Fara í efni

STILLT UPP VIÐ VEGG


Mig langar til að þakka fyrir allar þær góðu kveðjur sem ég hef fengið eftir að ég sagði mig úr ríkisstjórninni. Menn spyrja hvers vegna ég hafi ákveðið að segja af mér. Fram hefur komið að það gerði ég með trega og eftirsjá en átti ekki annarra kosta völ eftir að mér var stillt upp við vegg og settir afarkostir einsog glögglega mátti sjá bæði í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu daginn sem ég tók þessa ákvörðun. Ég gerði grein fyrir ákvörðun minni í fjölmörgum viðtölum þennan dag og eru hér vefslóðir á einhverja slíka þætti.

Kastljós: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472029/2009/09/30/1/

Spegillinn: http://dagskra.ruv.is/ras2/4482204/2009/09/30/0/

Síðdegisútvarp: http://dagskra.ruv.is/ras2/4495648/2009/09/30/