Stjórnmál Október 2013

...Fundir voru haldnir í Garðabæ, Hafnarfirði, Kjósinni,
Kópavogi og Seltjarnarnesi. Margt fróðlegt kom fram á þessum fundum
en alls staðar var látinn í ljós vilji til að bæta og efla
samsmkipti ríkis og sveitarfélaga. Þar hefur margt áunnist á
undanförnum árum og hef ég fengið að kynnast því af eigin raun í
hve prýðilegan farveg margt er komið. Nefni ég þar Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga sérstaklega en þar koma ríki og sveitarfélög að á
jafningjagrundvelli. Á slíkum grunni hefur þetta samstarf reyndar
verið að þróast ...
Lesa meira

...Inn í þessa söguskýringu er því sleppt að setja atburði og
afstöðu manna inn í sögulegt samhengi , nema hvað þessi fyrrverandi
formaður Sjálfstæðisflokksins má eiga það að viðurkenna að á þessum
tíma var það tálsýn að gleðjast yfir tekjuafgangi á ríkissjóði á
meðan þjóðarbúið var komið í mikla skuldsetningu. En gæti nú verið
að á þetta hafi verið bent? Og gæti verið að ...Reykjavíkurbréf er
skrifað af öðrum formanni Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddssyni. Þar
er um síðustu helgi minnt á að bankakreppan hafi verið ...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum