Stjórnmál
29. Desember 2006
VG OG HÖFÐUBORGARSVÆÐIÐ – TILLÖGUR UM UPPRÖÐUN LÍTA SENN DAGSINS LJÓS
Vinstrihreyfingin grænt framboð mun nú fyrir áramótin skýra frá tillögum kjörnefndar til uppstillingar á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. Efnt var til forvals í byrjun desember og á grundvelli þess er síðan raðað upp á lista á kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavík suður, Reykjavík norður og í Suðvestur kjördæmi, Kraganum sem svo er oft nefndur...Breytt kjördæmaskipan kallar á nýja hugsun og vísar það skref sem Vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu hafa stigið með því að líta á höfuðborgarsvæðið heildstætt inn í nýja framtíð...17. Desember 2006
MIKIÐ UM LEIKREGLUR – MINNA UM SIÐFERÐI OG DÓMGREIND
12. Desember 2006
ÖLL SKYNJUM VIÐ ERINDIÐ
...Þannig hefur Samfylkingin lýst vilja til að hafa umhverfis- og náttúruverndarsjónarmið meira í hávegum og hefur þar verið vísað í stefnumótunarplagg flokksins frá því í haust. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu sl. laugardag, undir fyrirsögninni, Nú skynja ég erindið, að flokkur sinn sé “eini flokkurinn sem hefur lagt fram skýrar tillögur til framtíðar um hvernig á að takast á við umhverfismálin.” Þetta eru undarleg ummæli þegar horft er til þeirrar miklu vinnu og geysilegu áherslu sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíð lagt á umhverfismál. VG hefur lagt fram kröfur, hugmyndir, stefnumótun á þessu sviði og skoðað umhverfismálin frá öllum sjónarhornum: náttúrunni í nánd og einnig í stærra samhengi, efnahagslífinu og byggða- og samfélagsmálum. Látum vera að formaður Samfylkingarinnar lýsi ánægju með stefnu síns flokks en slík sending til okkar í Vinstrihreyfingunni grænu framboði þykir mér ekki beinlínis vera í anda þeirrar víðsýni og þess umburðarlyndis sem Ingibjörg Sólrún segist bera mjög fyrir brjósti í umræddu viðtali. Auðvitað vilja allir stjórnarandstöðuþingflokkarnir að þeir ...2. Desember 2006
FORVAL Í DAG !!!

Í dag, laugardag, fer fram forval hjá Vinstrihreyfingunni Grænu framboði á höfuðborgarsvæðinu. Ég hvet alla félaga í VG á þessu svæði að nýta sér atkvæðisrétt sinn og taka þátt í að velja frambjóðendur fyrir alþingiskosningarnar næsta vor.
Kjörstaðir eru opnir frá 10 til 22.
Seltirningar og Reykvíkingar, aðrir en þeir sem búa í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti kjósi í Suðurgötu 3, Reykjavík.
Kópavogsbúar, Garðbæingar, Álftanesbúar og Hafnfirðingar, kjósi á Strandgötu 11 í Hafnarfirði.
Reykvíkingar sem búa í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti, Mosfellsbæingar og Kjalnesingar kjósi í Mosfellsbæ.
Vel kann að vera að einhver þátttakandi í forvalinu óski eftir að kjósa á öðrum kjörstað en þeim sem hér er tilgreindur. Sé svo skal...
2. Desember 2006
SKULDIN VIÐ BIRGI
...Íslendingar gleðjast jafnan þegar landinn gerir „ það gott“. Það er út af fyrir sig prýðilegt. En við megum aldrei gleyma því að það skiptir máli hvernig – það er að segja á hvern hátt – við gerum það gott. Þetta snýst ekki um það eitt að maka krókinn. Enda þótt tónn Birgis Ármannssoar sé oft tiltöllega mildur og þýður – þá er það nú ekki alltaf svo. Hann þyrfti að taka sig á; leggja eyrun niður við grasvörðinn og gerast eitt með því landi og því samfélagi sem skóp hann. Þá mun hann skilja að hagsmunir okkar sem þjóðar, sem samfélags, fara ekki endilega saman við hagsmni auðmanna. Fjallræður peningamannsins eru ekki bestu vegvísar í þessu...
1. Desember 2006
HVER KEMUR TIL MEÐ AÐ ANNAST HANNES HÓLMSTEIN?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson spyr í Fréttablaðsgrein 10. nóvember síðastliðinn hvort Rousseau sé kominn í stað Marx í stjórnmál samtímans, rómantíkerinn í stað efnishyggjumannsins. Báðir fá þeir Rousseau og Marx slæma einkunn hjá háskólaprófessornum þótt hann virðist kunna betur á bókhaldið en tilfinningarnar og eigi þar af leiðandi auðveldara með að skilja efnishyggjumanninn Marx.
Hannesi Hólmsteini er nokkur vorkunn. Við lifum á tíma græðginnar. Öll andmæli heita öfund, öll gagnrýni heitir að vera á móti! Annnað hvort sem kommúnisti eða sem rómantíker. Þess vegna vísan í Rousseau og Marx. Sá hópur fólks sem vill andæfa lífi í græðgi hefur í dag “rangt fyrir sér”. Þetta er samkvæmt boðendum fagnaðarerindis óheftrar frjálshyggju “röng lífsskoðun”. Getur lífsskoðun nokkurn tímann verið „röng“? Þegar allt kemur til alls snýst málið um hvernig...
22. Nóvember 2006
FORVAL HJÁ VG Í REYKJAVÍK OG KRAGANUM

Laugardaginn 2. desember næstkomandi fer fram forval hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði í Reykjavíkurkjördæmunum báðum og Kraganum ( þ.e. Álftanesi, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi). Atkvæðagreiðslan fer fram sameiginlega enda náðist samkomulag um að frambjóðendur yrðu allir reiðubúnir að fara fram í því kjördæmi sem kjörstjórnin telur heppilegast að viðkomandi fari fram. Reglur í prófkjörinu er þær að allir sem hafa skráð sig í VG í þessum kjördæmum fram til kl. 17:00 þann 25.nóvember, þ.e. næstkomandi laugardag, geta tekið þátt í forvalinu. Hægt er að skrá sig á heimasíðu flokksins, vg.is eða með því að smella á þetta netfang: http://www.vg.is/default.asp?page_id=6177
Þeir sem búa erlendis verða að óska eftir því að fá sendan kjörseðil fyrir 24. nóvember. Það geta þeir gert með því að senda tölvupóst á netfangið vg@vg.is. Ég hvet stuðningsfólk VG til þess að ganga í flokkinn fyrir þennan tíma - fyrir vikulokin - og taka þátt í því að velja...
8. Nóvember 2006
MUNU LANDSMENN SÆTTA SIG VIÐ AÐ GREIÐA LÖGÞVINGAÐAN NEFSKATT TIL HLUTAFÉLAGS?
Nokkrir listamenn hafa tekið undir með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og Páli Magnússyni útvarpsstjóra um að nauðsyn beri til að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi. Þeir telja að það geri stjórnun stofnunarinnar sveigjanlegri og megi með því móti nýta fjármuni hennar betur. Þeir sem talað hafa þessu máli telja sumir hverjir einnig vel koma til greina að Ríkisútvarpið dragi sig út af auglýsingamarkaði. Allt á að vera hægt eftir að RÚV er orðið hlutafélag...
2. Nóvember 2006
UPPGJÖR EÐA SÁTTALEIÐ?
Umræðan um hleranir á Íslandi á kaldastríðstímanum er fróðleg og áhugaverð fyrir margra hluta sakir. Þannig er komið í ljós að símar starfandi stjórnmálamanna voru hleraðir m.a. í tengslum við Þorskastríðin og símar forystumanna í verkalýðshreyfingunni voru hleraðir í tengslum við vinnudeilur! Það er ekki að undra að þeir sem skipuðu sér í flokk með þeim sem sátu handan hlerunartækjanna gerist nú sakbitnir og rói sumir lífróður til að finna sögulega réttlætingu fyrir þessum mannréttindabrotum.
22. Október 2006
RÚV SEGIR FRÉTTIR ÚR VALHÖLL
... Jafnframt þótti augljóslega nauðsynlegt að reyna að drepa á dreif gagnrýni sem fram hefur komið á tregðu Sjálfstæðisflokksins við að upplýsa um njósnastarfsemi og mannréttindabrot sem framin voru hér á landi á Kaldastríðstímanum. Allt gekk eftir: Boðað var til fundar í Valhöll. Fjölmiðlar með RÚV í broddi fylkingar mættu og síðan var messað um eldgömlu málin og hina lúalegu aðför að Birni Bjarnasyni! Allt síðan kórónað með frásögn fréttastofu Sjónvarps sem sagði okkur að eins og glögglega mætti sjá á fundinum væri allt í lukkunnar velstandi á milli þeIrra Geirs og Björns. En er allt í lukkunnar velstandi á ...
21. Október 2006
HVERS VEGNA JBH Á AÐ BIÐJAST AFSÖKUNAR
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar pistil í Fréttablaðið í dag þar sem hann vísar því á bug að sér beri að biðja ...Eftir stendur að mannorð manna, sem um áratugaskeið hefur skipulega verið auri atað, hefur nú verið hreinsað. Það eru tíðindin sem máli skipta; ekki hitt hversu...
21. Október 2006
ÞEIR EIGA AÐ BIÐJA SVAVAR GESTSSON AFSÖKUNAR
Birtist í Fréttablaðinu 20.10.06.
Þór Whitehead skrifar grein í Fréttablaðið í gær (miðvikudaginn 18. október) sem varð til þess að mig setti hljóðan. Fram kemur að samráðherrar Svavars Gestssonar í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, 1988-1991, óskuðu eftir því að kannað yrði hvort Svavar hefði gengið erinda austur-þýsku leyniþjónustunnar! Ráðherrarnir voru samkvæmt frásögn Þórs, forsætisráðherrann Steingrímur Hermannsson, þáverandi formaður Framsóknarflokksins og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og þáverandi formaður Alþýðuflokksins.
Þór Whitehead byggir frásögn sína á skriflegum heimildum Róberts Trausta Árnasonar sem á þessum tíma var vara-fastafulltrúi Íslands hjá NATÓ en hann var beðinn um að gangast fyrir um þessa eftirgrennslan. Það hafi hann að eigin sögn gert þótt hann hafi verið "tregur til verksins" því hann hafi ekki fengið að vita hvernig ráðherrarnir "myndu nota hugsanlegar upplýsingar". Hann hafi engu að síður sinnt þessari beiðni og leitað til vestur-þýsku leyniþjónustunnar og hinnar bandarísku. "Einkum vildi Jón Baldvin vita, hvort að Svavar Gestsson hefði verið í hópi erindreka STASI”, segir í frásögn Róberts Trausta. Þar kemur einnig fram að...
19. Október 2006
ÓSPRUNGIN SPRENGJA ÞÓRS WHITEHEAD
... Nú hefur komið á daginn að eineltispólitíkin náði inn í Stjórnarráðið fyrir aðeins hálfum öðrum áratug. Róbert Trausti Árnason, sem beðinn var um að kanna hugsanleg tengsl Svavars Gestssonar við austur-þýsku leyniþjónustuna STASI, segist hafa verið „tregur til verksins“ af því að hann hafi ekki fengið að vita hvernig ætti „að nota hugsanlegar upplýsingar um mögulega íslenska erindreka STASI.“Það er von að maðurinn spyrji og er verðugt viðfangsefni sagnfræðinga að skoða þetta í samhengi við pólitíska umræðu á þessum tíma...
16. Október 2006
ÓLÍNA OG SÍÐA 2 Í MOGGA
Fyrir fáeinum dögum fékk ég bréf frá Ólínu, sem vakti athygli á því hve lýsandi og táknræn frásögn Morgunblaðsins var síðastliðinn föstudag af vesturför þremenninganna, Geirs, Valgerðar og Björns. Ólína segir: "Mogginn á það til að bregða sér í skemmtigallann og rífa sig upp úr gráu hversdagslegu farinu, sem einkennir hann enn, þótt tíminn hafi stungið þetta annars ágæta dagblað af. Fyrir okkur lesendur jafnast skemmtidagar Moggans á við að lesa ljóð, eða jafnvel frekar flókna glæpasögu, útlenda. Svona dagur var í dag. Bjartur, tær og spennandi. Síða tvö í Mogganum. Fyrst fréttin um að sími utanríkisráðherra hafi verið hleraður og efasemdir fyrrverandi samgönguráðherra um að það hafi verið svo. Síðan neðri fréttin á sömu síðu svo að segja í sama ramma: Samstarf á nýjum grunni fer vel af stað. Þarna standa þeir Bjarnason, Mueller og Haarde i höfuðstöðvum FBI, bandarísku ríkislögreglunnar sem Hoover gerði svo fræga, og þarna voru þeir samkvæmt yfirlýsingum forsætisráðherra vegna “plaggsins” sem valdhafar íslenskir og bandarískir settu stafina sína á daginn áður…" Í rauninni ætla ég ekki að gera annað að sinni en...11. Október 2006
TÍMI TÍMAMÓTANNA AÐ RENNA UPP
2. Október 2006
KRAFTMIKIL ÞINGBYRJUN
Ef til vill var fundarstaðurinn táknrænn um það sem koma skal eftir þingkosningarnar í vor...Fái stjórnarandstaðan meirihluta eftir næstu kosningar hlýtur það að skoðast sem áskorun þjóðarinnar um að hún taki við landstjórninni. Að mínu mati eru verulegar líkur á því, að þegar að afloknum þingkosningum, 5. maí næstkomandi, hefjist stjórnarmyndunarviðræður núverandi stjórnarandstöðuflokka. Auðvitað er til í dæminu að ...
21. September 2006
PÓLITÍSK MISNOTKUN ÚTVARPSSTJÓRA
18. September 2006
Í UNDRALANDI MEÐ DAVÍÐ ODDSSYNI

Hinn 1. september birti Ríkisútvarpið viðtal Ólafar Rúnar Skúladóttur við Davíð Oddsson, núverandi seðlabankastjóra og fyrrverandi forsætisráðherra, þar sem komið var inn á þetta málefni. Viðtalið er mjög upplýsandi fyrir afstöðu og vinnubrögð þessa fyrrum verkstjóra í ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Í viðtalinu er Davíð Oddsson spurður um fyrrnefnda skýrslu Gríms Björnssonar og segir hann meðal annars: "Ég skil svo sem ekkert í þessari umræðu, þessi skýrsla er búin að liggja fyrir í 3-4 ár. Hennar er getið í bók sem kom út árið 2003 og ég veit ekki hverskonar leyniskýrsla það er sem er getið sérstaklega á prentuðum bókum og allt í einu er þetta orðin merkileg leyniskýrsla. Það er hins vegar þannig að Alþingi ...
17. September 2006
JÓN BJARNASON SPYR AÐ GEFNU TILEFNI: HVENÆR LÆRA MENN AF REYNSLUNNI?
... Í grein sinni segir Jón Bjarnason m.a. : " Nú í gær varð bilun í ljósleiðara á Norðurlandi með þeim afleiðingum að öryggiskerfi sjófarenda fyrir öllum Vestfjörðum og Norðurlandi féll út svo og útsendingar útvarps og sjónvarps á mörgum stöðum sem einnig eru hluti öryggiskerfis landsmanna. Bilunin stóð í 15 klukkustundir."Og Jón Bjarnason rifjar upp: "Í kjölfar sölu Símans fylgdu uppsagnir á starfsfólki og lokun starfsstöðva víða um land, hækkað verð og skert þjónusta. Þetta gerðist á Ísafirði, Blönduósi, Sauðárkróki Siglufirði já hringinn í kringum landið hefur þjónustustöðvum verið lokað og íbúarnir bera skarðan hlut.... Jón Bjarnason hafði forgöngu um það á sínum tíma að þingflokkur VG bar fram tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort einkavæða ætti Landsímann. Sú tillaga fékk ekki stuðning annarra flokka á Alþingi en Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Það er ekki að undra að Jón Bjarnason velti því fyrir sér hvort...
17. September 2006
MÁLSTAÐUR OG MÁLFLUTNINGUR HJÁLMARS ÁRNASONAR
...Við erum kallaðir lygarar, menn sem “sannleikurinn virðist engu skipta” því “tilgangurinn helgi meðalið”. Hjálmar telur að jafnharðan og flett sé ofan af lygum okkar séum við komnir fram með ný ósannindi. “Í stað þess að skammast sín fyrir lygarnar og ásakanirnar búa þeir til nýtt leikrit sem hefst á því að Ögmundur gengur af fundi iðnaðarnefndar og baðar út öllum öngum í fjölmiðlum. Nú er það leynd Landsvirkjunar sem er glæpurinn...”
Ekki ætla ég mér að reyna að hafa áhrif á hvernig formaður þingflokks Framsóknarflokksins hagar málflutningi sínum, hvaða orð hann notar og hvernig. Það er hans mál.
Lesendum til glöggvunar vil ég hins vegar...
30. Ágúst 2006
SVONA ER LÍFIÐ STUNDUM SKRÍTIÐ

