gegn ágangi fjármagnsins. Við höfum viljað koma í veg fyrir að peningamenn sem stjórnast af skammtíma eiginhagsmunum fengju ráðið lögum og lofum í íslensku þjóðfélagi. Okkar barátta hefur þannig verið barátta fyrir lýðræði. Við höfum viljað búa í fjölþátta lýðræðisþjóðfélagi með blönduðu hagkerfi en ekki þjóðfélagi sem í einu og öllu lýtur valdi auðsins. Hvað röksemdirnar áhrærir þá er það umhugsunarvert að þeir þættir sem Halldór Blöndal nefnir í grein sinni, eftir að lýkur lofgjörð hans um Davíð Oddsson og félaga, eru nákvæmlega sömu rök og við höfum haldið fram í málafylgju okkar. Grein Halldórs Blöndals er þakkarverð. Þar er að finna orð í tíma töluð. Þótt Halldór segi ekki berum orðum að sjálfstæðismönnum beri að horfast í augu við afleiðingar stefnu sinnar og eigin verka þá gerir hann það óbeint...

19. Október 2007

RÖK SJÁLFSTÆÐIS/SAMFYLKINGARFLOKKS UM ÁFENGI: AF ÞVÍ BARA


Nú gerist það í fimmta sinn að Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, ásamt samherjum í frjálshyggjudeildum flokka sinna, flytja lagafrumvarp á Alþingi um að færa áfengissölu inn í matvöruverslanir. Í gær lauk fyrstu umræðu um málið. Ljóst er að frumvarpið mætir mikilli andstöðu innan Alþingis. Utan þings er andstaðan einnig mikil. Í gærmorgun sat ég fyrir svörum í morgunþætti hjá Heimi Karlssyni á Bylgjunni. Heimir opnaði fyrir símann og hringdu hlustendur inn. ALLIR sem hringdu voru...

12. Október 2007

NÝJUM MEIRIHLUTA Í REYKJAVÍK ÓSKAÐ HEILLA

Nýr borgarstjórnarmeirihluti er kominn til sögunnar í Reykjavík. Einkavæðing í orkugeiranum og brask henni tengt varð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að falli. Ég er sannfærður um að vitundarvakning er að verða í þjóðfélaginu hvað auðlindirnar snertir. Þegar það rann upp fyrir fólki að fjármálamönnum var að takast að slá eign sinni á orkulindir var því nóg boðið. Menn vilja ekki að fjárgróðamenn steli Hellisheiðinni og Reykjanesinu. Reiðialda reis hátt – svo hátt – að eitthvað hlaut að láta undan. Hlaut segi ég – það er ekkert gefið í þeim efnum. Vaskleg framganga...

10. Október 2007

FRÁBÆR FRAMMISTAÐA SVANDÍSAR!

Sannast sagna er ég farinn að trúa því að í samfélaginu sé að verða vakning; að fólk sé að vakna til vitundar um hvað raunverulega hangir á spýtunni þegar einkavæðing orku-auðlindanna er annars vegar. Gróðapungar hafa afhjúpað sig, pólitíkusar hafa afhjúpað sig. Skyndilega rennur upp fyrir fólki hver hætta samfélaginu stafar af ásókn auðvaldsaflanna. Þetta hefur ekki gerst af sjálfu sér. Ekkert gerist af sjálfu sér. Hlutirnir breytast ekki heldur er þeim breytt. Gerandinn í yfirstandandi pólitískri orrahríð er tvímælalaust oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík, Svandís Svavarsdóttir. Hún á lof skilið fyrir vasklega framgöngu...

9. Október 2007

GEIR, "ANDLAGIÐ" OG ATHUGASEMD VIÐ FRÉTTABLAÐSLEIÐARA

...Hvað þýðir þetta á mannamáli? Geir H. Haarde er að segja að orkulindirnar eigi "ekki endilega" að einkavæða. Þær eigi ekki að vera viðfangsefni einkavæðingar. Ekki "endilega". Hvað þýðir það? Eiga þær kannski að vera "andlag einkavæðingar"? Svo er að skilja. Það kemur með öðrum orðum vel til greina! Eru ef til vill uppi áform um slíkt? Hvers vegna þetta loðna og heldur aulalega orðalag? Svona talar maður sem vill drepa umræðunni á dreif. Skyldi þetta þykja traustvekjandi framganga hjá verkstjóra í ríkisstjórn sem kosin var til að gæta hagsmuna þjóðarinnar? Eða hvað? Eru það kannski hagsmunir annarra sem forsætisráðherrann vill gæta? Er það peningafólkið sem Geir er að gæta; fólkið sem eina ferðina enn er að fá milljarða af almannafé á silfurfati? Einn misskilning þarf að leiðrétta í leiðaraskrifum Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu um þessi mál. Í leiðara 6. október segir hann að...

8. Október 2007

Á MÓTI ÁHÆTTUFJÁRFESTINGUM?


Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík reynir nú að fikra sig út úr þeim ógöngum sem flokkurinn er kominn í vegna hneykslismála sem tengjast einkavæðingaráformum í orkugeiranum. Ekki gengur það vel. Nú hafa Sjálfstæðismenn í Reykjavík ákveðið að þeir vilji selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í dótturfyrirtækinu Reykjavík Energy Invest. Þetta vilja þeir gera áður en ráðrúm gefst til að fá úr því skorið hvort ákvarðanaferlið til þessa standist landslög! Þeir taka sömuleiðis ákvörðun þessa efnis án þess að geta svarað því hverjar séu eigur fyrirtækisins! Og hver skyldu rökin vera? Opinberir aðilar eiga ekki að standa í áhætturekstri. Þetta segir flokkurinn sem reisti Kárahnjúkavirkjun, mestu áhættu fjárfestingu Íslandssögunnar! Þetta er flokkurinn sem vildi veita...

4. Október 2007

ÞINGMAÐUR FRAMSÓKNAR FER MEÐ RANGT MÁL Í SJÓNVARPSFRÉTTUM

Í fréttum Sjónvarpsins 2. október birtist viðtal við Höskuld Þórhallsson þingmann Framsóknarflokksins þar sem hann talar fyrir því að hraðað verði byggingu álvers á Bakka við Húsavík ... En er þingmaðurinn vongóður um að slíkar hugmyndir fái stuðning, spyr fréttamaður. Höskuldur svarar því játandi, á þinginu sé að hans mati breiður stuðningur við slíkar hugmyndir, líka hjá þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs! Orðrétt sagði Höskuldur:  „Ég finn bara fyrir mjög jákvæðum straumum hjá ... Sannast sagna furða ég mig á því að fréttastofa Sjónvarps skuli ekki hafa, þegar í gær, leitað eftir staðfestingu frá VG á því sem þarna er  staðhæft því ef fullyrðingar þingmannsins ættu sér sér stoð...

3. Október 2007

GLAÐUR GEIR Í GÓÐUM OG GREIÐVIKNUM FÉLAGSSKAP


Þar segir forsvarsmaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra þjóðarinnar að nú eigi að „taka til hendinni.“  Fyrir hverja skyldu vera allir þessir „miklu möguleikar“ að mati formanns Sjálfstæðisflokksins og fyrir hverja á „að taka til hendinni“? Möguleikarnir eru að hans sögn fyrir þá sem vilja gera heilbrigðisþjónustu að bisniss! Þeir virðast eiga góða tíma í vændum ... Geir sagði að erfitt hefði verið að fá aðra stjórnmálaflokka til þess að styðja stefnu Sjálfstæðisflokksins um markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustu og orkugeirans...  Á þessum sviðum „eru ótrúlega miklir möguleikar framundan sem Samfylkingin er tilbúin til...

1. Október 2007

ÍSLENSKA „NO MATTER WHAT“?


Undarlegt hve nokkurra daga fjarvera gefur manni gestsauga við heimkomuna. Margt verður skýrara. Af lestri dagblaða sem út komu meðan á utanferð minni stóð að dæma hefur stóra umræðuefnið greinilega verið hvort íslenskir vinnustaðir eigi að verða tvítyngdir. Umræða um þetta efni var reyndar hafin þegar ég fór af landi brott en er greinilega engan veginn lokið. Varaformaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, er ákafamaður um þetta efni og sé ég að hann hefur tekið undir með bankaforstjórum og fjölþjóðafjárfestum sem ólmir vilja fá að tala á ensku í vinnunni. Varaformaður Samfylkingarinnar segir þetta mikilvægt til að...

26. September 2007

ANNAÐ OPIÐ BRÉF TIL GEIRS OG INGIBJARGAR

Birtist í Morgunblaðinu 24.09.07
...íslensk orkufyrirtæki í almannaeign hafa verið í útrás og plumað sig bærilega án þess að fjárfestar af markaði kæmu þar að. Það vantar eitthvað mikið í röksemdafærslu þeirra sem láta í veðri vaka að þeir verndi almannaeigur með þessum hætti fyrir ævintýramönnum. Ef þetta vekti fyrir ráðamönnum myndu þeir einfaldlega hvetja þá Bjarna Ármannsson, Ólaf Jóhann Ólafsson, Hannes Smárason, bankastjórana og alla hina fjárfestana til að fara í sína útrás án atbeina samfélagsins. Mergurinn málsins er að sjálfsögðu sá að til að dæmið gangi upp fyrir þessa menn verða þeir að fá almannaeignir til ráðstöfunar. Reynslan kennir að þá geta þeir makað... Mín spurning til ykkar er þessi: Ætlið þið að láta óátalið að þjóðin verði svipt orkulindunum? Eða ætlið þið að bregðast við...

19. September 2007

OPIÐ BRÉF TIL GEIRS OG INGIBJARGAR

Birtist í Morgunblaðinu 18.09.07.
...Spurning mín til ykkar, oddvita þessarar ríkisstjórnar, sem bæði talið máli hernaðarbandalagsins NATÓ, er þessi: Á ekki þjóð sem ekki vill senda eigin ungmenni á vígvöllinn að vera sjálfri sér samkvæm gagnvart öllum ungmennum? Á hún ekki að standa utan hernaðarbandalags, sem stefnir ungu fólki til árása á aðrar þjóðir? Eða er réttlætanlegt að styðja hernaðarbandalag, sem fer með ungmenni á þann hátt sem við teljum óverjandi gagnvart okkar eigin fólki – okkar drengjum og okkar stúlkum?

19. September 2007

HVAR ERU KRATARNIR?


Birtist í Blaðinu 18.09.07.

Ekki hef ég alltaf verið sammála Krötum í gegnum tíðina. Stundum hef ég þó verið það. Ekki síst þegar um hefur verið að ræða eignarhald á auðlindum. Almennt var lína Krata sú að vilja styrkja eignarhald almennings, þjóðarinnar allrar, á auðlindum Íslands. Þessi afstaða þótti mér stimpluð inn í hina kratísku vitund. Nú stöndum við frammi fyrir því að ráðafólk þjóðarinnar selji frá okkur dýrmætustu auðlindir okkar. Salan á orkuveitunum er nefnilega sala á auðlindum. Hellisheiðarvirkjun er ekki bara hús og pípur. Hún er Hellisaheiðin sjálf. Og nú standa fjárfestar sem vilja komast yfir slíkar auðlindir í röðum til að hrifsa þær til sín. Þetta þarf engum að koma á óvart. Öðru gegnir um vesaldóm ríkisstjórnarinnar því allt er þetta gert með dyggum stuðningi hennar. En getur verið að ...

18. September 2007

EKKI GOTT HJÁ GEIR

Birtist í Fréttablaðinu 17.09.07.
...Á heildina litið var það þó einkum hinn stofnananlegi rammi alþjóðastjórnmála sem var til umfjöllunar á fundinum en ekki hin brennandi álitamál. Eftir erindin gafst færi á að bera fram fyrirspurnir. Ég beindi fyrirspurnum til forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Þegar ég bar fram fyrirspurn mína hafði forsætisráðherra staðið upp og gekk ásamt föruneyti með talsverðum tilþrifum í átt til dyra. Ég vakti athygli hans á að ég óskaði eftir því að heyra mat hans á breyttum áherslum innan NATÓ og hvað það gæti þýtt fyrir Íslendinga. Forsætisráðherra sagði að hann myndi án efa eiga eftir að eiga orðastað við mig um þetta á þingi og strunsaði út. Utanríkisráðherra sat eftir, vék að fyrirspurn minni en svaraði henni ekki. Það var þó skömminni skárra en hjá forsæráðherra. Hjá Geir var þetta ekki gott. Getur verið að engin alvara sé á bak við fyrirheitin um opna umræðu um utanríkismál?

11. September 2007

GOTT HJÁ LÚÐVÍK

Birtist í Fréttablaðinu 10.09.07.
Ef Orkuveita Reykjavíkur verður seld þá er ekki aðeins verið að selja fyrirtæki sem framleiðir rafmagn heldur einnig fyrirtæki sem ræður yfir vatnsbólum og miðlar heitu vatni og köldu. OR er ábyrgðaraðili dýrmætra náttúruauðlinda. Vatn er dýrmætasta auðlind jarðar og um eignarhald á  því munu standa mikil átök á nýrri öld...

5. September 2007

ALLTAF AÐ ÆFA TAKTINN

...Brosað var góðlátlega þegar Stjórnarráðsparið tók ganginn sem svo er kallað og gengu á vit fjölmiðlanna í vel æfðum takti í Alþingishúsinu til að tilkynna nýja ríkisstjórn... Í Kastljósi í kvöld sagði Geir forsætisráðherra að þau Ingibjörg væru enn að reyna "að finna taktinn í samstarfinu." Þau hittust vikulega, sagði hann, ..."oftar ef hægt er."  Nú langar mig til að reyna að hughreysta ...Mér sýnist Sjálfstæðis/Samfylkingar-takturinn ekkert síður taktfastur en var með Sjálfstæðisflokki og Framsókn á sínum tíma. Þannig að óhætt er fyrir Geir að brosa breitt framan í heiminn og bera sig vel. Það er helst á Geir að heyra að hann hafi áhyggjur af Vinstri grænum, sá flokkur sé heldur meira úti í vinstri kanti en hann hafi gert ráð fyrir! Þetta sagði hann í Kastljósi í kvöld. Hvað skyldi það vera sem er svona mikið út í kantinn að mati formanns Sjálfstæðisflokksins? Skyldu það vera andmæli gegn aðförinni að húsnæðiskaupendum eða milljarðaausturinn í NATÓ (án fjárheimilda), sala á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja til Glitnis eða gagnrýni á ríkisstjórnina fyrir Grímseyjarferjuskandalinn? Slæmt var að ekki reyndist tóm til að beina talinu aðeins út í kantinn þegar Geir vildi ...

10. Ágúst 2007

SAMBAND Á KOSTNAÐ SKATTBORGARANS

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, kom fram í fréttum í dag til að segja þjóðinni að ríkisstjórnin væri að vinna af "fullri alvöru" að yfirtöku Íslendinga á Ratsjárstofnun og öðru sem snýr að vörnum Íslands. Staðreyndin er sú að þessi mál virðast öll unnin á handarbakinu, hver höndin uppá móti annarri í ríkisstjórinni, bæði varðandi stefnumótun og ekki síður þær gríðarlegu fjárskuldbindingar sem þjóðinni er ætlað að takast á herðar. Yfirlýsingar Geirs Hilmars, forsætisráðherra, um að málið sé í markvissum farvegi, hafa holan hljóm. Aðeins fáeinum dögum áður en Íslendingar taka yfir rekstur Ratsjárstofnunar er málið ófrágengið og nánast órætt. Þannig kemur fram í Fréttablaðinu í dag að loftvarnir með kerfi Ratsjárstofnunar nýtist aðeins á friðartímum! Í forsíðufrétt Fréttablaðsins er ...

27. Júlí 2007

PÓLITÍSK REKSTRARSTJÓRN YFIR LEIFSSTÖÐ?

Birtist í Fréttablaðinu 26.07.07.
... Þurfa menn að hafa flokksskírteini Samfylkingarinnar til að vera traustsins verðir? Ef Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur er alvara að þarna eigi að sitja pólitísk stjórn, er þá ekki rétt að sú stjórn endurspegli pólitísk hlutföll á þingi? Og ef þetta er meiningin, hvers vegna þá ekki færa starfsemina undir beinan ríkisrekstur að nýju? Væri það ekki betra en að búa við valdstjórnar- og bitlingapólitík Samfylkingarinnar sem hér er greinilega í uppsiglingu?

17. Júlí 2007

YFIRLÝSING SVANDÍSAR: FORMSATRIÐI EÐA PÓLITÍK?

...Mér er kunnugt um að Svandís sendi yfirlýsingu sína forsvarsmönnum OR fyrir stjórnarfund  þar á bæ í gær jafnframt því sem yfirlýsingin var send fjölmiðlum. Svandís er nú á erlendri grundu og hafði því þennan hátt á þar sem hún átti ekki kost á því að sitja stjórnarfundinn. Eftir því sem ég hef fregnað var yfirlýsing hennar þó ekki tekin fyrir á þessum stjórnarfundi. Mun meirhlutanum ekki hafa þótt formsatriði erindis Svandísar nógu skýr. Þetta er mjög skiljanleg afstaða. Um að gera að halda sig fast í formsatriðin þegar hin stóru prinsippmál eru annars vegar, eða hvað? Skyldi málið kannski fremur hafa snúist um pólitík en form hjá...

16. Júlí 2007

AÐ SEGJA EITT EN FRAMKVÆMA ANNAÐ

...En bíðum nú við. Daginn eftir kemur  - eðli máls samkvæmt - sunnudagsmoggi inn um lúguna. Í honum var að finna flenniviðtal við sama ráðherra og áður hafði hvatt til þess að okrað yrði á íbúðakaupendum. Í þessu viðtali agnúast ráðherrann hins vegar út í hávaxtastefnuna í landinu. Sökudólgur var  Seðlabankinn sem keyrði vextina upp að yfirlögðu ráði! Því miður var í viðtalinu ekkert spurt út í þessar hróplegu mótsagnir í málflutningi ráðherrans. Ef ríkisstjórninni er alvara að ná niður vöxtum, hvers vegna þá að stíga skref í gagnstæða átt með því að hvetja til okurs á húsnæðiskaupendum? Er það vegna þess að ...

11. Júlí 2007

SAMFYLKINGIN OG SÝNDARMENNSKAN

Birtist í Morgunblaðinu 10.07.07.
Hvers vegna tók Samfylkingin ekki umræðuna um Hitaveitu Suðurnesja þegar sala ríkisins var tilkynnt og hvers vegna í ósköpunum hreyfðu ráðherrar Samfylkingarinnar ekki litla fingur við ráðherraborðið þegar ráðrúm var enn til að stöðva söluna? ...En umræðustjórnmál, eins og Samfylkingin leitast við að gera að eins konar merkimiða sínum, mega ekki bara vera til að sýnast – til að komast hjá því að taka afstöðu og fylgja henni eftir. Hve lengi skyldu fjölmiðlar láta Samfylkinguna komast upp með sýndarmennsku af því tagi sem við nú verðum vitni að?

10. Júlí 2007

SAMFYLKINGIN OG EVRÓPUVEXTIRNIR

Birtist í Fréttablaðinu 09.07.07.
...Á forsíðu Blaðsins sl. föstudag sagði að húsnæðisverð færi nú snarhækkandi í “álbæjum”. Hvers vegna hækkar íbúðaverð meira þar en á Suðureyri og Raufarhöfn? Lánskjörin eru þau sömu á öllum stöðum. Skýringin er þensla og væntingar á markaði, ekki lágir vextir enda eru lægstu vextir á Íslandi okurvextir og ekki á bætandi því fólk er að kikna undan því sem fyrir er. En hvað með lágu “Evrópuvextina” sem Samfylkingunni hefur orðið svo tíðrætt um? Eru þeir þá ekki stórhættulegir fyrst skilaboðin eru á þann veg að herða beri á okrinu?

5. Júlí 2007

FORYSTA SAMFYLKINGAR MÆRIR THATCHER

...Björgvin er mjög upptekinn af því að Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin séu andstæður í íslenskum stjórnmálum og nú hafi þessir miklu risar myndað eins konar þjóðstjórn! Þetta er alrangt. Betur og betur er að koma í ljós hve áþekkir þessir flokkar eru í sinni pólitík og báðir eru þeir ósköp smáir í sér. Risatalið því vart við hæfi, allra síst um Samfylkinguna! Eftir viðtalið við Björgvin G. Sigurðsson gerist sú spurning jafnvel áleitin, hvor flokkurinn sé hægri sinnaðri Sjálfstæðisflokkurinn eða Samfylkingin. Ég þykist vita að munur er á kjósendum þessara flokka en hitt er erfiðara að gera upp við sig hvor er hrifnari af markaðshyggjunni, forysta Samfylkingar eða Sjálfstæðisflokks.  En varðandi andstæða póla í íslenskri pólitík bið ég menn að ...

24. Júní 2007

TÍMAMÓT Í BRETLANDI OG ÞVERSÖGNIN BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON


Gordon Brown hefur nú tekið við af Tony Blair sem formaður Verkamannaflokksins í Bretlandi. Mér er það mjög minnisstætt þegar Tony Blair komst til valda sem forsætisráðherra Bretlands. Það var í kosningum hinn 1. maí árið 1997. Ég flutti þá ræðu á Ingólfstorgi í Reykjavík – á baráttudegi verkalýðsins - og bar ég  þá saman Ísland og Bretland þess tíma...Eitt er þó breytt. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar var vitni að breytingunum 1997 og einnig nú. Það er að vísu rétt að á báðum augnablikum klappaði hann fyrir því sem var að gerast, mátti reyndar varla vatni halda af hrifningu á Blair í útvarpsviðtölum. Nú klappar sami Björgvin fyrir Brown, hinum nýja leiðtoga og segir að ...

22. Júní 2007

UMHVERFISRÁÐHERRA EÐA AÐSTOÐARMAÐUR IÐNAÐARRÁÐHERRA?

Í kvöld var okkur greint frá því í fréttum að umhverfisráðherra geti ekki fullyrt hvort eitt eða fleiri álver rísi til viðbótar þeim álverum sem nú eru fyrir í landinu. Sem kunnugt er fara fulltrúar álauðhringanna nú snuðrandi um landið og leita fyrir sér um hvar þeir geti borið niður; hvar fyrirstaðan sé minnst, hvar síst þurfi að óttast lýðræðið og hvar minnst fé þurfi að bera á fólk og samfélag. Augljóst er að víða er vesaldóminn að finna og víða liggja menn á hnjánum. Ekki átti ég þó von á því að umhverfisráðherra væri líka knékrjúpandi. Eða er Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, ekki málsvari Fagra Íslands, meintrar umhverfisstefnu Samfylkingarinnar? Var okkur ekki sagt að...

21. Júní 2007

ALCAN OG SAMFYLKINGIN UM ÁSTINA Á ÁLVERUM OG LÝÐRÆÐI


Ekki veit ég hver á metið í ótrúlegum yfirlýsingum þessa dagana Michel Jacques, forstjóri Alcans, sem belgdi sig út í fjölmiðlum og talaði niður til Íslendinga um áform auðhringsins hér á landi, bæjarstjórinn í Hafnarfirði Lúðvík Geirsson, sem Michel þessi segir hafa hvatt Alcan til að stækka álverið á landfyllingu og komast þannig framhjá lýðræðislegri niðurstöðu Hafnfirðinga eða þá forseti bæjarstjórnar og flokksbróðir Lúðvíks í Samfylkingunni, alþingismaðurinn Gunnar Svavarsson. Ég þykist geta fullyrt að almennt hafi fólk staðið agndofa frammi fyrir yfirlýsingum og framgöngu þessara aðila í fjölmiðlum í dag...

