Fara í efni

FRÁBÆR FRAMMISTAÐA SVANDÍSAR!

Sannast sagna er ég farinn að trúa því að í samfélaginu sé að verða vakning; að fólk sé að vakna til vitundar um hvað raunverulega hangir á spýtunni þegar einkavæðing orku-auðlindanna er annars vegar. Gróðapungar hafa afhjúpað sig, pólitíkusar hafa afhjúpað sig. Skyndilega rennur upp fyrir fólki hver hætta samfélaginu stafar af ásókn auðvaldsaflanna. Þetta hefur ekki gerst af sjálfu sér. Ekkert gerist af sjálfu sér. Hlutirnir breytast ekki heldur er þeim breytt. Gerandinn í yfirstandandi pólitískri orrahríð er tvímælalaust oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík, Svandís Svavarsdóttir. Hún á lof skilið fyrir vasklega framgöngu og lýsandi og vekjandi málflutning. Hvar sem maður fer er tekið undir þetta sjónarmið: Að Svandís Svavarsdóttir kann að halda baráttufána á loft!