Stjórnmál
22. Október 2004
Ákall til Samfylkingarinnar: Ekki Blair til Íslands!
Birtist í Morgunblaðinu 21.10.04.
Sl. mánudag greinir Morgunblaðið frá stefnumótunarvinnu Samfylkingarinnar á sviði skólamála. Svokallaður Framtíðarhópur flokksins hafði nýlokið við að boða framtíðarsýn sína í skólamálum. Án efa rak margan í rogastans. Boðað var að flokkurinn tæki einkavæðingu grunnskólans opnum örmum að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Þetta er sama formúla og áður var boðuð í heilbrigðisþjónustunni. Ég fæ ekki betur séð en formúleringin sé sú sama og hjá Sjálfstæðisflokki, sem nú er kominn...

20. Október 2004
Framtíðarnefnd á leið til fortíðar
Getur verið að Framtíðarnefnd Samfylkingarinnar viti ekki hvað snýr fram og hvað aftur? Fram vísar fram á við en fortíð tilbaka. Og þangað vill Framtíðarnefndin halda. Meira að segja langt aftur í fortíðina. Framtíðarnefndin telur það vera sérstakt framtíðarspor að innleiða markaðslögmál 19. aldarinnar inn í spítalana og skólana.Auðvitað á að setja markaðnum skorður, segir nefndin; en markaðurinn getur stuðlað að "hagfelldari" lausnum segir hún jafnframt. Þetta eru hugtökin. Ekki þykja verkalýðsfélögum í Bretlandi lausnir Tonys Blairs leiðtoga Verkamannaflokksins vera sérstaklega hagfelldar! Í smiðju hans hefur Framtíðarhópur Samfylkingarinnar greinilega leitað...19. Október 2004
Misskilningur dómsmálaráðherra leiðréttur
Birtist í Morgunblaðinu 18.10.04.
...Ummæli mín ber ekki að skilja á þann veg að ég óttist að Mannréttindaskrifstofan hverfi frá sjálfstæðri og gagnrýnni nálgun sinni til mála. En raunsæið segir okkur að dómsmálaráðherra sem sker niður framlög til stofnunar, sem haft hefur í frammi gagnrýna afstöðu til lagafrumvarpa, sem hann hefur lagt fram, er ekki líklegur til að styrkja slíka stofnun til frambúðar...

17. Október 2004
Hlýjar kveðjur frá Össuri
Á flokksstjórnarráðstefnu Samfylkingarinnar nú um helgina sendi Össur Skarphéðinsson, formaður þess flokks, stjórnarandstöðunni hlýjar kveðjur - og raunsæjar - mjög í anda þess sem Vinstrihreyfingin grænt framboð sagði fyrir síðustu Alþingiskosningar. Batnandi mönnum er best að lifa. Þetta sagði Össur m.a.: "Við þessar aðstæður er hlutverk stjórnarandstöðunnar mikilvægara en endranær. Við þurfum að leggja okkur enn frekar fram en áður um að endurheimta þann mannleika...
16. Október 2004
Hallarbylting peningavaldsins
Birtist í Morgunblaðinu 15.10.04.
...Í vikunni sáum við Björgólf Guðmundsson rétta forsvarsmönnum Sinfóníuhljómsveitar Íslands tékka upp á 25 milljónir króna. Eftir því sem fyrirtækin stækka taka þau meiri þátt í menningunni, sagði stjórnarformaður hins einkavædda Landsbanka við þetta tækifæri...Það er kannski ástæða til að taka það fram, að tilefni þessara skrifa er ekki að agnúast út í kapitalistana, allra síst þegar þeir vilja láta gott af sér leiða eins og Björgólfur Guðmundsson augljóslega vill, heldur hina sem ganga erinda þeirra á Alþingi og í Stjórnarráðinu. Engan hef ég heyrt mæla...

13. Október 2004
Vill Björn Bjarnason miðstýra mannréttindabaráttunni?
Birtist í Morgunblaðinu 12.10.04.
...Ef þessi nýskipan nær fram að ganga hefur stjórnin eftir sem áður þetta á sinni könnu en við val á verkefnum þarf hún nú að taka tillit til eins atriðis sem hún þurfti ekki áður að huga að: Nú þurfa verkefnin að falla í kramið hjá Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra. Er þetta heppilegt fyrirkomulag? Í miðstýrðu lögregluríki þætti þetta eflaust eftirsóknarvert. Í opnu lýðræðisþjóðfélagi er þetta talið afleitt. Í hvora áttina ætlar dómsmálaráðherrann að ganga, í átt til opins þjóðfélags eða lokaðs? Í hvernig þjóðfélagi vill Björn Bjarnason búa...?

4. Október 2004
Söguleg þingsetning
Setning Alþingis að þessu sinni varð söguleg að því leyti að stór hluti stjórnarandstöðunnar gekk á dyr undir ræðu forseta þingsins. Halldór Blöndal, þingforseti, lagði út af atburðum sumarsins, fjölmiðlalögunum, ákvörðun forseta Íslands að skrifa ekki undir lögin og vísa afgreiðslu þeirra til þjóðarinnar. Forseta Alþingis var misboðið og kvaðst hann hafa ákveðið að taka upp merki Alþingis, það væri beinlínis skylda sín. Hann fékk stuðning Morgunblaðsins í leiðara daginn eftir...

Þegar inn í þinghúsið kom, undir óþægilega miklum (og vaxandi?) honnör og hælasmellum minna annars prýðilegu lögreglufélaga í BSRB, hóf forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, upp raustu sína. Ræða hans var ágæt en hún fjallaði um loftslagsbreytingar, svokölluð gróðurhúsaáhrif, og hugsanlegar félagslegar afleiðingar þeirra. En formálinn – áður en að þessu kom - var pólitískur og ekki var það mín pólitík. Ólafur Ragnar gaf Davíð Oddssyni þá einkunn að...

1. Október 2004
Gildir það líka í Framsókn, Geir?
Geir H Haarde, fjármálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sat undir nokkurri orrahríð eftir að hann skipaði Jón Steinar Gunnlaugsson í stöðu hæstaréttardómara. Geir sagði við það tækifæri að hann kippti sér ekki upp við þessa gagnrýni enda næðu menn ekki langt í stjórnmálum ef þeir ekki þyrðu að standa á sannfæringu sinni. Er það virkilega svo í Sjálfstæðisflokknum að vísasta leiðin til að ná frama í þeim flokki sé að segja aldrei skilið við hugsjónir og sannfæringu? Er þetta kannski líka reglan í Framsóknarflokknum? Höfðu menn þar á bæ ef til vill áhyggjur af því að hugsjónaeldurinn í Kristni H. Gunnarssyni væri að kulna og þess vegna gæti hann ekki lengur sinnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn?
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLÆTI
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIÐ VONBRIGÐUM!
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGÐ Í MUNNINN
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓÐ KVEÐJA
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
Jón Jón Jónsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...