Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

22. Október 2006

RÚV SEGIR FRÉTTIR ÚR VALHÖLL

... Jafnframt þótti augljóslega nauðsynlegt að reyna að drepa á dreif gagnrýni sem fram hefur komið á tregðu Sjálfstæðisflokksins við að upplýsa um njósnastarfsemi og mannréttindabrot sem framin voru hér á landi á Kaldastríðstímanum.
Allt gekk eftir: Boðað var til fundar í Valhöll. Fjölmiðlar með RÚV í broddi fylkingar mættu og síðan var messað um eldgömlu málin og hina lúalegu aðför að Birni Bjarnasyni! Allt síðan kórónað með frásögn fréttastofu Sjónvarps sem sagði okkur að eins og glögglega mætti sjá á fundinum væri allt í lukkunnar velstandi á milli þeIrra Geirs og Björns. En er allt í lukkunnar velstandi á ...

21. Október 2006

HVERS VEGNA JBH Á AÐ BIÐJAST AFSÖKUNAR

Jón Baldvin Hannibalsson skrifar pistil í Fréttablaðið í dag þar sem hann vísar því á bug að sér beri að biðja Svavar Gestsson afsökunar eins og ég hafði farið fram á í grein í sama blaði. Af viðbrögðunum að dæma virðist Jón Baldvin vera blindur á það sem málið snýst um. Það snýst um siðferði í stjórnmálum og öndverðuna einnig: siðleysi. Kjarninn er eftirfarandi...Það getur verið að Jón Baldvin skilji ekki þessa mynd: Einhver - ekki Svavar Gestsson - heldur einhver er borinn þungum sökum og mannorð hans flekkað með ósæmilegum hætti árum saman. Þú veist að sakirnar eru upplognar en þú ferð samt ekki til að aðstoða þann mann sem er borinn sökunum.
...Eftir stendur að mannorð manna, sem um áratugaskeið hefur skipulega verið auri atað, hefur nú verið hreinsað. Það eru tíðindin sem máli skipta; ekki hitt hversu...

21. Október 2006

ÞEIR EIGA AÐ BIÐJA SVAVAR GESTSSON AFSÖKUNAR

 

Birtist í Fréttablaðinu 20.10.06.
Þór Whitehead skrifar grein í Fréttablaðið í gær (miðvikudaginn 18. október) sem varð til þess að mig setti hljóðan. Fram kemur að samráðherrar Svavars Gestssonar í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, 1988-1991, óskuðu eftir því að kannað yrði hvort Svavar hefði gengið erinda austur-þýsku leyniþjónustunnar! Ráðherrarnir voru samkvæmt frásögn Þórs, forsætisráðherrann Steingrímur Hermannsson, þáverandi formaður Framsóknarflokksins og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og þáverandi formaður Alþýðuflokksins.
Þór Whitehead byggir frásögn sína á skriflegum heimildum Róberts Trausta Árnasonar sem á þessum tíma var vara-fastafulltrúi Íslands hjá NATÓ en hann var beðinn um að gangast fyrir um þessa eftirgrennslan. Það hafi hann að eigin sögn gert þótt hann hafi verið "tregur til verksins" því hann hafi ekki fengið að vita hvernig ráðherrarnir "myndu nota hugsanlegar upplýsingar". Hann hafi engu að síður sinnt þessari beiðni og leitað til vestur-þýsku leyniþjónustunnar og hinnar bandarísku. "Einkum vildi Jón Baldvin vita, hvort að Svavar Gestsson hefði verið í hópi erindreka STASI”, segir í frásögn Róberts Trausta. Þar kemur einnig fram að...

19. Október 2006

ÓSPRUNGIN SPRENGJA ÞÓRS WHITEHEAD

... Nú hefur komið á daginn að eineltispólitíkin náði inn í Stjórnarráðið fyrir aðeins hálfum öðrum áratug. Róbert Trausti Árnason, sem beðinn var um að kanna hugsanleg tengsl Svavars Gestssonar við austur-þýsku leyniþjónustuna STASI, segist hafa verið „tregur til verksins“ af því að hann hafi ekki fengið að vita hvernig ætti „að nota hugsanlegar upplýsingar um mögulega íslenska erindreka STASI.“
Það er von að maðurinn spyrji og er verðugt viðfangsefni sagnfræðinga að skoða þetta í samhengi við pólitíska umræðu á þessum tíma...  

16. Október 2006

ÓLÍNA OG SÍÐA 2 Í MOGGA

Fyrir fáeinum dögum fékk ég bréf frá Ólínu, sem vakti athygli á því hve lýsandi og táknræn frásögn Morgunblaðsins var síðastliðinn föstudag af vesturför þremenninganna, Geirs, Valgerðar og Björns. Ólína segir:  "Mogginn á það til að bregða sér í skemmtigallann og rífa sig upp úr gráu hversdagslegu farinu, sem einkennir hann enn, þótt tíminn hafi stungið þetta annars ágæta dagblað af. Fyrir okkur lesendur jafnast skemmtidagar Moggans á við að lesa ljóð, eða jafnvel frekar flókna glæpasögu, útlenda. Svona dagur var í dag. Bjartur, tær og spennandi. Síða tvö í Mogganum. Fyrst fréttin um að sími utanríkisráðherra hafi verið hleraður og efasemdir fyrrverandi samgönguráðherra um að það hafi verið svo. Síðan neðri fréttin á sömu síðu svo að segja í sama ramma: Samstarf á nýjum grunni fer vel af stað. Þarna standa þeir Bjarnason, Mueller og Haarde i höfuðstöðvum FBI, bandarísku ríkislögreglunnar sem Hoover gerði svo fræga, og þarna voru þeir samkvæmt yfirlýsingum forsætisráðherra vegna “plaggsins” sem valdhafar íslenskir og bandarískir settu stafina sína á daginn áður…"  Í rauninni ætla ég ekki að gera annað að sinni en...

11. Október 2006

TÍMI TÍMAMÓTANNA AÐ RENNA UPP

Kosningar nálgast. Það liggur í loftinu og má merkja á ýmsu. Prófkjörsbarátta er hafin innan flokkanna og pólitíkin að taka á sig mynd kosningabaráttu. Augljósasta merki um hvað er framundan er, eins og fyrri daginn, að finna hjá Framsókn. Borðaklippingum og hvers kyns opnunum fjölgar jafnt og þétt hjá ráðherrum flokksins, allt eins og færustu hönnuðir og ímyndarfræðingar hefðu best getað hannað. Ekki veit ég með neinni vissu hvort kosningaráðgjafar og auglýsingasérfræðingar Framsóknar eru teknir til starfa en fyrir þá sem ekki muna, þá fékk auglýsingastofan sem matreiddi Framsókn ofan í kjósendur fyrir síðustu alþingiskosningar sérstök afreksverðlaun fyrir að ...

2. Október 2006

KRAFTMIKIL ÞINGBYRJUN

...Stórtíðindi dagsins voru svo yfirlýsingar stjórnarandstöðuflokkanna um að leggja í sameiningu fram mál sem snerta grundvallaratriði: Almannatryggingar, náttúruvernd, jafnréttismál, raforkumál og utanríkismál. Frá þessu var skýrt á sameiginlegum fréttamannafundi í svokölluðu "ríkisstjórnarherbergi" í þinghúsinu í dag.
Ef til vill var fundarstaðurinn táknrænn um það sem koma skal eftir þingkosningarnar í vor...Fái stjórnarandstaðan meirihluta eftir næstu kosningar hlýtur það að skoðast sem áskorun þjóðarinnar um að hún taki við landstjórninni.  Að mínu mati eru verulegar líkur á því, að þegar að afloknum þingkosningum, 5. maí næstkomandi, hefjist stjórnarmyndunarviðræður núverandi stjórnarandstöðuflokka. Auðvitað er til í dæminu að ...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta