Stjórnmál
28. Febrúar 2006
HÚN HEITIR SVANDÍS !
Valgerður Bjarnadóttir skrifar ágætar "Vangaveltur um prófkjör" í Fréttablaðið í dag. Greinin hefst á þessum orðum: "Forystukona vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum í vor sagði í útvarpsþætti um daginn eitthvað í þá áttina að hún teldi stjórnmál snúast um lífsviðhorf, meðal annars þess vegna hefði hún efasemdir um prófkjör stjórnmálaflokka sem væru öllum opin, líka þeim sem ekki væru flokksbundnir. Ég er hjartanlega sammála konunni um að stjórnmál snúist um lífsviðhorf en er samt ekki viss um að það leiði mig til sömu niðurstöðu um hvernig haga eigi vali á framboðslista stjórnmálaflokka, eða hverjir megi koma að slíkum ákvörðunum…"Það sem ég furða mig á er að sú kona, sem Valgerður Bjarnadóttir gerir að umræðuefni í blaðagrein sinni, "forystukona vinstri grænna", skuli ekki fá að njóta nafns síns. Ekki bara hennar sjálfrar vegna heldur...
19. Febrúar 2006
TIL HAMINGJU ÍSLAND !
Silvía Nótt kom, sá og sigraði í forkeppni Eurovision – með miklum yfirburðum. Af lítillæti sínu þakkaði hún samkeppendum sínum , "upphitunarhljóm-sveitunum", fyrir þeirra framlag. Silvíu Nótt er ekki fisjað saman. Hún óskar Íslandi til hamingju með hve stórfengleg heppni það hafi verið fyrir landið að hún skuli hafa fæðst á Íslands foldu. Auðvitað er Silvía Nótt...að gera grín, henda gaman að sjálfsupphafningu samtímans. Það eru þeir hins vegar ekki að gera sigurvegarar prófkjöranna sem nú, hver á fætur öðrum, stíga sveittir út úr prófkjörsslagnum, smurðir og sponsoreraðir í bak og fyrir, og að sjálfsögðu yfir sig ánægðir ... Getur verið að það sé nokkuð til í því, sem Svandís Svavarsdóttir, efsti maður á lista VG í Reykjavík, sagði...
8. Febrúar 2006
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN DREGUR SÉR BAUG Á FINGUR
Birtist í Morgunblaðinu 07.02.06.
...Morgunblaðið spyr í Staksteinum sl. föstudag, hvort stjórnarandstaðan sjái nú ekki að setja þurfi löggjöf um eignarhald fjölmiðla. Ég vil spyrja á móti hvort Morgunblaðinu finnist ekki ástæða til að endurskoða áform um að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið. Hlutafélagavæðing mun fyrr eða síðar leiða til sölu fyrirtækisins. En jafnvel þótt það ekki gerðist í bráð þá er hitt staðreynd að með hlutafélagavæðingu myndi stjórnsýslan gerbreytast að því leyti að pólitískt ráðinn útvarpsstjóri fengi nánast alræðisvald yfir mannahaldi og dagskrá, á sama tíma og dregið yrði úr gagnsæi stofnunarinnar. Verkefnið ætti að vera að draga úr heljartökum stjórnarmeirihlutans á Ríkisútvarpinu, bæta hag og kjör starfsmanna, setja stjórnsýsluna í markvissari farveg og stuðla að enn meira gagnsæi en nú er. Allt þetta er hægt aðgera án þess að breyta stofnuninni í hlutafélag og það sem meira er...
...Morgunblaðið spyr í Staksteinum sl. föstudag, hvort stjórnarandstaðan sjái nú ekki að setja þurfi löggjöf um eignarhald fjölmiðla. Ég vil spyrja á móti hvort Morgunblaðinu finnist ekki ástæða til að endurskoða áform um að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið. Hlutafélagavæðing mun fyrr eða síðar leiða til sölu fyrirtækisins. En jafnvel þótt það ekki gerðist í bráð þá er hitt staðreynd að með hlutafélagavæðingu myndi stjórnsýslan gerbreytast að því leyti að pólitískt ráðinn útvarpsstjóri fengi nánast alræðisvald yfir mannahaldi og dagskrá, á sama tíma og dregið yrði úr gagnsæi stofnunarinnar. Verkefnið ætti að vera að draga úr heljartökum stjórnarmeirihlutans á Ríkisútvarpinu, bæta hag og kjör starfsmanna, setja stjórnsýsluna í markvissari farveg og stuðla að enn meira gagnsæi en nú er. Allt þetta er hægt að
7. Febrúar 2006
100% MENN Í NORÐ VESTRINU !
Auðvitað á að taka skoðanakönnunum með varúð. Líka könnunum í Norðvestur-kjördæmi. Það hlýtur þó að vera saga til næsta bæjar þegar skoðanakannanir sýna fylgi stjórnmálaflokks vaxa um helming. Það hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð gert frá síðustu alþingiskosningum ef marka má nýjustu skoðanakönnun Gallup. Hverju er þetta að þakka? Í Skagafirði hafa samherjar í VG staðið sig vel við stjórnvölinn í sveitarstjórnarmálum og í landsmálum hefur flokkurinn einnig staðið sig afar vel undir gunnfána Jóns Bjarnasonar alþingismanns, sem hefur verið óþreytandi í ferðum og erindrekstri um kjördæmið og stöðugt að gæta að hagsmunum þess á Alþingi. Enginn hefur verið ötulli og eindregnari en Jón Bjarnason í baráttunni til verndar jökulsám Skagafjarðar. Hefur mjög mætt á honum í því efni upp á síðkastið og flutti hann fimm tíma magnaða og hugsjónaþrungna ræðu um málefnið á þingi fyrir fáeinum dögum. Henni gleymir hvorki ég né Valgerður Sverrisdóttir. Á vefriti Skagfirðinga segir frá þessum framgangi VG í ...Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN
... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS
...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?
Kveðja,
Ólína
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓÞURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU
Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?
...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL
Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












