Stjórnmál Janúar 2013

Páll H. Hannesson er manna fróðastur um stefnur og strauma í
Evrópusambandinu. Hann hefur starfað sem blaðamaður hér á landi og
erlendis, m.a. á fjölmiðlum sem hafa sérhæft sig í málefnum ESB. Um
nokkurra ára skeið var hann alþjóðafulltrúi BSRB og kynntist ég þá
vel störfum hans, m.a. hvað varðar markaðsvæðingu
almannaþjónustunnar á grundvelli Evrópusambandsins og
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.... Í mínum huga hafa orð Páls því
mikla vigt. Þennan formála hef ég til að vekja athygli á...
Lesa meira
Fróðlegt var að hlýða á Eirík S. Svavarsson, hæstaréttarlögmann
á Bylgjunni í morgun fjalla um Icesave og væntanlegan úrskurð EFTA
dómstólsins. Hann greindi vel á hverju úrskurðurinn tekur, það er
hvort Ísland hafi virt eða brotið tilskipun ESB um tryggingasjóð
innistæðueigenda. Hann sagði réttilega að EFTA dómstóllinn væri
ekki að kveða upp úr um greiðsluskyldu Íslands, gagnstætt því sem
ýmsir virðast halda. Það sem mestu máli skiptir nú er að beina
allri umræðu upp úr skotgröfum og inn í yfirvegaðan...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum