Stjórnmál
27. Mars 2006
ILLUGI OG VATNIÐ
...Illugi Gunnarsson á vissulega fullt erindi inn á vettvang stjórnmálanna. Hann er rökfastur og góður fyrir sinn málstað. Nema þegar hann skrifar um vatn. Það gerði IIlugi í Fréttablaðspistli sínum um helgina. Ekki var það góð grein. Það er mikil dirfska – mér liggur við að segja fífldirfska - að nota vatn og reynsluna af einkavæðingu vatnsveitna sem dæmi um ágæti einkaframtaksins... Í vatnsveitumálum fyrirfinnst engin samkeppni. Reynslan er sú að vatnsfyrirtækin skipta markaðnum á milli sín og hafa síðan samráð um verðlag. Neytandinn er þess vegna algerlega á þeirra valdi. Afleiðingin er hærra verðlag og lakari þjónusta. Þetta eru ...
26. Mars 2006
STENDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Í VEGI ÞESS AÐ FRAMSÓKN EINKAVÆÐI?
...Ráðherra Framsóknar segir það ekki hafa verið "til sóma" að sýna ekki meiri dugnað við einkavæðinguna. Valgerður getur þó huggað sig við það að í vikunni verður frumvarp hennar um að gera Rafmagnsveitur ríkisins að hlutafélagi tekið til annarrar umræðu á Alþingi. Það hlýtur ráðherrann þó að telja vera til sóma – eða hvað? En hver skyldi vera skýrinign á því að meira hefur ekki verið einkavætt á síðustu árum en raun ber vitni, þrátt fyrir heitstrengingar og svardaga í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Skyldi Íhaldið vera tregt í taumi hinna áköfu einkavæðingarsinna í ...
24. Mars 2006
FRAMSÓKN LEITAR SKJÓLS HJÁ DÖNSKUM BANKA
...Hitt er svo annað mál að við þurfum að horfa á þessi mál af raunsæi og yfirvegun og vera sjálfsgagnrýnin í þessum efnum. Ekki verður það sagt um Magnús Stefánsson, framsóknarþingmann. Hann kom fram í fjölmiðlum í gær sveipaður skikkju formanns fjárlaganefndar Alþingis. Hann tók undir gagnrýni í garð Danske Bank. Þetta veit Magnús að fellur í kramið hjá landanum því í hugum margra Íslendinga eru grunsemdir um að Danir geti ekki unnt Íslendingum velgengni innan okkar gamla konugsríkis, og skýri það gagnrýni þeirra i garð íslenskra stórfjárfesta! Í skjóli þessa stígur Magnús einu feti framar því hann notar tækifærið og spyrðir stjórnarandstöðuna á Íslandi eins og hún leggur sig saman við danska bankamenn og segir þennan mannskap allan fara með óábyrgan málflutning! Í fréttum RÚV í gær segir...Gagnrýni á stóriðjustefnu Framsóknarflokksins verður ekki afgreidd út af borðinu með þessum hætti. Við hljótum að frábiðja okkur niðurskurð í velferðaþjónustu á vegum ríkisins í komandi fjárlögum til þess að greiða götu stóriðjuáforma Framsóknarflokksins. Það eru þau sem valda þenslunni í íslensku hagkerfi, ekki launahækkanir láglaunafólks. Sem kunnugt er stefnir...19. Mars 2006
ÞVERPÓLITÍSKUR JÓN BALDVIN?
...Ekkert var ákveðið í þessu efni en ljóst að ef hugmyndin um þverpólitíska aðkomu ætti að verða að veruleika, þyrfti vilji að vera fyrir hendi af allra hálfu...En það er ekki hægt að bíða endalaust og til þess að leysa málið – höggva á hnútinn - hefur formaður Samfylkingarinnar nú ákveðið einhliða að skipa hina þverpólitísku nefnd. Í fréttum í kvöld var okkur sagt að Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum formaður Alþýðuflokksins, yrði formaður nefndarinnar. Svona er hægt að leysa málin hratt og vel. Kannski verður skipuð önnur nefnd á morgun til að ná þverpólitískri sátt um heilbrigðismálin með sérstakri áherslu á gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu. Sighvatur Björgvinsson gæti orðið formaður í þeirri nefnd. Vanur maður. Svona má ...
18. Mars 2006
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR SAKAR PÓLITÍSKA ANDSTÆÐINGA RANGLEGA UM FALSANIR
Birtist í Morgunblaðinu 17.03.06.
...Hvers vegna sé ég mig knúinn til að tína til þessi ummæli Valgerðar Sverrisdóttur frá síðasta ári? Það er vegna þess að hún hefur leyft sér að saka mig og aðra þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um að falsa ummæli sín. Ég hef nú sett fram gögn á Alþingi sem sýna ótvírætt að ásakanir ráðherrans byggja á ósannindum. Hvorki ráðherrar né alþingismenn, né nokkur annar ef því er að skipta, eiga að komast upp með að ljúga fölsunum upp á pólitíska andstæðinga sína. Að slíku hefur Valgerður Sverrisdóttir nú orðið uppvís...
...Hvers vegna sé ég mig knúinn til að tína til þessi ummæli Valgerðar Sverrisdóttur frá síðasta ári? Það er vegna þess að hún hefur leyft sér að saka mig og aðra þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um að falsa ummæli sín. Ég hef nú sett fram gögn á Alþingi sem sýna ótvírætt að ásakanir ráðherrans byggja á ósannindum. Hvorki ráðherrar né alþingismenn, né nokkur annar ef því er að skipta, eiga að komast upp með að ljúga fölsunum upp á pólitíska andstæðinga sína. Að slíku hefur Valgerður Sverrisdóttir nú orðið uppvís...
14. Mars 2006
ÞAÐ VERÐUR KOSIÐ UM VATNIÐ
...Umræðan um vatnalagafrumvarpið hefur verið fróðleg um margt. Sérstaklega hefur verið athyglisvert að fylgjast með því hvernig verktakar ríkisstjórnarinnar úr stétt lögfræðinga hafa gegnt lykilhlutverki í fjölmiðlum. Höfundar frumvarpsins og ýmsar "hægri hendur" ráðherra hafa verið kynntar til leiks sem lögfræðingar og sérfræðingar til þess að staðhæfa að ríkisstjórnin hafi rétt fyrir sér! ... Þá þykja það vera rök í málinu af hálfu forsætisráðherrans að lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sé til þess fallið að aðlaga lög að hæstaréttardómum á liðnum áratugum...En jafnvel þótt svo væri, þá eru þetta haldlítil rök... Bæði hér á landi og í grannlöndum okkar færist það hins vegar í vöxt að dómstólar taki sér pólitískt vald og sveigi þannig lögin með túlkunarvaldi sínu. Dómstólar gegna þannig sífellt stærra hlutverki í þróun löggjafar. Dómstólarnir verða ágengari og löggjafinn sífellt lítilþægari gagnvart dómsvaldinu hvað þetta snertir...En er það ekki hlutverk okkar að bæta það sem fyrir er? Okkur mun gefast kostur á því. En til þess þurfum við að fella stjórnarmeirihlutann í næstu alþingiskosningum. Þá verður afleitt vatnalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar aldrei að lögum...
13. Mars 2006
HVERT ER HLUTVERK UPPLÝSINGAFULLTRÚA FORSÆTISRÁÐUNEYTISINS?
Að gefnu tilefni velti ég því fyrir mér hve marga aðstoðarmenn Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, hafi ráðið til starfa í forsætisráðuneytinu. Björn Ingi Hrafnsson er titlaður aðstoðarmaður ráðherra, ef ég man rétt. Hann er kraftmikill pólitískur áhugamaður og betri en enginn fyrir sinn mann. Það má í sjálfu sér segja líka um Steingrím Ólafsson, upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins. Allt gott um það, nema hvað ég hefði haldið að upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins héldi örlítið aftur af framsóknarmennskunni í sjálfum sér þegar hann notar embættistitil sinn í opinberum blaðaskrifum. Það gerir Steingrímur Ólafsson hins vegar ekki. Í dag skrifar hann grein í Blaðið, sem...
9. Mars 2006
RÉTTLÁT REIÐI EÐA DÓMGREINDARLEYSI?

Í vikunni tók Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, pokann sinn og yfirgaf ráðuneyti og þing. Spunnust af þessu orðaskipti á Alþingi. Fyrir mitt leyti kvaddi ég Árna og óskaði honum velfarnaðar með þessum orðum: "Hæstv. forseti. Fyrst hin persónulegu skilaboð, síðan hin pólitísku skilaboð. Persónulega þykir mér eftirsjá að Árna Magnússyni úr stjórnmálum og óska ég honum alls góðs. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að segja að við í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs óskum öllum hrókeruðum hæstv. ráðherrum og þingmönnum velfarnaðar í starfi og brottförnum að sama skapi." Þetta voru persónulegar kveðjur og vil ég leggja áherslu á, að persónulegar velfarnaðaróskir félaga minna í VG og sjálfs mín til handa Árna Magnússyni, eru hugheilar. Hefur mér líkað prýðilega við manninn eins og þeir sem til þekkja vita. En Árni er ekki bara Árni. Hann er líka áhrifamaður í innsta hring Framsóknarflokksins og...
6. Mars 2006
HVERS VEGNA HLUSTAR FRAMSÓKN EKKI Á GUÐNA?
Öfgafull stefna Framsóknarflokksins í stóriðjumálum veldur samstarfsflokknum í ríkisstjórn undrun og vaxandi áhyggjum. Sérstaklega hafa 2. Mars 2006
UM LOTTÓVINNINGA, RÚSSNESKA RÚLLETTU OG PÓLITÍSKA KÖNNUN FRAMSÓKNARFLOKKSINS Á KOSTNAÐ SKATTBORGARA

Það er hressandi að heyra í Skagfirðingum þessa dagana, enginn uppgjafartónn þar á bæ. Það skiptir máli að Vinstrihreyfingin grænt framboð á aðild að sveitarstjórninni í Skagafirði. Í yfirlýsingu sem kom frá VG í Skagafirði í dag er minnt á að " Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur vildu álver í Skagafjörð og voru tilbúin til að fórna skagfirsku Jökulsánum og náttúru þeirra. Vinstri grænir stóðu einir stjórnmálaflokka í Skagafirði með Jökulsánum og Héraðsvötnum ... ...Ég hef kynnt mér niðurstöður könnunarinnar og furða mig á því að spurningar um pólitíska afstöðu manna eru ekki birtar í þeim niðurstöðum sem hafa verið gerðar opinberar. Ég hef hins vegar heyrt frá nokkrum einstaklingum sem lentu í úrtaki þessarar könnunar Framsóknarflokksins...
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLÆTI
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIÐ VONBRIGÐUM!
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGÐ Í MUNNINN
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓÐ KVEÐJA
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
Jón Jón Jónsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












