Stjórnmál
20. Nóvember 2005
VG Í SÓKN – KOM FRAM HJÁ RÚV ÞEGAR GRANNT VAR HLUSTAÐ
Gleðileg tíðindi fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð voru kynnt í fjölmiðlum í dag því fram kom í könnun sem Fréttablaðið birti í dag að VG er í stórsókn. Nokkuð djúpt var á þessum fréttum í frásögnum Ríkisútvarpsins í dag. RÚV sló því upp að Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig fylgi en Samfylkingin tapaði fylgi samkvæmt umræddri könnun. Kallaður var til stjórnmálafræðingur frá háskólanum á Akureyri, Birgir Guðmundsson, til að útskýra það fyrir hlustendum Ríkisútvarpsins hvort þetta væri vegna formannaskipta í viðkomandi flokkum eða kannski alls ekki vegna formannaskipta, sem Birgir hallaðist nú heldur að. Og fréttastofan tók síðan kjarnan úr fréttinni saman og staðhæfði eftir stjórnmálafræðingnum...17. Nóvember 2005
ER EKKERT AÐ MARKA YFIRLÝSINGAR FRAMSÓKNARMANNA?
Í umræðum á Alþingi sl. miðvikudag um lagafrumvarp sem heimilar ríkisstjórninni að kaupa eignarhlut sveitarfélaga í Landsvirkjun sagði Jón Bjarnason , þingmaður VG m.a.: “Nú hefur það komið fram m.a. hjá hæstv. iðnaðarráðherra Framsóknarflokksins og einnig líka núverandi formanni Sjálfstæðisflokksins að til stendur að einkavæða og selja orkufyrirtækin og þar með Landsvirkjun...." Valgerður Sverrisdóttir , iðnaðarráðherra brást hin versta við og saðgist vilja koma því á framfæri “að það stendur ekki til að einkavæða orkufyrirtækin í landinu...Svo einfalt er það mál.”
Ja, skyldi þeta vera alveg svona einfalt mál? SamaValgerður Sverrisdóttir tjáði sig nefnilega í Katljósþætti hinn 17. febrúar sl. um nákvænlega sama mál en komst að allt annarri niðurstöðu. Eða finnst lesendum þetta ekki nokkuð skýrt sbr. eftirfarandi...?
Ja, skyldi þeta vera alveg svona einfalt mál? Sama
14. Nóvember 2005
PÓLITÍSKT EINELTI?
...Fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hafa ekki tekið þátt í þessu leiðindasífri í garð borgarstjórans. Í VG höfum við á að skipa úrvalssveit á lista fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Það sem meira er, okkar frambjóðendur koma til með að bera uppi málefni sem eru mikilvæg samfélaginu og eiga erindi inn í samtíð og framtíð. Við skulum ræða við Steinunni Valdísi og aðra félaga hennar í Samfylkingunni á grundvelli málefna eins og við höfum reynt að gera hingað til. Gildir þá einu hverja Samfylkingin kemur til með að velja á framboðslista sinn...
7. Nóvember 2005
NEYÐARÓP FRÁ FRAMSÓKNARFLOKKNUM
Birtist í Morgunblaðinu 06.11.05.
Fimmtudaginn 3. nóvember skrifarHjálmar Árnason , þingflokksformaður Framsóknarflokksins, grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni Neyðaróp frá RÚV. Ég fæ ekki betur séð en Hjálmar Árnason sé með þessari grein að undirbúa svik Framsóknarflokksins við eigin samþykktir um að Ríkisútvarpið verði ekki gert að hlutafélagi...Á stjórnkerfi Ríkisútvarpsins þarf að gera ýmsar breytingar til úrbóta. Fram hafa komið sannfærandi tillögur í því efni án þess að orðið verði við kröfu markaðssinna um að færa Ríkisútvarpið upp á færiband til einkavæðingar. Væri ekki rétt að skoða þær...?
Fimmtudaginn 3. nóvember skrifar
22. Október 2005
OPIÐ BRÉF TIL SAMFYLKINGARFÓLKS
Birtist í Morgunblaðinu 21.10.05
...Vel má vera að Samfylkingin telji það vera til vinsælda fallið á 21. öldinni, að gerast eins hægri sinnaður og hægri vængur Sjálfstæðisflokksins. Þá hættir flokkurinn hins vegar að vera félagshyggjuflokkur. Og fyrir okkur, sem horft höfum til Samfylkingarinnar sem vænlegs samstarfsflokks í stjórnmálum, vakna áleitnar spurningar.
Stjórnmálaflokkar verða að tala skýrt. Það gengur ekki fyrir Samfylkinguna að láta sem flokkurinn sé þenkjandi á jafnaðarvísu um leið og boðuð er grundvallarbreyting á samfélaginu í anda stækustu peningafrjálshyggju. Slíkt kallast að bera kápuna á báðum öxlum. Kemur fólki, sem stendur utan Samfylkingarinnar, það við hvernig hún hugsar og talar? Í tvennum skilningi er svo...
...Vel má vera að Samfylkingin telji það vera til vinsælda fallið á 21. öldinni, að gerast eins hægri sinnaður og hægri vængur Sjálfstæðisflokksins. Þá hættir flokkurinn hins vegar að vera félagshyggjuflokkur. Og fyrir okkur, sem horft höfum til Samfylkingarinnar sem vænlegs samstarfsflokks í stjórnmálum, vakna áleitnar spurningar.
Stjórnmálaflokkar verða að tala skýrt. Það gengur ekki fyrir Samfylkinguna að láta sem flokkurinn sé þenkjandi á jafnaðarvísu um leið og boðuð er grundvallarbreyting á samfélaginu í anda stækustu peningafrjálshyggju. Slíkt kallast að bera kápuna á báðum öxlum. Kemur fólki, sem stendur utan Samfylkingarinnar, það við hvernig hún hugsar og talar? Í tvennum skilningi er svo...
11. Október 2005
EINKAVÆÐINGARFJÁRLÖGIN
..Nú var úr vöndu að ráða fyrir ríkisstjórn sem staðráðin var í því að hunsa þjóðarviljann. Eftir nokkra yfirlegu var brugðið á það ráð að búa til sérstök Einkavæðingarfjárlög um ráðstöfun símasilfursins. Í Einkavæðingarfjárlögunum skyldi aðeins vera að finna vinsæl mál, engin kaup á sæti í öryggisráði SÞ þar, umdeildar fjárveitingar til NATÓ eða annarra mála sem lítt eru til vinsælda fallin. Slíkt skyldi vera í hinum hefðbundnu fjárlögum. Í Einkavæðingarfjárlögunum ætti aðeins að vera sólskin og gleði. Stjórnarmeirihlutinn tók að sjálfsögðu bakföll af hrifningu og einskærri ánægju yfir gjafmildi ríkisstjórnarinnar. Margir stjórnarandstöðumenn bitu einnig á agnið og fóru að ræða einstaka efnisþætti fumvarpsins, þar á meðal fjárveitingar þingsins á þarnæsta kjörtímabili! Þannig var ástandið innan veggja Alþingis í gær...
14. September 2005
RÍKISSTJÓRNIN REYNIR AÐ KAUPA SÉR VINSÆLDIR
Birtist í Morgunblaðinu 13.09.05.
...Veltufé frá rekstri var 6.800 millj. kr. Þarna er því geysileg fjármunamyndun á ferðinni og hrikalegt til þess að hugsa að ríkisstjórnin skuli hafa tekið frá þjóðinni slíka gullkú...Ég efast um að nokkur maður trúi því að kaupendur Símans séu í góðgerðarstarfsemi; þeir hafi einfaldlega ekkert haft við 66,7 milljarða aðgera og hafi viljað setja þá í uppbyggingu í þágu samfélagsins? Nei, þeir ætla að græða á Símanum. Auðvitað ætla þeir að ná hverri einustu krónu til baka frá notendum þjónustunnar og gott betur. Við munum borga ...
...Veltufé frá rekstri var 6.800 millj. kr. Þarna er því geysileg fjármunamyndun á ferðinni og hrikalegt til þess að hugsa að ríkisstjórnin skuli hafa tekið frá þjóðinni slíka gullkú...Ég efast um að nokkur maður trúi því að kaupendur Símans séu í góðgerðarstarfsemi; þeir hafi einfaldlega ekkert haft við 66,7 milljarða að
7. September 2005
EINN TALAR ÚT, ANNAR Í SUÐUR
Birtist í Blaðinu 07.09.05
Hvað skyldi Björgvin G. Guðmundsson nú segja um flokksfélaga sinn Stefán J. Hafstein og yfirlýsingar hans um hugsanlegt samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en í viðtali við Blaðið viðraði hann sjónarmið sín nýlega undir fyrirsögninni, "Sé samstarfsmöguleika við Sjálfstæðismenn". Þar er Stefán Jón, sem gjarnan vill verða borgarstjóri, spurður hvort hann sjái fyrir sér samstarf við "sjálfstæðismenn, jafnvel minnihlutastjórn?". Stefán Jón kveður vera flöt á slíku og að... Mér sýnist hið pólitíska landakort vera að teiknast nokkuð skýrt upp. Mér sýnist margt benda til þess að valkostir kjósenda muni verða nokkuð skýrir í komandi borgarstjórnarkosningum. Þar þarf enginn að velkjast í vafa um vilja VG til að efla samfélagsþjónustuna, einvörðungu með hagsmuni borgarbúa í huga. En ég er hræddur um að ...
Hvað skyldi Björgvin G. Guðmundsson nú segja um flokksfélaga sinn Stefán J. Hafstein og yfirlýsingar hans um hugsanlegt samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en í viðtali við Blaðið viðraði hann sjónarmið sín nýlega undir fyrirsögninni, "Sé samstarfsmöguleika við Sjálfstæðismenn". Þar er Stefán Jón, sem gjarnan vill verða borgarstjóri, spurður hvort hann sjái fyrir sér samstarf við "sjálfstæðismenn, jafnvel minnihlutastjórn?". Stefán Jón kveður vera flöt á slíku og að... Mér sýnist hið pólitíska landakort vera að teiknast nokkuð skýrt upp. Mér sýnist margt benda til þess að valkostir kjósenda muni verða nokkuð skýrir í komandi borgarstjórnarkosningum. Þar þarf enginn að velkjast í vafa um vilja VG til að efla samfélagsþjónustuna, einvörðungu með hagsmuni borgarbúa í huga. En ég er hræddur um að ...
30. Ágúst 2005
STJÓRNMÁLAFLOKKAR EIGA AÐ TALA SKÝRT
...Svo lengi sem stjórnmálaflokkar telja sig eiga sameiginlegan samnefnara í almennri pólitík, vilja t.d. leggja áherslu á félagslega þætti, gagnstætt sjónarmiðum, sem byggja á módeli peningafrjálshyggju, eiga þeir tvímælalaust að lýsa því yfir að þeir ætli að starfa saman að loknum kosningum...Um þetta fjallar Helgi Guðmundsson í Frjálsum pennum hér á síðunni í dag. Hann vísar m.a. í það sem hann kallar norsku leiðina, og hvetur til þess að menn íhugi hana fyrir komandi kosningar í Reykjavík. Helgi segir m.a. : "Vitlegt upphaf kosningabaráttunnar fyrir R-listaflokkana væri að fara norsku leiðina, lýsa því yfir að þeir hyggðu á áframhaldandi samstarf þó þeir bjóði ekki fram saman eins og síðustu ár. Þær ættu að koma sér saman um ákveðin megin málefni sem þeir legðu áherslu á að vinna saman að. Kjósendur skilja vel að flokkarnir vilji spreyta sig einir – sjá hvernig þeir standa og semja svo á grundvelli þess styrks sem þeir fá í kosningunum. Umfram allt eiga flokkarnir að ganga hreint til verks við kjósendur, segja þeim að ekki standi til að taka upp sama makkið í borgarstjórn og gert er við myndun ríkisstjórna heldur þvert á móti...
19. Ágúst 2005
ÞÖRF Á VINSTRI STJÓRN
Ísland bráðvantar vinstri stjórn; ríkisstjórn sem af alefli beitir sér fyrir því að koma á jöfnuði í landinu og útrýma því misrétti sem fylgt hefur ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins frá því hann komst til valda árið 1991. Það er rétt sem Hrafnkell A. Jónsson, héraðsskjalavörður á Egilsstöðum og fyrrum verkalýðsforkólfur með meiru, segir í grein í Blaðinu 11. júlí sl., að "þær kynslóðir sem eru að vaxa úr grasi í dag hafa aldrei búið undir vinstri stjórn..." Eftirfarandi er líka eflaust rétt eftir haft hjá Björgvin Guðmundssyni, sem segir í upphafsorðum greinar á vísir.is, sem einnig birtist sem leiðari Fréttablaðsins 25. júlí sl...
Vandinn er sá að báðir reynast þessir ágætu menn, Hrafnkell og Björgvin, vafasamir sagnfræðingar og báðir komast þeir að mínu mati að röngum niðurstöðum...
Vandinn er sá að báðir reynast þessir ágætu menn, Hrafnkell og Björgvin, vafasamir sagnfræðingar og báðir komast þeir að mínu mati að röngum niðurstöðum...
12. Ágúst 2005
AÐKOMA BORGARBÚA AÐ PÓLITÍSKRI STEFNUMÓTUN EÐA VALI Á "LEIÐTOGA"?
Ég skal játa að heldur kom mér á óvart að menn skyldu ekki sýna meiri lipurð í samningaviðræðum um framhald á R-listasamstarfinu en raun ber vitni og beini ég sjónum mínum þar einkum að Samfylkingunni. Ég geri mér grein fyrir að sitt sýnist hverjum í þessu efni og beinir Samfylkingarfólk spjótum að okkur í VG með ásökunum. Þannig er haft eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar á vefsíðu Morgunblaðsins í dag...
Þeir stjórnmálamenn sem raunverulega vilja áframhaldandi samstarf ættu að hafa morgundaginn í huga þegar þeir nú gefa samstarfsaðilum sínum einkunnir. Væntanlega vilja þeir samstarf málefnanna vegna....
Á hverju strandar þá? Í fyrsta lagi hefur Samfylkingin efasemdir um jafnræðisregluna. Hún telur Samfylkinguna vera stærri en hina flokkana og eigi hennar hlutur að vera meiri fyrir vikið. Tilbrigði við þessa hugsun er aukin aðkoma "óháðra". Þar mun vera vísað í Dag Eggertsson borgarfulltrúa auk þess semIngibjörg Sólrún Gísladóttir var "óháð" á sínum tíma. Og þannig er það: Allt á sinn tíma. Einu sinni var ég "óháður" í framboði ...
Þeir stjórnmálamenn sem raunverulega vilja áframhaldandi samstarf ættu að hafa morgundaginn í huga þegar þeir nú gefa samstarfsaðilum sínum einkunnir. Væntanlega vilja þeir samstarf málefnanna vegna....
Á hverju strandar þá? Í fyrsta lagi hefur Samfylkingin efasemdir um jafnræðisregluna. Hún telur Samfylkinguna vera stærri en hina flokkana og eigi hennar hlutur að vera meiri fyrir vikið. Tilbrigði við þessa hugsun er aukin aðkoma "óháðra". Þar mun vera vísað í Dag Eggertsson borgarfulltrúa auk þess sem
17. Júlí 2005
R-LISTINN ER ANNAÐ OG MEIRA EN MERKIMIÐI
...R-listinn hefur gert margt gott í tímans rás, í sumu hefur honum mistekist. Eitt eru menn þó orðnir mjög meðvitaðir um í þeim röðum þar sem ég þekki til og það er mikilvægi þess að skilgreina lýðræði á víðari hátt en gert hefur verið. Í stað þess að leggja allt upp úr kosningu fulltrúa í borgarstjórn – að hún sé sem opnust og að menn séu lausir allra mála að þeim loknum – þá beri að líta á lýðræði sem stöðugt verkefni. Reyndar hef ég grun um að þeir sem leggi mest upp úr prófkjaralýðræði, að ekki sé minnst á leiðtogalýðræðið, séu einmitt þeir sem minnst gefi fyrir þessa breiðu lýðræðislegu aðkomu. Þeir vilja láta kjósa leiðtoga og fulltrúa sem síðan hafi umboð til að stjórna. Mitt er valdið og engar refjar. Kjóstu mig og síðan hlýðir þú! ...Er þá komið að tilefni þessara skrifa. Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við
29. Júní 2005
UM "STJÓRNLÆGAR ÁKVARÐANIR"
Því miður hittist svo illa á að sölumaður knúði dyra hjá mér þegar Birgir Guðmundsson, fréttamaður, fjallaði um R-lista samstarfið í Reykjavík í Spegli Ríkisútvarpsins í kvöld. Ég náði því ekki að hlýða á boðskap Birgis og útleggingar. Þó náði ég að heyra all sérstaka kenningu hans um Vinstrihreyfinguna grænt framboð; henni "léti ekki að taka stjórnlægar ákvarðanir"! Þetta kurteislega orðlag held ég að eigi að skiljast sem svo að við í VG viljum ekki axla ábyrgð á því að stjórna. Ekki heyrði ég nokkurn rökstuðning fyrir þessari staðhæfingu. Ég veit ekki betur en...
4. Júní 2005
"ERTU EKKI ÓSKAPLEGA VINSÆL?"
Þetta er fyrissögnin á nýlegum pistli iðnaðar- og viðskiptaáðherra Íslands, Valgerðar Sverrisdóttur á heimasíðu hennar. Hún hafði setið í flugvél með manni frá skattaparadísinni New Jersey á Ermarsundi; hún á leið til Serbíu - ekki fylgdi sögunni hverra erinda. Hann hafði verið í heimsókn á Íslandi og hrifist mjög af einkavæðingu undangenginna ára og góðvild ríkisstjórnarinnar í garð stórfyrirtækja og efnafólks. Og hér sat hann við hliðina á sjálfum ráðherranun sem hafði verið einn helsti gerandinn í þessu mikla ferli. Ekki að undra að hinn gestkomandi maður spyrði þeirrar spurningar sem brann á vörum – bæði hans og viðmælandans...
1. Júní 2005
MÁ BJÓÐA ÞÉR ÍBÚFEN?
...Í stefnudrögum Samfylkingarinnar um heilbrigðismál kveður við þennan sama miður geðfellda tón um að fyrirtæki í heibrigðisþjónustu eigi að keppa um athygli ( og væntanlega einnig peninga ) sjúks fólks: Auka beri "hagkvæmni, skilvirkni og samkeppni á milli heilbrigðisstofnana..." Og um einkareksturinn almennt segir: "Einkarekstur er öflugt tæki gegn biðlistum og eykur valkosti, hagkvæmni og starfsánægju í heilbrigðiskerfinu." Auðvitað á maður ekki að verða forviða að heyra yfirlýsingu af þessu tagi frá Samfylkingunni...
31. Maí 2005
HJÁLMAR SETJIST VIÐ SKRIFTIR
...Fréttablaðið á mikið lof skilið fyrir vasklega framgöngu, og þá sérstak lega Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fyrir rannsóknarfréttamenn sku sína. Ég er hins vegar hræddur um að Hjálmar Árnason þurfi að klóra sér svolítið í höfðinu, maðurinn sem fór hörðum orðum um gagnrýni okkar stjórnarandstöðuþingmanna á þau atriði sem Fréttablaðið hefur nú gert að ítarlegu umfjöllunarefni og sýnt fram á að ásakanir okkar voru á rökum reistar. Í fyrrenfndum pistli sínum dró Hjálmar hvergi af sér í hneyksaln yfir...
29. Maí 2005
EINKAVÆÐINGARFLOKKARNIR TVEIR: SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR OG SAMFYLKING
...Í grein sinni rekur Ólafur Örn Arnarsson mjög skilmerkilega hvernig bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tala fyrir einkarekstri og samkeppni innan heilbrigðisþjónustunnar. Ekki ætla ég að hrekja ýmsar fullyrðingar læknisins um meinta kosti einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu ...Það er hins vegar þakkarvert að okkur sé bent á að enginn munur sé á Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu þegar kemur að einkavæðingu velferðarþjónustunnar. Þetta hlýtur að verða umhugsunarefni þeim kjósendum sem vilja...
19. Maí 2005
SAMFYLKINGIN OG TALIÐ UM ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU
Danski rithöfundurinn, Hans Scherfig, sagði einhvern tímann að sumir skrifuðu um lífið, aðrir skrifuðu um þá sem skrifuðu um lífið, en svo væru til þeir sem lifðu lífinu. Mér kemur þetta í hug þegar ég heyri Samfylkinguna tala um lýðræðið. Gott ef það var ekki Framtíðarhópur Samfylkingarinnar sem nú síðast talar um mikilvægi þess að þjóðin greiði atkvæði um allt bæði stórt og smátt. Alla vega talar þessi hópur mikið um lýðræði. Það hefur Samfylkingin reyndar oft gert á undanförnum árum. Meira að segja á mjög hástemmdan hátt. Það er svo mikilvægt að þjóðin fái að ráða, segja flokksmenn gjarnan á málfundum og í greinaskrifum. En síðan þegar á hólminn kemur og látið er á það reyna hver vilji manna raunverulega er, þá hefur því miður annað verið uppi á...16. Maí 2005
ÞÖRF Á PÓLITÍSKRI GJÖRGÆSLU
Birtist í Morgunblaðinu 15.05.05
...Ráðherrann talaði af miklum hroka niður til stofnana í almannaþjónustu. Þær hefðu gengið of langt í umsögnum sínum um stjórnarfrumvörp og væru þær Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, og hún um þetta sammála. Þessar stofnanir hefðu leyft sér að tjá sig um lagafrumvörp frá ríkisstjórninni á gagnrýnin hátt. Þannig hefði Umhverfisstofnun gengið of langt í umsögn sinni um vatnalög og Samkeppnisstofnun um samkeppnislög. Opinberum stofnunum bæri að "taka tillit til þeirra skilaboða sem koma frá stjórnvöldum", sagði Valgerður Sverrisdóttir í viðtali við...
...Ráðherrann talaði af miklum hroka niður til stofnana í almannaþjónustu. Þær hefðu gengið of langt í umsögnum sínum um stjórnarfrumvörp og væru þær Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, og hún um þetta sammála. Þessar stofnanir hefðu leyft sér að tjá sig um lagafrumvörp frá ríkisstjórninni á gagnrýnin hátt. Þannig hefði Umhverfisstofnun gengið of langt í umsögn sinni um vatnalög og Samkeppnisstofnun um samkeppnislög. Opinberum stofnunum bæri að "taka tillit til þeirra skilaboða sem koma frá stjórnvöldum", sagði Valgerður Sverrisdóttir í viðtali við...
