Stjórnmál Mars 2013

... Þótt auðlindaákvæðið í stjórnarskrá hefði verið samþykkt nú,
hefði það að öllum líkindum verið fellt á næsta þingi ef
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur kæmust í meirihluta.
Núverandi meirihluti myndi hins vegar samþykkja ákvæðið á næsta
þingi og eftir fyrrnefnda breytingu á stjórnarskránni er búið að
opna fyrir þann möguleika að eitt þing dugi, því með atbeina
þjóðarinnar má ætla að auðlindaákvæðið, beina lýðræðið, jöfnun
atkvæðisréttar og persónukjör náist fram! En ég ítreka að
þetta gerist aðeins að því tilskildu að þeir flokkar sem eru þessu
andvígir nái ekki meirihluta á Alþingi í næstu kosningum. Væri ekki
vert að hugleiða þetta í stað þess að einbeita öllum sínum
lífs- og sálarkröftum í þær formælingar sem við höfum þurft að
afplána síðustu daga - af hálfu...
Lesa meira
Birtist á Smugunni 24.03.13.
...Varðandi þá fullyrðingu Framsóknar að
flokkurinn vilji tryggja þjóðareign á auðlindum er einnig
nauðsynlegt að fá fram afstöðu flokksins til breytingartillögu
ríkisstjórnarinnar á auðlindalögunum frá 1998, sem illu heilli voru
þá samþykkt um einka-eignarrétt á grunnvatni. Að lagasmíðinni 1998
stóðu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Sá síðari fór með
forræði málsins. Hver eru viðhorf Framsóknarflokksins til þeirrar
breytingartillögu sem nú ...
Lesa meira

Í fjölmiðli sá ég einhvers staðar haft eftir mér að ég gefi
ekkert upp varðandi afstöðu mína til nýrrar stjórnarskrár. Þetta er
alrangt. Ég hef alltaf litið á það sem skyldu mína að gefa upp
afstöðu mína til þeirra mála sem koma til kasta Alþingis. Um
síðustu mánaðamót beindi baráttuhópur fyrir nýrri stjórnarkrá til
mín þeirri spurningu hvort ég styddi nýja stjórnarskrá og vildi fá
já eða nei. Þannig vildi ég ekki svara en gaf upp eftirfarandi
afstöðu...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum