ÞURFUM Á ÞORLEIFI AÐ HALDA!

Fyrir VG er mikill missir að Þorleifi Gunnlaugssyni ,
varaborgarfulltrúa, en sem kunnugt er hefur hann nú tekið að sér
forystuhlutverk hjá Dögun og mun skipa efsta sæti lista þess
framboðs í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Það framboð
er byrjað að mælast en lítið enn sem komið er enda kynning af
skornum skammti og í sumum fjölmiðlum engin! Ekki einu
sinni frétt.
Þetta minnir mig á fyrri daga þegar VG var að verða til og gömul
samtrygging um óbreytt ástand birtist í beinni og óbeinni þöggun
gagnvart nýjabruminu.
Maður jafnaðar og lýðræðis
Ástæðan fyrri því að eftirsjá er að Þorleifi Gunnlaugssyni
fyrir flokk sem vill kenna sig við félagshyggju, og þeim mun
meiri fengur fyrir Dögun, er sú að enginn maður í borgarpólitíkinni
á undanförnum árum hefur verið ötulli en hann að tala máli þess
fólks sem er tekjulítið og á undir högg að sækja í félagslegu
tilliti. Það er helst nú undir kosningar að værukærara fólk er að
ranka við sér. Þorleifur Gunnlaugsson hefur hins vegar haldið
þessum málstað á loft óháð því hvort kosningar er á næsta leiti eða
langt undan. Hann hefur verið óþreytandi að taka uppi málstað
útigangsmanna í Reykjavík og berjast fyrir bættu hlutskipti þeirra.
Þá þekki ég það vel hve Þorleifur hefur reynst ötull baráttumaður
fyrir úrbótum sem snúa að lýðréttindum almennt og nefni ég þar
sérstaklega baráttu hans fyrir rafrænu lýðræði.
Rödd sem þarf að hljóma!
Mér finnst ástæða til þess að félagslega þenkjandi fólk sem nú
horfir til þeirra framboða sem í boði eru á á þeim væng
stjórnmálanna sem vill kenna sig við félagshyggju að gleyma ekki
Dögun með Þorleif Gunnlaugsson í broddi fylkingar. Sjálfum fyndist
mér afleitt að missa hann úr borgarpólitíkinni og fá í staðinn
meira af Pírötum, Bjartri framtíð, Framsókn eða Samfylkingu
svo nefndir séu flokkar sem stundum vilja máta sig við félagsleg
sjónarmið. Með brotthvarfi Þorleifs Gunnlaugssonar úr
borgarpóltíkinni myndi þagna rödd sem hljómað hefur í sölum
Ráðhússins og nefndastarfi þar, rödd sem ekki má þagna.