Beint á leiđarkerfi vefsins

Samfélagsmál

27. Október 2009

FORMAĐUR ÖBÍ: PÖSSUM BÖRNIN!


Um nýliðna helgi var Guðmundur Magnússon kjörinn nýr formaður Öryrkjabandalags Íslands. Guðmundur er gamall baráttujaxl, sem býr yfir mikilli reynslu í félagsmálum. Athyglisverðar eru áherslur hins nýja formanns. Annars vegar segir hann mikilvægt að Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um rétt fólks með fötlun verði lögfestur. Þar sé meðal annars að finna ákvæði um notendastýrða persónulega aðstoð. Hins vegar nefnir hann börnin: " Það vill oft gleymast að öryrkjar eiga líka börn...

25. September 2009

„ŢEIR SEM BERA MIKIĐ ÚR BÝTUM EIGA AĐ LEGGJA MEIRA AF MÖRKUM"


Viðtal í Viðskiptablaðinu 17.09.09.
..."Ég vil að minnsta kosti ekki þenja út nýja sjóði á sama tíma og við erum að draga saman endurhæfingu hjá aðilum á borð við Reykjalund og Grensás. Ég hefði því kosið að verkalýðshreyfingin beindi ekki bara sjónum sínum að sjóðum sem tengjast henni heldur heilbrigðiskerfinu almennt. Flestir sem njóta almannaþjónustu heilbrigðiskerfisins bera uppi verkalýðshreyfinguna og henni ber að verja hagsmuni almennings í þessu sambandi. Eða til dæmis berjast gegn markaðslausnum sem oftast reynast miklu dýrari, að minnsta kosti fyrir verkafólk sem veikist..."

2. Ágúst 2009

ŢAKKIR TIL EVU JOLY


Grein Joly hefur vakið mikil viðbrögð. Hér á landi eru viðbrögðin henni almennt hliðholl og þakklát. Eðlilega, enda er hún að verja málstað Íslands gegn ofbeldi gamalla nýlenduvelda sem beita fyrir sig Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Nú þurfa Íslendingar að rísa á fæturna, tala sínu máli, en ekki koðna niður í vesaldómi...

31. Júlí 2009

VIRĐINGARVERT FRAMTAK


Hinn 1. maí 2008 voru stofnuð Samtök foreldra gegn áfengisauglýsingum. Þessi samtök hafa haft það stefnumarkmið að sjá til þess að áfengissalar fari að landslögum og auglýsi ekki vöru sína. Til of mikils mælst? Nei. Þetta er sjálfssögð krafa og er framtak samtakanna virðingarvert... Hrun íslenska bankakerfisins byggði á siðblindu. Hvorki skrifuð né óskrifuð lög voru virt. Í endurreisninni er vert að hyggja að þessu. Það er lágmarkskrafa að hin skrifuðu lög séu virt. Það gera margir áfengisaslar ekki ...

14. Júlí 2009

FREKJA FRJÁLSHYGGJUNNAR

Birtist í Morgunblaðinu 13.07.2009
MBL  - LogoAnnan júlí sl. gráta Staksteinar Morgunblaðsins yfir ranglæti heimsins. Íslenskir fjármálamenn höfðu nefnilega haft uppi á norrænu fyrirtæki "sem sérhæfir sig í að flytja sjúklinga, m.a. af sænskum og norskum biðlistum til annarra landa og gera aðgerðirnar á kostnað þessara norrænu yfirvalda utan heimalandsins." Fjármálamennirnir og þeirra fulltrúar hafi leitað til mín, sem heilbrigðisráðherra, með hugmyndina. En viti menn, fréttir berist nú af því að ég hafi fundað með heilbrigðisráðherra Noregs um að „efla samstarf milli heilbrigðisstofnana í flutningi sjúklinga milli landa."

12. Júlí 2009

"LĆKNAR YFIRGEFA EKKI ŢJÓĐ SÍNA "

Læknablaðið 7. tbl. 2009.
„...Kjörin sem bjóðast læknum nú helgast af gengishruni krónunnar. Sömu staðreyndir skýra það að kaffibollinn á Strikinu eða á Karli Jóhanni kostar 1200 krónur. Nei, ég hef fulla trú á því að íslenskir læknar vilji vera hluti af þessu samfélagi okkar. Við eigum í þrengingum og við þurfum öll að taka á og ég trúi því að læknar séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum til þess að samfélagið rétti úr kútnum. Ég mæti þessu viðhorfi alls staðar þar sem ég kem inn á heilbrigðisstofnanir og læknar skera sig ekkert úr hvað það varðar. Ég vil nálgast íslensku læknastéttina á þessum forsendum og sýna henni þá virðingu að kalla hana til samráðs um þróun heilbrigðiskerfisins á næstu árum...Læknastéttin íslenska á sér mjög merkilega sögu. Sú saga einkennist ekki hvað síst af samfélagslegri ábyrgð. Ég er mjög meðvitaður um þessa sögu, og læknasamfélagið líka. Læknar yfirgefa ekki þjóð sína...."

