Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

31. Maí 2006

VARAFORMAÐUR VG: FYLGISAUKNINGIN MUN HAFA VARNALEG ÁHRIF

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skrifar grein hér á síðuna þar sem hún leggur mat á kosningaúrslitin í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Hún telur að fylgisaukning VG muni hafa varanleg áhrif í íslenskum stjórnmálum en jafnframt megi ætla að þetta sé fyrirboði um breytt hugarfar þjóðarinnar: "Það er mín trú að þessi fjögurra prósentustiga fylgisaukning VG muni hafa varanleg áhrif í íslenskum stjórnmálum, ekki síst ef á eftir fylgir fylgisaukning í alþingiskosningum að ári. Vinstrihreyfingin – grænt framboð er til alls líkleg að ári og vegna skýrrar málefnastöðu flokksins er hægt að líta á þá fylgisaukningu sem nú hefur orðið sem vísbendingu um breytt hugarfar þjóðarinnar." Katrín minnir á að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi fengið 14 sveitarstjórnarmenn kosna af hreinum VG-listum en seinast hafi þeir aðeins verið fjórir. Einnig hafi VG verið ...

29. Maí 2006

VILBJÖRN


Þá hefur það gerst að ríkisstjórnin er komin í Ráðhús Reykjavíkur. Þangað er mættur Vilbjörn en svo hefur verið kallað þetta samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borginni, með þá Vilhjálm Þ. og  Björn Inga í fararbroddi. Þetta eru ill tíðindi fyrir þá sem vilja efla samfélagsþjónustu og umhverfisvernd. Fyrir áhugamenn um mislæg gatnamót, einkavæðingu, stóriðjustefnu, í stuttu máli fyrir þá sem styðja þá mengunar- og misréttisstefnu, sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa rekið í Stjórnarráðinu, er þetta hins vegar drauma stjórnarmynstrið. Og fyrir álrisana, sem þessir flokkar þjóna svo vel, er Vilbjörn himnasending. Í fréttaviðtölum eftir að tilkynnt var um myndun meirihlutans var...

27. Maí 2006

SAMFYLKINGIN DREIFIR ÓSANNINDUM

Þessi mislægu gatnamót eiga ekki heima í Hlíðunum segir í dreifiriti Samfylkingarinnar sem dreift var í Hlíðunum í gær, daginn fyrir kjördag. Í dreifiritinu er þeim ósannindum haldið fram að Samfylkingin sé ein um andstöðu við mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar "samkvæmt úttekt Ríkissjónvarpsins" . Hvar skyldi hana vera að finna? Hún hefur farið framhjá mér. Það hefur hins vegar ekki farið framhjá mér hvernig ....Sú aðferðafræði Samfylkingarinnar að dreifa ósannindaáróðri í þann mund sem kjörstaðir opna og þannig að illmögulegt er að koma við leiðréttingum, er með endemum. Samfylkingunni ber að senda frá sér yfirlýsingu þegar í stað og leiðrétta ósannindin. Samfylkingin geri það svo upp við samvisku sína hvort ...

27. Maí 2006

ÁTAKS ER ÞÖRF Í HÚSNÆÐISMÁLUM

Birtist í Fréttablaðinu 26.05.06.
Greinin er skrifuð í félagi við Þorleif Gunnlaugssn, 3. mann á lista VG í Reykjavík.
Einu mega kjósendur treysta og það er að Vinstrihreyfinigin grænt framboð mun gera allt sem hún megnar til þess að færa húsnæðismál tekjulágs fólks til betri vegar. Þar þarf margt að koma til. Aukið framboð á leiguíbúðum, öflugra húsaleigubótakerfi og síðast en ekki síst stóraukinn stuðningur félagsþjónustunnar til aðstoðar fólki sem ekki getur séð sér farborða.  Nú þegar dýrtíðarskrúfan er farin að snúast eykst þörf á því að fylgja félagslega ábyrgri stefnu hvað þetta...

26. Maí 2006

TRYGGJUM KOSNINGU ÞORLEIFS GUNNLAUGSSONAR!

...Hvort skyldu menn vilja virkja starfskrafta Þorleifs Gunnlaugssonar í borgarstjórn Reykjavíkur eða greiða götu fulltrúa Framsóknarflokksins sem lofar gulli og grænum skógum, peningagjöfum til kjósenda í skiptum fyrir atkvæði? Þar er ég ekki síst að vísa til þess að flokkurinn hefur látið þau boð út ganga að hver Reykvíkingur komi til með að fá 250 þúsund króna ávísun eftir að Framsókn hafi látið selja hlut borgarinnar í Landsvirkjun! Svo galið er þetta og svo óábyrgt að engu tali tekur. Ýmis önnur kosningaloforð flokksins eiga án efa eftir að fara á spjöld sögunnar fyrir það hve óábyrg og óskammfeilin þau eru. Vilji kjósendur efla þau sjónarmið sem VG stendur fyrir þá skal hafa í huga að því ...

26. Maí 2006

NEI STURLA, ÞETTA GENGUR EKKI !

...Látum vera að samgönguráðherra vilji bakka sína menn upp fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann getur hins vegar ekki leyft sér að nota samgönguráðuneytið sem agn í þessari baráttu. Eða hvað er ráðherrann að gefa í skyn? Að hann muni hygla sveitarstjórnum þar sem sjálfstæðismenn eru við stjórnvölinn? Á ekki að láta málefnaleg rök ráða í afstöðu samgönguráðuneytisins?  Er ráðherrann að láta að því liggja að sveitarfélög sem kjósa til áhrifa fólk sem ekki er á bandi með ráðherranum í stjórnmálaskoðunum  verði látin gjalda fyrir slíkar syndir? Þetta gengur ekki Sturla!  Þetta er misnotkun á pólitísku valdi...

26. Maí 2006

Á SKAGAFJARÐARVÖKU: ÞAÐ ÞARF EKKI SKURÐGRÖFU TIL AÐ SETJA NIÐUR VORLAUKA


Í gærkvöldi sat ég kosningafund Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði og flutti ég þar ávarp. Það gerði einnig oddviti framboðsins, Bjarni Jónsson. Hann leiðir lista kröftugrar sveitar og ferst það einkar vel úr hendi enda hefur Bjarni til að bera rökvísi, staðfestu og lipurð í mannlegum samskiptum. Bjarni fór í ræðu sinni yfir stöðu mála og hvatti félaga okkar til sóknar á lokasprettinum. VG hefur setið við stjórnvölinn í Skagafirði undanfarið kjörtímabil ásamt Sjálfstæðisflokki en sveitarstjórinn, Ársæll Guðmundsson, kemur úr röðum VG. Hann ákvað að gefa ekki kost á sér á komandi kjörtímabili. Ársæll hefur ásamt félögum sínum unnið gott  verk á liðnum fjórum árum og almennt er hægt að segja að Skagfirðingum hafi farnast vel á...

26. Maí 2006

HREINAR LÍNUR VG – ÖSSUR OG INGIBJÖRG SÓLRÚN

Birtist í Morgunblaðinu 25.05.06
...Ég beini því til vinstrisinnaðra kjósenda í Reykjavík að íhuga hvaða árif það hefði haft í Reykjavík ef ekki hefði notið aðhalds af hálfu VG þegar áform voru uppi um að hlutafélagavæða Orkuveituna, þegar sala á hlut borgarinnar í Landsvirkjun var á döfinni, þegar húsnæðismál og félagsleg hagsmunamál hafa verið uppi og læt ég þá órætt um aðkomu borgarfulltrúa að Kárahnjúkamálum!
Samfylkingunni og VG hefur auðnast að vinna ágætlega saman. En við vitum hvor flokkurinn það er sem veitir þrýsting frá vinstri og þá einnig hvaðan blása hægri sinnaðri vindar...

24. Maí 2006

KRÖFTUGUR BARÁTTUFUNDUR VINSTRIHREYFINGARINNAR GRÆNS FRAMBOÐS Í REYKJAVÍK

...Og upp í hugann kom annar langafi Silju, Stefán Ögmundsson prentari, í langan tíma forystumaður íslenskra prentara, um skeið varaforseti ASÍ, og einn magnaðasti baráttumaður félagslegra gilda sem ég hef kynnst; reyndar svo kröftugur að íhaldið lagði á sig allt sem mögulegt var til að reyna að eyðileggja líf hans og vísa ég þar í ljúgvitnin sem leidd voru fram gegn honum og Jóni Múla vegna atburðanna við Alþingishúsið 30. mars 1949, nokkuð sem orðið er aktúelt að nýju eftir upplýsingar um hleranir og ofsóknir á kaldastríðstímanum. Þetta voru hugrenningarnar...Svandís talaði um fortíðina, nútíðina og framtíðina. Hún talaði viturlega um fortíðina, vildi draga af henni lærdóma. Um nútíðina talaði hún af yfirvegun og einnig um framtíðina. Ég fékk það sterklega á tilfinninguna að þangað ætti Svandís erindi...

23. Maí 2006

HVORT ER BARIST UM STÓLA EÐA MÁLEFNI ?

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar skrifar umhugsunarverða grein í Morgunblaðið þar sem hún segir: "Á laugardaginn verður kosið um næsta borgarstjóra í Reykjavík... Dagur B. Eggertsson borgarstjóraefni Samfylkingarinnar hefur lýst því yfir að það komi ekki til greina að gefa eftir borgarstjórasætið í samningum..." Úrslitakostirnir í huga formanns Samfylkingarinnar virðast með öðrum orðum snúast um stóla fremur en málefni. Athygli  vekur að Ingibjörg Sólrún segir að á laugardag verði kosið um borgarstjóra. Ég hélt að við værum að kjósa um mismunandi pólitískar áherslur...Samkvæmt síðustu könnunum stendur baráttan nú á milli 8. manns Sjálfstæðisflokksins og 3. manns á lista VG. Ef VG hefur betur og Þorleifur Gunnlaugsson nær kjöri, auk þeirra Svandísar og Árna þórs, er hættan á hreinum meirihluta Íhaldsins úr sögunni. Þetta væru mikil og góð tíðindi fyrir borgarbúa því þau hefðu pólitíska þýðingu. Hitt er dapurlegt að ...

22. Maí 2006

JELTSÍN AÐFERÐIN VIÐ VINSÆLDAKAUP OG REIÐI Í GARÐ ÍHALDSINS


...Það hljómar líka ágætlega þegar oddviti framsóknarmanna í Reykjavík segir að nái hann kjöri þá ætli hann að sjá til þess að sérhver Reykvíkingur fái kvartmilljón – 250 þúsund krónur – beint í vasann fyrir sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun... "Ég held hins vegar", segir frambjóðandinn, "að eigendurnir sjálfir séu síst verr til þess fallnir að ráðstafa söluhagnaðinum en stjórnmálamenn." Nú spyr Blaðið hvort Framsóknarflokkurinn sé með þessu að reyna að kaupa atkvæði með fjármunum borgarbúa....Auðvitað er það rétt hjá Birni Inga Hrafnssyni og Siv Friðleifsdóttur að framkoma ríkisstjórnarinnar við tekjulægsta hluta samfélagsins er svívirðileg og báðum flokkum ber að axla á henni ábyrgð. Í því ljósi má til sanns vegar færa að Sjálfstæðisflokkurinn sleppi of vel og að...

20. Maí 2006

HVERS VEGNA ÞEGIR MORGUNBLAÐIÐ? HVERS VEGNA ÞEGIR FRÉTTABLAÐIÐ...?