15. Maí 2005
Í HEIMSÓKN HJÁ EINARI K.: SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR Í GREIPUM HUGMYNDAFRÆÐI
Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, 10. Maí 2005
ALÞINGI Í ELDHÚSI
...En vandinn við fólk sem er í stöðugum partýjum er sá að það glatar hæfileikanum til að skoða umhverfi sitt af raunsæi – það hættir að sjá hlutina í fókus - til dæmis er augljóst að ríkisstjórnin er orðin ófær um að sjá misskiptinguna í landinu. Henni er farið líkt og Landsbankamönnum, sem segja í auglýsingum að, Aðeins einn geti komið í veg fyrir að þú eyðir í sparnað – það sért þú sjálfur. Er það svo? Leggur láglaunamaður eða öryrki á strípuðum bótum ekki til hliðar eða fjárfestir hann ekki í hlutabréfum vegna þess að hann er áhugalaus um að spara? Eða getur verið, og er það ekki öllu líklegra, að láglaunamaðurinn eða atvinnulaus maður með 91.426 kr. á mánuði eyði ekki í sparnað, eins og það er kallað, einfaldlega vegna þess ...
6. Maí 2005
FRAMSÓKN Á MÓTI - BSRB?
Sjálfstæðisflokkurinn má eiga það að hann hefur getað tekið gagnrýni á sínar gjörðir frá verkalýðshreyfingunni, þar með talið BSRB. Bandalagið, BSRB, sem ég veiti formennsku hefur verið mjög varfærið þegar umdeild þjóðfélagsmál eru annars vegar en tekið afdráttarlausa afstöðu í málum sem samstaða hefur verið um að samtökin beiti sér í...Því kunna Framsóknarmenn ekki að taka. Aðstoðarmaður forsætisráðherrans, Björn Ingi Hrafnsson ríður á vaðið og gerir því skóna að ég misnoti BSRB. Hvers vegna í ósköpunum ég hafi ekki sagt frá afrekum ríkisstjórnarinnar á baráttudegi verkalýðsins...Árásir Framsóknarmanna á BSRB marka ákveðin tímamót. Ég kveinka mér ekki undan gagnrýni í minn garð. En tilraunir til að sverta BSRB og gera lítið úr starfi samtakanna þykja mér mjög ámælisverðar og þeim einstaklingum sem í hlut eiga til minnkunar.1. Maí 2005
Birtist á Morgunpósti VG: 1. MAÍ ER OKKAR DAGUR
...Það merkilega við þennan dag er samstaðan. Í dag komum við saman í útvarpsþætti á Ríkisútvarpinu, Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Ingibjörg Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ og ég sem formaður BSRB. Öll höfum við starfað ágætlega saman sem einstaklingar. En þótt þau samtök sem við erum í forsvari fyrir hafi haft gott samstarf um margt, er því ekki að leyna að ekki höfum við verið sammála um alla hluti. Einu get ég þó lofað fólki, að þegar við leiðum okkar hesta saman í umræðu á þessum degi, munum við ekki einblína á það sem sundrar okkar samtökum heldur hitt sem sameinar okkur. Þetta er galdurinn við 1. maí. Því eins og áður segir þá er þessi dagur, 1. maí, dagur samstöðunnar...
28. Apríl 2005
FRAMLAG TIL MANNRÉTTINDASKRIFSTOFU VERÐI ENDURSKOÐAÐ
...Eða hverju sætir að opinbert framlag til þessarar mikilvægu stofnunar, sem er andlit Íslands inn á við og út á við í mannréttindamálum, er skorið niður úr 8 milljónum í 2,2 milljónir? Skyldi það vera vegna þess að Mannréttindaskrifstofa hefur haft sitthvað að athuga við ýmis umdeild stjórnarfrumvörp, fjölmiðlafrumvarpið, útlendingafrumvarp og fleiri, á undanförnum misserum? Enginn hefur treyst sér til að segja að Mannréttindaskrifstofan hafi ekki verið fagleg og sanngjörn í umfjöllun sinni um fyrrgreind mál. Hún hefur hins vegar gerst sek um þann "glæp" að vera stjórnvöldum ekki undirgefin. Þess vegna er nú talað um ...
26. Apríl 2005
FRAMSÓKN FARI ALLA LEIÐ en ekki WITH A LITTLE HELP ...
Þingflokkur Framsóknarflokksins ætlar að birta upplýsingar um tekjur og hagsmunatengsl þingmanna sinna. Þetta er lofsvert skref og gott, svo langt sem það nær. En því miður nær það ekki nógu langt... Þótt Framsókn sé að stíga jákvætt skref með því að gera grein fyrir fjárreiðum þingmanna sinna þá stendur krafan á Framsókn um að fara alla leið og opna bókhald flokksins upp á gátt...
23. Apríl 2005
RÍKISSTJÓRNIN GERIR SÉR GLAÐAN DAG
![]() |
| Mynd: mbl.is |
20. Apríl 2005
ÆTLAR RÍKISSTJÓRNIN AÐ VEITA UPPLÝSINGAR UM FJÁRMÁLATENGSL RÁÐHERRA?
...Í sjálfu sér ber að fagna þeirri yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar að fela skuli forsætisnefnd að fara í saumana á þessu máli. Ef þessi umræða, og reyndar sambærilegur þrýstingur í þessa veru árum saman, verður til að hreyfa málinu þá er það gott. Engu að síður velkist ég ekki í vafa um að halda verður uppi þrýstingi til þess að eitthvað raunverulega gerist í málinu. Við skulum vera minnug þess að Halldór Ásgrímsson sagði ekki alls fyrir löngu að sér væri það að meinalausu að birt yrði fundargerð utanríkismálanefndaar Alþingis sem hafði að geyma ummæli hans sem stjórnarandstöðunni þóttu ganga í berhögg við önnur ummæli hans og gjörðir á þessum tíma. Þessi ummæli voru aldrei birt. Sjálfstæðisflokkurinn gætti þess að lokað var á málið. Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn í þessu máli? Í ljósi þessa er eðlilegt að spyrja hvaða þýðingu yfirlýsing Halldórs Ásgrímssonar í dag komi til með að hafa? Það á einfaldlega eftir að...
19. Apríl 2005
UM KREDDUR Á KRATAVÆNGNUM
Einkavæðing velferðarþjónustunnar kemur ekki til greina segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir frambjóðandi til formennsku í Samfylkingunni. En hún bætir því við að allt komi til greina varðandi rekstrarformið...Hið sama er uppi á teningnum hjá Tony Blair og félögum í Nýja Verkamannaflokknum í Bretlandi. Þeir fundu upp hugtak sem heitir einkaframkvæmd. Þetta form hefur sömu eiginleika og einkavæðing og er einkavæðing, ef út í það er farið. Einkaframkvæmd gerir fjárfestum kleift að taka arð út úr þessari þjónustu eins og hverjum öðrum rekstri og reka hana á forsendum markaðslögmála...
19. Apríl 2005
"ÉG BARA BENDI Á SKÝRSLU RÍKISENDURSKOÐUNAR"
...Valgerður bankamálaráðherra átti ekki mörg svör ríkisstjórninni til málsbóta í sjónvarpsþættinum þótt ekki verði sagt að hart hafi verið að henni sótt af hálfu háttprúðra þáttastjórnenda. En eitt taldi hún þó vera ríkisstjórninni haldreipi og það var umrædd skýrsla Ríkisendurskoðunar sem út kom haustið 2003 að beiðni þingflokks VG. Þessi skýrsla var afskaplega rýr í roðinu og fyrir þá sem vilja vita var hún ganrýnd af hálfu þingflokks VG sem taldi Ríkisendurskoðun ekki hafa risið undir hlutverki sínu að þessu sinni. Í umræðu um starfsskýrslu Ríkisendurskoðunar í þinginu í janúar á þessu ári sagði ég að nálgun stofnunarinnar gagnvart viðfangsefninu í umræddri skýrslu hefði verið þröng og einskorðast við þau markmið sem ríkisstjórnin hefði lagt til grundvallar en ekki tekið mið af gagnrýni sem fram hefði komið innan þings og utan á einkavæðinguna og framkvæmd hennar. Sjónarhornið hefði með öðrum orðum verið afar þröngt. Skýrslan er því ekki nýtileg sem grundvöllur til að byggja á gagnrýna umfjöllun um einkavæðingu ríkisbankanna eins og fjárlaganefnd Alþingis hyggst nú gera. Þá liggur í augum uppi að skýrsla Ríkisendurskoðunar er...
17. Apríl 2005
FJÖLMIÐLAR SPYRJI ÖSSUR OG INGIBJÖRGU SÓLRÚNU
...Í Bretlandi hafa hin margrómuðu umræðustjórnmál aðallega verið í nösunum á þeim sem engar raunverulegar umræður vilja. Þannig hefur það gerst að markaðskreddurnar hafa verið lögfestar umræðulaust hjá hinum bresku umræðupólitíkusum! Víkjum þá aftur til Íslands og formannskosninganna í Samfylkingunni. Hvað þykir frambjóðendum um vinnubrögð bresku hægri kratanna? Væri ekki ráð að spyrja formannskandídata Samfylkingarinnar hreint út hvort þeim finnist yfir höfuð koma til greina að einkavæða hverfisskóla á grunnskólastigi, í stað þess að hjakka í því farinu hver sé að rægja hvern? Um aðra þætti velferðarþjónustunnar mætti einnig spyrja þau Össur og Ingibjörgu Sólrúnu, þar með talið...
23. Mars 2005
FRJÁLSHYGGJAN KANNIST VIÐ KRÓGANN SINN
![]() Helga Lára Hauksdóttir, Hafsteinn Þór Hauksson, Sigurður Kári ásamt undirrituðum. |
Ungir sjálfstæðismenn efndu til fundar í Valhöll hádeginu í gær um frumvarp Sigurðar Kára Kristjánssonar alþingismanns um að nema úr gildi heimild til að birta skattskrár opinberlega. Þetta hefur lengi verið baráttumál ungra sjálfstæðismanna og hef ég oft furðað mig á því af hve miklum ákafa málið er sótt. Á fundinum sannfærðist ég um að þeir líta á þetta sem mannréttindabrot...Annars voru fundarmenn rökfastir og skemmtilegir og gerðu grein fyrir máli sínu á ítarlegri hátt en hér er fært til bókar. Aðkomumanni var vel tekið þrátt fyrir ...
20. Mars 2005
ÁLFÍKLAR Í RÍKISSTJÓRN
Helst held ég að auglýsingaráðgjafar Framsóknarflokksins hafi lamið á puttana á iðnaðar- og byggðamálaráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, eftir makalausa álræðu hennar á þingi Samtaka iðnaðarins í vikunni sem leið. Morgunblaðið gerði m.a. þessa ræðu að umræðuefni í leiðara helgarblaðsins og var bersýnilega ekki skemmt. Í fréttum RÚV í kvöld kom síðan...
11. Mars 2005
FRÉTT SEM EKKI MÁ GLEYMAST
...Ég hef sent fyrirspurn til forsætisráðherra Íslands sem væntanlega verður svarað í næsta fyrirspurnartíma á Alþingi um hvort íslenska ríkisstjórnin muni fara að dæmi Dana. Fróðlegt verður að heyra svar Halldórs Ásgrímssonar. Á Íslandi gætu þessi hagsmunatengsl skipt miklu máli í ljósi þess hve iðin íslenska ríkisstjórnin er að selja verðmætar þjóðareignir í hendur fyrirtækjum og einstaklingum. Í því spili hefur margur maðurinn ...
4. Mars 2005
VERÐA ÞINGKOSNINGAR Í VOR?
Ýmsar leiðir má fara við að túlka ummæli Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi í gær. Í umræðu um Ráðherranefnd Norðurlandaráðs hóf hún, flestum að óvörum ( en að viðstöddum iðnaðarráðherra Valgerði Sverrisdóttur sem sat gleiðbrosandi í salnum), mikinn lestur um Davíð Oddsson, forsætisráðherra og meiningar hans um Evrópusambandið. Davíð hafði...
28. Febrúar 2005
FRAMSÓKNARFÓLK Í FYRIRRÚMI

Um helgina fékk ég lesendabréf sem ég held að ekki sé hægt að horfa framhjá. Stefán vísar í "þá miklu umræðu sem oft sprettur upp á hinum Norðurlöndunum þegar uppvíst verður að stjórnmálamenn þar eru nátengdir fyrirtækjum. Þegar í ljós kemur að þeir eiga í fyrirtækjum sem til dæmis eru í viðskiptum við ríki eða sveitarfélög eða tengjast stjórnmálalífinu eða öðrum hætti. Ég undrast vegna þess að hér hafa fjölmiðlar ekki gert mikið úr svona tengslum." Síðan nefnir hann dæmi frá Norðurlöndunum máli sínu til stuðunigs og spyr mig hvort mér þætti"eðlilegt að fjölmiðlar beindu sjónum sínum að tengslum stjórnmálamanna hér við fyrirtækin í landinu, eða að eign stjórnmálamanna í fyrirtækjum." Í svari mínu tók ég undir með Stefáni að bæði Alþingi og fjölmiðlar hafi vanrækt skyldur sínar í þessum efnum. Ég benti jafnframt á að það væri lykilatriði að...
23. Febrúar 2005
TÖKUM VALGERÐI SVERRISDÓTTUR Á ORÐINU– HLUSTUM Á HANA!
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra kvartaði yfir því á Alþingi í dag að út úr orðum sínum væri snúið og að erfitt væri að tala til fólks sem "heyrir ekki það sem maður segir". Tilefnið var það að lánshæfismat Landsvirkjunar tók dýfu eftir þá yfirlýsingu Valgerðar að til stæði að einkavæða fyrirtækið á komandi árum. Valgerður sagði þetta alranga útleggingu á sínum orðum...Valgerður, í einlægni spurt, viltu raunverulega að við hlustum eftir því sem þú segir? Ekki bara á það sem þú segir í dag heldur líka á það sem þú sagðir í gær og í fyrradag? Vill ráðherrann líka að við leggjumst í samanburðarrannsóknir? Við skulum reyna, en það kallar á sterkt taugakerfi...
22. Febrúar 2005
MUN BJÖRN BJARNASON REYNA VIÐ NÝTT HEIMSMET?
Það er víðar en á Íslandi að olíufélög hafi samráð sín í milli um verðlagningu. Í dag greinir Aftonbladet í Svíþjóð frá því að "Markaðsdómstóllinn" hafi dæmt nokkur olíufélög í samtals 112 milljón króna sekt fyrir að fara á bak við viðskiptavini sína með samráði. Þessa upphæð má margfalda rúmlega tífalt til þess að fá samanburð við íslensku krónuna. Þetta samráð fólst m.a. í því að sammælast um afsláttarkjör sem neytendur töldu sig vera að fá. Þetta samráð hefur staðið síðan 1999. Það sem mér liggur forvitni á að vita er hvernig Björn Bjarnason dómsmálaráðherra komi til með að ...
18. Febrúar 2005
MIKILVÆGUR FYRIRVARI BORGARSTJÓRA
...Enda þótt R-listinn hafi til margra ára staðið að þeirri stefnumótun að selja beri hlut borgarinnar í Landsvirkjun eru óneitanlega komnar upp aðrar pólitískar aðstæður með þessum ásetningi stjórnvalda að einkavæða þennan geira. Í ljósi þessa hefði verið hyggilegra af hálfu borgarinnar að fresta því að skrifa undir viljayfirlýsinguna og fá áður viðræður um þau grundvallaratriði sem VG hefur auglýst eftir. Að öðrum kosti gæti stefnt í það að R-listinn í Reykjavík gengi sundraður til þessara verka. ...16. Febrúar 2005
UM FJÖLMIÐLA OG SPUNAKERLINGAR
Tvö lesendabréf bárust síðunni eftir sjónvarpsfréttir í gærkvöldi. Í báðum tilvikum voru bréfritarar furðu lostnir yfir framgöngu ríkisstjórnarinnar og ekki síður fjölmiðla. Ríkissjónvarpið verður fyrir harðri gagnrýni. Jóhann segir að réttara væri að tala um "ríkisstjórnarsjónvarpið". Það "elti Halldór Ásgrímsson þessa dagana fram og aftur um landið og kemur svo með hallærislegar langlokufréttir á kvöldin þar sem Halldór ... er .. að fjalla um einhver deilumál líðandi stundar eins og einkavæðingu Símans með grunnnetinu. Þá fær hann einn að rausa ...og (eru) spilaðir langir eintalsþættir..." Í bréfi Ólínu er gagnrýni af sama toga í garð fjölmiðlanna sem láti ráðamenn komast upp með "ruglandi" og "þvælu" sem sé með slíkum ólíkindum að menn setji hljóða. Til alþingismanna er beint þeirri spurningu hvort þeir eigi ekki kost á að sækja námskeið í siðfræði og rökfræði! Það er broddur í orðum Ólínu en þó mikil alvara þegar hún spyr...
9. Febrúar 2005
FRAMSÓKN ÞJÓNAR FJÁRMAGNI
Halldór Ásgrímsson forsærisráðherra er nýkominn úr skíðaleyfi. Þaðan hélt hann beint á ársþing Verslunarráðsins þar sem hann ræddi við bissnissmenn um ágæti einakvæðingar, sérstaklega á símaþjónustu. Á sama tíma var óskað eftir nærveru ráðherrans við umræðu um sama efni á Alþingi. Látum þessa framkomu við þingið liggja á milli hluta svo og blíðmælgi H alldórs og skjall við peningamennina. Þjónkun Frmsóknar við fjármagnið er ekki ný af nálinni. H ins vegar virðast árásir formanns Framsóknarflokksins á samfélagsþjónustuna og opinberan rekstur færast í aukana auk þess sem ýmsar fullyrðingar hans í tengslum við einkavæðingu standast einfaldlega ekki skoðun. "Ég fullyrði", sagði H alldór...
30. Janúar 2005
ERU EKKI ALLIR SÁTTIR NÚNA?
... Eru eigendur Stöðvar 2 komnir með pólitískar krumlur í fréttastofuna varðandi mannahaldið? Við vitum að bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur líta á fréttastofur sem mikilvæg valdatæki þar sem eðlilegt sé að þeir hafi sína spotta til að toga í.27. Janúar 2005
ÓVÆGIN FRAMSÓKN – GAGNVART ÖÐRUM EN FRAMSÓKN
Framóknarflokkurinn á í erfiðleikum. Sjaldan hefur það komið eins vel fram og í dag. Stöð 2 gerði mistök í fréttaflutningi sínum varðandi tímasetninguna á því hvenær (ekki hvort) Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson komu Íslendingum á lista yfir þjóðir, sem lýstu vilja til að styðja innrás í Írak gegn vilja Sameinuðu þjóðanna. Nú snýst allt um dagsetningar og hver segir satt og rétt frá. Það er vissulega verðug umræða. Í henni á Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í vök að verjast. Þess vegna tekur hann og öll Framsókn fegins hendi feilspori hjá Stöð 2. Fréttamaðurinn og Stöð 2 biðjast hins vegar afsökunar. Öllum geta orðið á mistök. Allt veltur á hvernig viðkomandi bregðast við. Það er styrkur fréttamannsins, Róberts Marshalls, og Stöðvar 2 í þessu tilviki að viðurkenna mistökin. Þeir sem þannig bregðast við verða ekki fyrir varanlegum skaða. En þetta nægir ekki hinni grandvöru Framsókn. Á vefsíðu Framsóknarflokksins segir ...23. Janúar 2005
EKKI ÖLL Í SAMFYLKINGUNNI – SEM BETUR FER !
... Í hádegisfréttum RÚV í dag var haft eftir mínum ágæta félaga Gylfa Arnbjörnssyni, framkvæmdastjóra ASÍ, að verkalýðshreyfingin muni fylkja sér að baki formanni Samfylkingarinnar hver sem hann verði. Í útvarpsviðtalinu tekur Gylfi mjög eindregna afstöðu með ...
22. Janúar 2005
TRÚVERÐUGLEIKI FORSÆTISRÁÐHERRA Í HÚFI: HVAÐ SAGÐI HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Á FUNDI UTANRÍKISMÁLANEFNDAR 19. FEBRÚAR 2003?
Formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Sólveig Pétursdóttir , segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að leynd verði ekki aflétt af fundargerðum utanríkismálanefndar Alþingis ... Menn skulu ekki gefa sér að hugsanlegur leki úr gögnum utanríkismálanefndar í fjölmiðla sé frá stjórnarandstöðuþingmönnum kominn ... Í umræðum á Alþingi síðastliðið haust fór Steingrímur J. Sigfússon , formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og fulltrúi í utanríkismálanefnd fram á að leynd yrði aflétt af fundargerðum utanríkismálanefndar og í síðustu viku tók þingflokkur Samfylkingarinnar undir þá kröfu ... Hvers vegna treystir H alldór Ásgrímsson sér ekki til að láta upplýsa um sín eigin orð og yfirlýsingar? H vað óttast hann? H alldóri Ásgrímssyni er í lófa lagið að greina frá því með framvísun fundargerðar um hvað fram fór á fundi utanríkismálanefndar 19. febrúar, því hverjum og einum er í sjálfsvald sett að upplýsa um eigin yfirlýsingar ...
21. Janúar 2005
HVAÐ ERU STAKSTEINAR MORGUNBLAÐSINS AÐ SEGJA OKKUR?
... Getur verið að Staksteinar séu að veita okkur innsýn í sálarlíf Morgunblaðsins, jafnvel Sjálfstæðisflokksins? Þar virðist gilda formúlan að ef þú ekki makkar rétt, þá verður þér refsað!!! Ristir virðingin fyrir fréttamennsku ekki dýpra en þetta? Eða einfaldlega fólki sem er á öndverðum meiði; er gengið út frá því að pólitískir eiginhagsmunir ráði alltaf för? Hrikalegust er sú vanvirðing sem Staksteinar sýna Framsókn. Það er gengið út frá því sem vísu að hún ...18. Janúar 2005
RÁÐSTÖFUN FJÁRMUNA ER PÓLITÍSK
... Þegar nú er rætt um ráðstöfun fjármuna þjóðarinnar erlendis verða menn að geta tekið því að til samanburðar við framlagið til hamfarasvæðanna hafi menn framlag ríkisstjórnarinnar til NATO upp á 300 milljónir króna. Það er vesalt að bera sig illa undan því að þessi mál séu sett í pólitískt samhengi ... Þótt hörmungarnar vegna hamfaranna ógurlegu séu okkur öllum sýnilegar og augljósar og veki hluttekningu okkar allra þá skulum við ekki gleyma því að á hverjum einasta degi deyja yfir 30 þúsund börn úr vannæringu og hungri. Þar veldur pólitík. Á kannski líka að biðjast afsökunar á að minnast á það? Þegar allt kemur til alls hljótum við að spyrja hver það yfirhöfuð er, sem á að biðjast afsökunar. Gæti verið að sá maður heiti ...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...














