Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

28. Júní 2004

Er ríkisstjórnin að fara á taugum eða er hún bara á móti lýðræði?

Davíð er löngu hættur að koma á óvart. Líka Halldór. Þeir tveir eru eins útreiknanlegir og Baldur og Konni voru á sinni á tíð; mjög samrýmdir og töluðu alltaf einum rómi. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra hefur hins vegar óneitanlega komið ögn á óvart. Fram til þessa hefur hann nefnilega yfirleitt komið fram af yfirvegun. Nú talar hann af offorsi fyrir takmörkun á rétti þjóðarinnar til að útkljá mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Geir kom fram í sjónvarpi í kvöld, miðaði og skaut – sjálfan sig beint í fótinn. Geir H Haarde sagði að...

24. Júní 2004

Hvað er framundan?

Það vekur óneitanlega athygli hve samdóma álit það er manna á meðal að núverandi ríkisstjórn sé komin að fótum fram. Það er óalgengt um rúmlega ársgamla stjórn að á hana sé litið sem háaldraða. Í dag skrifar Steingrímur Ólafsson athyglisverðar vangaveltur í frjálsum pennum um hvað hann telji æskilegt að taki við að afloknum næstu kosningum. Steimgrímur er fyrrverandi formaður VG í Reykjavík og talar án efa fyrir munn mjög margra. Væru stjórnarandstöðuflokkarnir tilbúnir að mynda kosningabandalag í komandi kosningum spyr Streingrímur. Sjálfur er hann þeirrar skoðunar og spyr hann mig um afstöðu mína til þessa. Þessu er auðsvarað af minni hálfu. Allar götur frá því ég...

13. Júní 2004

Að gera einfalda hluti flókna

Birtist í Morgunblaðinu 12.06.04.
Á margumtöluðum fundi fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna sl. þriðjudag með oddvitum ríkisstjórnarflokkanna var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla á dagskrá. Fyrir stjórnarandstöðunni vakti það fyrst og fremst að tryggja breiða samstöðu um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar. Umræður hófust um málið, rætt um það hvenær þing kæmi saman og hvort hægt væri að ná samkomulagi um hversu lengi það skyldi standa. Í framhaldinu var á það bent að það hlyti að vera ...

10. Júní 2004

Ógnar þjóðin þingræðinu?

Lýðræði getur haft ýmsar takmarkanir. Enski heimspekingurinn og stjórnmálamaðurinn John Stuart Mill varaði okkur við því í frægri bók sinni Frelsinu að misbeita almannavaldi gegn minnihlutahópum. Þetta er rétt grundvallarregla en að mínu mati ekki algild. Það er nú að sannast fyrir augunum á okkur.  Hér á landi er sprottinn fram minnihlutahópur, sem telur sig eiga í vök að verjast. Þetta eru sjálfskipaðir verjendur þingræðis. Þeir telja að nú sé vegið að skjólstæðingi sínum, Alþingi. Og hver skyldi vega að þinginu? Það er...

6. Júní 2004

Sögulaus formaður?

Yfirlýsingar Halldórs Ásgrímssonar formanns Framsóknarflokksins um málsskotsréttinn hafa vakið furðu. Í grein sem Ólína sendir síðunni í dag og ætti að vera öllum sem áhuga hafa á pólitík og þjóðmálum, skyldulesefni eru málin reifuð í sögulegu samhengi. Þar segir m.a.: "Þú rifjar upp Ögmundur áskorun tugþúsunda Íslendinga sem báðu Vigdísi Finnbogadóttur að synja EES lögunum staðfestingar. Það er líka rétt að rifja upp fyrir lesendum ogmundur.is, fyrir Halldóri Ásgrímssyni og sérstaklega fyrir þeim sem búa til rökstuðning fyrir hann í þessu máli og öðrum að vissan um málskotsrétt forseta lýðveldisins er snar þáttur í pólitískri hefð Framsóknarflokksins. Þekktur er rökstuðningur ...

5. Júní 2004

Hvað þýðir "enginn" Halldór?

Hitt finnst mér alvarlegra, hvernig Halldór Ásgrímsson leyfir sér að tala til þjóðarinnar. Það má fyrirgefa honum mannlegan breyskleikann en ekki valdhrokann og einræðistilburðina sem komu fram í yfirlýsingum hans. Helsta viðfangsefni þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar virðist nú vera að ...

4. Júní 2004

Skert sjálfsmat og "valinkunnir lögfræðingar"

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, lét svo lítið að koma í Kastljós Ríkissjónvarpsins í gærkvöld – einn. Að sjálfsögðu, annað hefði verið stílbrot. Umræðuefnið var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla. Ekki þorir Sjálfstæðisflokkurinn lengur að standa gegn því að hún fari fram. Merkilegt hve stjórnarmeirihlutinn er banginn við þá þjóð sem kaus hann til valda. Það er engu líkara en ráðamenn verði skelfingu lostnir ef þjóðin á að fá að segja sína meiningu, beint og milliliðalaust. Nú er þetta ...

3. Júní 2004

Ætlar stjórnarmeirihlutinn að reyna að fótumtroða stjórnarskrárvarin mannréttindi?

Menn kann að greina á um þetta frumvarp, en eitt er víst að viðbrögð talsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknar segja okkur að bráðnauðsynlegt var að láta á það reyna hvort stjórnarmeirihlutinn sé virkilega orðinn svo firrtur í valdblindu að hann sé reiðubúinn að fótumtroða stjórnarskrárvarin mannréttindi...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta