Fara í efni

SAMFYLKINGIN OG EVRÓPUVEXTIRNIR

Birtist í Fréttablaðinu 09.07.07.
Sannast sagna kom mér á óvart sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka lánshlutfall lána Íbúðalánasjóðs úr 90% í 80%. Eins og margir vita eru aðrar sperrur fyrir lántöku úr sjóðnum en lánshlutfallið eitt, einnig brunabótamat að viðbættu lóðarverði. Lánið má ekki vera hærra en þessu nemur. Hátt fasteignaverð og einnig þessi skilyrði valda því að fáir eiga kost á hámarkslánum úr Íbúðalánasjóði. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar nú veldur því hins vegar að þeir sem eru að reyna að festa kaup á ódýrum íbúðum verða fyrir verulegri skerðingu. Kaupandi sem fengið hefur 90% lán frá Íbúðalánasjóði til kaupa á 15 milljón króna íbúð hefur átt rétt á 13,5 milljón króna láni en fær eftir breytinguna 12 milljónir króna. Skerðingin nemur 1,5 milljónum króna! Félagsmálaráðherra segir að með þessum ráðstöfunum sé verið að senda skilaboð út í þjóðfélagið og að bönkunum beri að taka þau skilaboð alvarlega. Það ætla bankarnir að gera. Sama dag og félagsmálaráðherra sendi skilaboð sín út í þjóðfélagið var bankaforstjóri nokkur mættur í sjónvarp að fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar og lýsa því jafnframt yfir að bankinn myndi hækka vexti sína fljótlega. Ríkisstjórnin er með þessari aðgerð sinni að takmarka aðgang að því lánsfé sem ber lægstu vextina og jafnframt knýja fram hærri vexti. Þetta er eflaust skýrt með því að lánsfé á hagstæðum kjörum þrýsti íbúðaverði upp. Það er hins vegar mikil einföldun. Á forsíðu Blaðsins sl. föstudag sagði að húsnæðisverð færi nú snarhækkandi í “álbæjum”. Hvers vegna hækkar íbúðaverð meira þar en á Suðureyri og Raufarhöfn? Lánskjörin eru þau sömu á öllum stöðum. Skýringin er þensla og væntingar á markaði, ekki lágir vextir enda eru lægstu vextir á Íslandi okurvextir og ekki á bætandi því fólk er að kikna undan því sem fyrir er. En hvað með lágu “Evrópuvextina” sem Samfylkingunni hefur orðið svo tíðrætt um? Eru þeir þá ekki stórhættulegir fyrst skilaboðin eru á þann veg að herða beri á okrinu?

(Í greininni eins og hún birtist í Frétablaðinu var vísað í forsíðufrétt í því blaði en átti að vera forsíðufrétt Blaðsins og hefur það verið leiðrétt hér.)