16. Júní 2007

AÐFÖR AÐ ÍBÚÐALÁNASJÓÐI

Birtist í Morgunblaðinu 15.06.07.
...Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra kveðst vera til viðræðu um þessar ábendingar því í Blaðinu 13. júní segir að hann ætli að fara yfir þessar hugmyndir: "Ráðherrann segir að gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði tekin alvarlega." Hvað á eiginlega að taka alvarlega? Á að taka alvarlega hvatningu um að takmarka umsvif Íbúðalánasjóðs svo bankarnir geti óhindrað hækkað vexti? Það er þó alla vega framför að viðurkenna að Íbúðalánasjóður haldi vöxtunum niðri – hinu gagnstæða hefur iðulega verið haldið fram. Finnst leiðarahöfundi Morgunblaðsins og viðskiptaráðherra að vextir á húsnæðislánum séu of lágir? Þeir eru núna ...

11. Júní 2007

VALGERÐUR VILDI EINKAVÆÐA RAFORKUGEIRANN

Í morgun var viðtal við Valgerði Sverrsidóttur, varaformann Framsóknarflokksins í RÚV. Þar var komið víða við, m.a. fjallað um einkavæðingu raforkugeirans. Valgerður kvað þjóðina ekki á því máli að einkavæða hann, sjálf hefði hún “aldrei viljað það.” ...Nú vill svo til að þessar fullyrðingar Valgerðar Sverrisdóttur standast ekki. Hún flutti sjálf frumvarp um að gera Rafmagsnveitur ríkisins að hlutafélagi og lýsti því einnig yfir afdráttarlaust að áform væru uppi um einkavæðingu raforkugeirans. Á forsíðu Morgunblaðsins 18. febrúar 2005 staðfestir hún t.d. að áform væru um að ...

5. Júní 2007

Opið bréf til oddvita ríkisstjórnarflokkanna: ERU BARA TIL PENINGAR ÞEGAR VIÐSKIPTARÁÐIÐ BANKAR UPP Á?

Birtist í Morgunblaðinu  04.06.07.
Landspítalinn hefur iðulega farið fram á auknar fjárveitingar m.a. vegna endurhæfingardeildarinnar að Grensási. Oftar en ekki hafa forsvarsmenn sjúkrahússins farið bónleiðir til búðar. Nú bregður svo við að tryggingafyrirtækið Sjóvá býðst til þess að koma inn í þennan rekstur, í það minnsta að stækkun deildarinnar að því er fram hefur komið opinberlega. Þessu hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra fagnað ákaflega. Segir hann að sest verði yfir þessi mál. Prýðilegt. Ég vil leyfa mér að hvetja til ítarlegrar og málefnalegrar umræðu um þetta efni. Þar verði öllu ...

3. Júní 2007

SAMT HRUNDU SOVÉTRÍKIN


Ágreiningur er ekki úr sögunni í þjóðfélaginu þótt fjölgað sé í stjórnarmeirihlutanum á Alþingi. Þar breytist sáralítið fyrir utan það að helsti merkisberi stjórnarandstöðunnar á þingi, VG, styrkist. Það er líka alrangt að ímynda sér, eins og forseti Íslands gefur í skyn að fjölmiðlaflóran hafi orðið kröftugri eftir daga flokksmiðlanna. Þetta er ekki rétt að mínum dómi. Auk þess ætti það að vera okkur öllum áhyggjuefni hve einsleit pólitísk öfl eiga nú og ritstýra öllum helstu fjölmiðlum landsins! ... Það má vel vera að ráðamenn á Íslandi hvort sem er í stjórnmálum, efnahagslífi eða fjölmiðlum telji sér trú um að nú geti þeir ...

1. Júní 2007

SAMFAGNAR ÖLL SAMFYLKINGIN HEILBRIGÐISRÁÐHERRA?

...Nú hafa Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin myndað ríkisstjórn og féllst Samfylkingin á að afhenda Sjálfstæðisflokknum heilbrigðisráðuneytið ásamt fjármálaráðuneyti. Og nú er kátt í ranni. Nýr heilbrigðisráðherra fagnar ákaft í Morgunblaðinu í dag. Tilefnið er að tryggingafyrirtækið Sjóvá býðst til að stækka Grensásdeild Landspítalans. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segir í Morgunblaðinu í dag að þetta sé vegna þess að fyrirtækin í landinu hafi svo mikinn áhuga á heilbrigði landsmanna. "Síðan eru það fyrirtækin í landinu sem hafa svo sannarlega alla hagsmuni af því að heilbrigði þjóðarinnar sé sem best og ég fagna að ...

1. Júní 2007

MORGUNBLAÐIÐ Í ANDSTÖÐU VIÐ STJÓRNARANDSTÖÐU


Athyglisvert er hve mjög leiðarahöfundur Morgunblaðsins er upptekinn við að grafa undan stjórnarandstöðunni og þá einkum Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Í leiðara eftir leiðara er fjargviðrast út í forystu VG og þess nánast krafist að hún hypji sig. Þetta er ósmekklegt en skiljanlegt þegar málið er skoðað í víðara pólitísku samhengi. Við völd í landinu er nú ríkisstjórn sem hefur uppi ýmsa hægri sinnaða frjálshyggjutilburði. Þeir tilburðir njóta velvildar á ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins. Þar er nú ákaft talað fyrir víðtækri sátt í samfélaginu og að sú sátt muni án efa myndast ef ekki væri fyrir vinstri áherslur VG. Og í framhaldi krefst Morgunblaðið þess að...

31. Maí 2007

FAGRA ÍSLAND – DAGUR TVÖ

Birtist í Fréttablaðinu 30.05.07.
Allt var komið í háa loft strax á öðrum degi ríkisstjórnarinnar. Tilefnið voru Þjórsárverin og Norðlingaölduveita. Geir Hilmar segir ekkert um hana vera í stjórnarsáttmála. Ingibjörg Sólrún segist skilja stjórnarsáttmálann svo að Norðlingaölduveita sé út af borðinu, Össur á sama máli og Þórunn umhverfisráðherra segist styðja „sinn formann“. Það sem er óþægilegast við þessa umræðu á degi tvö í lífi Baugsstjórnarinnar er að um þetta hefur greinilega ekki verið rætt á viðræðufundum þeirra Ingibjargar Sólrúnar og Geirs Hilmars við myndun ríkisstjórnarinnar.
Sannast sagna held ég að ...

28. Maí 2007

FORMAÐUR EÐA ÚTFARARSTJÓRI: HVAÐ MEINAR GUÐNI ÁGÚSTSSON?

Sannast sagna kom nýr formaður Framsóknarflokksins, Guðni Ágústsson, á óvart í fréttaviðtölum eftir að hann tók að sér formennsku í flokknum. Guðni hefur af flestum verið talinn talsmaður félagslegra gilda í Framsóknarflokknum – vinstri armsins. Hann hefur gefið sig út fyrir að hafa verið gagnrýninn á þá hægri stefnu sem Halldór Ásgrímsson fylgdi og sagt þá arfleifð sem við hann var kennd hafa verið Framsóknarflokknum fjötur um fót. Nú bregður svo við að á formannsstóli verður Guðni haldinn mikilli eftisjá að sæludögunum í fangi Íhaldsins. Hann segir að vinstri stjórn hefði aldrei gengið og mærir síðan án afláts .... 

27. Maí 2007

HIÐ VALDSMANNSLEGA GÖNGULAG


Sumir hafa auga fyrir umgjörð. Telja hana jafnvel skipta öllu máli. Innihald blikni í samanburði við vel heppnaða leikmynd. Í því samhengi er næstum brjóstumkennanlegar tilraunir forsvarsmanna Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að kenna nýja ríkisstjórn við Þingvelli. Fréttamenn voru neyddir til að aka þangað í tíma og ótíma meðan á fundum stóð og dyggustu stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar í fjölmiðlum tönnlast á hinni nýju Þingvallastjórn.  Þetta er í og með tilraun til að forðast það heiti sem almenningur gaf stjórninni í upphafi, nefnilega Baugsstjórn.
Lesandi síðunnar vekur athygli á hinum sláandi líku töktum sem "okkar fólk" sýndi við kynningu á sjálfu sér og viðhöfð er í Hvíta húsinu hjá Bush þegar velþóknanlegir gestir hans eru látnir "taka ganginn" með honum. Ég get tekið undir það með...

27. Maí 2007

SVO ÓDÝR ER VINSTRIHREYFINGIN GRÆNT FRAMBOÐ EKKI

Birtist í Morgunblaðinu 26.05.07.
Nokkuð hefur verið rætt um valkosti um ríkisstjórnarmynstur eftir nýafstaðnar Alþingiskosningar og hafa fjölmiðlar, sér í lagi Morgunblaðið, verið iðnir við að koma "sök" á okkur í VG fyrir að "klúðra" málum. Hvert skyldi nú "klúðrið" vera? "Klúðrið" er að sjálfsögðu ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar en leitun er að fólki sem hefði valið þennan sambræðing sem fyrsta kost. Fremur hefðu menn viljað sjá stjórn ...

25. Maí 2007

SAMFYLKINGIN KOKGLEYPTI HEILBRIGÐISSTEFNU SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS


...Það er verst að Samfylkingin skyldi ekki hafa varað væntanlega kjósendur sína við því að flokkurinn væri sammála Sjálfstæðisflokknum í heilbrigðismálum - væri reiðubúinn að samþykkja stefnu hans í einu og öllu. Það hefði verið heiðarlegra. Sennilega hefði flokkurinn þá fengið heldur minna fylgi sem aftur skýrir hvers vegna kosið var að þegja um þetta efni...

24. Maí 2007

FYRST STÖÐUGLEIKINN, SÍÐAN FÁTÆKIR!!! ÉG SEGI NEI !!!!

Nýr félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir,  segir að við megum ekki stefna stöðugleikanum í hættu með aðgerðum í þágu fáækra! Þessar áherslur eru óhugnanlegar úr munni ráððherra Samfylkingar í upphafi stjórnarsamstarfs með Sjálfstæðisflokki. Ég leyfi mér að spyrja um pólitíska forgangsröðun.
Eftir hverju þarf  ríkasta þjóð í heimi að bíða til að útrýma fátækt á Íslandi? Ég var með fulltrúum Samfylkingarinnar á ótal kosningafundum í kosningabaráttunni og hlustaði á öll hin stóru loforð. Margir kusu án efa Samfylkinguna  út á fögur milljarðafyrirheitin. Nú þýðir ekki að ljúga sig til baka þótt flokkurinn...

23. Maí 2007

SAMFYLKINGIN GEKK Í SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN Í GÆR


Stjórnmál eins og við þekkjum þau hlutu hægt andlát undir miðnættið í gær. Turnarnir tveir voru rifnir, burðarflokkur í ríkisstjórn varð að ósköp venjulegum staurfót. Jafnrétti breyttist í hjónaband. Þar gengur hún undir honum, heldur heimilinu gangandi og sér um inniverkin. Hann heldur um veskið og sér um allt utanhúss. Heilsugæslan verður einkavædd. Orkugeirinn gerður klár. Það er ákveðinn naívismi ríkjandi innan Samfylkingarinnar sem byggist á því að...

23. Maí 2007

MAGGIE AND TONY

Birtist í Fréttablaðinu 22.05.07.
...Eflaust hugsa einhverjir bisnissmenn á hvítum sloppum gott til glóðarinnar. Öðru gegnir um hinn almenna starfsmann, hvort sem um er að ræða lækni eða ræstitækni. Hinir síðarnefndu hafa reynsluna af "úthýsingu" með tilheyrandi réttindamissi! Fyrir notandann, sjúklinginn og fyrir velferðarsamfélagið bendir því miður allt til þess að fyrirkomulag af þessu tagi leiði ekki einvörðungu til mismununar heldur sé það einnig dýrara fyrir greiðandann. Þetta sýnir reynslan frá Bretlandi og víðar. En Thatcher og Blair höfðu engan áhuga á reynslunni  - þau létu stjórnast af blindri hugmyndafræði. Því miður óttast ég að það geri þau líka, Geir Hilmar og Ingibjörg Sólrún.

22. Maí 2007

HVAÐ Á HÚN AÐ HEITA?


Það er næstum spaugilegt að fylgjast með tilraunum Samfylkingarmanna og þeirra stuðningsmanna Geirs H. Haarde í Sjálfstæðisflokknum sem eru fylgjandi stjórnarmyndunarviðræðum hans við Samfylkinguna að koma nafngiftinni Þingvallastjórn á krógann. Þannig skrifar Björgvin G. Sigurðsson stórkallalega grein í Blaðið í dag um það sem hann kallar Nýsköpun á Þingvöllum. Þar segir hann ...Hvað um það, Björgvin er svolítið óheppinn að hinn bráðsnjalli teiknari Blaðsins, Halldór Baldursson, hefur greinilega fengið það verkefni að myndskreyta umrædda Þingvallastjórnargrein Björgvins og viti menn, þar er kominn í bakgrunninn heljarinnar Bónus grís sem minnir á að margir vilja kalla stjórnina ...

22. Maí 2007

FURÐUSKRIF MORGUNBLAÐSINS

Birtist í Morgunblaðinu 21.05.07
 ...Það er nefnilega þannig að Vinstrihreyfingin grænt framboð er eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi sem er líklegur til að halda til streitu félagslegum vinstri áherslum...Morgunblaðið virðist ekki mega til þess hugsa að yfirleitt sé til slíkur flokkur. Leiðarahöfundur vill að VG losi sig við allar vinstri áherslur með því að "taka skrefið til fulls og verða grænn flokkur án þess að skilgreina sig til vinstri sem slíkur. Með slíkri breytingu og nýrri forystu mundi græni flokkurinn skapa sér sterka vígstöðu í íslenzkum stjórnmálum". Nú er það svo að VG hefur sérstöðu í íslenskum stjórnmálum sem grænn umhverfisverndarflokkur og erum við stolt af því mikilvæga hlutverki. En ef leiðarahöfundur Morgunblaðsins ímyndar sér eitt andartak að við munum leggja fyrir róða áherslur okkar á jöfnuð og félagslegt réttlæti þá fer hann villur vegar. Hitt er svo óneitanlega svolítið spaugilegt að...

21. Maí 2007

EKKI MÁLEFNI HELDUR PARTÝHALD TEFUR VIÐRÆÐUR

Tvennt vekur athygli í fréttum af stjórnarmyndunar- viðræðum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Í fyrsta lagi hinir miklu kærleikar sem tekist hafa með formönnum flokkanna og birtast þjóðinni í innilegum kossum í tíma og ótíma. Hitt atriðið er það að hermt er að viðræður gangi vel því lítill sem enginn málefnaágreiningur sé milli flokkanna. (Skyldi nokkur vera búinn að gleyma turnatalinu?)
En einmitt vegna þessa mikla samlyndis brá ýmsum í brún þegar tilkynnt var upp úr klukkan fjögur í dag að ekki yrði fundað meira í dag. Var þá komin uppstytta í viðræðurnar? Höfðu menn fundið eitthvert ágreiningsatriði? Gat verið að Samfylkingin ætlaði að standa í fæturnar í einhverjum málaflokki? Ekki reyndist svo vera því nú hafa þau Geir og Ingibjörg upplýst að ... 

20. Maí 2007

HVER ERU HIN HAMINGJUSÖMU?


Parið á myndinni ber það með sér að það er hamingjusamt – sennilega léttölvað eftir fjöruga næturstund. Ástin leynir sér ekki, það liggur við að maður heyri heit hjörtun slá í takt. Sjálfum finnst mér ég kannast við baksvipinn. Ekki síst á herramanninum. Hann er augsýnilega ánægður með sig, berfættur á flottum jakka. Hún er líka glöð en svoldið þreytt. Sennilega nýgift mær – eða í þann mund að ganga í hnapphelduna. Með berfætta prinsinum sínum. Mér finnst megi ráða af holningunni að þessi skötuhjú hafi verið í góðu teiti og séu á leið á ströndina að kæla sig. Leitt til þess að hugsa hve mörg ástarævintýri enda illa. Við vonum að allt gangi að óskum hjá þessum. En hver skyldu þau vera? Ég set fram mína tilgátu á ...

19. Maí 2007

GRÆNN FLOKKUR OG RAUÐUR


...Nú vill svo til að Vinstrihreyfingin grænt framboð vann meira á í nýafstöðnum kosningum en nokkur annar stjórnmálaflokkur og er í þeim skilningi sigurvegari kosninganna. Ef meta ætti formenn stjórnmálaflokka á mælikvarða árangurs þeirra í kosningunum ætti að óska Steingrími J. Sigfússyni sérstaklega til hamingju en ekki hnjóða í hann eins og leiðarahöfundur Morgunblaðsins gerir. En það er annað sem leiðarahöfundurinn mælist til við okkur í VG. Hann vill að við hættum að leggja upp úr vinstri pólitík en gerumst þess í stað einvörðungu grænn flokkur. Það var jú heiti téðs leiðara: Grænn flokkur. Vinstrihreyfingin grænt framboð er vissulega grænn umhverfisverndarflokkur sem samþættir sjálfbæra þróun allri sinni pólitík og stefnumótun....En VG er líka vinstrisinnaður velferðarflokkur sem leggur áherslu á jöfnuð og félagslegt réttlæti. Hann er því ...

18. Maí 2007

AFSLÁTTUR Í FORGJÖF?

...Á mannamáli þýðir þetta að Sjálfstæðismenn óttast að VG myndi standa í fæturnar en Samfylking ekki. Við skulum ekki gleyma því að Sjálfstæðisflokkurinn er nýkominn frá landsfundi með glóðvolgar ályktanir um að færa heilbrigðisþjónustuna í einkarekstur. Getur verið að Samfylkingin sé þegar búin að lofa undanhaldi og eftirgjöf? Var það forgjöf inn í umræðu við Sjálfstæðisflokkinn?
Enn á Samfylkingin kost á því að reyna stjórnarmyndun með Vinstrihreyfingunni grænu framboði. Fyrir slíkri tilraun væri þingmeirihluti ef Samfylkingin féllist á það. Hvað sem á undan er gengið þá trúi ég því ekki fyrr en að fullreyndu að Samfylkingin láti ekki á slíkt reyna. Hvað segir félagslega þenkjandi fólk í Samfylkingunni...?  

17. Maí 2007

ÞAÐ ER ENNÞÁ HÆGT!


...ISG gefur í skyn að helst hefði hún viljað stjórn með VG og Framsókn. Því hefði VG hins vegar verið afhuga. Það er rétt að VG hefur bent á að erfiðleikar kynnu að skapast við myndun slíkrar stjórnar enda hefði Framsókn verið í forsvari fyrir þá málaflokka sem helst hefði steytt á undanfarin ár. Engu að síður hefur VG aldrei blásið slíkan valkost út af borðinu og hefur sá möguleiki því alltaf verið fyrir hendi.... Fyrir ISG væri nú hægur vandinn að láta reyna á samstarf VG, Framsóknar og Samfylkingar. VG hefur lýst vilja að láta reyna á samstarfsvilja þessara flokka. Þeir gætu allir lýst vilja sínum að svo yrði gert.  Slíkur vilji hefur þegar komið fram af hálfu Framsóknarflokksins auk VG. Það væri dapulegt ef Samfylkingin vildi ekki láta reyna á slíkar könnunarviðræður....

15. Maí 2007

VALKOSTIR VIÐ STJÓRNARMYNDUN


Ef stjórnarflokkarnir hefðu misst meirihluta á Alþingi hefðu stjórnarandstöðuflokkarnir, Vinstrihreyfingin grænt framboð, Samfylkingin og Frjálslyndi flokkurinn gengið til viðræðna um stjórnarmyndun. Ég hef trú á því að þessir flokkar hefðu náð saman um að mynda ríkisstjórn þrátt fyrir ágreining um ýmis mikilvæg málefni. Á þetta reyndi hins vegar ekki af þeirri einföldu ástæðu að ríkisstjórnin hélt velli þótt naumt væri. Nú er sá möguleiki fyrir hendi að ríkisstjórnin sitji áfram. Það er dapurleg tilhugsun svo ekki sé meira sagt. Annar stjórnarflokkurinn fékk óneitanlega rautt spjald og augljóst að fyrrum stuðningsmenn flokksins líkaði ekki sú stefna sem hann fylgdi. Hér er að sjálfsögðu átt við Framsóknarflokkinn. Þá blasir við að ríkisstjórn verður ekki mynduð án þátttöku eða með stuðningi annars stjórnarflokkanna....

13. Maí 2007

AUGLÝSINGAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS EKKI Í SAMRÆMI VIÐ VERULEIKANN

Birtist í Morgunblaðinu 12.05.07.
Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir að ungt fólk hafi aldrei haft það betra og að flokkurinn muni tryggja áframhaldandi stöðugleika með traustri efnahagsstjórn. Ég er hræddur um að sú kynslóð sem nú er að afla sér húsnæðis kannist ekki við þennan stöðugleika Sjálfstæðisflokksins. Eftir að húsnæðislöggjöfinni var breytt árið 1999 er nær útilokað fyrir lágtekju- og millitekjuhópa að eignast húsnæði og leigumarkaður er nú með afarkjörum. Það lágtekju- og millitekjufólk sem hefur látið slag standa á mögur ár í vændum ef ekki tekst að koma böndum á vexti og verðbólgu. Stjórnmálaflokkur sem með aðgerðum sínum í efnahagsmálum hefur dæmt heila kynslóð í hálfgildings skuldafangelsi ætti að tala varlega um stöðugleika...

12. Maí 2007

HAFA MENN NOKKUÐ GLEYMT?

Hafa menn nokkuð gleymt því að gjaldtaka í heilbrigðiskerfinu hefur aukist jafnt ogt þétt með þeim afleiðingum að efnalítið fólk veigrar sér við því  að leita lækninga? ... Hafa menn nokkuð gleymt því að þúsundum einstaklinga hefur verið útskúfað úr samfélaginu vegna fátæktar? Það á ekki aðeins við um öryrkja og aldraða. Það á við um tekjulitlar einstæðar mæður og einnig um tekjulitla einstæða feður. Á þessum félagslegu brotalömum vill Vinstrihreyfingin grænt framboð ráða bót. Við eru velferðarflokkur sem mun gera allt sem í okkar valdi stendur til að jafna kjörin og efla velferðina fyrir samfélagið allt...

12. Maí 2007

MENNING OG LÝÐRÆÐI

Birtist í Morgunblaðinu 11.05.07.
...Í þessari umræðu er mikilvægt að ræða um ábyrgð samfélagsins - ríkisins og sveitarfélaga - á menningunni og menningararfinum og spyrja m.a. annars hvort eðilegt sé að helstu menningarstofnanir Íslands sem fjalla um mikilvæga þætti í sjálfsmynd okkar sem þjóðar og sögu verði fyrst og fremst háðar fjárveitingum og stuðningi fyrirtækja. Hvaða áhrif hefur það á starfsemi þessara stofnana og alls menningarlífsins að þannig sé um hnútana búið? Er það eðlilegt að einkafjármagnið stýri þessari þróun? Að hve miklu leyti getur það haft áhrif á viðfangsefni stofnana menningarlífsins? ...

12. Maí 2007

VIÐ VITUM HVAR VIÐ HÖFUM VG


Birtist í Fjarðarpóstinum 10.05.07.
Ég geng líka svo langt að fullyrða að án þátttöku VG mun engin ríkisstjórn rísa undir sæmdarheitinu velferðarstjórn. Við brennum í skinninu að fá tækifæri til að rétta kúrsinn á þjóðarskútunni og stýra henni inn á farsælli siglingaleiðir. Við búum við þau skilyrði á Íslandi að hér eiga allir að geta haft það gott. Það getur enginn véfengt að misrétti hefur verið að aukast í landinu á undanförnum árum. Það er vegna stjórnvaldsákvarðana. Þeim ákvörðunum þarf nú að breyta. Ég hef miklar væntingar til nýrra þingmannsefna VG. Hér í Suðvesturkjördæmi er eitt öflugasta þingmannsefni sem nú er í kjöri á landinu öllu. Það er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sem skipar annað sæti á lista VG. Sá sem veitir henni stuðning og stuðlar að því að hún nái kjöri til Alþingis kastar ekki atkvæði sínu á glæ...

12. Maí 2007

LÁTUM FRAMTÍÐINA BYRJA 12. MAÍ!

Birtist í Víkurfréttum
Hvernig hefði ástandið verið á Alþingi á undanförnum tveimur kjörtímabilum ef Vinstrihreyfinigin grænt framboð hefði ekki átt þar fulltrúa? Við vorum ekki nema 5 talsins, á móti 22 þingmönnum Sjálfstæðisflokks, 20 þingmönnum Samfylkingarinnar, 12 þingmönnum Framsóknarflokksins og 4 þingmönnum Frjálslyndra. Á kjörtímabilinu þar á undan voru þingmenn VG einum fleiri og munaði miklu um þá fækkun.
Núna stöndum við frammi fyrir hótunum um að einkavæða heilbrgiðskerfið, selja orkufyrirtækin og halda áfram án þess að staldra við – ekkert stopp – á hraðferð til aukins misréttis í þjóðfélaginu. Hvaða flokkur er líklegastur til að afstýra stórslysum á komandi árum, slysum á borð við það að fjölþjóðlegir auðhringir eignist Landsvirkjun og önnur orkufyrirtæki?...

11. Maí 2007

HVERJUM ER TREYSTANDI?

Birtist í Blaðinu 10.05.07.
Hverjum er best treystandi til að berjast fyrir auknum jöfnuði og jafnrétti í þjóðfélaginu?Hverjum er best treystandi til að stöðva áform Sjálfstæðisflokksins um að einkavæða ...
Stjórnarandstaðan hefur staðið vel saman um ýmis mál, RÚV, vatnið, í öryrkjamálinu og saman höfum við barist fyrir bættum kjörum öryrkja, aldraðra og umbótum í velferðarkerfinu. Vonandi gefst okkur tækifæri að koma hugsjónum okkar í framkvæmd. En ég fullyrði að án sterkrar innkomu VG á þingi vantar hrygglengjuna í baráttuna.
VG er afgerandi afl.

11. Maí 2007

VG VILL ENDURSKOÐA EFTIRLAUNALÖGIN

Birtist í Morgunblaðinu 10.05.07.
Í umræðu á þingi gerði ég grein fyrir afstöðu minni á mjög afgerandi hátt og sagði m.a.: "Í því frv. sem hér liggur fyrir felst yfirlýsing um það að í stað þess að halda inn í framtíðina er stefnan tekin í afturhaldsátt. Þetta frv. er tímaskekkja, minjar um kerfi misskiptingar og sérréttinda...Ég er enn þessarar skoðunar. Fyrir því er eindreginn vilji hjá efstu mönnum á framboðslistum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að taka þessi umdeildu lög til endurskoðunar.

10. Maí 2007

HVERT ATKVÆÐI SKIPTIR MÁLI TIL AÐ TRYGGJA KJÖR GUÐFRÍÐAR LILJU


Birtist í Kópavogspóstinum 09.05.07.
....Ef við fáum aukinn styrk á Alþingi í komandi kosningum munum við ekki aðeins verða betur í stakk búin til að forða stórslysum heldur munum við geta látið gott af okkur leiða í þá veru að stuðla að jafnvægi og stöðguleika og efla velferðarundirstöður samfélagsins. Ef litið er til Suðvestur-kjördæmis þá er það lykilatriði að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sem skipar annað sæti á lista VG nái kjöri en samkvæmt skoðanakönnunum er raunveruleg hætta á að svo verði ekki. Hvert atkvæði skiptir máli. 

9. Maí 2007

LOKASÓKNIN ER HAFIN


Ræða á baráttufundi VG í kosningamiðstöð Kragans og Rvík suður og norður: 
 ...Núverandi stjórnarflokkar munu ekki koma auga á ný tækifæri þegar þau birtast; þeir eru svo uppteknir að semja um nýjan taprekstur fyrir Landsvirkjun. Þeir eru svo uppteknir við að gefa auðlindir og líkna hinni sísvöngu auðmannastétt. Þjóðfélag núverandi ríkisstjórnarflokka verður aldrei öðruvísi en þetta. Burtséð frá því hverju þau lofa og hvað þau segja. Hin bjartsýnustu meðal þeirra búast jafnvel við enn meira misrétti, á næstu árum. Við, sem þau kalla svartsýnismenn í þessum efnum, vitum að þau hafa rétt fyrir sér. Þau vilja efla auðstéttina og gera auðmennina frjálsa. Við viljum gera alla frjálsa. Til eru þeir sem vinna  verkin og svo hinir sem eigna sér heiðurinn. Nú er komið að því að skila heiðrinum til baka til þjóðarinnar...

9. Maí 2007

VIÐ VORUM BARA FIMM

Birtist í Fréttablaðinu 08.05.07.
 ....Hve margir skyldu gera sér grein fyrir að við vorum bara fimm á þingi. Við hefðum verið öflugri helmingi fleiri að ekki sé minnst á fjórum sinnum fleiri, 20 talsins eins og þingmenn Samfylkingarinnar. Nú hræðast aðrir flokkar að VG kunni að eflast. Þorsteinn Pálsson ritstjóri þessa blaðs skrifar leiðara skelfingu lostinn yfir þeim möguleika að VG myndi ríkisstjórn. Hann segir Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu eiga vel saman. Þeir flokkar þurfi lítið að slá af til að ganga í eina sæng. En ég spyr: Væri það gott fyrir þjóðina að áfram yrði keyrð sama stefna – án undansláttar? Er ekki kominn tími til að fá svolitla hrygglengju í velferðar-, umhverfis- og utanríkismálapólitíkina á Alþingi? Væri það ekki til góðs að þingmannafjöldi VG á Alþingi yrði fjórfaldaður? Hugsum málið með reynslu undangenginna ára ...

9. Maí 2007

SAMSTÆÐUR KRAGAHÓPUR VG!


Birtist í Kópi, blaði Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Kópavogi, 6.árg,3 tlbl.
Í fimm efstu sætum framboðslista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi - Kraganum - eru þrjár konur og tveir karlar. Konurnar eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands með meiru. Guðfríði Lilju kynntist ég fyrst sem starfsmanni Alþingis en hún starfaði meðal annars með alþjóðanefndum sem ég átti sæti í. Þá lærði ég fyrst að meta hana sem afburða starfsmann og skemmtilegan og góðan félaga. Í fjórða sætinu er Mireya Samper myndlistarmaður. Hún er eini hreinræktað Kópavogsbúinn í hópnum. Mireya er auk þess...

9. Maí 2007

MEÐ JÁVÆÐRI STAÐFESTU HEFST ÞAÐ !


Birtist í Vinstrigrænum Sveitunga (Mosfellsbæ) 1.tbl. 3. árg.
....Þegar við kynntum áform okkar um að bæta kjör láglaunafólks, öryrkja og aldraðra, tók fólk eftir því að við boðuðum ekki hækkun skatta frá því sem þeir hafa verið á undanförnum árum. Við boðuðum hins vegar breyttar áherslur í skattlagningu og ráðdeild við ráðstöfun opinberra fjármuna. Margt af því sem við boðuðum til dæmis innan heilbrigðisþjónustunnar teljum við einnig að sé til þess fallið að spara fjármuni þegar til lengri tíma er litið...

8. Maí 2007

FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS SEGIR AÐ ENN SÉU ÁFORM UM STÆKKUN Í STRAUMSVÍK


Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins hefur tjáð sig um það sem kallað hefur verið "fjandsamleg yfirtaka" álrisans Alcoa á Alcan fyrir 33 milljarða dollara, eða um 2.100 milljarða íslenskra króna. Jón neitaði nýlega að tjá sig um fund með Alcoa forstjórum en nú er komið í ljós hvað þar var rætt því Jón Sigurðsson segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að fréttirnar af yfirtökunni hafi ekki komið sér á óvart. Almennt finnst Jóni Sigurðssyni þetta góðar fréttir...Mikið er hughreystandi að vita að formaður Framsóknarflokksins ætlar að hafa taumhlad á þessum langstærsta ál-auðhring í heimi. Það er líka fróðlegt að ráðherrann skuli segja að Alcan hafi enn á prjónunum stækkun í Straumsvík! Var ekki verið að kjósa þau áform út af borðinu?  Skiptir ...

6. Maí 2007

FASTUR Í FORTÍÐ

Þorsteinn Pálsson skrifar að jafnaði góða leiðara. Yfirleitt skrifar hann mjög góða leiðara. Ekki alltaf þó. Leiðarinn í Fréttablaðinu dag var ekki að öllu leyti góður. Ritstjórinn staðhæfir að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking þyrftu lítið að slá af til að ná saman. Miklu minna en VG og aðrir flokkar. Þetta kann að vera rétt. En hvar skyldi fyrrum forsætisráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins og nú ritstjóri Fréttablaðsins bera niður máli sínu til staðfestingar? Það er á sviði utanríkismála. Í utanríkis- og varnarmálum þyrfti VG að gefa eftir í grundvallaratriðum, segir hann, til að ná saman við aðra. Hver eru grundvallarmálin í utanríkismálum? Grundvallarmál er hvort við fylgjum George W. Bush og Tony Blair til innrásar í Írak og gerumst staðföst stuðningsþjóð innrásarinnar. Þetta er grundvallarmál. Það er grundvallarmál hvort við höldum á lofti merki friðar eða árásar- og stríðsfánum. Það er grundvallarmál. Er VG á öðru máli en þjóðin í þessum efnum? Annað sem upp hefur komið er "varnarsamstarf" við Norðmenn. Þar er ...

4. Maí 2007

ÖRLAGARÍKAR KOSNINGAR


Ýmsir hafa haft á orði að kosningabaráttan hafi fram til þessa verið ósköp daufleg og muni að öllum líkindum verða það til enda. Þegar að er gáð kemur í ljós að það eru fyrst og fremst stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem halda þessu fram. Greinilegt er að þeir vilja láta líta svo út að hér sé allt í himnalagi og að kosningabaráttunni megi helst líkja við storm í vatnsglasi – svona annað veifið.
Veruleikinn er...

2. Maí 2007

AÐ SKJÓTA SJÁLFAN SIG Í FÓTINN

... Á þessu vakti formaður Geðlæknafélags Íslands athygli. Fyrir vikið uppskar hann reiði félagsmálaráðherra sem beindi að honum föstum skotum í fréttatilkynningu frá ráðuneyti sínu, nokkuð sem vægast sagt orkar tvímælis af því að fyrst og fremst er um að ræða pólitískar skylmingar ráðherrans ... Áður en Magnús Stefánsson, frambjóðandi Framsóknarflokksins, fullyrðir að framlögin til geðfatlaðra, sérstaklega milljarðurinn góði, renni óskertur til þeirra væri rétt að bíða eftir því að hann verði yfirleitt reiddur fram. Magnús Stefánsson miðaði á forsvarsmann geðlækna en ég sé ekki betur en hann hafi skotið sjálfan sig í fótinn. Þetta gerði Geir H. Haarde, frambjóðandi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, af svipuðu tilefni fyrir fáeinum dögum, sbr...

29. Apríl 2007

FRAMSÓKNARFLOKKURINN BRÝTUR BLAÐ Í AUGLÝSINGAMENNSKU


Framsóknarflokkurinn auglýsir nú ágæti sitt af miklu kappi og hvetur landsmenn til að kjósa flokkinn í komandi kosningum. Þetta gera aðrir flokkar einnig. En Framsóknarflokkurinn sker sig úr að tvennu leyti. Í fyrsta lagi ríður hann á vaðið með að innleiða auglýsingar sem hafa það að markmiði að skrumskæla andstæðinga flokksins, gera lítið úr þeim persónulega og afbaka málflutning þeirra. Þetta er þekkt úr bandarískri stjórnmálabaráttu. Vestanhafs hefur þetta sætt gagnrýni sómakærs fólks og hér á landi hefur til þessa enginn viljað leggja nafn sitt við slíka lágkúru. Þar til Framsóknarflokkurinn gerir það nú. Af  þessu tilefni vil ég votta forsvarsfólki flokksins...

26. Apríl 2007

VILL SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN EKKI LÆRA AF REYNSLUNNI?

Birtist í Morgunblaðinu 25.04.07
...Í tímaritinu Verktækni sem samtök verkfræðinga gefa út er að finna afar athyglisverða umfjöllun um danska skýrslu sem segir markaðsvæðingu raforkugeirans hafa verið "fíaskó" fyrir notendur. Verð hafi hækkað um þriðjung, fyrirtækjum á markaði hafi fækkað með tilheyrandi fákeppni. Í tímariti verkfræðinga er rakið hvernig ...Ef það er nú svo að færa eigi heilbrigðiskerfið inn á markaðstorgið í ríkari mæli en verið hefur verða menn að svara spurningum á borð við þessar:
1)Yrði það betra fyrir notendur þjónustunnar, það er að segja alla notendur, ekki einhverja útvalda?
2) Yrði það betra fyrir greiðendur þjónustunnar, hvort sem um væri að ræða sjúklinginn sjálfan eða skattgreiðendur almennt.
3) Yrði það betra fyrir starfsmenn almennt, ekki útvalda starfsmenn, heldur alla starfsmenn?...

26. Apríl 2007

ÓSKAÐ EFTIR STUÐNINGI Í FJARÐARPÓSTI


...Kjördæmið tekur til Hafnarfjarðar, Kópavogs, Garðabæjar, Álftaness og Seltjarnarness. Nokkur blöð eru gefin út í kjördæminu og höfum sent inn greinar þar sem við hvetjum kjósendur að veita okkur brautargengi í komandi kosningum. Í Fjarðarpóstinum sem út kom í vikunni var að finna slíkar hvatningargreinar frmabjóðenda VG...

25. Apríl 2007

VATNIÐ, FRELSIÐ OG BARÁTTUKRAFTURINN


Í umræðuþætti á Stöð 2 í kvöld minnti Kolbrún Halldórsdóttir, oddviti okkar Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi suður, á eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar þegar til framtíðar er litið: Eignarhald á vatni...Katrín Jakobsdóttir, oddviti VG í Reykjavík norður átti orð kosningabaráttunnar til þessa í umræðuþætti í Kastljósi RÚV í gær. Umræðan fjallaði um menntamál. Fram kom hve víða sýn Katrín hefur á menntamálin eins og reyndar á þjóðmálin almennt. Hún talaði fyrir fjölbreytni í menntakerfinu, nýsköpun og framförum...Ekki verður það sagt um Guðfríði Lilju Grétarsdóttur að hún sé á nokkurn hátt mótsagnakennd! Hún er gegnheil, sjálfri sér samkvæm í öllu og frábær samstarfskona. Ég heimsótti nokkra vinnustaði í dag – suma með Guðfríði Lilju en saman skipum við tvö efstu sætin í Kraganum sem svo er nefndur. Ég fann hve mjög fólk hreifst af málflutningi Guðfríðar Lilju. Fólk finnur baráttukraft hennar og heilindi. Þess vegna er ég bjartsýnn á að kjósendur í Hafnarfirði, Kópavogi, Álftanesi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi – það er að segja kjósendur í Kraganum...

24. Apríl 2007

MISVÍSANDI UMMÆLI RÍKISSTJÓRNARINNAR UM GEÐHEILBRIGÐISMÁL


Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem lýst er fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni vegna þess alvarlega ástands sem skapast hefur í málefnum geðfatlaðra barna og unglinga. Hátt í tvö hundruð börn og unglingar eru á biðlistum hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og segja forsvarsmenn deildarinnar að ástandið hafi aldrei verið verra. Foreldrar segja að ástandinu megi líkja við að vera haldið í gíslingu. Staðhæfingar ríkisstjórnarinnar um að þegar hafi verið gripið til aðgerða til að bæta ástandið er ekkert annað en kattaþvottur og eru yfirlýsingar Geirs H. Haarde, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, í útvarpsviðtali í morgun  misvísandi og afvegaleiðandi . Forsætisráðherra segir að Barna- og geðdeild Landspítalans verði stækkuð...

20. Apríl 2007

20 ÁRA ÓSLITIN VALDASETA – ÞAÐ MÁ EKKI VERÐA


... Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú setið að völdum í 16 ár samfleytt. Framsóknarflokkurinn hefur setið við kjötkatlana – þannig er stjórnarsetu þess flokks best lýst – í 12 ár. Vill þjóðin meira? Vilja menn enn eitt kjörtímabilið? Vilja menn 20 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins? Væri það hollt fyrir lýðræðið í landinu? Væri það hollt fyrir íslenskt samfélag? Skoðanakannanir að undanförnu gefa þær hrikalegu vísbendingar að ríkisstjórnin kunni að halda velli. Með enn sterkari Sjálfstæðisflokki en veikari Framsókn – nánast komin í göngugrindina svo gripið sé til orðfæris lesenda hér á síðunni. Hvers konar ríkisstjórn yrði þetta? Enn grimmara Íhald ...

18. Apríl 2007

TRYGGJUM GUÐFRÍÐI LILJU GRÉTARSDÓTTUR ÞINGSÆTI !

Í dag var birt á Stöð 2 skoðanakönnum úr Suðvestur-kjördæmi, Kraganum svokallaða. Samkvæmt könnuninni fengi Vinstrihreyfingin grænt framboð 17,4% atkvæða og tvö þingsæti í kjördæminu. Þetta væri þreföldun á fylgi frá kosningunum 2003!  Annar þingmaður VG á framboðslistanum stæði engu að síður naumt sem kjördæmakjörinn þingmaður. Minna mætti fylgið ekki vera til að hin galvaska skákdrottning Íslands, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, næði kjöri. Hún yrði að mínu mati einhver öflugasti nýliðinn á Alþingi – og ekki aðeins nýliði, einhver öflugasti þingmaðurinn - ef svo færi að hún næði kjöri. Guðfríður Lilja yrði kröftugur merkisberi velferðar, jafnaðar og kvenfrelsistefnu, sjálfbærrar atvinnu- og umhverfisstefnu auk þess sem hún er einstaklega vel að sér í alþjóðamálum. Þess vegna segi ég af ...

16. Apríl 2007

UM TRÚVERÐUGLEIKA STJÓRNMÁLAFRÆÐINGA

Nú reynir heldur betur á stjórnmálafræðingana og félagsfræðingana í háskólum landsins. Þeim verður tíðrætt um trúverðugleika stjórnmálamanna. Stjórnmálamönnum verður hins vegar tíðrætt um trúverðugleika stjórnmálafræðinga.  ... Í RÚV skilgreindi Baldur Þórhallsson, kennari í HÍ, vinstri kantinn í stjórnmálum. VG stendur sig vel að hans mati vegna þess að Samfylkingin léði flokknum trúverðugleika. Þetta reyndi hann að styðja sögulegum skýringum frá síðustu öld. ... söguskýring hans kolröng ... Hlutverk stjórnmálafræðinga hlýtur að vera að skoða það sem nú er og þá ekki síður það sem framundan er. Eitt lítið atriði til viðbótar. Baldur Þórhallsson virtist óskaplega kátur yfir því að formaður Samfylkingarinnar skyldi hafa agnúast út í VG. Þetta var að hans mati stefnubreyting sem gæti haft mikilvæga pólitíska ... Síðan mætti halda áfram með aðra spekúlanta úr stjórnmálafræðinni. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor á Bifröst vildi gifta Sjálfstæðisflokk og ...

14. Apríl 2007

SÉRRÉTTINDALÖGIN Á LEIÐINNI ÚT?


Það gladdi mig að heyra að Samfylkingin vill nú afnema hið alræmda lífeyrisfrumvarp þeirra Davíðs og Halldórs um sérréttindakjör alþingismönnum og þingmönnum til hagsbóta. Í vetur voru uppi tilburðir um að láta frumvarpið ganga undir lýtaaðgerð. Á  það vildi ég ekki fallast og sagði einfaldlega BURT MEÐ LÖGIN.
Eftirfarandi er úr ræðu minni um þetta frumvarp þegar það kom fyrir Alþingi til afgeiðslu: …"Það er vissulega mikilvægt verkefni að taka lífeyrisréttindi alþingismanna og ráðherra til endurskoðunar og á þeim tímapunkti stöndum við. Nú er spurningin í hvaða átt menn vilja halda, áfram eða aftur á bak. Í því frv. sem hér liggur fyrir felst yfirlýsing um það að í stað þess að halda inn í framtíðina er stefnan tekin í afturhaldsátt. Þetta frv. er tímaskekkja, minjar um kerfi misskiptingar og sérréttinda. Í ríkjum austan tjalds birtust forréttindi valdastéttanna m.a. í svokölluðum dollarabúðum. Þar versluðu menn á sérkjörum. Þetta frv. er dollarabúð íslenska lífeyriskerfisins.
Það er alveg rétt sem sagt hefur verið að ...

13. Apríl 2007

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN HEYKIST Á AÐ TALA SKÝRT OG MÁLEFNALEGA

...Er ekki kominn tími til að stjórnmálamenn tali skýrar. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á ekki að komast upp með klisjukennda alhæfingarsleggjudóma eins og heyra mátti hjá Sigurði Kára Kristjánssyni á RÚV í dag. Nú verða allir að tala skýrt og beita rökum í málflutningi sínum. Síðan standi menn eða falli með skoðunum sínum. Það erum við í VG reiðubúin að gera. Við gerum hins vegar þá kröfu að við séum látin njóta sannmælis. Við viljum alvöru dóma. Ekki sleggjudóma, hvorki frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins né annars staðar frá. Sjálfstæðisflokkurinn verður að þora að tala skýrt - og málefnalega. Er til of mikils...

12. Apríl 2007

MEIRIHLUTI ANDVÍGUR VIRKJUNUM Í ÞJÓRSÁ: HVAÐ ÞÝÐIR ÞAÐ?


Könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Stöð 2 sýnir að meirihluti Sunnlendinga er andvígur virkjunum í syðri hluta Þjórsár. Þetta eru athyglisverðar upplýsingar og mjög líklega vísbending um almennan vilja í þjóðfélaginu. Hvaða ályktanir er rétt að draga af þessu? Jú, nefnilega þær að öllum frekari ákvörðunum um virkjanir í Þjórsá væri rétt að fresta fram yfir kosningar og láta nýrri ríkisstjórn eftir alla frekari stefnumótun í sviði virkjana og stóriðjuframkvæmda.
Landsvirkjun er ekki ríki í ríkinu. Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar og á að lúta forræði hennar. Svona er það alla vega ennþá og vonandi um ókomin ár. Sjálfstæðisflokkurinn er með áform um að ...

10. Apríl 2007

BÆTUM KJÖRIN – BURT MEÐ FÁTÆKT !


Fyrirsögnin hér að ofan er yfirskrift yfirlýsingar sem Vinstrihreyfingin grænt framboð kynnti á fréttamannafundi í dag um forgangsverkefni sem býður komandi ríkisstjórnar fáum við í VG einhverju um ráðið. Ásamt mér kynntu áætlunina þau Álfheiður Ingadóttir, Gestur Svavarsson og Steinunn Þóra Árnadóttir. Í inngangi skjalsins segir: "Misrétti hefur aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum. Á sama tíma og margir hafa auðgast verulega og enn aðrir búa við góð lífskjör er vaxandi hópur settur hjá. Fátækt á ekki að líða í íslensku samfélagi og leggur Vinstrihreyfingin grænt framboð höfuðáherslu á að bæta og jafna kjörin og útrýma fátækt. Auka þarf ráðstöfunartekjur hinna tekjulægstu og taka til gagngerrar endurskoðunar samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og skatta. Það er hlutverk velferðarsamfélagsins að tryggja jöfnuð. Þess vegna leggur Vinstrihreyfingin grænt framboð áherslu á gjaldfrjálsa velferðarþjónustu,  aðgengilega landsmönnum öllum."...

9. Apríl 2007

AÐGERÐAÁÆTLUN GEGN FÁTÆKT

...Ljóst er að tvennt þarf að gerast í senn, bæta þarf tekjur lágtekjuhópa og draga úr gjaldtöku í velferðarkerfinu.Vinstrihreyfingin grænt framboð boðar til fundar með fréttamönnum þriðjudaginn 10. apríl klukkan 16 í Kragakaffi en svo nefnum við kosningamiðstöð okkar í  Hamraborg í Kópavogi. Þar verður kynnt aðgerðaáætlun VG um hvernig flokkurinn hyggst standa að því að bæta kjör lágtekjufólks og útrýma fátækt í landinu. Að lokinni kynningunni sem fram fer undir yfirskriftinni, BÆTUM KJÖRIN – BURT MEÐ FÁTÆKT , verður ...

7. Apríl 2007

FRAMSÓKNARFRÉTTIR Í RÚV


... Auðvitað eru takmörk fyrir því hvað fólk hefur lengi þolinmæði fyrir fréttastofu sem kallar á Halldór Ásgrímsson í viðtal og setur í fréttatíma – þá væntanlega sem sérstaklega fréttnæmt - það mat hans að Framsóknarflokkurinn eigi eftir að sækja í sig veðrið en VG að dala, enda sé VG loftbóla sem eigi eftir að springa! Hvenær á að ræða við alla hina diplómatana? Er búið að leita til Svavars Gestssonar? Það stendur að sjálfsögðu ekkert til. Nei, fyrst er það Halldór Ásgrímsson, síðan kemur Jónína Bjartmarz sem segir að stóriðjustefna Framsóknarflokksins sé framlag til vistvænni veraldar! Gott ef ekki heyrðist í varaformanni Sjálfstæðisflokksins úttala sig um hve mikilvægt væri að Framsókn styrkti sig fyrir kosningar! Á sama tíma og þessu vindur fram er hafnað að kynna hugmyndir VG um að jafna beri menntunarkostnað landsbyggðar og þéttbýlis. Fréttastofa sem...

5. Apríl 2007

KOSNINGABARÁTTA AÐ KOMAST Á FULLAN DAMP !

...Allt þetta og meira til mun koma til umfjöllunar og umræðu í kosningabaráttunni sem nú er að komast á fullan damp. Þar stendur í stafni okkar vinstri grænna á þéttbýlissvæðinu á suð-vesturhorninu...Svandís Svavarsdóttir ásamt góðu liði sem skipuleggur okkur frambjóðendurna af hugviti og röggsemi... Ég man aldrei til þess að hafa tekið þátt í kosningabaráttu þar sem eins margir leggja hönd á plóg og þar sem eins margir frambjóðendur láta til sín taka í greinarskrifum og á fundum og einmitt nú...Ég trúi því að fái VG stóraukinn styrk í þessum þingkosningum muni okkur takast að gera Ísland betra á næstu fjórum árum. Við sem erum...

4. Apríl 2007

MEIRA MISRÉTTI Í EINKAVÆDDRI ALMANNAÞJÓNUSTU

Óhætt er að segja að Margrét Pála Ólafsdóttir hafi kveikt umræðu í Silfri Egils um síðustu helgi en þar talaði hún fyrir einkarekstri velferðarþjónustunnar. Með því móti mætti frelsa konur undan því oki að vera “vinnukonur” karla eins og nú væri raunin á og einnig bæta hlutskipti þeirra í kjaralegu tilliti. Ég skrifaði pistil um þetta efni hér á síðuna (sbr. HÉR) þar sem ég lýsti gagnstæðum sjónarmiðum.
Á vefritinu Múrnum birtist afar athyglisverð grein um þetta efni. Ég birti hana hér að neðan með leyfi höfundar, Berglindar Rósar Magnúsdóttur. Í grein sinni segir Berglind Rós m.a.: Þetta er ekki skrifað til höfuðs því farsæla starfi sem Margrét Pála hefur staðið fyrir í skólamálum, en hún þróaði einmitt stefnu sína innan almenningsleikskólakerfisins fyrir allmörgum árum, heldur til að vara við því viðhorfi að leysa megi konur úr fjötrum kynbundins launamunar með tæknibrellum. Ef marka má þróunina í BNA er ekkert sem bendir til þess að einkarekstur muni framkalla byltingu í launum kvenna heldur fyrst og fremst aukið launabil innan...

3. Apríl 2007

ENDURNÝJUN OG KRAFTUR Í VG !


Að undanförnu hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð efnt til funda víðs vegar um landið með fulltrúum af framboðslistum flokksins. Frummælendur á fundunum hafa verið frambjóðendur í öðru og þriðja sæti listanna. Einn slíkur fundur var haldinn í gær í Hafnarfirði. Þar töluðu Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (sem skipar 2. sæti VG í Suðvesturkjördæmi), Gestur Svavarsson (sem skipar 3. sæti VG í Suðvesturkjördæmi og Ragnheiður Eiríksdóttir (sem skipar 3. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi). Erindi þeirra voru...Það sem lifir með mér eftir þennan fund er sá mikli endurnýjunarkraftur sem býr í Vinstrihreyfingunni grænu framboði. Það er uppörvandi að hlusta á nýtt fólk – það á við einstaklinga á öllum aldri – sem eru að...

2. Apríl 2007

UM VINNUKONUR OG VINNUMENN

...Reyndar fór því fjarri í Silfri Egils í gær. Þar fór Margrét Pála mikinn og talaði ákaft fyrir einkavæðingu velferðarþjónustunnar. Þá myndi allt gerast í senn: Hægt væri að virkja sköpunarkraftinn í starfsfólkinu, kjörin myndu batna, sérstaklega kvenna sem þar með hættu að vera vinnukonur karla. Það eru þær nefnilega segir Margrét Pála, þær eru vinnukonur karlanna. Þær fóru út af heimilunum, segir hún, til að þjóna körlum áfram sem vinnukonur í skólum og á sjúkrastofnunum.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, samferðarkona mín í VG, sem þátt tók í umræðunum, benti á að málið væri flóknara en þetta og varaði við einkavæðingar patentlausnum af þessu tagi. Sama verður ekki sagt um Kristrúnu Heimisdóttur. Svo var að skilja að þarna væri stefnu Samfylkingarinnar vel lýst. Eitthvað annað en afturhaldsrausið í mönnum á borð við ...

2. Apríl 2007

VIÐSKIPTABLAÐIÐ


Fyrir fáeinum dögum mátti heyra auglýsingar frá Viðskiptablaðinu þar sem spurt var hvort ætla mætti að bankarnir verði fluttir úr landi! Hlustendum var bent á að lesa viðtal við mig í helgarútgáfu blaðsins ef þeir vildu ganga úr skugga um ásetning minn í þessu efni færi svo að ég settist á ráðherrastól að afloknum kosningum í vor. Fólk sem ekki sá viðtalið hefur talsvert spurt mig út í það og birti ég það því hér með góðfúslegu leyfi Viðskiptablaðsins...

29. Mars 2007

HVERNIG Á AÐ BORGA FYRIR HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNA?

Birtist í Fréttablaðinu 28.03.07.
Á Íslandi er víðtæk sátt um að hafa góða heilbrigðisþjónustu. Stjórnmálamenn greinir hins vegar á um hvernig eigi að greiða fyrir hana. Sumir vilja láta borga með almennum sköttum, aðrir vilja að notandinn borgi beint og milliliðalaust. Hvað heilbrigðisþjónustuna áhrærir myndu milliliðalausar greiðslur þýða að við greiddum læknum og heilbrigðisstofnunum þegar við verðum veik. Þetta hefur verið að færast í vöxt hér á landi. Að vísu er til millileið. Fólk gæti keypt sér tryggingu fyrir sjúkdómum og áföllum. Einnig þetta er að færast í vöxt. Sá galli er á slíku kerfi að...

26. Mars 2007

HVERS KONAR UPPBYGGINGU Á HÚSAVÍK?


...Birkir Jón Jónsson, Framsóknarfokki vildi álver á Húsavík, Arnbjörg Sveinsdóttir, Sjálfstæðisflokki einnig, fulltrúi Frjálslyndra (en nafn hans veit ég því miður ekki) vildi álver á Húsavík og Kristján Möller, fulltrúi Samfylkingar vildi einnig álver á Húsavík. Aðeins sá sem þetta ritar, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs vildi aðra atvinnukosti en stóriðju. Á Húsavík hefur verið að þróast mjög framsækin atvinnustarfsemi í verslun og þjónustu og þá einnig í matvælaframleiðslu, ferðaiðnaði og hitti ég að máli menn sem voru fullir bjartsýni á framtíðina. Nýsköpunarmöguleikar væru miklir og bentu á fjölmörg dæmi þar um. Þessir menn kváðust vilja fjöbreytni í atvinnulífi í stað einhæfrar stóriðju. Þetta  tvennt færi einfaldlega ekki saman. Undir það...

25. Mars 2007

5 STAÐHÆFINGAR VG GEGN 5 STAÐHÆFINGUM FRAMSÓKNAR

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, skrifar grein í Morgunblaðið um helgina og lýsir þungum áhyggjum sínum yfir því að Vinstri græn kunni að komast til áhrifa í Stjórnarráði Íslands. Hætt sé við því að Ísland yrði þá hreinlega stöðvað!
Guðni gerir lesendum Morgunblaðsins grein fyrir áhyggjum sínum í fimm liðum ...Við viljum hlífa atvinnulífi landsins við frekari ruðningsáhrifum stóriðjunnar. Þennsla og háa vexti má beinlínis rekja til stóriðjustefnu Framsóknarflokksins. Sá flokkur hótar nú áframhaldandi áherslu á stóriðju og styður næstum þreföldun í Straumsvík, nýtt álver á Húsavík og í Helguvík auk Reyðarálsverksmiðjunnar. Þetta styður Framsóknarflokkurinn og kallar þá öfgamenn sem gagnrýna þessa stefnu. Hvor flokkurinn skyldi fylgja hófsamari,  ábyrgari og réttlátari stefnu, Framsóknarflokkurinn eða Vinstrihreyfingin grænt framboð? Svari hver...

21. Mars 2007

ÞINGMENN GANGA ÚT Á ÍSINN – HINN BROTHÆTTA ÍS


...Látum vera ef við gætum fengið þó ekki væri nema ofurlitla umræðu um þá tugi frumvarpa sem stjórnarmeirihlutinn hefur kæft til dauða. Frumvarp um að taka Ísland af hinum svívirðilega lista um undirgefnar stríðsþjóðir Bush í Íraksinnrásinni er dæmi um þingmál sem aldrei kom úr nefnd. Ekki heldur frumvarp um að gera táknmál heyrnarlausra að viðurkenndu máli heyrnarlausra. Það er þó mannréttindamál langt umfram Johny Walker og félaga sem tendra hugsjónaeldana hjá Sigurði Kára, Guðlaugi Þórðarsyni, Pétri Blöndal og öðrum sem eiga þá heitasta ósk að fólk geti keypt sér áfengi á bensínstöðinni. Þessir menn ganga...

21. Mars 2007

SAMGÖNGURÁÐHERRA Á FÖRUM VAKNAR TIL LÍFSINS !

Birtist í Morgunpósti VG 20.03.07.
...Þessi ummæli Sturlu Böðvarssonar koma mér ekki sérlega á óvart. Enda þótt skýrsla Ríkisendurskoðunar frá í sumar hafi sýnt að einkaframkvæmd í vegagerð væri óhagkvæmur kostur fyrir greiðendur vegaframkvæmda lætur Sturla Böðvarsson sér það í léttu rúmi liggja. Hann er búinn að ákveða með sjálfum sér að einkaframkvæmdin sé besti kosturinn. Við skulum ekki gleyma því að útboð er eitt, einkaframkvæmd annað. Flestar vegaframkvæmdir Vegagerðar ríkisins eru boðnar út og hefur enginn neitt við slíkt að athuga. Einkaframkvæmd gengur hins vegar út á að einkaaðila er afhentur vegur – þess vegna þjóðvegur – til rekstrar og honum veitt heimild til að innheimta vegatolla! Fjárfestar ráðast ekki í slíkar framkvæmdir nema til þess að hafa góðan arð af fjárfestingu sinni. Arðurinn kemur að sjálfsögðu upp úr vösum vegfarenda, upp úr okkar vösum. Vegagerðin er...

20. Mars 2007

FRAMSÓKNARFLOKKURINN RÆSIR SPUNAVÉLINA

Framsóknarflokkurinn er nú að fara í gang með kosningabaráttuna með hefðbundnum hætti. Ljóst er að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi flokksins, ætlar ekki að láta sitt eftir liggja í þessari kosningabaráttu. Hann vakti sérstaka athygli í síðustu borgarstjórnarkosningum fyrir að virða ekki umferðareglur stjórnmálanna og virtist sem honum þætti að kosningajeppi Framsóknar ætti alltaf að hafa forgang. Björn Ingi skrifar á heimasíðu sína um það sérstaka hugðarefni sitt að koma bjór og léttvíni í almennar matvöruverslanir og er greinilegt að honum þykja þeir vera heldur betur forpokaðir sem slíku eru andvígir. Sérstaklega á það við um Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Björn Ingi “upplýsir” að ...

15. Mars 2007

UM HUGTAKANOTKUN OG AUÐMANNAÓTTA Í ELDHÚSI ALÞINGIS


Í gær fóru fram á Alþingi Eldhúsdagsumræður eins og venja er í lok þings. Ég birti hér ræðu mína við þetta tilefni. Í ræðunni var víða komið við, meðal annars fjallað um hugtakanotkun stjórnmálamanna:
"...Nú í aðdraganda kosninga er mörgum mikið niðri fyrir. Verið er að endurskilgreina hugtök einsog frjálslyndi og íhaldssemi, öfgar og hófsemi. Mér hefur sýnst að það sé tilhneiging til að snúa hefðbundinni merkingu þessara orða á hvolf. Vinstri Græn hafa staðfastlega talað fyrir hófsemi og gætni í efnhagsmálum. En – og eru það sérstaklega Framsóknarmenn sem kalla einmitt þetta öfgar. Þeir sem ekki vilja leggja allt undir strax og undireins og fara hratt í fjárfestingar, hvort sem er í stóriðju eða á fjármálamarkaði eru kallaðir íhaldsmenn. Áhættufíklarnir eru hins vegar kallaðir raunsæismenn! Þetta er slæm þróun. Allt of mikið af þeirri áhættu sem íslenskt þjóðfélag er að taka alltof hratt er á ábyrgð ríkisins og þjóðarinnar allrar. Þetta gildir um virkjanir og stóriðju og þetta gildir líka um banka og fjármálastarfsemi. Vinstri Græn eru að því leyti íhaldssöm að ...  

8. Mars 2007

ÞINGMANNAFRUMVARP LÍTUR DAGSINS LJÓS

...Í dag kynntu tveir alþingsmenn slíkt frumvarp. Það voru þeir Geir H. Haarde, Sjálfstæðisflokki og Jón Sigurðsson, Framsóknarflokki. Tvennt óvenjulegt var við frumvarpið. Í fyrsta lagi varðaði það breytingu á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, sjálfa stjórnskipun landsins, og í öðru lagi gegnir annar þessara þingmanna stöðu forsætisráðherra og hinn stöðu iðnaðarráðherra. Þeir gegna og formennsku í stjórnarflokkunum. Það sem gerir málið enn sérkennilegra er að á vegum þessara aðila hefur verið starfandi sérstök stjórnarskrárnefnd sem undanfarin ár hefur haft það verkefni með höndum að ná breiðri samstöðu um breytingar á stjórnarskránni. Þykir það skjóta nokkuð skökku við að ráðherrarnir tveir, oddvitar stjórnarmeirihlutans skuli nú...

5. Mars 2007

LEIKSÝNING FRAMSÓKNAR


Framsókn átti helgina. Í rauninni var það ekkert undarlegt því flokkurinn hélt landsþing og blés í lúðra af því tilefni með mikilli opnunarhátíð í Borgarleikhúsinu.
Það er sem við manninn mælt að þegar kosningar nálgast umpólast Framsókn. Stjórnmálaflokkur sem setið hefur að völdum í tólf ár, haldið sig þétt upp að kjötkötlunum og nýtt sér aðstöðu sína til hins ítrasta, er skyndilega orðinn róttækur stjórnarandstöðuflokkur sem má ekki vamm sitt vita hvorki í stóru né smáu, heima eða heiman. Kárahnjúkaflokkurinn, Íraksflokkurinn, einkavinavæðingarflokkurinn, flokkurinn sem hrakti framkvæmdastýru Jafnréttisstofu úr embætti, flokkurinn sem kom á kvótakerfinu, flokkurinn sem sveik samninginn við Öryrkjabandalagið; Framsóknarflokkurinn má nú ekki hugsa til þess að svo mikið sem agnarsmár blettur falli á alhreint mannorðið. Að eigin sögn er Framsókn nú svo misboðið að ef ...

16. Febrúar 2007

EF LISTANUM Í KRAGANUM VÆRI SNÚIÐ VIÐ VÆRU ÞAU EFST


...Stundum hefur verið haft á orði að mælikvarði á styrkleika framboðslista sé sá, að skipta megi út einum í annars stað, stokka listann upp, án þess að draga úr styrkleika framboðsins, jafnvel eigi að vera hægt að snúa listanum við!
Hvað Kragann áhrærir væri þetta óhætt. Þá væri kominn í fyrsta sætið Benedikt Davíðsson, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, einn kröftugasti baráttumaður verkalýðsins á Íslandi um áratugaskeið og í seinni tíð einnig forsvarsmaður í samtökum aldraðra... Annað sætið myndi skipa Kristín Halldórsdóttir, fyrrverandi alþingiskona Kvennalistans og síðar framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs...Þriðja sætið á viðsnúnum lista VG í Kraganum myndi skipa Höskuldur Þráinsson, prófessor...Fjórða sætið myndi síðan skipa Anna Þorsteinsdóttir, húsmóðir og kennari, róttæk baráttukona allt sitt líf. Til gaman má geta þess að ...

9. Febrúar 2007

"AUKA FJÁRFRAMLÖGIN...Á NÆSTU ÁRUM"


...Í fyrrgreindum umræðum á dögunum um þetta efni sagði ég að vel kæmi til greina að mínu mati að sett yrðu ákvæði í lög sem meinuðu ráðherrum að gefa á síðustu metrum kjörtímabils yfirlýsingar um fjárhagslegar skuldbindingar ríkissjóðs fram í tímann, fram á næsta - jafnvel næstu - kjörtímabil. Það á ekki að líðast að nota ríkissjóð til að kaupa sér atkvæði. Þetta er verra fyrir þá sök að ríkisstjórnarflokkarnir hafa ítrekað leikið þennan leik áður og síðan svikið fyrirheit sín að kosningum loknum.
Í dag lögðu þær saman menntamálaráðherran og utanríkisráðherrann. Þær Þorgerður Katrín og Valgerður sendu á alla fjölmiðla mynd af sjálfum sér ásamt meðfylgjandi texta...

3. Febrúar 2007

FRÁLEITAR FULLYRÐINGAR FRÁ SA, ALCAN OG BÆJARYFIRVÖLDUM Í HAFNARFIRÐI UM STÓRIÐJU


...Ástæðan fyrir því að mér finnst ekki ámælisvert að bæjarstjórnarmeirihlutinn í Hafnarfirði skuli koma fram á fundi ásamt fulltrúum SA og Alcans að tala fyrir stækkun álverksmiðjunnar í Straumsvík er ekki sú að ég sé sammála því sem sagt var á þessum fundi heldur vegna hins að mér finnst það gott og meira að segja hrósvert þegar fólk kemur hreint til dyranna. Ef oddvita Samfylkingarinnar í Hafnarfirði finnst hann helst eiga samleið með SA og Alcan þá er ekkert við það að athuga að hann mæti á sameiginlegum áróðursfundi þessara aðila.
Það sem ég vil hins vegar gagnrýna eru þær röksemdir sem á borð voru bornar á þessum fundi en ég ...

24. Janúar 2007

BÆJARSTJÓRNARMEIRIHLUTINN Í HAFNARFIRÐI FELLUR Á STÓRIÐJUPRÓFI !


...Athygli vekur að tilkynning um niðurstöður skoðanakönnunar, sem er óþægileg fyrir Alcan, er gerð opinber í tengslum við meinta nýtilkomna "þverpólitíska samstöðu" um málefnið! Skyldi þetta vera tilviljun? ...Gæti verið að meirihlutinn í Hafnarfirði sé ekki eins óhlutdrægur í þessu máli og hann stundum vill vera láta? Hér á heimasíðunni birtist nýlega  lesendabréf þar sem minnt er á að sami meirihluti í Hafnarfirði og nú talar um "þverpólitíska samstöðu"  gekk frá landsölu til Alcan á árinu 2003. Til hvers keypti Alcan land? Jú, til að stækka álverið. Og hvers vegna var landið selt? Til að Alcan gæti stækkað álverið...En hvað hefur þá breyst? Ég veit ekki til þess að nokkuð hafi breyst í afstöðu meirihlutans í Hafnarfirði. Það sem hefur hins vegar breyst er að landið er að rísa gegn stóriðjustefnunni ...Það er mikið vatn runnið til sjávar – þótt ekki sé liðinn langur tíma - frá því VG bar fram tillögu á Alþingi um að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um Kárahnjúkavirkjun. Enginn þingmaður – ég endurtek, enginn þingmaður - utan þingflokks VG studdi þá tillögu á þingi! Þetta mun vonandi aldrei endurtaka sig. En nú loksins þegar kjósa á...

21. Janúar 2007

AÐ ÞESSU SINNI SAMMÁLA DAVÍÐ

Nokkuð hefur verið talað um málþóf á Alþingi í tengslum við stjórnarfrumvarpið um RÚV ohf. Þeir sem raunverulega hafa fylgst með framvindunni vita að þetta er ósanngjörn ásökun. Í fyrsta lagi er það ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn sem stendur í vegi fyrir því að samkomulag náist um framtíð Ríkisútvarpsins. Í öðru lagi er rétt að minna á að stjórnarandstöðunni hefur í tvígang tekist einmitt með langri umræðu að koma í veg fyrir vanhugsuð og stórskaðleg stjórnarfrumvörp um Ríkisútvarpið.
Stjórnarandstöðunni tókst einnig að fresta gildistöku Vatnalaganna með langri umræðu. Það þýðir að þjóðin fær nú í vor tækifæri til að kjósa um þann umdeilda lagabálk. Enda þótt þingmenn VG leggðu sig alla fram um að...

1. Janúar 2007

FORSÆTISRÁÐHERRA OG FORMENN STJÓRNMÁLAFLOKKANNA Í BOÐI ALCAN!!!

Getur einn fjölmiðill komist lengra í vesælmennsku en að efna til umræðu um liðið ár og það sem framundan er, með formönnum allra stjórnmálaflokka og þar með forsætisráðherra landsins, í boði álrisans Alcan! Þetta gerði Stöð 2 í gær í svokallaðri Kryddsíld. Þar voru áhorfendur minntir á það með reglubundnum hætti í hléum sem stjórnmálaforingjarnir voru látnir gera á umræðu sinni, að þeir væru þarna frammi fyrir þjóð sinni í boði Alcan. Þetta í kjölfar álinnpakkaðrar mútugjafar til Hafnfirðinga rétt fyrir hátíðar hlýtur að slá  met í óskammfeilni og smekkleysu.
Hvað skyldi svo bíða íbúa hreppanna á virkjunarsvæðunum upp með Þjórsá? Að sjálfsögðu munu þeir krefjast sinnar ...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

31. Júlí 2010

UNDARLEGAR SPURNINGAR?

Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson

30. Júlí 2010

VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN

... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur

29. Júlí 2010

ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU

...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason

29. Júlí 2010

FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS

...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?  
Kveðja,
Ólína

29. Júlí 2010

ESB TIL ÓÞURFTAR

..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE

28. Júlí 2010

HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU

Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K

27. Júlí 2010

SORGARDAGUR!

...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali

27. Júlí 2010

KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR

...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill

25. Júlí 2010

EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?

...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur

24. Júlí 2010

HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN

...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

8. Júlí 2010

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY

...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...  

2. Júlí 2010

Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA

...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar  og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...

28. Júní 2010

Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL

Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta