Stjórnmál
5. Janúar 2012
STÓLASKIPTI OG ÁTÖK

...Að þessu leyti eru stjórnmálin að breytast. Að vísu hægt en bítandi. Verst hve mörg fórnarlömbin hafa orðið í þeim umbrotum sem þessum breytingum fylgja. Þegar upp er staðið munu hins vegar allir njóta góðs af. Það skelfilegasta sem hægt er að hugsa sér eru stjórnmál án skoðana, stjórnmál án frjálsrar hugsunar, stjórnmál án hispurslausra skoðanaskipta. Ég held að margir séu að átta sig á því að gagnrýni á núverandi ríkisstjórn - vinnubrögð og ákvarðanir í einstökum málum -jafngildir ekki löngun til að fá Sjálfstæðisflokkinn til valda með öllu því sem honum fylgir. Gagnrýnin er sett fram vegna þess að...
22. Desember 2011
ŢJÓĐIN VILL...?

Margt ágætt sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. Ekki var ég honum þó sammála um allt. Þannig var ofsagt hjá honum að mínu mati að „þjóðin" vildi fá að vita hvað kæmi út úr viðræðunum við ESB. Það er líka ofsagt hjá utanríkisráðherra að ESB/EVRU gulrótin væri nú digrari og litfegurri en áður! Um hið síðara ætla ég ekki að fjölyrða... Ég ætla hins vegar að hafa nokkur orð um meintan þjóðarvilja... Við skulum hætta að tala um tímasetningu á þjóðaratkvæðgreiðslu einsog við fáum engu þar um það ráðið, þetta sé nánast komuð undir óviðráðanlegu náttúrulögmáli. Við eigum að sjálfsögðu að segja samninganefndunum hvenær hentar okkur að kjósa. Þær hagi sínum...
11. Desember 2011
HIĐ ŢRÖNGA OG HIĐ VÍĐA SJÓNARHORN

... Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ sagði í RÚV á föstudag að íslenskt launafólk hefði getað staðist hrunið ef við hefðum haft sterkan gjaldmiðil. Með öðrum orðum, þótt bankakerfið (og þá væntanlega einnig lífeyrisskerfið) hryndi, þá væri hagur launafólks tryggur svo lengi sem gjaldmiðillinn væri traustur! Og Gylfi og Ólafur Darri, hagfræðingur ASÍ, hömruðu síðan saman á því að evran væri lausnarorðið. Undarleg tímasetning miðað við hvernig komið er fyrir evrunni! Þar fyrir utan virðist sjónarhorn þeirra ASÍ manna æði þröngt, alla vega borið saman við sýn Nóbelsverðlaunahafans í hagfræði Josephs Stieglitz....
5. Desember 2011
HURĐ SKALL NĆRRI HĆLUM!

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um stefnu íslenskra stjórnvalda gagnvart erlendri fjárfestingu. Boðuð er grundvallarstefnubreyting að því leyti að í stað þess að opna á erlenda fjárfestingu í orku og auðlindum er áherslan á margbreytileika og nýsprotastarfsemi. Þetta er gott og jákvætt. Það er líka gott og jákvætt að í greinargerð er áhersla á að Íslendingar vilji að orkufyrirtækin og sjávarútvegsfyrirtæki séu í innlendri eign. Að sjálfsögðu er fráleitt að alhæfa um erlenda fjárfestingu. Tvennt þurfa Íslendingar að hafa hugfast að mínu mati. Fyrra atriðið er þetta: ...
9. Nóvember 2011
GÓĐ NÝBREYTNI: BEIN ÚTSENDING FRÁ NEFNDARFUNDUM

...Ýmsir höfðu efasemdir um beinar útsendingar af þingnefndarfundum Alþingis. Sjálfum þykir mér þessi nýbreytni lofa góðu, sérstaklega hvað varðar mál sem eru umdeild og hafa gott af því að komast út í þjóðfélagsumræðuna. Þessar beinu útsendingar gera það að verkum að fjölmiðlunum, fjórða valdinu, einsog það er stundum kallað er gert auðveldara um vik að komast í „hráefni" frétta sinna á einskonar hlaðborði. En jafnframt, sem áður segir, fá áhorfendur tækifæri til að meta hvernig hið fjórða vald beitir sér ...
6. Nóvember 2011
UM VÖLD OG ÁBYRGĐ Í FJÁRMÁLAKERFI

