Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

30. Ágúst 2006

SVONA ER LÍFIÐ STUNDUM SKRÍTIÐ


Í morgun sat ég þingflokksfund VG þegar inn á fund okkar kom hringing þar sem óskað var eftir því að Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fulltrúi þingflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis kæmi í Kastljós Sjónvarps í kvöld og ræddi þar við Valgerði Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnaðarráðherra, um yfirhylminguna á skýrslu Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings, og þátt Valgerðar þar. Steingrímur tók þessu fagnandi og kvað sjálfsagt  að mæta. Ég hugsaði með sjálfum mér, að ólíklegt væri að af þessu sjónvarpseinvígi yrði og hafði ég þá þegar einnig miklar efasemdir um að Valgerður vogaði sér inn á fund iðnaðarnefndar sem boðaður hafði verið í dag, en þar hafði einnig verið óskað eftir nærveru hennar. Og það fór sem mig grunaði. Valgerður mætti...

28. Ágúst 2006

RÍKISSTJÓRNIN ÖLL SAMSEK Í YFIRHYLMINGU VALGERÐAR SVERRISDÓTTUR

...Hrikaleg eru ummæli Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnaðarráðherra, sem segir að Alþingi hafi fengið allar þær upplýsingar sem skiptu máli! Það eru þá væntanlega Valgerður sjálf, orkumálastjóri og Landsvirkjunarmenn sem eiga að ákveða hvað skiptir Alþingi máli! Forsætisráðherrann hefur í raun tekið undir þetta sjónarmið sbr. eftirfarandi í Fréttablaðinu 26. ágúst: " Ég treysti fullkomlega því sem fram er komið af hálfu Lnadsvirkjunar og Orkustofnunar…" Nú vill svo til að á Alþingi voru þingmenn sem sjálfir vildu fara í saumana á málum og einnig bera álitamál undir sérfróða aðila sem þeir treystu. Ásetningur Gríms að Alþingi þyrfti að fá frekari upplýsingar kemur skýrt fram í greinargerð hans: "Nú í dag, 14. febrúar 2002, stendur svo til að leggja fyrir Alþingi frumvarp um virkjunina og fá leyfi þingsins til að mannvirkið verði reist. Sökum þess hve undirrituðum finnst þetta verkefni illa undirbúið og alls ekki tækt til ákvarðanatöku, er þessi greinargerð sett saman…"   Þetta telja forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar að hafi ekki átt erindi til Alþingis. Ekki nóg með það. Þessum upplýsingum var haldið leyndum. Ríkisstjórn sem verður uppvís af öðru eins pólitísku misferli á að fara frá...

25. Ágúst 2006

PÓLITÍSKT MISFERLI – HVERNIG VERÐUR ÁBYRGÐIN ÖXLUÐ?


...Allar götur frá því þessi ákvörðun var tekin hafa legið fyrir mjög sterk rök gegn þessari framkvæmd: Rök sem tengjast náttúru- og umhverfisvernd og rök sem varða efnahagsforsendur. Furðu sætti hve lítinn áhuga fylgismenn framkvæmdanna á Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur sýndu þessum röksemdum á meðan framkvæmdirnar voru á ákvörðunarstiginu. Á þessum tíma komu einnig fram efasemdir jarðvísindamanna en það er fyrst nú að í ljós kemur að skýrslum um áhættuþætti sem tengjast virkjunarframkvæmdunum var beinlínis haldið leyndum fyrir Alþingi. Þetta hefur m.a. komið fram í viðtölum við Grím Björnsson, vísindamann á þessu sviði, sem sendi frá sér ítarlega skýrslu um efnið í ársbyrjun 2002. Orkumálastjóri og iðnaðarráðherra fengu skýrsluna en þessir aðilar kröfðust þess að Grímur færi með innihald hennar sem trúnaðarmál!
Þetta er eitt alvarlegasta mál sem upp hefur komið í íslenskum stjórnmálum í langan tíma og hlýtur að...

23. Ágúst 2006

ÞING FRAMSÓKNARFLOKKSINS OG TÚLKUN MORGUNBLAÐSINS

Lokið er sögulegu þingi Framsóknarflokksins. Magnað var að fylgjast með slagsmálum nokkurra helstu forkólfa flokksins um embætti. Í orði kveðnu, úr ræðustólnum, voru allir kandídatar miklir vinir og allt var þetta, að þeirra sögn, ein allsherjar veisla lýðræðisins. Þó var ekki verið að takast á um neitt nema langanir nokkurra einstaklinga til að skipa stöður og embætti í Framsóknarflokknum. Að vísu verður að segjast eins og er, að eftirsókn í embætti og vegtyllur í Framsókn gengur út á annað og meira,  því embætti í æðstu stjórn þessa stjórnmálaflokks kjötkatlanna, er ávísun á ráðherraembætti komist flokkurinn í Stjórnarráðið. Í þessu ljósi verða skiljanlegar yfirlýsingar kandidatanna, bæði þeirra sem unnu og einnig hinna sem töpuðu. Ég kem mjög sterk út úr þessu, sagði Jónína Bjartmarz, sem tapaði fyrir Guðna, nokkuð sem hann tók undir af annáluðu lítillæti: Jónína hefur styrkt stöðu sína við að glíma við mig, sagði landbúnaðarráðherra. Og Siv Friðleifsdóttir, hún kom að eigin sögn...