Í morgun sat ég þingflokksfund VG þegar inn á fund okkar kom hringing þar sem óskað var eftir því að
28. Ágúst 2006
RÍKISSTJÓRNIN ÖLL SAMSEK Í YFIRHYLMINGU VALGERÐAR SVERRISDÓTTUR
25. Ágúst 2006
PÓLITÍSKT MISFERLI – HVERNIG VERÐUR ÁBYRGÐIN ÖXLUÐ?

...Allar götur frá því þessi ákvörðun var tekin hafa legið fyrir mjög sterk rök gegn þessari framkvæmd: Rök sem tengjast náttúru- og umhverfisvernd og rök sem varða efnahagsforsendur. Furðu sætti hve lítinn áhuga fylgismenn framkvæmdanna á Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur sýndu þessum röksemdum á meðan framkvæmdirnar voru á ákvörðunarstiginu. Á þessum tíma komu einnig fram efasemdir jarðvísindamanna en það er fyrst nú að í ljós kemur að skýrslum um áhættuþætti sem tengjast virkjunarframkvæmdunum var beinlínis haldið leyndum fyrir Alþingi. Þetta hefur m.a. komið fram í viðtölum við Grím Björnsson, vísindamann á þessu sviði, sem sendi frá sér ítarlega skýrslu um efnið í ársbyrjun 2002. Orkumálastjóri og iðnaðarráðherra fengu skýrsluna en þessir aðilar kröfðust þess að Grímur færi með innihald hennar sem trúnaðarmál!
Þetta er eitt alvarlegasta mál sem upp hefur komið í íslenskum stjórnmálum í langan tíma og hlýtur að...
23. Ágúst 2006
ÞING FRAMSÓKNARFLOKKSINS OG TÚLKUN MORGUNBLAÐSINS
18. Ágúst 2006
STEFNUBREYTING EÐA SJÓNHVERFINGAR: HVER ER RAUNVERULEG AFSTAÐA TIL STÓRIÐJUSTEFNUNNAR?

...Ef flokkarnir þrír sem saman stóðu að ákvörðun um Kárahnjúkavirkjun og hingað til hafa stutt stóriðjustefnuna með ráðum og dáð, Framsókn, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur, eru nú komnir með efasemdir um forsendur þessarar stefnu verður að spyrja þá eftirfarandi spurninga:
Eru þeir þá nú orðnir fráhverfir virkjun Jökulsánna í Skagafirði, sem allir þessir flokkar hafa stutt?
Eru þessir flokkar orðnir fráhverfir því að Alcoa verði heimilað að reisa álver á Húsavík eins og allir þessir flokkar hafa stutt?
Eru þeir orðnir fráhverfir því að styðja álversframkvæmdir á Reykjanesi sem allir þessir flokkar hafa stutt?
Hversu djúpt rista sinnaskiptin? Eða eru þetta...
13. Ágúst 2006
ATHYGLISVERÐ FRÁSÖGN ODDVITA VG Í SKAGAFIRÐI
Að undanförnu hafa birst skrif sem ættuð eru innan úr Stjórnarráðinu um stóriðjustefnuna, sem gefa þá mynd að ríkisstjórnin kunni að hafa farið offari. Átakanlegasta birtingarmynd þessa er sú yfirlýsing forsvarsmanna Framsóknarflokksins að flokkurinn hafi síðustu þrjú árin verið umhverfisvænn og ekki viljað skerða strá í íslenskri náttúru! Menn stóðu og göptu við þessi tíðindi, minnugir þess að ekki er lengra síðan en í fyrra að fyrrverandi iðnaðarráðherra, núverandi utanríkisráðherra,
9. Ágúst 2006
VINSTRIHREYFINIGIN GRÆNT FRAMBOÐ ENDURFLYTUR FRUMVARP UM FJÁRMAGNSTEKJUSKATT
7. Ágúst 2006
ENN UM FJÖLMIÐLALAGAFARSANN
2. Júlí 2006
STUNDUM EIGA RÁÐHERRAR AÐ ÞEGJA
22. Júní 2006
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN TEKINN VIÐ STJÓRN REYKJAVÍKURBORGAR

Ekki fer það framhjá nokkrum manni að stjórnarsamstarf Íhalds og og Framsóknar hefur nú tekið sér bólfestu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Linnulaus fréttaflutningur í gær af áformum um mislæg gatnamót hér og þriggja hæða gatnamót þar minnti okkur á að stjórnarskipti hafa átt sér stað í Reykjavík. Nú stjórnar Sjálfstæðisflokkurinn borginni en Framsókn styður allt það sem hann vill eftir að hafa þegið sínar sporslur og bitlinga: Sama mynstur og í Stjórnarráðinu. Eflaust mun það gerast í samstarfi þessara flokka í borginni, eins og í ríkisstjórn, að Framsókn gerist enn harðdrægari í að framkvæma stefnumál Sjálfstæðisflokksins en sá flokkur myndi nokkurn tímann voga sér. Þannig má ætla að mislæg gatnamót á hverju horni verði innan tíðar helsta hugsjón Framsóknarflokksins og munu þá verða gleymd loforðin um ...
21. Júní 2006
VERKEFNI FRAMTÍÐARINNAR: NÁTTÚRUVERND OG JAFNRÉTTI KYNJANNA
...Þetta er rétt hjá Drífu Snædal. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur stimplað náttúruverndaráherslur inn í íslensk stjórnmál frá því flokkurinn varð til undir aldamótin og áhersla á jafnrétti kynjanna hefur einnig verið ein af grunnstoðum hreyfingarinnar. Sú hugsun er ekki ný af nálinni. Hún fléttast saman við hefðbundna félagshyggju, sem byggir á jöfnuði og andstöðu við hvers kyns misrétti. Það er hins vegar rétt hjá Drífu Snædal að jafnréttisbaráttufáninn hefur nú verið hafinn á loft af miklum krafti og standa þar fremst í flokki hópur ungra kvenna, sem sett hafa mark á umræður og áherslur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Baráttugleði og kraftur þeirra hefur smitað út í þjóðfélagið, sem finnur að hugur fylgir máli. Þetta hefur án efa...14. Júní 2006
SÝNUM FRAMSÓKNARFLOKKNUM MISKUNNSEMI
6. Júní 2006
INNSÆI EÐA MISMÆLI?
Þeir voru dramatískir félagarnir að baki Halldóri Ásgrímssyni, formanni Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, á hlaðinu fyrir framan ráðherrabústaðinn á Þingvöllum í gærkvöldi þegar Halldór sagði að hann myndi nú fara frá sem forsætisráðherra og innan skamms einnig sem formaður Framsóknarflokksins. Alltumlykjandi í sviðsmynd fréttamannafundarins voru (karl)menn sem greinilega áttu að sýna skjaldborg sem slegin hefði verið um Framsóknarflokkinn og fráfarandi foringja hans. Þungir á brún minntu þeir svolítið á Kreml hér forðum. Halldór Ásgrímsson, fráfarandi forsætisráðherra, sagði á þessum fréttmannafundi að nú myndu hefjast nýjar stjórnarmyndunarviðræður og myndi hann...
5. Júní 2006
FINNUR Á LEIÐINNI?

