Stjórnmál
22. Júní 2006
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN TEKINN VIÐ STJÓRN REYKJAVÍKURBORGAR

Ekki fer það framhjá nokkrum manni að stjórnarsamstarf Íhalds og og Framsóknar hefur nú tekið sér bólfestu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Linnulaus fréttaflutningur í gær af áformum um mislæg gatnamót hér og þriggja hæða gatnamót þar minnti okkur á að stjórnarskipti hafa átt sér stað í Reykjavík. Nú stjórnar Sjálfstæðisflokkurinn borginni en Framsókn styður allt það sem hann vill eftir að hafa þegið sínar sporslur og bitlinga: Sama mynstur og í Stjórnarráðinu. Eflaust mun það gerast í samstarfi þessara flokka í borginni, eins og í ríkisstjórn, að Framsókn gerist enn harðdrægari í að framkvæma stefnumál Sjálfstæðisflokksins en sá flokkur myndi nokkurn tímann voga sér. Þannig má ætla að mislæg gatnamót á hverju horni verði innan tíðar helsta hugsjón Framsóknarflokksins og munu þá verða gleymd loforðin um ...
21. Júní 2006
VERKEFNI FRAMTÍÐARINNAR: NÁTTÚRUVERND OG JAFNRÉTTI KYNJANNA
...Þetta er rétt hjá Drífu Snædal. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur stimplað náttúruverndaráherslur inn í íslensk stjórnmál frá því flokkurinn varð til undir aldamótin og áhersla á jafnrétti kynjanna hefur einnig verið ein af grunnstoðum hreyfingarinnar. Sú hugsun er ekki ný af nálinni. Hún fléttast saman við hefðbundna félagshyggju, sem byggir á jöfnuði og andstöðu við hvers kyns misrétti. Það er hins vegar rétt hjá Drífu Snædal að jafnréttisbaráttufáninn hefur nú verið hafinn á loft af miklum krafti og standa þar fremst í flokki hópur ungra kvenna, sem sett hafa mark á umræður og áherslur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Baráttugleði og kraftur þeirra hefur smitað út í þjóðfélagið, sem finnur að hugur fylgir máli. Þetta hefur án efa...14. Júní 2006
SÝNUM FRAMSÓKNARFLOKKNUM MISKUNNSEMI
...Sjálfstæðisflokkurinn hefur notað Framsókn til að framkvæma stefnu sína í tíu ár. Svo trú er Framsókn orðin þessari stefnu að hún telur hana vera sína. Þegar hún selur og gefur landið, þegar hún einkavinavæðir, þegar hún leggst undir Bush stjórnina bandarísku, fasíska og heimsvaldasinnaða einsog hún er, þá telur Framsókn þetta vera stefnu Framsóknarflokksins. Og auðvitað má það til sanns vegar færa. Þetta er sú stefna sem Framsóknarflokkurinn hefur fylgt í áratug. Framsóknarflokksstefnan er hægra megin við það sem Sjálfstæðisflokknum hefur þótt boðlegt að boða opinberlega og út á við. Það hlutverk hefur Framsókn hins vegar tekið að sér – í skiptum fyrir ráðherrastóla. Og nú þegar Framsókn fær einn slíkan stól í viðbót er ástæða til að hafa af því nokkrar áhyggjur að flokkurinn gerist jafnvel enn auðsveipari þjónn Sjálfstæðisflokksins en til þessa ef það þá á annað borð er hægt! Að sumu leyti var það táknrænt að ...
6. Júní 2006
INNSÆI EÐA MISMÆLI?
Þeir voru dramatískir félagarnir að baki Halldóri Ásgrímssyni, formanni Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, á hlaðinu fyrir framan ráðherrabústaðinn á Þingvöllum í gærkvöldi þegar Halldór sagði að hann myndi nú fara frá sem forsætisráðherra og innan skamms einnig sem formaður Framsóknarflokksins. Alltumlykjandi í sviðsmynd fréttamannafundarins voru (karl)menn sem greinilega áttu að sýna skjaldborg sem slegin hefði verið um Framsóknarflokkinn og fráfarandi foringja hans. Þungir á brún minntu þeir svolítið á Kreml hér forðum. Halldór Ásgrímsson, fráfarandi forsætisráðherra, sagði á þessum fréttmannafundi að nú myndu hefjast nýjar stjórnarmyndunarviðræður og myndi hann...
5. Júní 2006
FINNUR Á LEIÐINNI?

... Ef nafn einhvers stjórnmálamanns tengist fyrrnefndu tveimur þáttunum, álvæðingunni og einkavæðingunni, meira eða jafnmikið og nöfn þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur, þá er það nafn Finns Ingólfssonar. Þess vegna er það með ólíkindum að láta sér koma til hugar að velja hann til endurreisnarstarfs í Framsóknarflokknum. Á myndinni hér að ofan má sjá þá félaga Ólaf Ólafsson... koma úr Ráðherrabústaðnum sæla og hróðuga eftir að gengið hafði verið frá því að S-hópurinn eins og Framsóknarhópurinn var kallaður, hafði fengið Búnaðarbankann í sinn hlut...Sú spurning gerist mjög áleitin hvers konar fyrirbæri Framsóknarflokkurinn eiginlega er orðinn. Er hann stjórnmálaflokkur eða er hann ef til vill orðinn þröngt hagsmunabandalag sem nýtir sér ítök í stjórnmálum, fjármálaklíkum innan flokksins til framdráttar? Til þess að skilja hræringarnar innan flokksins er nauðsynlegt að kunna svörin við þessum grundvallarspurningum. Er flokkurinn ..
1. Júní 2006
HVAÐ ER SATT OG HVAÐ ER LOGIÐ UM FRAMSÓKNARFLOKKINN?
Fram hefur komið í fréttum að Þjóðarhreyfingin hyggst leggja fram kæru á hendur Framsóknarflokknum í Reykjavík fyrir meint kosningasvindl. Því er haldið fram að flokkurinn hafi keypt atkvæði innflytjenda, nokkuð sem ég get staðfest að þrálátur orðrómur var um fyrir kosningarnar. Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins vísaði þessum ásökunum á bug í samtali við Ólaf Hannibalsson í Kastljósi í kvöld. Ólafur svaraði því til að best væri fyrir alla aðila að fá málið á hreint og til þess væri kæran fram komin...Eitt enn væri fróðlegt að fá rannsakað. Óskar Bergsson sagði í fyrrnefndum Kastljósþætti að fyrir kosningar hefði Framsóknarflokkurinn verið sakaður um að ætla sér að kaupa sig til sigurs í kosningunum. En hvað gerist svo? "Nú liggur fyrir að við auglýstum minnst" ! Skyldi þetta vera rétt hjá þessum talsmanni Framsóknarflokksins? Eina könnunin sem ég hef séð um auglýsingakostnað flokkanna var birt á vefritinu Múrnum og þar kom fram að Framsóknarflokkurinn hefði auglýst mest ! Sjá ...Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












