GOTT FRAMTAK!

Ástæða er til að vekja athygli á pólitísku menningar- og skemmtikvöldi sem haldið verður á Café Flóru í kvöld (miðvikudag) kl. 20.00.
Í auglýsingu að fundinum er varpað fram ýmsum spurningum:
Hvað varð um vinstrihreyfinguna? Geta ríkisstjórnir ekki
stjórnað? Hvar er stéttabaráttan? Af hverju verða vinstristjórnir
svona óvinsælar? Hvað er svona sérstakt við ástandið á Íslandi? Eða
er ekkert sérstakt við ástandið á Íslandi? Hvert stefnir heimurinn,
til frelsis eða fasisma? Þessum spurningum og fleirum munu ræðumenn
kvöldsins velta fyrir sér.
Ræður flytja Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, Sólveig Jónsdóttir, formaður Attac á Íslandi, Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur og Birgitta Jónsdóttir, Alþingismaður
Um söng og tónlist sjá systkinin Rakel María og Hrafnkell Már. Guðmundur Magnússon, leikari og formaður ÖBÍ flytur nokkur vel valin ljóð og Bragi Páll les sín eigin.
Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi hefur umsjón með kvöldinu.
Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Café Fóra sem valið var best geymda leyndarmálið af tímaritinu Grapevine er staðsett í Grasagarðinum í eystri hluta Laugardals.