Stjórnmál
28. Febrúar 2005
FRAMSÓKNARFÓLK Í FYRIRRÚMI

Um helgina fékk ég lesendabréf sem ég held að ekki sé hægt að horfa framhjá. Stefán vísar í "þá miklu umræðu sem oft sprettur upp á hinum Norðurlöndunum þegar uppvíst verður að stjórnmálamenn þar eru nátengdir fyrirtækjum. Þegar í ljós kemur að þeir eiga í fyrirtækjum sem til dæmis eru í viðskiptum við ríki eða sveitarfélög eða tengjast stjórnmálalífinu eða öðrum hætti. Ég undrast vegna þess að hér hafa fjölmiðlar ekki gert mikið úr svona tengslum." Síðan nefnir hann dæmi frá Norðurlöndunum máli sínu til stuðunigs og spyr mig hvort mér þætti"eðlilegt að fjölmiðlar beindu sjónum sínum að tengslum stjórnmálamanna hér við fyrirtækin í landinu, eða að eign stjórnmálamanna í fyrirtækjum." Í svari mínu tók ég undir með Stefáni að bæði Alþingi og fjölmiðlar hafi vanrækt skyldur sínar í þessum efnum. Ég benti jafnframt á að það væri lykilatriði að...
23. Febrúar 2005
TÖKUM VALGERÐI SVERRISDÓTTUR Á ORÐINU– HLUSTUM Á HANA!
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra kvartaði yfir því á Alþingi í dag að út úr orðum sínum væri snúið og að erfitt væri að tala til fólks sem "heyrir ekki það sem maður segir". Tilefnið var það að lánshæfismat Landsvirkjunar tók dýfu eftir þá yfirlýsingu Valgerðar að til stæði að einkavæða fyrirtækið á komandi árum. Valgerður sagði þetta alranga útleggingu á sínum orðum...Valgerður, í einlægni spurt, viltu raunverulega að við hlustum eftir því sem þú segir? Ekki bara á það sem þú segir í dag heldur líka á það sem þú sagðir í gær og í fyrradag? Vill ráðherrann líka að við leggjumst í samanburðarrannsóknir? Við skulum reyna, en það kallar á sterkt taugakerfi...
22. Febrúar 2005
MUN BJÖRN BJARNASON REYNA VIÐ NÝTT HEIMSMET?
Það er víðar en á Íslandi að olíufélög hafi samráð sín í milli um verðlagningu. Í dag greinir Aftonbladet í Svíþjóð frá því að "Markaðsdómstóllinn" hafi dæmt nokkur olíufélög í samtals 112 milljón króna sekt fyrir að fara á bak við viðskiptavini sína með samráði. Þessa upphæð má margfalda rúmlega tífalt til þess að fá samanburð við íslensku krónuna. Þetta samráð fólst m.a. í því að sammælast um afsláttarkjör sem neytendur töldu sig vera að fá. Þetta samráð hefur staðið síðan 1999. Það sem mér liggur forvitni á að vita er hvernig Björn Bjarnason dómsmálaráðherra komi til með að ...
18. Febrúar 2005
MIKILVÆGUR FYRIRVARI BORGARSTJÓRA
...Enda þótt R-listinn hafi til margra ára staðið að þeirri stefnumótun að selja beri hlut borgarinnar í Landsvirkjun eru óneitanlega komnar upp aðrar pólitískar aðstæður með þessum ásetningi stjórnvalda að einkavæða þennan geira. Í ljósi þessa hefði verið hyggilegra af hálfu borgarinnar að fresta því að skrifa undir viljayfirlýsinguna og fá áður viðræður um þau grundvallaratriði sem VG hefur auglýst eftir. Að öðrum kosti gæti stefnt í það að R-listinn í Reykjavík gengi sundraður til þessara verka. ...16. Febrúar 2005
UM FJÖLMIÐLA OG SPUNAKERLINGAR
Tvö lesendabréf bárust síðunni eftir sjónvarpsfréttir í gærkvöldi. Í báðum tilvikum voru bréfritarar furðu lostnir yfir framgöngu ríkisstjórnarinnar og ekki síður fjölmiðla. Ríkissjónvarpið verður fyrir harðri gagnrýni. Jóhann segir að réttara væri að tala um "ríkisstjórnarsjónvarpið". Það "elti Halldór Ásgrímsson þessa dagana fram og aftur um landið og kemur svo með hallærislegar langlokufréttir á kvöldin þar sem Halldór ... er .. að fjalla um einhver deilumál líðandi stundar eins og einkavæðingu Símans með grunnnetinu. Þá fær hann einn að rausa ...og (eru) spilaðir langir eintalsþættir..." Í bréfi Ólínu er gagnrýni af sama toga í garð fjölmiðlanna sem láti ráðamenn komast upp með "ruglandi" og "þvælu" sem sé með slíkum ólíkindum að menn setji hljóða. Til alþingismanna er beint þeirri spurningu hvort þeir eigi ekki kost á að sækja námskeið í siðfræði og rökfræði! Það er broddur í orðum Ólínu en þó mikil alvara þegar hún spyr...
9. Febrúar 2005
FRAMSÓKN ÞJÓNAR FJÁRMAGNI
Halldór Ásgrímsson forsærisráðherra er nýkominn úr skíðaleyfi. Þaðan hélt hann beint á ársþing Verslunarráðsins þar sem hann ræddi við bissnissmenn um ágæti einakvæðingar, sérstaklega á símaþjónustu. Á sama tíma var óskað eftir nærveru ráðherrans við umræðu um sama efni á Alþingi. Látum þessa framkomu við þingið liggja á milli hluta svo og blíðmælgi H alldórs og skjall við peningamennina. Þjónkun Frmsóknar við fjármagnið er ekki ný af nálinni. H ins vegar virðast árásir formanns Framsóknarflokksins á samfélagsþjónustuna og opinberan rekstur færast í aukana auk þess sem ýmsar fullyrðingar hans í tengslum við einkavæðingu standast einfaldlega ekki skoðun. "Ég fullyrði", sagði H alldór...
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN
... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS
...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?
Kveðja,
Ólína
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓÞURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU
Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?
...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL
Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












