Fara í efni

GLAÐUR GEIR Í GÓÐUM OG GREIÐVIKNUM FÉLAGSSKAP


Í "no matter what“ ræðu sinni hjá Sjálfstæðisflokknum (sbr. hér) í síðustu viku sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, að „ótrúlega miklir möguleikar“ væru framundan í heilbrigðiskerfinu og orkugeiranum. (sjá Morgunblaðið 30. sept undir fyrirsögninni, Verulegar breytingar í heilbrigðiskerfinu framundan). Þar segir forsvarsmaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra þjóðarinnar að nú eigi að „taka til hendinni.“  Fyrir hverja skyldu vera allir þessir „miklu möguleikar“ að mati formanns Sjálfstæðisflokksins og fyrir hverja á „að taka til hendinni“? Möguleikarnir eru að hans sögn fyrir þá sem vilja gera heilbrigðisþjónustu að bisniss! Þeir virðast eiga góða tíma í vændum, samkvæmt Morgunblaðsfréttinni af ræðu forsætisráðherra að dæma,  því samkvæmt honum væri mikið „í pípunum.“ Geir sagði að erfitt hefði verið að fá aðra stjórnmálaflokka til þess að styðja stefnu Sjálfstæðisflokksins um markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustu og orkugeirans en Samfylkinguna: Á þessum sviðum „eru ótrúlega miklir möguleikar framundan sem Samfylkingin er tilbúin til að vera með okkur í en aðrir flokkar voru og hefðu ekki verið.“ Geir er greinilega glaður og ánægður með samstarfsflokk sinn og finnst hann vera í góðum félagsskap - greiðviknum og gjafmildum - þegar helstu skjólstæðingar Sjálfstæðisflokksins eru annars vegar. En hvað finnst okkur um félagsskapinn – hvað skyldi kjósendum Samfylkingarinnar finnast?

Sönnunarbyrðin hjá þeim sem ræður

Hinn glaði Geir fer ekki í grafgötur um það hvern hann styður og fyrir hönd hverra hann kætist.  Hann hugsar um hag allra einkahlutafélaganna sem nú eru reiðubúin undir flugtak. Þau sjá nú fram á að fá góðan bisniss frá ríkisstjórninni. Nú er það svo að einkahlutafélög hafa ekki kosningarétt þótt eigendur þeirra hafi hann og kjósa þeir eflaust margir sama flokk og Geir H. Haarde er í forsvari fyrir. En sjúklingar hafa líka kosningarétt og sömuleiðis skattgreiðendur. Spurning er hvernig þeir koma til með að greiða atkvæði í næstu kosningum?
Þessir hópar munu að sjálfsögðu gera þá kröfu til Sjálfstæðisflokksins að hann sýni fram á að þær kerfisbreytingar sem hann boðar verði hagstæðari fyrir notendur heilbrigðisþjónustunnar og einnig þá sem greiða fyrir hana, hvort sem það eru skattgreiðendur eða notendur (les: sjúklingar og raforkukaupendur). Sönnunarbyrðin hlýtur að hvíla á þeim sem vilja umturna kerfinu.
Heilbrigðisþjónustunni eða raforkugeiranum á ekki að umbylta fyrr en vitað er hvert stefnt er - hverjar afleiðingarnar verða. Hefur Sjálfstæðisflokkurinn hugsað málið til enda? Eða er hann bara að hugsa um hagsmuni einkahlutafélaganna sem veita á rétt til sjálftöku í vasa greiðenda?

Öll ríkisstjórnin veitir skjól -  ekki bara einkavæðingarflokkurinn!

Sjálftakan fer fram - og mun fara fram - í skjóli Sjálfstæðisflokksins og að sjálfsögðu einnig Samfylkingarinnar sem leiddi þann fyrrnefnda flokk til valda. Geir formaður einkavæðingarflokksins segist vera afskaplega glaður og ánægður í stjórnarsamstarfinu við Samfylkinguna. Flokkur hans komist nú upp með hluti sem ekki hefðu gengið í samstarfi við nokkurn annan flokk! Hvað skyldu kjósendur Samfylkingarinnar hugsa? Var það þetta sem þeir ætluðust til með atkvæðum sínum? Að styðja einkavæðingu í heilbrigðisþjónustunni og í orkugeiranum? Gengu þeir að kjörborðinu í vor til þess að gera Sjálfstæðisflokkinn glaðan?