18. Ágúst 2006

STEFNUBREYTING EÐA SJÓNHVERFINGAR: HVER ER RAUNVERULEG AFSTAÐA TIL STÓRIÐJUSTEFNUNNAR?


...Ef flokkarnir þrír sem saman stóðu að ákvörðun um Kárahnjúkavirkjun og hingað til hafa stutt stóriðjustefnuna með ráðum og dáð, Framsókn, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur, eru nú komnir með efasemdir um forsendur þessarar stefnu verður að spyrja þá eftirfarandi spurninga:
Eru þeir þá nú orðnir fráhverfir virkjun Jökulsánna í Skagafirði, sem allir þessir flokkar hafa stutt?
Eru þessir flokkar orðnir fráhverfir því að Alcoa verði heimilað að reisa álver á Húsavík eins og allir þessir flokkar hafa stutt?
Eru þeir orðnir fráhverfir því að styðja álversframkvæmdir á Reykjanesi sem allir þessir flokkar hafa stutt?
Hversu djúpt rista sinnaskiptin? Eða eru þetta...

13. Ágúst 2006

ATHYGLISVERÐ FRÁSÖGN ODDVITA VG Í SKAGAFIRÐI

Að undanförnu hafa birst skrif  sem ættuð eru innan úr Stjórnarráðinu um stóriðjustefnuna, sem gefa þá mynd að ríkisstjórnin kunni að hafa farið offari. Átakanlegasta birtingarmynd þessa er sú yfirlýsing forsvarsmanna Framsóknarflokksins að flokkurinn hafi síðustu þrjú árin verið umhverfisvænn og ekki viljað skerða strá í íslenskri náttúru! Menn stóðu og göptu við þessi tíðindi, minnugir þess að ekki  er lengra síðan en í fyrra að fyrrverandi iðnaðarráðherra, núverandi utanríkisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, fór um landið falbjóðandi íslenskar náttúruperlur fjölþjóðlegum álrisum. Getur verið að eftir alla álþjónkunina á undanförnum árum takist kamelljóninu Framsókn að telja kjósendum í komandi kosningum trú um að flokkurinn sé umhverfisvænn í  meira lagi? Hvað sem þessu líður þá fjölgar þeim, sem sjá eftir því að Kárahnjúkasvæðinu skuli hafa verið fórnað og segja að nú sé nóg komið. En er það svo í raun? Hér á síðunni birtist afar áhugaverð grein eftir forsvarsmann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði, Bjarna Jónsson. Hann bendir á að jökulsárnar í Skagafirði séu...

9. Ágúst 2006

VINSTRIHREYFINIGIN GRÆNT FRAMBOÐ ENDURFLYTUR FRUMVARP UM FJÁRMAGNSTEKJUSKATT

...Athyglisvert er að næðu tillögur VG fram að ganga mætti ætla að yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem hafa fjármagnstekjur nú yrðu undanþegnir skatti, eða eins og segir í greinargerð með frumvarpi VG: “Gera má ráð fyrir að ...rúm 90% einstaklinga og ríflega 70% hjóna sem nú greiða fjármagnstekjuskatt (yrðu) undanþegin skattinum. Þótt hlutfallið sé hátt er hér fyrst og fremst um að ræða smásparnað almennings sem hefur yfirleitt sínar tekjur af launavinnu ... Vinnandi fólk greiðir af launum sínum (36,72%) að samanlögðum tekjuskatti og útsvari ... Tekjur þeirra auðugustu í landinu, þ.e. þeirra sem eiga fjármagnið og þeirra sem þiggja hluta tekna sinna af hlutabréfakaupum eða kaupréttarsamningum, eru aftur á móti mestmegnis fjármagnstekjur. Af þeim greiða þeir, eins og fyrr segir, aðeins 10% skatt." Þetta endurspeglar þann veruleika sem fram kemur í viðtali Morgunblaðsins í dag við Indriða H. Þorláksson, ríkisskattstjóra, um ...

7. Ágúst 2006

ENN UM FJÖLMIÐLALAGAFARSANN

...En hvaða ályktanir er hægt að draga af deilunni um fjölmðilafrumvarpið? Í fyrsta lagi, að sú ríkisstjórn sem nú situr er reiðubúin að hagræða sannnleikanum til að ná fram markmiðum sínum. Í öðru lagi, hve ótrúlega fylgispekt stjórnarmeirihlutinn á Alþingi sýnir foringjum sínum þegar fyrirskipað er að allir gangi í takt. Ég trúi því ekki enn að allir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafi í reynd talið málatilbúnað þeirra Davíðs og Halldórs varðandi málskotsrétt forseta, sannfærandi. Og hvað með Kárahnjúka, einkavæðinguna, vatnið, öryrkjamálið, gagnagrunnsmálið, Ríkisútvarpið...Hversu oft hefur sannfæring og samviska ráðið för og hve oft flokkssvipan? Í þriðja lagi hve...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta