Fara í efni

GOTT HJÁ LÚÐVÍK

Birtist í Fréttablaðinu 10.09.07.
Ef Orkuveita Reykjavíkur verður seld þá er ekki aðeins verið að selja fyrirtæki sem framleiðir rafmagn heldur einnig fyrirtæki sem ræður yfir vatnsbólum og miðlar heitu vatni og köldu. OR er ábyrgðaraðili dýrmætra náttúruauðlinda. Vatn er dýrmætasta auðlind jarðar og um eignarhald á  því munu standa mikil átök á nýrri öld.

Í þeim átökum eru annars vegar þau sem vilja styrkja einkaeignaréttinn í sessi og hins vegar hin sem vilja tryggja almannarétt. Tekist var á um nákvæmlega þetta á Alþingi þegar vatnalagafrumvarp þáverandi ríkisstjórnar kom fyrir þingið á síðasta kjörtímabili. Niðurstaðan varð sú að gildistöku þessa umdeilda frumvarps var frestað til 1. nóvember þannig að þinginu gæfist kostur á að taka málið upp að nýju að afloknum kosningum. Í stjórnarmeirihluta fyrri stjórnar voru eflaust til efasemdarmenn um ágæti þessa frumvarps og því ekki mótfallnir að taka málið upp að nýju. Nú hefur iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, lýst því yfir að hann hyggist endurskoða lögin og hef ég fagnað þeirri yfirlýsingu enda er hún í samræmi við fyrri afstöðu hans.

Einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Sigurður Kári Kristjánsson, reyndi að gera lítið úr þessari yfirlýsingu Össurar Skarphéðinssonar. Í útvarpsfréttum 31. ágúst sl. sagði hann: „Ég get ekki betur séð en að iðnaðarráðherrann sé hér einn á ferð og hér sé um að ræða einhverjar eftirhreytur frá því að hann var í stjórnarandstöðu.“ Þessu andmælti formaður þingflokks Samfylkingarinnar í sama fréttatíma á afgerandi hátt auk þess sem fréttastofa RÚV hafði eftir honum ummæli sem tóku af öll tvímæli: „Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir iðnaðarráðherrann síður en svo einan á ferð. Afstaða þingflokks Samfylkingarinnar til nýrra vatnalaga hefði ekkert breyst. Stendur þá þingflokkurinn allur þétt að baki iðnaðarráðherra? Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar: Já, við gerum það…“ Það er mikilvægt að menn gangi ekki að því gruflandi hver afstaða Samfylkingarinnar er og var lofsvert hjá Lúðvík Bergvinssyni að kveða skýrt að orði um þetta efni.