... Ef nafn einhvers stjórnmálamanns tengist fyrrnefndu tveimur þáttunum, álvæðingunni og einkavæðingunni, meira eða jafnmikið og nöfn þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur, þá er það nafn Finns Ingólfssonar. Þess vegna er það með ólíkindum að láta sér koma til hugar að velja hann til endurreisnarstarfs í Framsóknarflokknum. Á myndinni hér að ofan má sjá þá félaga Ólaf Ólafsson... koma úr Ráðherrabústaðnum sæla og hróðuga eftir að gengið hafði verið frá því að S-hópurinn eins og Framsóknarhópurinn var kallaður, hafði fengið Búnaðarbankann í sinn hlut...Sú spurning gerist mjög áleitin hvers konar fyrirbæri Framsóknarflokkurinn eiginlega er orðinn. Er hann stjórnmálaflokkur eða er hann ef til vill orðinn þröngt hagsmunabandalag sem nýtir sér ítök í stjórnmálum, fjármálaklíkum innan flokksins til framdráttar? Til þess að skilja hræringarnar innan flokksins er nauðsynlegt að kunna svörin við þessum grundvallarspurningum. Er flokkurinn ..
1. Júní 2006
HVAÐ ER SATT OG HVAÐ ER LOGIÐ UM FRAMSÓKNARFLOKKINN?
Fram hefur komið í fréttum að Þjóðarhreyfingin hyggst leggja fram kæru á hendur Framsóknarflokknum í Reykjavík fyrir meint kosningasvindl. Því er haldið fram að flokkurinn hafi keypt atkvæði innflytjenda, nokkuð sem ég get staðfest að þrálátur orðrómur var um fyrir kosningarnar. Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins vísaði þessum ásökunum á bug í samtali við Ólaf Hannibalsson í Kastljósi í kvöld. Ólafur svaraði því til að best væri fyrir alla aðila að fá málið á hreint og til þess væri kæran fram komin...Eitt enn væri fróðlegt að fá rannsakað. Óskar Bergsson sagði í fyrrnefndum Kastljósþætti að fyrir kosningar hefði Framsóknarflokkurinn verið sakaður um að ætla sér að kaupa sig til sigurs í kosningunum. En hvað gerist svo? "Nú liggur fyrir að við auglýstum minnst" ! Skyldi þetta vera rétt hjá þessum talsmanni Framsóknarflokksins? Eina könnunin sem ég hef séð um auglýsingakostnað flokkanna var birt á vefritinu Múrnum og þar kom fram að Framsóknarflokkurinn hefði auglýst mest ! Sjá ...31. Maí 2006
VARAFORMAÐUR VG: FYLGISAUKNINGIN MUN HAFA VARNALEG ÁHRIF
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skrifar grein hér á síðuna þar sem hún leggur mat á kosningaúrslitin í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Hún telur að fylgisaukning VG muni hafa varanleg áhrif í íslenskum stjórnmálum en jafnframt megi ætla að þetta sé fyrirboði um breytt hugarfar þjóðarinnar: "Það er mín trú að þessi fjögurra prósentustiga fylgisaukning VG muni hafa varanleg áhrif í íslenskum stjórnmálum, ekki síst ef á eftir fylgir fylgisaukning í alþingiskosningum að ári. Vinstrihreyfingin – grænt framboð er til alls líkleg að ári og vegna skýrrar málefnastöðu flokksins er hægt að líta á þá fylgisaukningu sem nú hefur orðið sem vísbendingu um breytt hugarfar þjóðarinnar." Katrín minnir á að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi fengið 14 sveitarstjórnarmenn kosna af hreinum VG-listum en seinast hafi þeir aðeins verið fjórir. Einnig hafi VG verið ... 29. Maí 2006
VILBJÖRN

Þá hefur það gerst að ríkisstjórnin er komin í Ráðhús Reykjavíkur. Þangað er mættur Vilbjörn en svo hefur verið kallað þetta samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borginni, með þá Vilhjálm Þ. og Björn Inga í fararbroddi. Þetta eru ill tíðindi fyrir þá sem vilja efla samfélagsþjónustu og umhverfisvernd. Fyrir áhugamenn um mislæg gatnamót, einkavæðingu, stóriðjustefnu, í stuttu máli fyrir þá sem styðja þá mengunar- og misréttisstefnu, sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa rekið í Stjórnarráðinu, er þetta hins vegar drauma stjórnarmynstrið. Og fyrir álrisana, sem þessir flokkar þjóna svo vel, er Vilbjörn himnasending. Í fréttaviðtölum eftir að tilkynnt var um myndun meirihlutans var...
27. Maí 2006
SAMFYLKINGIN DREIFIR ÓSANNINDUM

Þessi mislægu gatnamót eiga ekki heima í Hlíðunum segir í dreifiriti Samfylkingarinnar sem dreift var í Hlíðunum í gær, daginn fyrir kjördag. Í dreifiritinu er þeim ósannindum haldið fram að Samfylkingin sé ein um andstöðu við mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar "samkvæmt úttekt Ríkissjónvarpsins" . Hvar skyldi hana vera að finna? Hún hefur farið framhjá mér. Það hefur hins vegar ekki farið framhjá mér hvernig ....Sú aðferðafræði Samfylkingarinnar að dreifa ósannindaáróðri í þann mund sem kjörstaðir opna og þannig að illmögulegt er að koma við leiðréttingum, er með endemum. Samfylkingunni ber að senda frá sér yfirlýsingu þegar í stað og leiðrétta ósannindin. Samfylkingin geri það svo upp við samvisku sína hvort ...
27. Maí 2006
ÁTAKS ER ÞÖRF Í HÚSNÆÐISMÁLUM
Greinin er skrifuð í félagi við Þorleif Gunnlaugssn, 3. mann á lista VG í Reykjavík.
Einu mega kjósendur treysta og það er að Vinstrihreyfinigin grænt framboð mun gera allt sem hún megnar til þess að færa húsnæðismál tekjulágs fólks til betri vegar. Þar þarf margt að koma til. Aukið framboð á leiguíbúðum, öflugra húsaleigubótakerfi og síðast en ekki síst stóraukinn stuðningur félagsþjónustunnar til aðstoðar fólki sem ekki getur séð sér farborða. Nú þegar dýrtíðarskrúfan er farin að snúast eykst þörf á því að fylgja félagslega ábyrgri stefnu hvað þetta...
26. Maí 2006
TRYGGJUM KOSNINGU ÞORLEIFS GUNNLAUGSSONAR!
...Hvort skyldu menn vilja virkja starfskrafta Þorleifs Gunnlaugssonar í borgarstjórn Reykjavíkur eða greiða götu fulltrúa Framsóknarflokksins sem lofar gulli og grænum skógum, peningagjöfum til kjósenda í skiptum fyrir atkvæði? Þar er ég ekki síst að vísa til þess að flokkurinn hefur látið þau boð út ganga að hver Reykvíkingur komi til með að fá 250 þúsund króna ávísun eftir að Framsókn hafi látið selja hlut borgarinnar í Landsvirkjun! Svo galið er þetta og svo óábyrgt að engu tali tekur. Ýmis önnur kosningaloforð flokksins eiga án efa eftir að fara á spjöld sögunnar fyrir það hve óábyrg og óskammfeilin þau eru. Vilji kjósendur efla þau sjónarmið sem VG stendur fyrir þá skal hafa í huga að því ...26. Maí 2006
NEI STURLA, ÞETTA GENGUR EKKI !
...Látum vera að samgönguráðherra vilji bakka sína menn upp fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann getur hins vegar ekki leyft sér að nota samgönguráðuneytið sem agn í þessari baráttu. Eða hvað er ráðherrann að gefa í skyn? Að hann muni hygla sveitarstjórnum þar sem sjálfstæðismenn eru við stjórnvölinn? Á ekki að láta málefnaleg rök ráða í afstöðu samgönguráðuneytisins? Er ráðherrann að láta að því liggja að sveitarfélög sem kjósa til áhrifa fólk sem ekki er á bandi með ráðherranum í stjórnmálaskoðunum verði látin gjalda fyrir slíkar syndir? Þetta gengur ekki Sturla! Þetta er misnotkun á pólitísku valdi...26. Maí 2006
Á SKAGAFJARÐARVÖKU: ÞAÐ ÞARF EKKI SKURÐGRÖFU TIL AÐ SETJA NIÐUR VORLAUKA

Í gærkvöldi sat ég kosningafund Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði og flutti ég þar ávarp. Það gerði einnig oddviti framboðsins, Bjarni Jónsson. Hann leiðir lista kröftugrar sveitar og ferst það einkar vel úr hendi enda hefur Bjarni til að bera rökvísi, staðfestu og lipurð í mannlegum samskiptum. Bjarni fór í ræðu sinni yfir stöðu mála og hvatti félaga okkar til sóknar á lokasprettinum. VG hefur setið við stjórnvölinn í Skagafirði undanfarið kjörtímabil ásamt Sjálfstæðisflokki en sveitarstjórinn, Ársæll Guðmundsson, kemur úr röðum VG. Hann ákvað að gefa ekki kost á sér á komandi kjörtímabili. Ársæll hefur ásamt félögum sínum unnið gott verk á liðnum fjórum árum og almennt er hægt að segja að Skagfirðingum hafi farnast vel á...
26. Maí 2006
HREINAR LÍNUR VG – ÖSSUR OG INGIBJÖRG SÓLRÚN
...Ég beini því til vinstrisinnaðra kjósenda í Reykjavík að íhuga hvaða árif það hefði haft í Reykjavík ef ekki hefði notið aðhalds af hálfu VG þegar áform voru uppi um að hlutafélagavæða Orkuveituna, þegar sala á hlut borgarinnar í Landsvirkjun var á döfinni, þegar húsnæðismál og félagsleg hagsmunamál hafa verið uppi og læt ég þá órætt um aðkomu borgarfulltrúa að Kárahnjúkamálum!
Samfylkingunni og VG hefur auðnast að vinna ágætlega saman. En við vitum hvor flokkurinn það er sem veitir þrýsting frá vinstri og þá einnig hvaðan blása hægri sinnaðri vindar...
24. Maí 2006
KRÖFTUGUR BARÁTTUFUNDUR VINSTRIHREYFINGARINNAR GRÆNS FRAMBOÐS Í REYKJAVÍK
...Og upp í hugann kom annar langafi Silju, Stefán Ögmundsson prentari, í langan tíma forystumaður íslenskra prentara, um skeið varaforseti ASÍ, og einn magnaðasti baráttumaður félagslegra gilda sem ég hef kynnst; reyndar svo kröftugur að íhaldið lagði á sig allt sem mögulegt var til að reyna að eyðileggja líf hans og vísa ég þar í ljúgvitnin sem leidd voru fram gegn honum og Jóni Múla vegna atburðanna við Alþingishúsið 30. mars 1949, nokkuð sem orðið er aktúelt að nýju eftir upplýsingar um hleranir og ofsóknir á kaldastríðstímanum. Þetta voru hugrenningarnar...Svandís talaði um fortíðina, nútíðina og framtíðina. Hún talaði viturlega um fortíðina, vildi draga af henni lærdóma. Um nútíðina talaði hún af yfirvegun og einnig um framtíðina. Ég fékk það sterklega á tilfinninguna að þangað ætti Svandís erindi...23. Maí 2006
HVORT ER BARIST UM STÓLA EÐA MÁLEFNI ?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar skrifar umhugsunarverða grein í Morgunblaðið þar sem hún segir: "Á laugardaginn verður kosið um næsta borgarstjóra í Reykjavík... Dagur B. Eggertsson borgarstjóraefni Samfylkingarinnar hefur lýst því yfir að það komi ekki til greina að gefa eftir borgarstjórasætið í samningum..." Úrslitakostirnir í huga formanns Samfylkingarinnar virðast með öðrum orðum snúast um stóla fremur en málefni. Athygli vekur að Ingibjörg Sólrún segir að á laugardag verði kosið um borgarstjóra. Ég hélt að við værum að kjósa um mismunandi pólitískar áherslur...Samkvæmt síðustu könnunum stendur baráttan nú á milli 8. manns Sjálfstæðisflokksins og 3. manns á lista VG. Ef VG hefur betur og Þorleifur Gunnlaugsson nær kjöri, auk þeirra Svandísar og Árna þórs, er hættan á hreinum meirihluta Íhaldsins úr sögunni. Þetta væru mikil og góð tíðindi fyrir borgarbúa því þau hefðu pólitíska þýðingu. Hitt er dapurlegt að ...22. Maí 2006
JELTSÍN AÐFERÐIN VIÐ VINSÆLDAKAUP OG REIÐI Í GARÐ ÍHALDSINS

...Það hljómar líka ágætlega þegar oddviti framsóknarmanna í Reykjavík segir að nái hann kjöri þá ætli hann að sjá til þess að sérhver Reykvíkingur fái kvartmilljón – 250 þúsund krónur – beint í vasann fyrir sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun... "Ég held hins vegar", segir frambjóðandinn, "að eigendurnir sjálfir séu síst verr til þess fallnir að ráðstafa söluhagnaðinum en stjórnmálamenn." Nú spyr Blaðið hvort Framsóknarflokkurinn sé með þessu að reyna að kaupa atkvæði með fjármunum borgarbúa....Auðvitað er það rétt hjá Birni Inga Hrafnssyni og Siv Friðleifsdóttur að framkoma ríkisstjórnarinnar við tekjulægsta hluta samfélagsins er svívirðileg og báðum flokkum ber að axla á henni ábyrgð. Í því ljósi má til sanns vegar færa að Sjálfstæðisflokkurinn sleppi of vel og að...
20. Maí 2006
HVERS VEGNA ÞEGIR MORGUNBLAÐIÐ? HVERS VEGNA ÞEGIR FRÉTTABLAÐIÐ...?
19. Maí 2006
EFLUM VG
Í morgun birtist könnun Fréttablaðsins sem gefur til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn fengi rétt undir helming atkvæða í Reykjavík. Ekki er ég trúaður á að þetta eigi við rök að styðjast. Erfitt á ég með að ímynda mér að nær helmingur borgarbúa vilji afhenda borgina Sjálfstæðisflokknum til ráðstöfunar næstu fjögur árin. Við skulum minnast þess að þetta er sami stjórnmálaflokkur og stýrir landinu í samvinnu með Framsókn; sami flokkur og selt hefur og gefið verðmætar almannaeignir, keyrt upp verðlagið á raforku með rándýrum miðstýrðum ákvörðunum og aukið kjaramisréttið í þjóðfélaginu. Vilja menn þessar áherslur inn í Ráðhúsið? Og hver skyldi helst vera mótvægi við þessa stefnu? Það er tvímælalaust Vinstrihreyfingin grænt framboð. Nú ríður á að hefja lokasókn kosningabaráttunnar. … Í grein sem fomaður VG, Steingrímur J. Sigfússon, birtir hér á síðunni í dag minnir hann á að Vinstrihreyfingin – grænt framboð bjóði fram V-lista á 13 stöðum á landinu, en í sveitarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum hafi þeir verið 8 talsins. Þetta eru mikil og góð þróun og henni þarf að fylgja eftir af staðfestu og krafti. Ég er sannfærður um að ef á að takast að rífa samfélagið upp úr misréttishjólförunum, og beina þróuninni inn í heillavænlegri farveg, verður að efla Vinstrihreyfinguna grænt framboð. 17. Maí 2006
GOTT FRAMTAK HJÁ MÚRNUM

Undir það skal tekið með vefritinu Múrnum að á meðan leynd hvílir yfir sjóðum stjórnmálaflokka er líka hægt að hafa áhyggjur af samskiptum peningamanna og stjórnmálamanna. Múrinn hefur látið fyrirtækið Auglýsingamiðlun taka saman tölur um áætlaða eyðslu stjórnmálaflokka vegna komandi kosninga til sveitarstjórna. Í þessari áætlun er ekki að finna mat á kostnaði við gerð bæklinga og auglýsinga, leigu á jeppum, flettiskiltum, né neinum þeim varningi sem framboðin bjóða upp á. Einungis er um að ræða birtingar í stærstu fjölmiðlum landsins þannig að hér eru á ferð algjörar lágmarkstölur um kostnaði við kynningarstarf flokkanna. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar. Mestur er auglýsingakostnaður Framsóknarflokksins, á hæla hans kemur Sjálfstæðisflokkurinn en...
14. Maí 2006
UM STJÓRNMÁL Í SKAGAFIRÐI: BARA AÐ OFTAR VÆRI KOSIÐ...
...Þess vegna þurfa menn að horfa til reynslunnar, leiða hugann að því sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna hafa sagt fyrir kosningar og síðan eftir kosningar. Þeir sem vilja standa vörð um náttúruna og fjölbreytni í atvinnulífi geta óhræddir kosið Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Vinstri græn í Skagafirði hafa sýnt fram á að flokknum er treystandi við stjórnvölinn. Ég fagna að sjálfsögðu öllum yfirlýsingum – hvort sem þær koma frá sjálfstæðismönnum, fulltrúum Samfylkingar eða Framsóknar - þar sem boðað er fráhvarf frá virkjunar- og stóriðjuáfergjunni. Vilji menn hins vegar geta treyst stjórnmálamönnunum út kjörtímabilið hvað þetta áhrærir – þá er bara eitt að gera: Kjósa Vinstrihreyfinguna grænt framboð...9. Maí 2006
EXBÉ VIRÐIR REGLURNAR Á SINN HÁTT
...Látum vera að Framsókn vilji malbika Skerjafjörðinn. Það er sjónarmið út af fyrir sig eins fráleitt og það kann annars að vera. Ef flokkurinn telur það hins vegar vera rétt að gera flugvöll á Lönguskerjum þá er eðlilegt að hann taki skýra afstöðu og berjist síðan fyrir henni. En að láta það fylgja með í pakkanum að flokkurinn lofi því að um malbikaðan Skerjafjörð verði þjóðarsátt - er náttúrlega svo yfirgengilega absúrd að tekur engu tali. Slíku getur enginn stjórnmálaflokkur lofað. Framsókn hefur ekki verið vönd að virðingu sinni í auglýstum kosningaloforðum sínum í undangengnum kosningum og eru menn orðnir ýmsu vanir þegar sá flokkur er annars vegar. Kemur þá upp í hugann Ríkisútvarpið, sem aldrei átti að verða að hlutafélagi samkvæmt heitstrengingum Framsóknar og Íbúðalánasjóður, sem okkur var sagt að hvíldi í öruggum faðmi Framsóknar en er nú að berjast fyrir lífi sínu. Framsókn hefur þannig í tímans rás sýnt kosningaloforðum sínum takmarkaða viðingu. Að því marki sem flokkurinn á annað borð virðir leikreglur þá... 1. Maí 2006
HEITT HJARTA, GRÆNIR FINGUR
1. maí ávarp á samkomu Vinstri grænna í Kópavogi ....Félagshyggja er í stöðugri þróun og Vinstri Græn eru kyndilberar nýrrar hugsunar og nýrrar bjartsýni. Auðvitað er hægt að gefast upp einsog Samfylking gerir og ganga út í sólarlagið arm í arm með Sjálfstæðisflokknum. Nútímalegt par við fyrstu sýn, en fyrst og fremst þreytulegt. Draumar lífs þeirra hafa lit sínum glatað. Sjálfstæðismenn og Samfylking eru komin á hugmyndafræðilegan eftirlaunaaldur og þurfa stöðuga þerapíu í nefndum, endurnýjunarhópum og ráðum til að peppa upp nýja og spennandi stefnu. Vinstri Græn þurfa þess ekki. Öllum er stefnan ljós. Öflug...
29. Apríl 2006
STEFNIR Í SUMARÞING
27. Apríl 2006
AÐ ÓTTAST SPEGILMYND SÍNA

Einar Kárason rithöfundur skrifar oft lipran texta. Ekki er þar með sagt að alltaf sé mikið vit í honum. Í grein í Morgunblaðinu í dag reynir Einar að svara sjálfum sér þeirri spurningu af hverju Íhaldið óttist bara Samfylkinguna. Einar Kárason kemst að þeirri niðurstöðu að Samfylkingin sé alvöru flokkur sem Sjálfstæðismenn geri sér grein fyrir að keppi við hann um völdin í landinu. VG sé skýr kostur sem Sjálfstæðisflokkurinn viti hvar hann hafi, hann kunni að berjast við hann og líki það ekki illa. Öðru máli gegni um Samylkinguna...Nokkur sannleikskorn kann að vera að finna í þessari greiningu. Samfylkingin vill vera keppinautur Sjálfstæðisflokksins um völdin en er það síður um stefnumörkun í þjóðfélaginu. Þar er VG keppinauturinn...Sem betur fer er þessi staða ekki uppi hjá umhverfissinnum og félagslega þenkjandi fólki hér á landi. Þeir þurfa ekki að velja á milli Íhalds og Samfylkingar. Þeir hafa Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Þeim flokki er treystandi til að koma stefnumálum sínum í mark þegar hann kemst til áhrifa fremur en flokki sem vill verða spegilmynd Íhaldsins...
23. Apríl 2006
FRAMSÓKN VILL MALBIKA SKERJAFJÖRÐINN
"Svo virðist sem stjórnmálamenn haldi aldrei á lofti orðinu sátt nema ósátt ríki." Svo mæltist Staksteinari Morgunblaðsins 19. apríl síðastliðinn þegar hótun Framsóknarflokksins um að múra upp í Skerjafjörðinn var til umræðu. Sem kunnugt er vill exbé í Reykjavík flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni og út á Löngusker í Skerjafirði og talar um að mynduð verði um þetta þjóðarsátt. Og Staksteinar varpaði fram spurningu: "Hvernig getur líka orðið sátt um flugvöll á Lönguskerjum þegar Skerjafjörðurinn er löngu orðinn helsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins með sínu fjölbreytta lífríki. Eru landfyllingar, flugvallargerð og flugumferð á slíkum stað líkleg til að skapa þjóðarsátt? Að ekki sé talað um kostnaðinn, sem rennur úr götóttum vasa skattgreiðenda." Auðvitað er það sjónarmið að vilja setja flugvöll í Skerjafjörðinn og þess vegna ekkert að því að berjast fyrir því að svo verði gert. Ég leyfi mér hins vegar að fullyrða - og tek þar undir með Staksteinari - að um slíkt mun aldrei takast þjóðarsátt...21. Apríl 2006
MIKIÐ Í HÚFI AÐ TRYGGJA GÓÐA KOSNINGU VG Í REYKJAVÍK
Listi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík er firnasterkur. Svandís Svavarsdóttir hefur sannað sig sem mjög öflugur stjórnmálamaður, sem þegar hefur skipað sér í fremstu röð stjórnmálamanna í landinu. Í öðru sæti listans er Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi, sem gegnt hefur lykilstöðum hjá Reykjavíkurborg, þar á meðal verið forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. Ég verð að viðurkenna að mér hefur verið órótt að fylgjast með skoðanakönnunum að undanförnu, sem allt of margar hafa gefið vísbendingu um að VG fengi aðeins einn borgarfulltrúa kjörinn, og væri Árni Þór þar með dottinn út úr borgarstjórn. Þetta væri mikið slys. Árni Þór Sigurðsson er með allra reynslumestu mönnum í málefnum borgar- og landsmála og þarf ekki að hafa mörg orð um það hve slæmt það væri að hann fengi ekki kosningu. Þetta skyldu vinstri menn og umhverfissinnar hafa í huga. Reyndar þyrftum við að gera enn betur og tryggja Þorleifi Gunnlaugssyni, dúklagningameistara, einnig aðkomu að borgarstjórninni í komandi kosningum. Þorleifur er geysilega öflugur maður, það þekki ég vel. Hann er beintengdur inn í atvinnulífið, hefur tekið þátt í mannréttindabaráttu og verið potturinn og pannan í skipulagningu hvers kyns funda og herferða svo lengi sem ég man eftir. Hann er hins vegar einn af þeim mönnum sem...
17. Apríl 2006
BREYTTAR ÁHERSLUR SAMFYLKINGARINNAR Í SKATTA- OG STÓRIÐJUMÁLUM?
Batnandi fólki er best að lifa. Þess vegna hljótum við að taka fagnandi yfirlýsingum formanns Samfylkingarinnar, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, í fréttum um helgina, um úrræði í efnahagsmálum. Ég fæ ekki betur séð en þær feli í sér kúvendingu á stefnu Samfylkingarinnar í veigamiklum atriðum. Í fyrsta lagi tekur formaður Samfylkingarinnar undir kröfu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs til langs tíma, um stóriðjustopp á næstu árum. Þetta er fráhvarf frá fyrri yfirlýsingum, þótt það verði að viðurkennast að erfitt er að átta sig á því hver raunveruleg stefna Samfylkingarinnar er í þessum efnum því eitt virðist vera sagt á Austfjörðum og á Húsavík, annað á Sauðárkróki og svo enn annað í Hafnarfirði og Reykjanesbæ. Á Alþingi hefur yfirleitt verið talað fremur óskýrt um þessi efni...Formaður Samfylkingarinnar sagði í ræðu á nýafstöðnum flokkstjórnarfundi að Samfylkingin væri ekki, og vildi ekki vera, "jaðarflokkur" heldur stór og breiður flokkur. Það skyldi þó aldrei vera að sá flokkur sem hér var augljóslega skírskotað til sem jaðarflokks, Vinstrihreyfingin grænt framboð, hafi verið sá flokkur sem mestan hljómgrunn hefur átt með þjóðinni í þessum efnum á undanförnum misserum? Gæti verið, að hvað stóriðjustefnuna snertir, sé Samfylkingin nú, þegar allt kemur til alls, að skríða utan af jaðrinum og samræma sjónarmið sín meirihlutaviljanum í landinu...27. Mars 2006
ILLUGI OG VATNIÐ
26. Mars 2006
STENDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Í VEGI ÞESS AÐ FRAMSÓKN EINKAVÆÐI?
24. Mars 2006
FRAMSÓKN LEITAR SKJÓLS HJÁ DÖNSKUM BANKA
...Hitt er svo annað mál að við þurfum að horfa á þessi mál af raunsæi og yfirvegun og vera sjálfsgagnrýnin í þessum efnum. Ekki verður það sagt um Magnús Stefánsson, framsóknarþingmann. Hann kom fram í fjölmiðlum í gær sveipaður skikkju formanns fjárlaganefndar Alþingis. Hann tók undir gagnrýni í garð Danske Bank. Þetta veit Magnús að fellur í kramið hjá landanum því í hugum margra Íslendinga eru grunsemdir um að Danir geti ekki unnt Íslendingum velgengni innan okkar gamla konugsríkis, og skýri það gagnrýni þeirra i garð íslenskra stórfjárfesta! Í skjóli þessa stígur Magnús einu feti framar því hann notar tækifærið og spyrðir stjórnarandstöðuna á Íslandi eins og hún leggur sig saman við danska bankamenn og segir þennan mannskap allan fara með óábyrgan málflutning! Í fréttum RÚV í gær segir...Gagnrýni á stóriðjustefnu Framsóknarflokksins verður ekki afgreidd út af borðinu með þessum hætti. Við hljótum að frábiðja okkur niðurskurð í velferðaþjónustu á vegum ríkisins í komandi fjárlögum til þess að greiða götu stóriðjuáforma Framsóknarflokksins. Það eru þau sem valda þenslunni í íslensku hagkerfi, ekki launahækkanir láglaunafólks. Sem kunnugt er stefnir...19. Mars 2006
ÞVERPÓLITÍSKUR JÓN BALDVIN?
18. Mars 2006
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR SAKAR PÓLITÍSKA ANDSTÆÐINGA RANGLEGA UM FALSANIR
...Hvers vegna sé ég mig knúinn til að tína til þessi ummæli Valgerðar Sverrisdóttur frá síðasta ári? Það er vegna þess að hún hefur leyft sér að saka mig og aðra þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um að falsa ummæli sín. Ég hef nú sett fram gögn á Alþingi sem sýna ótvírætt að ásakanir ráðherrans byggja á ósannindum. Hvorki ráðherrar né alþingismenn, né nokkur annar ef því er að skipta, eiga að komast upp með að ljúga fölsunum upp á pólitíska andstæðinga sína. Að slíku hefur Valgerður Sverrisdóttir nú orðið uppvís...
14. Mars 2006
ÞAÐ VERÐUR KOSIÐ UM VATNIÐ
13. Mars 2006
HVERT ER HLUTVERK UPPLÝSINGAFULLTRÚA FORSÆTISRÁÐUNEYTISINS?
9. Mars 2006
RÉTTLÁT REIÐI EÐA DÓMGREINDARLEYSI?

Í vikunni tók Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, pokann sinn og yfirgaf ráðuneyti og þing. Spunnust af þessu orðaskipti á Alþingi. Fyrir mitt leyti kvaddi ég Árna og óskaði honum velfarnaðar með þessum orðum: "Hæstv. forseti. Fyrst hin persónulegu skilaboð, síðan hin pólitísku skilaboð. Persónulega þykir mér eftirsjá að Árna Magnússyni úr stjórnmálum og óska ég honum alls góðs. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að segja að við í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs óskum öllum hrókeruðum hæstv. ráðherrum og þingmönnum velfarnaðar í starfi og brottförnum að sama skapi." Þetta voru persónulegar kveðjur og vil ég leggja áherslu á, að persónulegar velfarnaðaróskir félaga minna í VG og sjálfs mín til handa Árna Magnússyni, eru hugheilar. Hefur mér líkað prýðilega við manninn eins og þeir sem til þekkja vita. En Árni er ekki bara Árni. Hann er líka áhrifamaður í innsta hring Framsóknarflokksins og...
6. Mars 2006
HVERS VEGNA HLUSTAR FRAMSÓKN EKKI Á GUÐNA?
Öfgafull stefna Framsóknarflokksins í stóriðjumálum veldur samstarfsflokknum í ríkisstjórn undrun og vaxandi áhyggjum. Sérstaklega hafa 2. Mars 2006
UM LOTTÓVINNINGA, RÚSSNESKA RÚLLETTU OG PÓLITÍSKA KÖNNUN FRAMSÓKNARFLOKKSINS Á KOSTNAÐ SKATTBORGARA

Það er hressandi að heyra í Skagfirðingum þessa dagana, enginn uppgjafartónn þar á bæ. Það skiptir máli að Vinstrihreyfingin grænt framboð á aðild að sveitarstjórninni í Skagafirði. Í yfirlýsingu sem kom frá VG í Skagafirði í dag er minnt á að " Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur vildu álver í Skagafjörð og voru tilbúin til að fórna skagfirsku Jökulsánum og náttúru þeirra. Vinstri grænir stóðu einir stjórnmálaflokka í Skagafirði með Jökulsánum og Héraðsvötnum ... ...Ég hef kynnt mér niðurstöður könnunarinnar og furða mig á því að spurningar um pólitíska afstöðu manna eru ekki birtar í þeim niðurstöðum sem hafa verið gerðar opinberar. Ég hef hins vegar heyrt frá nokkrum einstaklingum sem lentu í úrtaki þessarar könnunar Framsóknarflokksins...
28. Febrúar 2006
HÚN HEITIR SVANDÍS !
Valgerður Bjarnadóttir skrifar ágætar "Vangaveltur um prófkjör" í Fréttablaðið í dag. Greinin hefst á þessum orðum: "Forystukona vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum í vor sagði í útvarpsþætti um daginn eitthvað í þá áttina að hún teldi stjórnmál snúast um lífsviðhorf, meðal annars þess vegna hefði hún efasemdir um prófkjör stjórnmálaflokka sem væru öllum opin, líka þeim sem ekki væru flokksbundnir. Ég er hjartanlega sammála konunni um að stjórnmál snúist um lífsviðhorf en er samt ekki viss um að það leiði mig til sömu niðurstöðu um hvernig haga eigi vali á framboðslista stjórnmálaflokka, eða hverjir megi koma að slíkum ákvörðunum…"Það sem ég furða mig á er að sú kona, sem Valgerður Bjarnadóttir gerir að umræðuefni í blaðagrein sinni, "forystukona vinstri grænna", skuli ekki fá að njóta nafns síns. Ekki bara hennar sjálfrar vegna heldur...
19. Febrúar 2006
TIL HAMINGJU ÍSLAND !
Silvía Nótt kom, sá og sigraði í forkeppni Eurovision – með miklum yfirburðum. Af lítillæti sínu þakkaði hún samkeppendum sínum , "upphitunarhljóm-sveitunum", fyrir þeirra framlag. Silvíu Nótt er ekki fisjað saman. Hún óskar Íslandi til hamingju með hve stórfengleg heppni það hafi verið fyrir landið að hún skuli hafa fæðst á Íslands foldu. Auðvitað er Silvía Nótt...að gera grín, henda gaman að sjálfsupphafningu samtímans. Það eru þeir hins vegar ekki að gera sigurvegarar prófkjöranna sem nú, hver á fætur öðrum, stíga sveittir út úr prófkjörsslagnum, smurðir og sponsoreraðir í bak og fyrir, og að sjálfsögðu yfir sig ánægðir ... Getur verið að það sé nokkuð til í því, sem Svandís Svavarsdóttir, efsti maður á lista VG í Reykjavík, sagði...
8. Febrúar 2006
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN DREGUR SÉR BAUG Á FINGUR
...Morgunblaðið spyr í Staksteinum sl. föstudag, hvort stjórnarandstaðan sjái nú ekki að setja þurfi löggjöf um eignarhald fjölmiðla. Ég vil spyrja á móti hvort Morgunblaðinu finnist ekki ástæða til að endurskoða áform um að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið. Hlutafélagavæðing mun fyrr eða síðar leiða til sölu fyrirtækisins. En jafnvel þótt það ekki gerðist í bráð þá er hitt staðreynd að með hlutafélagavæðingu myndi stjórnsýslan gerbreytast að því leyti að pólitískt ráðinn útvarpsstjóri fengi nánast alræðisvald yfir mannahaldi og dagskrá, á sama tíma og dregið yrði úr gagnsæi stofnunarinnar. Verkefnið ætti að vera að draga úr heljartökum stjórnarmeirihlutans á Ríkisútvarpinu, bæta hag og kjör starfsmanna, setja stjórnsýsluna í markvissari farveg og stuðla að enn meira gagnsæi en nú er. Allt þetta er hægt að
7. Febrúar 2006
100% MENN Í NORÐ VESTRINU !
Auðvitað á að taka skoðanakönnunum með varúð. Líka könnunum í Norðvestur-kjördæmi. Það hlýtur þó að vera saga til næsta bæjar þegar skoðanakannanir sýna fylgi stjórnmálaflokks vaxa um helming. Það hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð gert frá síðustu alþingiskosningum ef marka má nýjustu skoðanakönnun Gallup. Hverju er þetta að þakka? Í Skagafirði hafa samherjar í VG staðið sig vel við stjórnvölinn í sveitarstjórnarmálum og í landsmálum hefur flokkurinn einnig staðið sig afar vel undir gunnfána Jóns Bjarnasonar alþingismanns, sem hefur verið óþreytandi í ferðum og erindrekstri um kjördæmið og stöðugt að gæta að hagsmunum þess á Alþingi. Enginn hefur verið ötulli og eindregnari en Jón Bjarnason í baráttunni til verndar jökulsám Skagafjarðar. Hefur mjög mætt á honum í því efni upp á síðkastið og flutti hann fimm tíma magnaða og hugsjónaþrungna ræðu um málefnið á þingi fyrir fáeinum dögum. Henni gleymir hvorki ég né Valgerður Sverrisdóttir. Á vefriti Skagfirðinga segir frá þessum framgangi VG í ...28. Janúar 2006
PRÓFKJÖRSRAUNIR
20. Janúar 2006
MÁLEFNADEIGLA VG Á LAUGARDAG - KOSNINGABARÁTTAN BYRJUÐ !
Baráttan byrjar með mismunandi hætti hjá flokkunum í Reykjavík. VG valdi sína frambjóðendur í forvali þegar í haust og var gengið frá listanum í heild nú í byrjun mánaðarins. Nú stendur hins vegar yfir mikil auglýsingaveisla áróðursfyrirtækja og fjölmiðla þar sem "miðjuflokkarnir", Framsókn og Samfylking velja fólk til að leiða sína lista. Þau sem greiðastan aðgang hafa að fjármagni fá mesta kynningu meðan almennir flokksmenn eiga litla sem enga möguleika. VG stendur ekki í slíku heldur boðar til opinnar ráðstefnu um borgarmál...19. Janúar 2006
MISHEPPNUÐ ÍKVEIKJA

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður og sjávarútvegsráðherra, minnir svolítið á pólitískan brennuvarg þessa dagana. Hann skrifar pistil á heimasíðu sína í dag þar sem hann reynir allt hvað hann getur að spilla því ágæta samstarfi sem er á milli stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi. Hann reynir að finna dæmi þar sem flokkarnir veitist hver að öðrum og er harla hróðugur þegar honum finnst það takast. Hann gleðst eins og brennuvargur við eldsvoða. Staðreyndin er hins vegar sú að á sama tíma og logar stafna á milli á ríkisstjórnarskútunni fer fram gott og málefnalegt samstarf á milli stjórnarandstöðuflokkanna, VG, Frjálslyndra og Samfylkingar. Margt eiga þessir flokkar sameiginlegt og við höfum það jafnan í huga. Að sjálfsögðu horfum við af raunsæi einnig til þess að málefnalegur ágreiningur er á milli þeirra á ýmsum sviðum...
12. Janúar 2006
STAKSTEINAR OG PÓLITÍSKAR RANNSÓKNAMIÐSTÖÐVAR
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓÞURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












