Stjórnmál
29. Desember 2006
VG OG HÖFÐUBORGARSVÆÐIÐ – TILLÖGUR UM UPPRÖÐUN LÍTA SENN DAGSINS LJÓS
Vinstrihreyfingin grænt framboð mun nú fyrir áramótin skýra frá tillögum kjörnefndar til uppstillingar á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. Efnt var til forvals í byrjun desember og á grundvelli þess er síðan raðað upp á lista á kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavík suður, Reykjavík norður og í Suðvestur kjördæmi, Kraganum sem svo er oft nefndur...Breytt kjördæmaskipan kallar á nýja hugsun og vísar það skref sem Vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu hafa stigið með því að líta á höfuðborgarsvæðið heildstætt inn í nýja framtíð...17. Desember 2006
MIKIÐ UM LEIKREGLUR – MINNA UM SIÐFERÐI OG DÓMGREIND
...Reglurnar skipta vissulega máli en hvað um sjálfan leikinn? Er hann í lagi? Er í lagi að gera Landssíma Íslands að fjárfestingarfyrirtæki sem þjónustar landsmenn í samræmi við þann arð sem hvert viðvik gefur? Er í lagi að umbreyta þjóðfélagi okkar og gefa það markaði og græðgi á hönd? Skiptir engu máli að í landinu skuli nú stefna í átt til aukins misréttis, meðal annars vegna einkavæðingarfársins? Skyldu fátækir landsmenn orna sér við þá tilhugsun að milljarðamæringar maka nú krókinn sem aldrei fyrr? Gæti verið að auk þess að tala um leikreglur ættu fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar að fara að dæmi okkar í Vinstrihreyfingunni grænu framboði og tala líka um...
12. Desember 2006
ÖLL SKYNJUM VIÐ ERINDIÐ
...Þannig hefur Samfylkingin lýst vilja til að hafa umhverfis- og náttúruverndarsjónarmið meira í hávegum og hefur þar verið vísað í stefnumótunarplagg flokksins frá því í haust. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu sl. laugardag, undir fyrirsögninni, Nú skynja ég erindið, að flokkur sinn sé “eini flokkurinn sem hefur lagt fram skýrar tillögur til framtíðar um hvernig á að takast á við umhverfismálin.” Þetta eru undarleg ummæli þegar horft er til þeirrar miklu vinnu og geysilegu áherslu sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíð lagt á umhverfismál. VG hefur lagt fram kröfur, hugmyndir, stefnumótun á þessu sviði og skoðað umhverfismálin frá öllum sjónarhornum: náttúrunni í nánd og einnig í stærra samhengi, efnahagslífinu og byggða- og samfélagsmálum. Látum vera að formaður Samfylkingarinnar lýsi ánægju með stefnu síns flokks en slík sending til okkar í Vinstrihreyfingunni grænu framboði þykir mér ekki beinlínis vera í anda þeirrar víðsýni og þess umburðarlyndis sem Ingibjörg Sólrún segist bera mjög fyrir brjósti í umræddu viðtali. Auðvitað vilja allir stjórnarandstöðuþingflokkarnir að þeir ...2. Desember 2006
FORVAL Í DAG !!!

Í dag, laugardag, fer fram forval hjá Vinstrihreyfingunni Grænu framboði á höfuðborgarsvæðinu. Ég hvet alla félaga í VG á þessu svæði að nýta sér atkvæðisrétt sinn og taka þátt í að velja frambjóðendur fyrir alþingiskosningarnar næsta vor.
Kjörstaðir eru opnir frá 10 til 22.
Seltirningar og Reykvíkingar, aðrir en þeir sem búa í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti kjósi í Suðurgötu 3, Reykjavík.
Kópavogsbúar, Garðbæingar, Álftanesbúar og Hafnfirðingar, kjósi á Strandgötu 11 í Hafnarfirði.
Reykvíkingar sem búa í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti, Mosfellsbæingar og Kjalnesingar kjósi í Mosfellsbæ.
Vel kann að vera að einhver þátttakandi í forvalinu óski eftir að kjósa á öðrum kjörstað en þeim sem hér er tilgreindur. Sé svo skal...
2. Desember 2006
SKULDIN VIÐ BIRGI
Birtist í Blaðinu 01.12.06.
...Íslendingar gleðjast jafnan þegar landinn gerir „ það gott“. Það er út af fyrir sig prýðilegt. En við megum aldrei gleyma því að það skiptir máli hvernig – það er að segja á hvern hátt – við gerum það gott. Þetta snýst ekki um það eitt að maka krókinn. Enda þótt tónn Birgis Ármannssoar sé oft tiltöllega mildur og þýður – þá er það nú ekki alltaf svo. Hann þyrfti að taka sig á; leggja eyrun niður við grasvörðinn og gerast eitt með því landi og því samfélagi sem skóp hann. Þá mun hann skilja að hagsmunir okkar sem þjóðar, sem samfélags, fara ekki endilega saman við hagsmni auðmanna. Fjallræður peningamannsins eru ekki bestu vegvísar í þessu...
...Íslendingar gleðjast jafnan þegar landinn gerir „ það gott“. Það er út af fyrir sig prýðilegt. En við megum aldrei gleyma því að það skiptir máli hvernig – það er að segja á hvern hátt – við gerum það gott. Þetta snýst ekki um það eitt að maka krókinn. Enda þótt tónn Birgis Ármannssoar sé oft tiltöllega mildur og þýður – þá er það nú ekki alltaf svo. Hann þyrfti að taka sig á; leggja eyrun niður við grasvörðinn og gerast eitt með því landi og því samfélagi sem skóp hann. Þá mun hann skilja að hagsmunir okkar sem þjóðar, sem samfélags, fara ekki endilega saman við hagsmni auðmanna. Fjallræður peningamannsins eru ekki bestu vegvísar í þessu...
1. Desember 2006
HVER KEMUR TIL MEÐ AÐ ANNAST HANNES HÓLMSTEIN?
Birtist í Fréttablaðinu 30.12.06.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson spyr í Fréttablaðsgrein 10. nóvember síðastliðinn hvort Rousseau sé kominn í stað Marx í stjórnmál samtímans, rómantíkerinn í stað efnishyggjumannsins. Báðir fá þeir Rousseau og Marx slæma einkunn hjá háskólaprófessornum þótt hann virðist kunna betur á bókhaldið en tilfinningarnar og eigi þar af leiðandi auðveldara með að skilja efnishyggjumanninn Marx.
Hannesi Hólmsteini er nokkur vorkunn. Við lifum á tíma græðginnar. Öll andmæli heita öfund, öll gagnrýni heitir að vera á móti! Annnað hvort sem kommúnisti eða sem rómantíker. Þess vegna vísan í Rousseau og Marx. Sá hópur fólks sem vill andæfa lífi í græðgi hefur í dag “rangt fyrir sér”. Þetta er samkvæmt boðendum fagnaðarerindis óheftrar frjálshyggju “röng lífsskoðun”. Getur lífsskoðun nokkurn tímann verið „röng“? Þegar allt kemur til alls snýst málið um hvernig...
Hannes Hólmsteinn Gissurarson spyr í Fréttablaðsgrein 10. nóvember síðastliðinn hvort Rousseau sé kominn í stað Marx í stjórnmál samtímans, rómantíkerinn í stað efnishyggjumannsins. Báðir fá þeir Rousseau og Marx slæma einkunn hjá háskólaprófessornum þótt hann virðist kunna betur á bókhaldið en tilfinningarnar og eigi þar af leiðandi auðveldara með að skilja efnishyggjumanninn Marx.
Hannesi Hólmsteini er nokkur vorkunn. Við lifum á tíma græðginnar. Öll andmæli heita öfund, öll gagnrýni heitir að vera á móti! Annnað hvort sem kommúnisti eða sem rómantíker. Þess vegna vísan í Rousseau og Marx. Sá hópur fólks sem vill andæfa lífi í græðgi hefur í dag “rangt fyrir sér”. Þetta er samkvæmt boðendum fagnaðarerindis óheftrar frjálshyggju “röng lífsskoðun”. Getur lífsskoðun nokkurn tímann verið „röng“? Þegar allt kemur til alls snýst málið um hvernig...
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN
... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS
...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?
Kveðja,
Ólína
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓÞURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU
Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?
...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL
Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