4. Júlí 2009

ŢJÓĐ Í ŢRENGINGUM

Birtist í Morgunblaðinu 3. júlí 2009
MBL  - LogoMorgunblaðið fjallar síðastliðinn mánudag um viðskipti í heilbrigðisþjónustu. Tilefnið er áhugi "einkarekna heilbrigðisfyrirtækisins Nordhus Medica... á að nýta vannýttar skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar myndu t.d. sjúklingar frá Noregi og Svíþjóð fara í aðgerðir, niðurgreiddar af heimaríkjum sínum." Heilbrigðisráðherrann, undirritaður, er sagður standa í vegi fyrir því að þessar kröfur nái fram að ganga og sjái "ekki ástæðu til að fjalla málefnalega um þær næstu 6-7 vikurnar." Svara sé fyrst að vænta 15. ágúst. Þetta sé aldeilis furðulegt því fjárhagsstaða Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sé bágborin, þjónustan hafi verið skert, en nú bjóðist "sértekjur sem geti styrkt stofnunina."

2. Apríl 2009

HUGSUM UM ÁBENDINGAR HÖLLU


...Hún segir réttilega í Morgunblaðsgrein: "Velferðarmál eru atvinnumál og atvinnumál eru velferðarmál." Í grein í Fréttablaðinu botnar Halla hugsun sína og segir það myndi skjóta skökku við "ef stjórnvöld myndu á einum stað skera niður þannig að til fjöldauppsagna kæmi en á öðrum stað leggjast í stór og viðamikil atvinnusköpunarverkefni."  Höfum við ekki fengið að kynnast þessari mótsögn á undangengnum samdráttartímum? ...Ef á komandi árum yrðu enn reistar harðar niðurkurðarkröfur á hendur heilbrigðiskerfinu myndum við fá að kynnast þeirri mótsögn sem Halla Gunnarsdóttir ...

5. Mars 2009

VELFERĐARMÁL ERU ATVINNUMÁL

Birtist í DV 04.03.09.
DV -...Í þessu samhengi er einnig rétt að hafa í huga að um er að ræða störf kvennastétta því yfirgnæfandi meirhluti starfsfólks í heilbrigðisþjónustunni eru konur. Allt þetta þarf að hafa í huga þegar sest verður yfir fjárlög næsta árs og ígrundað hvar niðurskurðarsveðjunni skuli beitt, en því miður eru horfurnar fyrir komandi ár ekki beinlínis gæfulegar fyrir ríkisbúskapinn. Það á að sjálfsögðu vera í forgangi hjá stjórnvöldum að reyna að koma af okkur drápsklyfjum erlendra skuldbindinga en síðan glíma við innlendan efnahagsvanda á réttlátan máta. Það verður ekki gert með því að vísa umönnunarstéttunum út á ...

16. Janúar 2009

ER AĐ UNDRA AĐ FÓLK HEIMTI KOSNINGAR?!


Í dag fékk ég þennan reikning sendan. Hann er ekki stílaður á mig einan heldur þjóðina alla. Á meðan skrifað er upp á reikning af þessu tagi fyrir okkar hönd virðist mér Samfylkingin bíða í ofvæni eftir því einu hvað Sjálfstæðisflokkurinn ætli að gera gagnvart umsókn um aðild að Evrópusambandinu! Er þessi flokkur orðinn staurblindur...

3. Janúar 2009

FYRST TÓKUM VIĐ KVÓTANN, SÍĐAN BANKANA OG SVO LÍFEYRISSJÓĐINA...


Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands og sérlegur hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins um árabil, er holdgervingur öfgafrjálshyggjunnar sem riðið hefur húsum á Íslandi með þeim hrikalegu afleiðingum sem nú blasa við. Meðfylgjandi er ársgamalt viðtal við Hannes  Hólmstein úr þættinum Ísland í dag á Stöð 2. Bernsk trú Hannesar á ágæti markaðshyggjunnar  skín í gegn þegar hann í ákafa sínum hvetur til þess að menn gefi betur í og haldi enn lengra...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Samfélagsmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta