Stjórnmál 2002
Deilur um borgarstjóraembættið setja svip á stjórnmálaumræðuna
þessa dagana. Málið blasir þannig við mér: Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir sagði fyrir borgarstjórnarkosningarnar síðastliðið vor
að hún hygðist ekki taka þátt í komandi Alþingiskosningum.
Yfirlýsing hennar var afdráttarlaus. Nú hefur komið á daginn að hún
ætlar að ganga á bak þessara orða sinna.
Lesa meira
Birtist í Fréttablaðinu 7.12.2002
Ekki voru allir sáttir þegar ríkisstjórnin kynnti fjárlagafrumvarp
sitt í haust. En þá fyrst rak menn í rogastans þegar
fjáraukafrumvarpinu var slengt fram því önnur eins
handarbakavinnubrögð hafa ekki lengi sést.
Lesa meira
Það er engin ein rétt leið til að raða frambjóðendum á lista
fyrir kosningar. Ég er ekki í vafa um að heppilegast er- ef um það
getur skapast friður - að raða frambjóðendum upp á lista sem síðan
er borinn undir atkvæða félagsfundar eða annarrar samkomu eftir
atvikum.
Lesa meira
Alþingismanni er boðið að tala á Sjómannadaginn á Akureyri.
Þingmaðurinn er Árni Steinar Jóhannsson talsmaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Alþingi í
sjávarútvegsmálum. Í vetur leið kynnti hann stefnu flokksins þar
sem meðal annars er lagt til að núverandi kvótakerfi verði fyrnt á
næstu tuttugu árum.
Lesa meira
Hver eru brýnustu úrlausnarefni í Reykjavík á komandi
kjörtímabili? Að mínum dómi stendur tvennt upp úr. Annars vegar
málefni aldraðra og hins vegar húsnæðismál. Í báðum þessum
málaflokkum er þörf á stórátaki.
Lesa meira
Morgunblaðinu 14. maí ritar Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður
og stjórnarformaður DAS grein sem ber heitið: "R-listinn,Vinstri
grænir í samstarfi við fjárfesta Frumafls."
Lesa meira
Undanfarna daga hefur talsvert verið til umræðu, m.a. á síðum
þessa blaðs, sú ákvörðun forseta Alþingis að beita undirritaðan
svokölluðu þingvíti samkvæmt þingskaparlögum.
Lesa meira
Á fátæktinni fékk að kenna
og faðirinn snortin sari
Þá alvaran fór upp að renna
úr varð Gunnar Smári.
Þá sósíalisminn í sálina rann
er samhjálp kynntist drengur
Við kapítalisma ei kunni hann
enda kallaður alþýðu fengur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Engar vangaveltur voru um málið og þá hvort ekki hefði verið rétt að leyfa fólkinu að fara til síns heima eins og við hin gerum ef við smitumst af veirunni! Er það þá líka forréttindafrekja? Ferðamennirnir sem hingað komu vitandi um sóttkvíarskylduna færu síðan á hótel og greiddu þar að sjálfsögðu fyrir sig. Í fréttatíma Sjónvarps var ekki boðið upp á slíka málefnalega umfjöllun.
Fréttastofa sem setur málin svona fram í viðkvæmu deilumáli veldur ekki hlutverki sínu um að vera upplýsandi og málefnalegur miðill heldur kemur fram eins og dómgreindarlaus áróðursvél fyrir sjónarmið valdhafa.
Í þessum viðkæmu málum er beinlínis óábyrgt að ...
Sunna Sara
Lesa meira
Það var illa til fundið af Kára Stefánssyni í Kastljósi Sjónvarpsins að sveija á Brynjar Níelsson, alþingismann, og uppnefna hann fyrir að hafa vogað sér að fara til útlanda. Ef Brynjar Níelsson hlítir sóttvarnareglum á hann ekki að þurfa að sitja undir svívirðingum, hvorki af hálfu Kára Stefánssonar né annarra. Hvert stefnir þetta þjóðfélag okkar?
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Brynjar Trump brögðin kann
fátt bítur á guttann
Á sólarströnd nú situr hann
og sendir okkur puttann.
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Að standa í þessu er stöðugt puð,
styðjum við Frakka og Belga.
Við trúum á okkar evrópska guð,
inngöngu í sambandið helga.
Að sitja á þingi og sulla með leir,
sannleikann móta ég hálfan.
Þruglið úr höfðinu þoli ekki meir,
þess vegna kæri mig sjálfan.
Evrópu selja áfram völd,
engar leiðir góðar.
Braska þau á bakvið tjöld,
beygja stoðir þjóðar.
...
Kári
Lesa meira
Hælið fyrir ríka öskurapa: Öskur og hvæs taugatrekktra og ríkra í hátalarakerfi, gegn óþolandi kyrrð öræfa landsins og gegn kyrrlæti valdra náttúrudásemda, varð stofn að ríkiskynningu til erl.ferðamanna nýlega.”Þeir ríku gráta mest” er sagt, þeir búa oftast við sálarkvalir. Slíkt mannval er einmitt æskilegast gesta til landsins, peningar þeirra í boði. “ Komið og öskrið á kyrrðina” (gegn greiðslu), er því tilboð íslenskra stjórnvalda til ríkisfólks heimsins, þess sem oftast grætur í hjarta sér þótt úr gulli sé gert. Þekkingu á bágu sálarlífi auðmanna er vel til að dreifa á Íslandi, hana má fénýta alþjóðlega. “ Komið til Islands, grátið, gólið, hvæsið, öskrið að vild” og græjurnar eru til reiðu. Vonin er ...
Grímur
Lesa meira
Nú fer páska helgin í hönd
hér margir láta sig dreyma
Vandamál sjáum víða um lönd
verum öll dugleg heima.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ég er sammála þér varðandi skynsemina, hún hlýtur að þurfa að fá að vera með. Ferðamálaráðherrann sem fór í partí með vinkonum sínum í miðju kófinu lætur nú loka annað fólk inni í hótelfangelsi og ríkisstjórn sem lætur milljarða í að auglýsa að fólk eigi að drífa sig til Íslands, lokar svo gestina inni í fangabúðum sem skattgreiðendur þurfa að borga fyrir. Eru engin takmörk? Var verið að tala um skynsemi eða kannski skort á henni? Auðvitað átti ekkert að auglýsa að fólk ætti að koma við þessar aðstæður! Og þarf ekki að ræða við ferðafyrirtækin sem auglýsa helgarferðir til að sjá eldgos? Hvernig væri að slá í einn fund í þjóðaröryggisráðinu þar sem þau sem í því sitja gætu tekið púls hvert á öðru? Það er orðið eitthvert skammhlaup í heilabúunum sýnist mér.
Sunna Sara
Lesa meira
Stjórnvöldin undir stórútgerð hlaða,
stórlega margt er fúið.
Fjárglæframenn valda feikna skaða,
færist á þjóðarbúið.
...
Kári
Lesa meira
Nú vorið nálgast bjart og hlýtt
Nú kemst ég brátt á sjóinn
Nú verður hér fleyi úr fjöru ýtt
Nú farinn er allur snjórinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Allt Frá lesendum