... En tilefni þessara skrifa minna nú er reyndar ekki ummæli Steinþórs Pálssonar bankastjóra Landsbankans, heldur ágætar vangaveltur Kristins, í lesendabréfi hér á síðunni þar sem hann leggur út af orðum bankastjórans. Kristinn segir m.a.: „Sú skoðun að ekki sé farsælt að ríkið eigi banka á fullan rétt á sér en óneitanlega eru rökin fyrir henni til muna veikari en var fyrir nokkrum árum. Sé litið til sögunnar þá hefur einkaeignarhald á bönkum á Íslandi ekki verið farsælt... Það er rétt hjá bankastjóra Landsbankans að víst getur til þess komið að einstakir stjórnmálamenn komi fram með „furðuleg bréf" eða óheppileg afskipti af bankastarfssemi í eigu ríkisins. En það fer ekki milli mála að enn furðulegri tilskipanir fengu bankastjórar einkabankanna...
1. Nóvember 2011
STERK UNDIRALDA Á LANDSFUNDI VG
...Mér þótti líka gott að því skuli hafa verið fagnað að AGS væri farinn. Var satt að segja búinn að fá nóg af öllu þakklætinu í hans garð í Hörpunni á sameiginlegri ráðstefnu Íslands og AGS í aðdraganda Landsfundar VG. Við skulum ekki gleyma því að það var AGS sem bannaði almennar aðgerðir í skuldamálum, og hugmyndafræði AGS var hvetjandi til framkæmda utan ríkisreiknings. Ekki gleymi ég heldur áhyggjum AGS af gjaldþrotalögunum nýju. Í skugganum af AGS og ESB athöfnuðu Bretar og Hollendingar sig í Icesave. Aldrei heyrði ég AGS hafa áhyggjur af...
3. Október 2011
VEIKLEIKI HRUNÁRANNA
Eitt má Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, eiga. Hann er alltaf líkur sjálfum sér og sennilega sá maður sem hann helst langar til að vera; óhagganlegur í gömlum tíma. Sem slíkur er Björn okkur alla daga lifandi áminning um hvað það var sem fór úrskeiðis þann tíma sem honum var treyst til að halda um stjórnvölinn í íslenskum stjórnmálum; þann tíma sem í Íslandssögunni verður eflaust skilgreindur sem Aðdragandi hrunsins. Fyrir þetta getum við verið Birni Bjarnasyni þakklát...Á þetta minnir Björn okkur svo ágætlega í síðustu viku þegar hann skrifar mikinn dómsdagspistil um meint óhæfuverk núverandi ríkisstjórnar. Inn í skrif sín tekst honum á sinn hátt að hræra saman í eina blöndu ýmsu sem hann telur að gæti verið til þess fallið að skapa úlfúð og ala á tortryggni í garð ...
3. Október 2011
HIS MASTERS VOICE

Styrmir Gunnarsson virðist óðum að jafna sig á samviskubiti sínu yfir þátttöku í hinu "ógeðslega þjóðfélagi", sem hann nefndi svo í rannsóknarskýrslu Alþingis, og skrifar grein á Evrópuvaktina sem minnir á gamla takta. Þar er látið að því liggja að ég hafi "flúið" af vettvangi þar sem mér hafi þótt óþægilegt að vera nálægt þegar skærist í odda milli lögreglu og ríkisvalds, enda byggi ég feril minn á starfi í launþegahreyfingunni. Ég er stoltur af starfi mínu í verkalýðshreyfingunni og afstaða mín til lögreglunnar hefur ekkert breyst.
Það er auðvitað erfitt fyrir mann einsog Styrmi, sem byggir feril sinn á dyggri þjónustu við helstu valdaklíkur landsins að trúa öðru en því að allar gerðir manna hljóti að hafa ...
18. September 2011
GREIDDI ATKVĆĐI MEĐ EIGIN TILLÖGUM!

...Frumvarpið fékk góða og ítarlega umfjöllun í samgöngunefnd þingsins sl. vor og síðan í sumar og var gott samstarf á milli allra aðila sem að málinu komu. Allt gagnsætt og uppi á borði. Kvöldið fyrir þinglok var brugðið út af þessu verklagi því þá, rétt fyrir lokaafgreiðslu málsins og án teljandi umræðu, kom fram breytingartillaga frá samgöngunefnd Alþingis við eina veigamestu grein frumvarpsins, nefnilega ákvæði um íbúalýðræði. Með breytingartilllögunni var réttur íbúa stórlega skertur þvert á það sem ég sem flutningsmaður frumvarpsins hafði barist fyrir. ...Um þetta hefur verið talsvert fjallað í fjölmiðlum í dag, m.a. á visir.is. Umfjöllunin þar er um sumt góð en greinilega unnin á hlaupum því ...
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












