FORÐUMST ALHÆFINGAR - LÍKA UM DAVÍÐ!
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingar á stjórnkerfi
Seðlabankans. Í nýlokinni viku fór fram fyrsta umræða af þremur á
Alþingi um frumvarpið. Í því er m.a. gert ráð fyrir því að
stjórendum bankans verði fækkað. Það hefur í för með sér að stöður
þeirra sem nú gegna störfum seðlabankastjóra verða lagðar
niður.
Litið var rætt um inntak þessa frumvarps af hálfu Sjálfstæðisflokks
(sem nú er að reyna að læra að vera í stjórnarandstöðu og gengur
illa).
Engin annarleg sjónarmið
Sjálfstæðismenn telja að frumvarpið sé fyrst og fremst sett fram
til að koma Davíð Oddssyni seðlabankastjóra frá völdum. Ég skil
þessar vangaveltur en ætla að frábiðja allar aðdróttanir um
annarleg sjónarmið af minni hálfu. Ég var sérstaklega kallaður til
umræðunnar af hálfu einstakra þingmanna Sjálfstæðisflokksins,
spurður um hvort ég ætlaði ekki að verja seðlabankastjóra einsog ég
gerði jafnan þegar launafólk ætti í hlut. Ég kom til þings og
svaraði fyrir mig. (
http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?lidur=lid20090206T133253&horfa=1)
Það gladdi mig þegar lesandi síðunnar vakti einmitt athygli á því
að varla yrði ég sakaður um að láta ekki málefnaleg sjónarmið ráða
í samskiptum við menn, þar á meðal seðlabankastjóra(http://ogmundur.is/fra-lesendum/nr/4406/
).
Gerður að blóraböggli
Hitt er svo annað mál að ég hef um áratugaskeið verið í hópi
eindregnustu gagnrýnenda Davíðs Oddssonar enda var hann
forsætisráðherra þegar einkavæðingunni var ruddur farvegur. Fyrir
þetta gagnrýndi ég Davíð Oddsson stöðugt og mjög ákveðið. Að mínu
mati var sú gagnrýni ekki að ósekju. Síðan er að því að hyggja að
margir telja sig hafa fyrir því málefnaleg rök að heppilegt sé að
skipta um æðsta stjórnanda í Seðlabanka. Ósætti um Seðlabankastjóra
sé beinlínis skaðlegt. Þessi skoðun er hvorki ómálefnaleg né illa
grunduð og þarf ekkert að hafa með óvild út í einstaklinga að gera.
Ég vil þó gjarnan að sú skoðun mín komi fram að á síðustu
vikum, mánuðum og misserum hefur mér stundum þótt sem Davíð Oddsson
væri gerður að blóraböggli fyrir sitthvað sem hann hefur ekki átt
beina sök á. Fyrrverandi ríkisstjórn þótti held ég ágætt að hafa
seðlabankastjórann til staðar að taka við gagnrýni sem stundum átti
betur heima innan fjármálafyrirtækja og í Stjórnarráði fremur en í
Svörtuloftum Seðlabankans.
Allir njóti sannmælis!
Þannig er það grunur minn að seðlabankastjóri hafi þegar allt
kemur til alls - alla vega í seinni tíð - verið hinn
raunverulegi andstæðingur hávaxtastefnunnar og staðið þar gegn
sérfræðingaveldi hagfræðinganna innan sem utan Seðlabankans. Eitt
er víst að stýrivaxtahækkunin í haust var runnin undan rifjum
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sú hækkun var blessuð af ríkisstjórninni
- gegn mótmælum seðlabankastjóra Davíð Oddssyni.
Verk Davíðs Oddssonar, sem annarra manna, á að meta á málefnalegum
forsendum. Það finnst mér ekki alltaf vera gert þessa dagana.
Hvorki af viðhlæjendum né andstæðingum.
Allir menn eiga að njóta sannmælis. Líka Davíð Oddsson.