Samfélagsmál
19. Júní 2008
BANKARNIR AĐ HAFA SITT FRAM?

...En ríkisstjórnin hefði þurft að ganga lengra. Hún hefði þurft að hækka hámark lána Íbúðalánasjóðs upp í 24 milljónir til þess eins að tryggja að lánveitingar væru í einhverjum takti við raunverulega þróun húsnæðisverðs. Þótt hámarkið hefði verið hækkað á þennan hátt þyrfti kaupandi venjulegs húsnæðis eftir sem áður að leita út á rándýran markaðinn um fjármögnun 20-40% húsnæðisins. Slíkt hefði hins vegar ekki dugað bönkunum og er það væntanlega til að þjóna lund þeirra að hámarkið skuli ekki vera hækkað meira en í 20 milljónir. En þar með er ekki öll sagan sögð því Íbúðlánasjóði verður nú gert að veita fjármagni til bankanna til þessara umfram lánveitinga. Með öðrum orðum, með milligöngu Íbúðlanasjóðs fá bankarnir fjármagn með ríkisábyrgð til að lána okkur peninga - á hærri vöxtum en Íbúðalánasjóður gætri gert án þessarar milligöngu!...
12. Júní 2008
LANDSPÍTALINN GEGN GEĐSJÚKUM?

...Lögregla og tollgæsla þurftu „auka aðstoð" við tollgæslu við innkomu okkar í Schengen. Securitas var fengið til starfans. þessu var kröftuglega mótmælt og í kjölfarið horfið frá þeirri ráðagerð. Gagnrýnin beindist ekki að einstaklingum sem starfa fyrir Securitas heldur var bent á að um opinbera þjónustu gildi strangar reglur borgaranum til varnar. Sagt var: Ef fela á einhverjum heimild til að ganga nærri minni persónu með leit og eftirgrennslan þá krefst ég þess að slíkt heyri undir allar þær varnaðar- og varúðarreglur sem samfélagið hefur sett um opinbera starfsmenn. Þetta viðurkenndu stjórnvöld - á endanum. En á þetta ekki við um geðsjúkt fólk? Ætti þetta ekki jafnvel frekar við um fólk sem á sér enga vörn vegna sjúkleika síns? Forsvarsmenn Landspítalans sýna með þessari ákvörðun mikið dómgreindarleysi. Um þessa ráðstöfun verður aldrei friður.
11. Júní 2008
BROTTREKNIR RĆSTITĆKNAR Í VALHÖLL?
Birtist í Fréttablaðinu 09.06.08
Vefsíða Landspítalans auglýsir fundi fyrir starfsmenn Landspítalans með heilbrigðisráðherra. Ekkert nema gott um það að segja að heilbrigðisráðherra vilji sitja fyrir svörum hjá starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og eðlilegt að Landspítalinn auglýsi þetta framtak ráðherrans. Það sem hins vegar er óvenjulegt við þetta fundarboð á vef Landspítalans er að fundarstaðurinn skuli vera Valhöll, félagsheimili Sjálfstæðisflokksins...
8. Júní 2008
NÚ VERĐUM VIĐ AĐ HLUSTA

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum og þá einnig hér á þessari heimasíðu, flutti Allyson Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi, afar lærdómsríka fyrirlestra í Íslandsheimsókn sinni undir síðustu mánaðamót. Umhugsunarverðast við fyrirlestra þessarar bresku fræðikonu er tengingin við það sem er að gerast hér á landi. Áform Guðlaugs Þórs, heilbrigðisráðherra og samherja hans (atburðaráðsinni er ekki bara stýrt úr heilbrigðisráðuneytinu) rímar nákvæmlega við það sem Bretar framkvæmdu, fyrst undir verkstjórn Íhaldsflokksins og síðar Nýja Verkamannaflokksins ( sem reyndist jafnvel harðdrægari í einkavæðingu en sjálft Íhaldið). Þess vegna segi ég...
5. Júní 2008
HEILBRIGĐISŢJÓNUSTU KOLLVARPAĐ?
Birtst í DV 04.06.08.
Síðastliðinn laugardag splæstu íslenskir skattborgarar í stóra auglýsingu í Morgunblaðinu. Þar auglýsti ríkisstjórnin eftir forstjóra í svokallaðri „Sjúkratryggingastofnun". Þetta er stofnun sem fáir þekkja enda er hún ekki til. Þannig er mál með vexti að rétt áður en alþingismenn fóru í jólafrí mætti Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra í þingsal með harla óvenjulegt þingmál. Það fól í sér heimild til að ráða formann í stjórn „Sjúkratryggingastofnunar". Ekki voru allir tilbúnir að samþykkja að veita ráðherranum þessa heimild möglunarlaust. Bent var á að rétt væri að fá fyrst samþykkt lög um þessa nýju stofnun, síðan kæmi að því að ráða áhöfnina. Heilbrigiðsráherra sagði að ...
4. Júní 2008
SKYLDI EAMONN HAFA EITTHVAĐ LĆRT?

...En þótt við leggjum mikið upp úr umburðarlyndi hljótum við engu að síður að gera lágmarkskröfur um gæði, ekki síst þegar taka höndum saman rannsóknarsetrið RSE, Viðskiptablaðið, Viðskiptaráð og Háskóli Reykjavíkur en allir þessir aðilar standa að komu Eamonns Butlers, forstöðumanns Adam Smith Institute í London. Hann flytur fyrirlestur í boði þessara aðila í vikulok. Eamonn þessi Butler kom hingað til lands í ágúst árið 2003 til fyrirlestrahalds. Hann lofsöng einkavæðingu sem mest hann mátti, sagði hana hafa tekist með miklum ágætum í Bretlandi og hvatti Íslendinga óspart til að halda inn á þessa braut ekki síst í heilbrigðiskerfinu; sagði að með einkavæðingu þar væri hægt að stórhækka laun og jafnframt ná 20-40% sparnaði! Við þessar yfirlýsingar sperrtu margir heilbrigðisstarfsmenn eyrun enda...
3. Júní 2008
HEILBRIGĐISŢJÓNUSTUNNI RÁĐIĐ HEILT?

Þeir félagar Guðlaugur þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, eiga sér draum. Sá draumur er að koma á markaðskerfi fyrir heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Þeir eiga stuðning hjá hægri sinnuðum mönnum í sínum flokkum... Þetta er sama hugsun og „Nýi Verkamannaflokkurinn" undir forystu Tonys Blairs hefur framfylgt í Bretlandi en sá flokkur er í stjórnartíð sinni kominn vel á veg með að koma breska heilbrigðiskerfinu út á markaðstorgið...
1. Júní 2008
GUĐLAUGUR ŢÓR AUGLÝSIR

Í gær birtist auglýsing í Morgunblaðinu frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Auglýst er starf forstjóra „sjúkratryggingastofnunar." Þessi stofnun er ekki til. Kannski er þetta eins konar afsökunarbeiðni því í auglýsingunni er okkur sagt að þar sem Alþingi hafi ekki samþykkt lög um þessa stofnun verði að framlengja umsóknartímann...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












