Fara í efni

FORMAÐUR EÐA ÚTFARARSTJÓRI: HVAÐ MEINAR GUÐNI ÁGÚSTSSON?

Sannast sagna kom nýr formaður Framsóknarflokksins, Guðni Ágústsson, á óvart í fréttaviðtölum eftir að hann tók að sér formennsku í flokknum. Guðni hefur af flestum verið talinn talsmaður félagslegra gilda í Framsóknarflokknum – vinstri armsins. Hann hefur gefið sig út fyrir að hafa verið gagnrýninn á þá hægri stefnu sem Halldór Ásgrímsson fylgdi og sagt þá arfleifð sem við hann var kennd hafa verið Framsóknarflokknum fjötur um fót.
Nú bregður svo við að á formannsstóli verður Guðni haldinn mikilli eftisjá að sæludögunum í fangi Íhaldsins. Hann segir að vinstri stjórn hefði aldrei gengið og mærir síðan án afláts þá ríkisstjórn sem Framsóknarflokkurinn hrökklaðist úr í nýafstöðnum kosningum eftir mikið fylgistap.
Nýr formaður Framsóknarflokksins sendir Vinstrihreyfingunni grænu framboði þá kveðju í viðtali DV, að sá flokkur sé ekki "stjórntækur", við séum ekki græn heldur græningjar og auk þess á móti öllu! Hvað skyldi nú gera Sjálfstæðisflokkinn eða Samfylkinguna "stjórntækari" en VG í augum hins nýja formanns? Stefnan í landbúnaðarmálum, sjávarútvegsmálum, Evrópumálum, velferðarmálum, byggðamálum, samgöngumálum? Er það kannski bara stóriðjan? Væri ekki rétt að Guðni Ágústsson gerði grein fyrir afstöðu sinni á ögn málefnalegri og skýrari hátt? Sannast sagna átti ég ekki von á þessum köldu kveðjum úr munni hins nýja formanns Framsóknarflokksins. En með þessum skeytasendingum hefur Guðni Ágústsson talað til þeirra kjósenda sem sneru baki við Framsóknarflokknum í kosningunum: Við gerðum fátt rangt, við vorum í góðri ríkisstjórn, við viljum samstarf til hægri en ekki vinstri.
Hér er vissulega talað skýrt. Það er þakkarvert. En skyldi Framsókn virkilega langa til að deyja? Er þessi hugsun ef til vill komin á sálina á flokknum? Getur verið að Guðni Ágústsson líti fremur á sig sem útfararstjóra en formann?