Fara í efni

ÞÖGGUNARKRAFA ÞORSTEINS

Frettablaðið
Frettablaðið

Birtist í Fréttablaðinu 22.06.09.
Þorsteinn Pálsson segir í Fbl. um helgina að mismunandi sjónarmið og áherslur í ríkisstjórn séu jafnan veikleikamerki; ágreiningur dragi "kjarkinn" úr ríkisstjórn "til að taka á viðfangsefnum af því afli sem til þarf". Ritstjórinn fyrrverandi telur greinilega heppilegra að menn leggi sannfæringu sinni svo göngulag og taktur verði samræmdur í pólitískum aflraunum. Undirritaður er tekinn sem dæmi um varasamt frávik: "...heilbrigðisráðherrann talar áfram gegn samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn eins og þegar hann var í stjórnarandstöðu."
Þorsteinn Pálsson virðist hafa lítinn skilning á lýðræðisbylgjunni sem nú fer um samfélagið með kröfu um opin og gagnsæ vinnubrögð og að stjórnmálamenn verði ekki viðskila við samvisku sína. Hann leggur meira upp úr öðrum gildum: Að þeir séu sterkastir sem tali einni röddu, hvað sem líður skoðunum og samvisku.
Víkjum að dæminu um undirritaðan og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Ég er enn þeirrar skoðunar að "samkomulagið" sem þáverandi ríkisstjórn gerði við AGS síðastliðið haust sé slæmt. Menn kunna að hafa metið það svo á þeim tíma að þeir ættu ekki annarra kosta völ. En nú sitjum við uppi með AGS til tveggja ára og er hann hluti af íslensku pólitísku landslagi.
Fyrir mitt leyti reyni ég að gera það besta úr stöðunni sem ég mögulega get. Aðkoma VG að ríkisstjórn var samfélagsleg nauðsyn. Ekki byði ég í það ef Sjálfstæðisflokkurinn, pólitiskur hönnuður vandræðanna, sæti hér enn við stjórnvölinn. Þetta breytir því ekki að ég vil losna úr bóndabeygju AGS eins fljótt og kostur er. Það telur Þorsteinn Pálsson, sem ekki er bara fyrrverandi ritstjóri heldur formaður Sjálfstæðisflokksins, að megi helst ekki segja. Nú spyr ég hann: Getur verið að þöggunarstefna Sjálfstæðisflokksins eigi hlut í hruninu? Getur verið að opin lýðræðisleg umræða sé það eina sem geti vísað okkur fram á veginn; að í slíkri umræðu felist styrkur ríkisstjórnar?

Það er veikleiki að láta alla syngja sama lagið, sömu röddu, alltaf.