ÞETTA LÍKAR MÉR
Ég
hef gagnrýnt Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra fyrir að
liggja nánast á hnjánum frammi fyrir erlendum
fjárfestingaspekúlöntum að biðja þá að koma hingað til lands með
úttroðna vasa fjár til að ávaxta sitt pund. Þetta hefur verið
nokkuð samtóna gamalkunnum söng "aðila vinnumarkaðar",alla vega
ASÍ/SA hlutans, undanfarin ár. Þessir "aðilar"hafa aldrei svarað
ákalli hvorki mínu né annarra um að fá að vita hvar þeir vildu að
erlendir fjárspekúlantar fjárfestu. Helst hefur verið á þeim að
skilja að það væri fyrst og fremst í stóriðju, í orkunni og
auðlindunum. Erlend fjárfesting í þessum greinum er jafn varasöm að
mínu mati og hitt er æskilegt að fá samstarf við erlend fyrirtæki
færandi þekkingu og hugsanlega einnig fjármagn til uppbbyggingar í
atvinnulífi. (sjá, t.d. hér: http://ogmundur.is/stjornmal/nr/6839/
)
Nú bregður svo við að forsætisráðherrann tjáir sig um erlendar
fjárfsetingar og talar þar mjög að mínu skapi. Í samtali við RÚV
segir hann m.a. "Ja, erlend fjárfesting í bland við innlenda er
auðvitað æskileg. En erlend fjárfesting hefur þó ákveðinn galla
umfram innlenda fjárfestingu sem er sá, að hún er í eðli sínu lík
erlendri lántöku. Því að erlendur fjárfestir sem fjárfestir í öðru
landi ætlar eðlilega að ná meiru út, með vöxtum, en hann setti inn.
Sem sagt: þetta er í eðli sínu eins og erlend lántaka. Og Ísland
skuldar töluvert í erlendri mynt. Svoleiðis að þegar er möguleiki á
að fjármagna nýsköpun innanlands, ég tala nú ekki um nýsköpun á
sviði útflutnings - þá er það besti kosturinn."
Og fréttamaður spyr: "Þannig að í rauninni ertu að segja að það
sé betra að innlendir fjárfestar fjárfesti í fyrirtækjum heldur en
erlendir? Og forætisráðherra svarar: "Þegar það er
möguleiki. Í sumum tilvikum þurfa menn á þekkingu að halda frá
erlendum fjárfestum, að þeir komi inn, ekki bara með fjármagnið
heldur líka með starfsaðferðir eða þekkingu sem nýtist, en þar sem
vantar fyrst og fremst fjármagn til þess að borga fólki laun til
þess að það geti unnið sína vinnu, þá er auðvitað æskilegra að sú
fjármögnun verði til innanlands heldur en að menn séu að flytja inn
fjármagn sem síðan streymir aftur út á endanum." Sjá hér: http://ruv.is/frett/erlend-fjarfesting-lik-skuldsetningu