GAGNLEGIR KJÖRDÆMADAGAR

Síðasta vika var svokölluð kjördæmavika á Alþingi. Hún er ætluð
til að gefa þingmönnum færi á því að sinna ýmsu sem snertir
þingstörfin og lýtur að kjördæmunum sérstaklega.
Í Suð-vestur kjördæmi, því kjördæmi sem ég var kosinn í, hefur
skapast sú hefð á kjördæmadögum að heimsækja sveitarstjórnir og
fara með þeim yfir sanmskipti þeirra við Alþingi og
framkvæmdavaldið. Í kjördæminu eru sveitarstjórnirnar margar þótt
þeim hafi frækkað um eina eftir sameiningu Álftanes og
Garðabæjar.
Fundir voru haldnir í Garðabæ, Hafnarfirði, Kjósinni, Kópavogi og
Seltjarnarnesi. Margt fróðlegt kom fram á þessum fundum en alls
staðar var látinn í ljós vilji til að bæta og efla samsmkipti
ríkis og sveitarfélaga. Þar hefur margt áunnist á undanförnum
árum og hef ég fengið að kynnast því af eigin raun í hve prýðilegan
farveg margt er komið. Nefni ég þar Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
sérstaklega en þar koma ríki og sveitarfélög að á
jafningjagrundvelli.
Á slíkum grunni hefur þetta samstarf reyndar verið að þróast í
seinni tíð enda mætti spyrja hvernig annað ætti að vera!