Fyrir fáeinum dögum vísaði ég hér á síðunni í afar athyglisverða könnun sem vefritið MÚRINN hefur gengist fyrir á auglýsingakostnaði stjórnmálaflokkanna fyrir komandi kosningar. Sannast sagna hélt ég að þessi athugun múraranna yrði stórfrétt. Tengslin á milli peninga og stjórnmála eru að sjálfsögðu pólitísk, þau snerta meira að segja kjarnann í lýðræðinu. Peningarnir geta nefnilega drepið lýðræðið. Andstæðan við lýðræðið er ekki bara einræði heldur einnig auðvald; vald þeirra sem hafa fjármagnið með höndum. Barátta á flettiskiltum, í heilsíðuauglýsingum blaða og tímarita og í útvarps- og sjónvarpsauglýsingatímum kostar mikla fjármuni. Hætt er við því að þeir sem veita stjórnmálaflokkum óheftan aðgang að þessum auglýsingaheimi með miklum fjáraustri eigi síðar meir hönk upp í bakið á þeim. Þegar það gerist...

19. Maí 2006

EFLUM VG

Í morgun birtist könnun Fréttablaðsins sem gefur til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn fengi rétt undir helming atkvæða í Reykjavík. Ekki er ég trúaður á að þetta eigi við rök að styðjast. Erfitt á ég með að ímynda mér að nær helmingur borgarbúa vilji afhenda borgina Sjálfstæðisflokknum til ráðstöfunar næstu fjögur árin. Við skulum minnast þess að þetta er sami stjórnmálaflokkur og stýrir landinu í samvinnu með Framsókn; sami flokkur og selt hefur og gefið verðmætar almannaeignir, keyrt upp verðlagið á raforku með rándýrum miðstýrðum ákvörðunum og aukið kjaramisréttið í þjóðfélaginu. Vilja menn þessar áherslur inn í Ráðhúsið? Og hver skyldi helst vera mótvægi við þessa stefnu? Það er tvímælalaust Vinstrihreyfingin grænt framboð. Nú ríður á að hefja lokasókn kosningabaráttunnar. … Í grein sem fomaður VG, Steingrímur J. Sigfússon, birtir hér á síðunni í dag minnir hann á að Vinstrihreyfingin – grænt framboð bjóði fram V-lista á 13 stöðum á landinu, en í sveitarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum hafi þeir verið 8 talsins. Þetta eru mikil og góð þróun og henni þarf að fylgja eftir af staðfestu og krafti. Ég er sannfærður um að ef á að takast að rífa samfélagið upp úr misréttishjólförunum, og beina þróuninni inn í heillavænlegri farveg, verður að efla Vinstrihreyfinguna grænt framboð.

17. Maí 2006

GOTT FRAMTAK HJÁ MÚRNUM


Undir það skal tekið með vefritinu Múrnum að á meðan leynd hvílir yfir sjóðum stjórnmálaflokka er líka hægt að hafa áhyggjur af samskiptum peningamanna og stjórnmálamanna. Múrinn hefur látið fyrirtækið Auglýsingamiðlun taka saman tölur um áætlaða eyðslu stjórnmálaflokka vegna komandi kosninga til sveitarstjórna.  Í þessari áætlun er ekki að finna mat á kostnaði við gerð bæklinga og auglýsinga, leigu á jeppum, flettiskiltum, né neinum þeim varningi sem framboðin bjóða upp á. Einungis er um að ræða birtingar í stærstu fjölmiðlum landsins þannig að hér eru á ferð algjörar lágmarkstölur um kostnaði við kynningarstarf flokkanna. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar. Mestur er auglýsingakostnaður Framsóknarflokksins, á hæla hans kemur Sjálfstæðisflokkurinn en...

14. Maí 2006

UM STJÓRNMÁL Í SKAGAFIRÐI: BARA AÐ OFTAR VÆRI KOSIÐ...

...Þess vegna þurfa menn að horfa til reynslunnar, leiða hugann að því sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna hafa sagt fyrir kosningar og síðan eftir kosningar. Þeir sem vilja standa vörð um náttúruna og fjölbreytni í atvinnulífi geta óhræddir kosið Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Vinstri græn í Skagafirði hafa sýnt fram á að flokknum er treystandi við stjórnvölinn. Ég fagna að sjálfsögðu öllum yfirlýsingum – hvort sem þær koma frá sjálfstæðismönnum, fulltrúum Samfylkingar eða Framsóknar - þar sem boðað er fráhvarf frá virkjunar- og stóriðjuáfergjunni. Vilji menn hins vegar geta treyst stjórnmálamönnunum út kjörtímabilið hvað þetta áhrærir – þá er bara eitt að gera: Kjósa Vinstrihreyfinguna grænt framboð...

9. Maí 2006

EXBÉ VIRÐIR REGLURNAR Á SINN HÁTT

...Látum vera að Framsókn vilji malbika Skerjafjörðinn. Það er sjónarmið út af fyrir sig eins fráleitt og það kann annars að vera. Ef flokkurinn telur það hins vegar vera rétt að gera  flugvöll á Lönguskerjum þá er eðlilegt að hann taki skýra afstöðu og berjist síðan fyrir henni. En að láta það fylgja með í pakkanum að flokkurinn lofi því að um malbikaðan Skerjafjörð verði þjóðarsátt - er náttúrlega svo yfirgengilega absúrd að tekur engu tali. Slíku getur enginn stjórnmálaflokkur lofað. Framsókn hefur ekki verið vönd að virðingu sinni í auglýstum kosningaloforðum sínum í undangengnum kosningum og eru menn orðnir ýmsu vanir þegar sá flokkur er annars vegar. Kemur þá upp í hugann Ríkisútvarpið, sem aldrei átti að verða að hlutafélagi samkvæmt heitstrengingum Framsóknar og Íbúðalánasjóður, sem okkur var sagt að hvíldi í öruggum faðmi Framsóknar en er nú að berjast fyrir lífi sínu. Framsókn hefur þannig í tímans rás sýnt kosningaloforðum sínum takmarkaða viðingu. Að því marki sem flokkurinn á annað borð virðir leikreglur þá...

1. Maí 2006

HEITT HJARTA, GRÆNIR FINGUR

1. maí ávarp á samkomu Vinstri grænna í Kópavogi .
...Félagshyggja er í stöðugri þróun og Vinstri Græn eru kyndilberar nýrrar hugsunar og nýrrar bjartsýni. Auðvitað er hægt að gefast upp einsog Samfylking gerir og ganga út í sólarlagið arm í arm með Sjálfstæðisflokknum. Nútímalegt par við fyrstu sýn, en fyrst og fremst þreytulegt. Draumar lífs þeirra hafa lit sínum glatað. Sjálfstæðismenn og Samfylking eru komin á hugmyndafræðilegan eftirlaunaaldur og þurfa stöðuga þerapíu í nefndum, endurnýjunarhópum og ráðum til að peppa upp nýja og spennandi stefnu. Vinstri Græn þurfa þess ekki. Öllum er stefnan ljós. Öflug...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

31. Júlí 2010

UNDARLEGAR SPURNINGAR?

Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson

30. Júlí 2010

VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN

... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur

29. Júlí 2010

ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU

...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason

29. Júlí 2010

FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS

...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?  
Kveðja,
Ólína

29. Júlí 2010

ESB TIL ÓÞURFTAR

..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE

28. Júlí 2010

HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU

Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K

27. Júlí 2010

SORGARDAGUR!

...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali

27. Júlí 2010

KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR

...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill

25. Júlí 2010

EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?

...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur

24. Júlí 2010

HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN

...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

8. Júlí 2010

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY

...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...  

2. Júlí 2010

Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA

...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar  og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...

28. Júní 2010

Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL

Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta