Beint á leiđarkerfi vefsins

Samfélagsmál

19. Nóvember 2008

SIĐFRĆĐI KAUPHALLARINNAR

Birtist í Fréttablaðinu 17. 11. 08
Fréttabladid hausSkipuð hafa verið bankaráð í endurreistum ríkisbönkunum þremur, Glitni, Kaupþingi og Landsbanka. Skipan í bankaráð endurspeglar að nokkru valdahlutföllin í pólitíkinni, þrír frá stjórnarmeirihluta og tveir frá stjórnarandstöðu í hverju ráði. Þarna er að finna gömul andlit og ný. Jákvætt við listann yfir bankaráðsfólkið er að þarna er að finna fjölbreyttari flóru sjónarmiða en í stjórnum bankanna undanfarin einkavinavæðingarárin. Þá var þar bara eitt viðhorf ríkjandi: Fylgispekt við auðhyggju...

10. Október 2008

BROWN Í BARÁTTU FYRIR BROWN


En þá gerist undrið: Sem af himnum ofan berst Brown forsætisráðherra hjálpræðið. Íslenskir bankar og fyrirtæki í eigu Íslendinga í Bretlandi lenda í banvænni krísu. Þeir geta ekki staðið í skilum við skuldunauta sína. Sem hendi sé veifað geysist  forsætisráðherrann lánlausi  fram á völlinn til að taka málstað breskra sparifjáreigenda og ekki síður digurra fjárfestingasjóða, sömu fjárfesta og fjármagna kosningabaráttu einkavæðingarsinna í breskri pólitík. Harður í horn að taka hann Brown. Enga vægð gegn andstæðingnum. Sigrar Brown Íslendinga, spyrja breskir fjölmiðlar...

8. Október 2008

HVERS VEGNA ER HÁSKÓLI ÍSLANDS AĐ BERJAST GEGN ALMANNAŢJÓNUSTUNNI?


Enginn vafi leikur á því að þjóðinni finnist nóg komið af „útvistun" og einkavæðingu almannaþjónustunnar. Atburðir síðustu daga hafa fært okkur dýrkeypta lærdóma. Um langt árabil hefur Viðskiptaráðið hamast í kröfugerð í þessa veru, viljað mola úr almannaþjónustunni arðvænlegustu bitana svo fjárfestar geti gert sér þá að féþúfu. Þekktasta dæmið þessa dagana eru tilraunir til þess að eyðileggja...

6. Október 2008

EKKI ALŢJÓĐAGJALDEYRISSJÓĐINN TAKK

Nú er mikilvægt - það er lífsnauðsyn - að markvisst verði unnið að því að vinda ofan af þessum óheillavef sem flækt hefur þjóðina í mestu vandræði sem yfir hafa dunið í seinni tíð. Ég tek undir með Þorvaldi Gylfasyni hagfræðiprófessor að við leitum ráðgjafar hjá Norðurlandaþjóðunum og hugsanlega annarrar aðstoðar af þeirra hálfu einnig. Hinu leyfi ég mér að vara við að leitað verði ásjár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum einsog prófessorinn leggur til.  Slóð þeirrar stofnunar er þyrnum stráð og sums staðar meira að segja blóði drifin. Alvarlegust eru inngrip þessarar stofnunar í málefni þróunarríkja sem stillt hefur verið upp við vegg, þær þvingaðar til að selja frá sér dýrmætar þjóðareignir og einkavæða sitt innra stoðkerfi svo gera mætti allt saman hinu alþjóðlega auðvaldi að féþúfu. Þetta hafa verið skilyrðin fyrir aðstoð...

23. September 2008

MEĐHJÁLPARI FĆR KLAPP Á KOLLINN

Birtist í Fréttablaðinu 22.09.08.
Fréttabladid hausÁgætur þingmaður Samfylkingarinnar sagði í laugardagsþætti Hallgríms Thorsteinssonar fyrir viku að flokkur sinn hefði verið stofnaður um velferðarþjónustuna. Ég saknaði þess að viðkomandi var ekki spurður hvers vegna Samfylkingin kæmi þá ekki velferðarkerfinu til varnar þegar að því væri sótt. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, messaði yfir félögum sínum í Valhöll um helgina. Hann lofaði og prísaði Samfylkinguna, sagði að án hennar hefði ekki verið hægt að koma á lögum um nýja sjúkratryggingastofnun, sem væri forsenda þess að koma mætti á markaði...

10. September 2008

ÁFRAM VEGINN Í VAGNINUM EK ÉG...


Í umræðu um frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra um nýja Sjúkratrygginga- og innkaupastofnun, staðhæfa stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar að með því að færa heilbrigðiskerfið inn í viðskiptaumhverfi og nýta sér m.a. útboð á þjónustu muni heilbrigðisþjónustan eflast og verða fjölbreyttari... Reynslan sýnir að ekkert af þessu muni ganga eftir... Dæmin hræða. Árið 1996 var rafmagnseftirlitið...

8. September 2008

EINKAVĆĐINGARVÍTIN ERU TIL AĐ VARAST


Í fréttum Sjónvarpsins í kvöld var birt viðtal sem Bogi Ágústsson, fréttamógúll á RÚV,  tók við Allyson M. Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg. Jafnframt því að gegna stöðu prófessors, veitir Pollock forstöðu stofnun sem rannsakar skipulag heilbrigðisþjónustunnar (Centre for International Public Health Policy).
Í viðtalinu fjallaði Allyson M. Pollock um sams konar breytingar á heilbrigðisþjónustunni  og eru fólgnar í frumvarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um nýja Sjúkratrygginga- og innkaupastofnun. Það frumvarp er til þriðju umræðu á Alþingi á morgun.  Það var vel til fundið hjá fréttastofu Sjónvarps að ...

8. September 2008

FRUMVARP UM EINKAVĆĐINGU HEILBRIGĐISŢJÓNUSTUNNAR

Birtist í Morgunblaðinu 07.09.08.
MBL  - LogoSenn hefst þriðja umræðan á Alþingi um frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráherra, um sjúkratrygginga- og innkaupastofnun í heilbrigðiskerfinu. Við aðra umræðu síðastliðið vor var ákafinn mikill að klára málið en á síðustu stundu féllst ríkisstjórnin á að fresta afgreiðslu til haustsins. Stóðu menn þá almennt í þeirri trú að unnið yrði að málinu í sumar. Það var ekki gert. Engin...

4. September 2008

HVATNING TIL AĐ LESA BĆKLING

Út er kominn hjá BSRB bæklingur með fyrirlestri sem Allyson M. Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi, flutti hjá BSRB í lok maí mánaðar. Jafnframt kennslu og fræðastörfum veitir höfundurinn forstöðu rannsóknarstofnun sem sérhæfir sig í skipulagi heilbrigðisþjónustunnar og afleiðingum hvers kyns breytinga sem á henni eru gerðar... Til Allyson M. Pollock er af þeim sökum mikið leitað af hálfu fjölmiðla, ekki aðeins í Bretlandi heldur víðs vegar um heiminn. Í heimsókn sinni til Íslands kynnti Allyson M. Pollock sér fyrirhugaðar breytingar á íslenska heilbrigðiskerfinu, og þá ekki síst frumvarpi Guðlaugs Þórs heilbrigðisráðherra um nýja Sjúkratrygginga- og innkaupastofnun í heilbrigðiskerfinu. Niðurstaða hennar var sú að verið væri að leggja upp í svipaðan leiðangur og Bretar lögðu upp í fyrir tæpum tuttugu árum samkvæmt frjálshyggju-forskrift Margrétar  Thatchers. Verkamannaflokkurinn undir forystu Blairs hafi tekið við keflinu...

11. Ágúst 2008

FORSENDUR ŢJÓĐARSÁTTAR - HVAĐ ŢARF TIL?


Oft tala menn um þjóðarsátt eins og hún verði tekin upp úr hatti bara ef þrír eða fjórir svokallaðir lykilmenn komi sér saman um það. Þetta er fjarri lagi. Til að þjóðarsátt verði annað en orðin tóm þarf þjóð að standa sáttinni að baki.  Á Íslandi verður engin þjóðarsátt ef haldið verður áfram að hygla stóreignafólkinu, gera aðför að Íbúðalánasjóði, einkavæða heilbrigðisþjónustuna, svíkja gefin fyrirheit gagnvart öldruðum og öryrkjum, henda peningum í hernaðarbrölt og gæluverkefni, skerða kjörin innan löggæslunnar og segja þar upp fólki - og þannig mætti áfram telja. Þjóðarsátt má hins vegar ná að mínu mati ef snúið verður af þessari braut á þeim forsendum sem nefndar eru hér...

10. Ágúst 2008

ER BOĐLEGT AĐ SKATTGREIĐENDUR REKI EINKABÍLA FYRIR FORSTJÓRA?


Það er ekki út í loftið að ég segi að nú sé mál málanna að jafna kjörin í landinu. Á undanförnum árum hefur stefnt hraðbyri í misréttisátt á Íslandi. Það sem verra er að þeir sem verið hafa í aðstöðu til að skara eld að eigin köku hafa komist upp með það nánast óáreittir. Það er ekki fyrr en í seinni tíð að gagnrýnin á sjálftökuliðið gerist hávær. Ekki að furða að fólki blöskri þegar marg-milljón-krónu-mennirnir byrja að segja starfsfólki sem undir þá er sett, úpp starfi; vísa því út á guð og gaddinn... Ég vakti máls á mikilvægi kjarajöfnunar hér á síðunni þegar nokkrum starfmönnum RÚV ehf var sagt upp störfum nýlega. Ég lagði til að glæsibíllinn yrði seldur undan útvarpsstjóranum, Páli Magnússyni áður en byrjað væri að segja upp fólki. Í mínum huga er þetta spurning um peninga og fordæmi, fjárhagsleg og táknræn aðgerð. DV gerði úr þessu smáfrétt. Í framhaldinu var leitað  til útvarpsstjóra. Hann brást hinn versti við og sagði að í sínum huga væri  þessi málflutningur minn „svo mikið lýðskrum og sýndarmennska" ...

28. Júlí 2008

STRĆTÓ EINKAVĆDDUR BAKDYRAMEGIN?

Birtist í Morgunblaðinu 27.07.08
MBL  - LogoÉg hef löngum verið þerrar skoðunar að veigamikil ástæða fyrir því að Sjálfstæðismenn töpuðu meirihluta sínum í Reykjavík árið 1994 hafi verið ákvörðun um að einkavæða Strætisvagna Reykjavíkur. Almenningur lét kröftuglega frá sér heyra og starfsmenn Strætisvagnanna stóðu sem klettur. Þar var margan flokksbundinn Sjálfstæðismanninn að finna sem létu pólitíska samherja sína heyra að þeir gerðu sér grein fyrir því að þessi ráðstöfun var fyrst og fremst til þess að rýra kjör þeirra ...

10. Júlí 2008

HVERNIG VĆRI AĐ SELJA BÍLINN PÁLL?

Ruv bilinn PM 01
Nýlega bárust fréttir af uppsögnum starfsmanna í RÚV ohf. Þessu mótmælti Svanhildur Kaaber, sem sæti á í stjórn stofnunarinnar fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Hún benti á að ríkisstjórnin hefði ekki staðið við fyrirheit sín um fjárframlög til stofnunarinnar. Menntamálaráðherra sagði eitthvað á þá leið að RÚV yrði einsog aðrir að haga seglum eftir vindi og nú blési ekki byrlega í þjóðarbúskapnum. Þessi svör duga ekki...

9. Júlí 2008

RÁĐLEGGINGAR PETYU

Birtist í 24 stundum 08.07.08
24 stundirEkki hef ég nokkurn skapaðan hlut á móti henni  Petyu Koeva. Það væri ekkert annað en ánægjuefni að fá hana til Íslands  ef ekki væri fyrir árásir hennar á láglaunafólk, aldraða og öryrkja. Þannig er að Petya er formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hélt hér fréttamannafund fyrir nokkrum dögum til að segja Íslendingum fyrir verkum við efnahagsstjórnina.
Þar tók sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins undir gamalkunna  kröfu fjármálafyrirtækja og fjárfesta að aðgreina þurfi almennar lánveitingar Íbúðalánasjóðs  frá félagslegum úrræðum; að ekki megi hækka laun ríkis- og bæjarstarfsmanna og alls ekki bætur almannatrygginga.  Stjórnvöld yrðu í þessu efni að „standast þrýsting"...

19. Júní 2008

BANKARNIR AĐ HAFA SITT FRAM?


...En ríkisstjórnin hefði þurft að ganga lengra. Hún hefði þurft að hækka hámark lána Íbúðalánasjóðs upp í 24 milljónir til þess eins að tryggja að lánveitingar væru í einhverjum takti við raunverulega þróun húsnæðisverðs.  Þótt hámarkið hefði verið hækkað á þennan hátt þyrfti kaupandi venjulegs húsnæðis eftir sem áður að leita út á rándýran markaðinn um fjármögnun 20-40% húsnæðisins. Slíkt hefði hins vegar ekki dugað bönkunum og er það væntanlega til að þjóna lund þeirra að hámarkið skuli ekki vera hækkað meira en í 20 milljónir. En þar með er ekki öll sagan sögð því Íbúðlánasjóði verður nú gert að veita fjármagni til bankanna til þessara  umfram lánveitinga. Með öðrum orðum, með milligöngu Íbúðlanasjóðs fá bankarnir fjármagn með ríkisábyrgð til að lána okkur peninga - á hærri vöxtum  en Íbúðalánasjóður gætri gert án þessarar milligöngu!...

12. Júní 2008

LANDSPÍTALINN GEGN GEĐSJÚKUM?


...Lögregla og tollgæsla þurftu „auka aðstoð" við tollgæslu við innkomu okkar í Schengen. Securitas var fengið til starfans. þessu var kröftuglega mótmælt og í kjölfarið horfið frá þeirri ráðagerð. Gagnrýnin beindist ekki að einstaklingum sem starfa fyrir Securitas heldur var bent á að um opinbera þjónustu gildi strangar reglur borgaranum til varnar. Sagt var: Ef fela á einhverjum heimild til að ganga nærri minni persónu með leit og eftirgrennslan þá krefst ég þess að slíkt heyri undir allar þær varnaðar- og varúðarreglur sem samfélagið hefur sett um opinbera starfsmenn. Þetta viðurkenndu stjórnvöld - á endanum. En á þetta ekki við um geðsjúkt fólk? Ætti þetta ekki jafnvel frekar við um fólk sem á sér enga vörn vegna sjúkleika síns? Forsvarsmenn Landspítalans sýna með þessari ákvörðun  mikið dómgreindarleysi. Um þessa ráðstöfun verður aldrei friður.

11. Júní 2008

BROTTREKNIR RĆSTITĆKNAR Í VALHÖLL?

Birtist í Fréttablaðinu 09.06.08
Fréttabladid hausVefsíða Landspítalans auglýsir fundi fyrir starfsmenn Landspítalans með heilbrigðisráðherra. Ekkert nema gott um það að segja að heilbrigðisráðherra vilji sitja fyrir svörum hjá starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og eðlilegt að Landspítalinn auglýsi þetta framtak ráðherrans. Það sem hins vegar er óvenjulegt við þetta fundarboð á vef Landspítalans er að fundarstaðurinn skuli vera Valhöll, félagsheimili Sjálfstæðisflokksins...

8. Júní 2008

NÚ VERĐUM VIĐ AĐ HLUSTA


Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum og þá einnig hér á þessari heimasíðu, flutti Allyson Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi, afar lærdómsríka fyrirlestra í Íslandsheimsókn sinni undir síðustu mánaðamót. Umhugsunarverðast við fyrirlestra þessarar bresku fræðikonu er tengingin við það sem er að gerast hér á landi. Áform Guðlaugs Þórs, heilbrigðisráðherra og samherja hans (atburðaráðsinni er ekki bara stýrt úr heilbrigðisráðuneytinu) rímar nákvæmlega við það sem Bretar framkvæmdu, fyrst undir verkstjórn Íhaldsflokksins og síðar Nýja Verkamannaflokksins ( sem reyndist jafnvel harðdrægari í einkavæðingu en sjálft Íhaldið).  Þess vegna segi ég...

5. Júní 2008

HEILBRIGĐISŢJÓNUSTU KOLLVARPAĐ?

Birtst í DV 04.06.08.
DVSíðastliðinn laugardag splæstu íslenskir skattborgarar í stóra auglýsingu í Morgunblaðinu. Þar auglýsti ríkisstjórnin eftir forstjóra í svokallaðri „Sjúkratryggingastofnun". Þetta er stofnun sem fáir þekkja enda er hún ekki til. Þannig er mál með vexti að rétt áður en alþingismenn fóru í jólafrí mætti Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra í þingsal með harla óvenjulegt þingmál. Það fól í sér heimild til að ráða formann í stjórn „Sjúkratryggingastofnunar". Ekki voru allir tilbúnir að samþykkja að veita ráðherranum þessa heimild möglunarlaust. Bent var á að rétt væri að fá fyrst samþykkt lög um þessa nýju stofnun, síðan kæmi að því að ráða áhöfnina. Heilbrigiðsráherra sagði að ...

4. Júní 2008

SKYLDI EAMONN HAFA EITTHVAĐ LĆRT?


...En þótt við leggjum mikið upp úr umburðarlyndi  hljótum við engu að síður að gera lágmarkskröfur um gæði, ekki síst þegar taka höndum saman rannsóknarsetrið RSE, Viðskiptablaðið, Viðskiptaráð og Háskóli Reykjavíkur en allir þessir aðilar standa að komu Eamonns Butlers, forstöðumanns Adam Smith Institute í London. Hann flytur fyrirlestur í boði þessara aðila í vikulok.  Eamonn þessi Butler kom hingað til lands í ágúst árið 2003 til fyrirlestrahalds. Hann lofsöng einkavæðingu sem mest hann mátti, sagði hana hafa tekist með miklum ágætum í Bretlandi  og hvatti Íslendinga óspart til að halda inn á þessa braut ekki síst í heilbrigðiskerfinu; sagði að með einkavæðingu þar væri hægt að stórhækka laun og jafnframt ná 20-40% sparnaði! Við þessar yfirlýsingar sperrtu margir heilbrigðisstarfsmenn eyrun enda...

3. Júní 2008

HEILBRIGĐISŢJÓNUSTUNNI RÁĐIĐ HEILT?


Þeir félagar Guðlaugur þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, eiga sér draum. Sá draumur er að koma á markaðskerfi fyrir heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Þeir eiga stuðning hjá hægri sinnuðum mönnum í sínum flokkum... Þetta er sama hugsun og „Nýi Verkamannaflokkurinn" undir forystu Tonys Blairs hefur framfylgt í Bretlandi en sá flokkur er í stjórnartíð sinni kominn vel á veg með að koma breska heilbrigðiskerfinu út á markaðstorgið...

1. Júní 2008

GUĐLAUGUR ŢÓR AUGLÝSIR


Í gær birtist auglýsing í Morgunblaðinu frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Auglýst er starf forstjóra „sjúkratryggingastofnunar." Þessi stofnun er ekki til. Kannski er þetta eins konar afsökunarbeiðni því í auglýsingunni er okkur sagt að þar sem Alþingi hafi ekki samþykkt lög um þessa stofnun verði að framlengja umsóknartímann...

31. Maí 2008

BOĐSKAPUR POLLOCKS Á ERINDI VIĐ ÍSLENDINGA


...Nú eru Bretar hins vegar að vakna upp við þann vonda draum að vegna andvaraleysis sitji þeir uppi með kerfi sem enginn vilji nema þá fjármálamennirnir sem vita sem er að hægt er að hafa gífurlegan haganað af heilbrigðisþjónustunni komist þeir á annað borð yfir hana. Þetta má ekki henda á Íslandi. Því miður hefur það sýnt sig að Samfylkingunni er ekki treystandi í þessu efni, annað hvort er hún blind á einkavæðingaröflin eða reiðubúin að þjóna þeim. Á komandi mánuðum verður að efna til kröftugrar umræðu um þessi mál þannig að þegar Alþingi kemur saman í september verði búið að upplýsa þingmenn. Þá vita þeir líka hvað til þeirra friðar heyrir.

19. Maí 2008

INGIBJÖRG ŢÓRĐAR, JÓHANNA SIG. OG LÖGFRĆĐINGAR Í BRUSSEL


Sigurvegari þjóðfélagsumræðu síðustu daga er Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags Fasteignasala. Hún hefur staðið keik fyrir hönd almennings og varið Íbúðalánasjóð og þar með almannahag. Nú er það heilagri Biblíu markaðshyggjunnar í Brussel sem á að beita til að banna okkur að reka húsnæðiskerfi sem grunur leikur á að hafi í sér einhverja félagslega þræði!  Þetta er boðorðið frá Evrópusambandinu, hinu fyrirheitna landi Samfylkingarinnar.....Þá er það eins og fjölmiðlar skilji ekki til fulls að yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, fela einnig í sér feigðina fyrir sjóðinn.....

13. Maí 2008

SAMTÖK UM SAMFÉLAGSÁBYRGĐ


Hinn 1. maí síðastliðinn voru stofnuð Foreldrasamtök gegn  áfengisauglýsingum. Gengið var frá stofnskrá og kjörin fimm manna stjórn. Formaður er Árni Guðmundsson en hann hefur sinnt verkalýðsbaráttu og æskulýðsstarfi um langt árabil og meðal annars ... Vonandi tekst nýstofnuðum Foreldrasamtökum að vekja samfélagið til vitundar um ábyrgð sína. Það hlýtur að verða fjölmiðlum, félagasamtökum, bæjarstjórnum, fyrirtækjum, Alþingi og ríkisstjórn umhugsunarefni að til þessa þurfi að koma...

25. Apríl 2008

ŢARF AĐ GERA HÚSLEIT HJÁ SAMKEPPNISSTOFNUN?


...Þrátt fyrir alla þessa sögu rak mig í rogastans þegar Samkeppnisstofnun kvað upp úr með það nýlega að Orkuveita Reykjavíkur mætti ekki eiga nema 3% hlut í Hitaveitu Suðurnesja, annað væri brot á Samkeppnislögum! Þetta gerist á sama tíma og fjárfestar í Geysir Green eru að kaupa sig inn í Hitaveitu Suðurnesja þvert á vilja stórs hluta landsmanna sem fyrir alla muni vill ekki að einkakapítalið (eins stöðugt og ábyggilegt og það nú er) fái eignarhald í auðlindum þjóðarinnar...

25. Apríl 2008

PÓLITÍSKIR HANDLANGARAR Á LANDSPÍTALA


...En þá er komið að hinum pólitísku handlöngurum, bisnissmönnunum á hvítu sloppunum;  fólkinu sem hefur allt sitt á þurru en leyfir sér að tala um nauðsyn á meiri „sveigjanleika" í rekstri Landspítalans. Hvað þýðir það í alvöru? Er ekki hægt að sameina og sundra, breyta út í hið óendanlega? Jú, það er hægt.  En duttlungastjórnun getur verið erfiðleikum háð. Og menn hafa lent í klandri sem hafa viljað vera á kaupi frá mörgum aðilum, tvöföldu og þreföldu kaupi, allt í senn. „Sveigjanleiki" þýðir að stjórnandinn fengi meira vald.... „Sveigjanleiki" þýðir líka að fáir verða í aðstöðu til að hnýsast í launakjörin á toppnum...

14. Apríl 2008

PENINGAR EĐA MANNÚĐ?


...Í viðtalinu lýsir Magnús Pétursson sér sem jafnaðarmanni. Má skilja það svo að hann sé að vísa til krata af gamla skólanum en faðir hans sat um skeið á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn. Magnús segir í Morgunblaðsviðtalinu að hann átti sig ekki á því hvert ríkisstjórnarflokkarnir séu að fara, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking. Sá síðari heitir víst líka á hátíðastundum Jafnaðarmannaflokkur Íslands. Skyldi gömlu Alþýðuflokksmönnunum, sem Magnús Pétursson er kominn af, finnast Jafnaðarmannaflokkur Íslands (einsog formaður og varaformaður Ingibjörg Sólrún og Ágúst Ólafur skilgreina hann) rísa undir nafni?...

10. Apríl 2008

HETJULEG BARÁTTA VIĐSKIPTARÁĐS?

 
...Í fyrirsögn á heimasíðu Viðskiptaráðs þar sem er að finna bölbænapistilinn um Íbúðalánasjóð er spurt hvort menn telji sjóðinn vera riddara á hvítum hesti. Augljóslega er svo ekki að mati Viðskiptaráðs. En hvers konar riddari skyldi þetta Viðskiptaráð annars vera? Er það yfirleitt að heyja hetjulega baráttu? Ekki þykir mér það. Það er dapurlegt hlutskipti að setja gróðahagsmuni ofar hagsmunum almennings eins og gert er í áralöngu einleti Viðskiptaráðsins gagnvart Íbúðalánasjóði.
Að lokum, hvenær skyldi Viðskiptaráði lærast að ríkið greiðir ekki niður vexti Íbúðalánasjóðs. Sá sjóður á hins vegar aðgang að  fjármagni á tiltölulega hagstæðum kjörum með ríkið sem bakhjarl sinn. Sams konar bakhjarl og bankarnir vilja nú að standi sér að baki...

29. Mars 2008

HEILSUVERND MEĐ RÉTTU BANKAKORTI


...En boðskapurinn og viðhorfin eru hin sömu. Og nú spyr Þjóðviljaritsjórinn gamli um „Heilsuvernd með réttu bankakorti."  Hann víkur þar sérstaklega að Heilsuverndarstöðinni ehf og samningi sem þetta nýja fyrirtæki hefur gert við Kaupþing á sviði heilbrigðisþjónustu. Helgi Guðmundsson sýnir einkarekstrar/einkavæðingartilburðum ívið meira umburðarlyndi en ég geri - þó er ég síður en svo andvígur öllum einkarekstri innan heilbrigðisþjónustunnar einsog margoft hefur komið fram - en nú er honum nóg boðið. Ég birti ...

11. Mars 2008

ALLYSON POLLOCK OG RANNSÓKNARMIĐSTÖĐIN Í EDINBORG


...Stofnunin heitir The Centre for International Public Health Policy. Þessari stofnun veitir forystu dr. Allyson Pollock, professor,  en hún er menntaður læknir, sem síðan hefur sérhæft sig í rannsóknum á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar...Ég átti þess kost að hitta Allyson Pollock að máli um síðustu helgi ... Hún sagði að við værum að verða vitni að geysilega umfangsmiklum þjóðfélagsbreytingum - miklu meiri en fólk almennt gerði sér grein fyrir...Þessu gerði fólk sér hins vegar ekki almennt grein fyrir enda væri þetta gert smám saman og í alls kyns dulargervi.  Sumir sem tækju þátt í ákvarðanaferlinu vissu ekki hvað þeir væru að gera á meðan aðrir væru með markmiðin skýr..

28. Febrúar 2008

LANDAKOT OG IĐNSKÓLINN: SJÁLFSTĆĐISFLOKKUR EINKAVĆĐIR Í KYRRŢEY


...Á öðrum stað er annar ráðherra að verki. Þorgerður Katrín, menntamálaráðherra, vinnur að því að flytja starfsmenn Iðnskólans úr opinberu umhverfi yfir í háeeff. Samkvæmt mínum heimildum verður það gert við hátíðlega athöfn á morgun. Boðað er að fólkinu verði auðveldað að renna þessum bita niður með léttum veitingum, sem svo eru kallaðar.  Ekki veit ég hvort starfsfólki finnst þetta vera tilefni þess að efna til fagnaðar. Ég hlakka til að heyra fjölmiðlana spyrja menntamálaráðherra útúr. Til dæmis hvort henni finnist ekki ástæða til að ræða svona nokkuð á Alþingi og fá þar lagalega heimild til verkanna. Eða hvort hún telji sig sleppa framhjá lögunum. Getur það verið? VG hefur óskað eftir utandagsrárumræðu. Þar mun Kolbrún Halldórsdóttir, málshefjandi, eflaust spyrja út í lögin og sennilega einnig siðferðið...

15. Febrúar 2008

Á SÓLTÚNSTAXTA?


Nú er búið að læða stöfunum ehf. fyrir aftan okkar gömlu góðu Heilsuverndarstöð við Barónsstíg í Reykjavík. Snjallt hjá prívatfyrirtæki að kalla sig Heilsuverndarstöðin í Reykjavík. Traustvekjandi nafn! Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, var gleiðbrosandi þegar hann, ásamt Maríu Ólafsdóttur, yfirlækni Heilsuverndarstöðvarinnar ehf, skrifaði undir samninga ríkisins. Það var við hæfi því það verður ríkissjóður sem mun standa straum af rekstrarkostnaði hlutafélagsins. Morgublaðið sýndi þessa ánægjustund á mynd undir þeirri fyrirsögn að nú byðust  „sveigjanlegir möguleikar á vistun í hvíldarrýmum". Hljómar vel. Nokkuð sem fjársveltar stofnanir hafa gjarnan viljað gera. Á Heilsuverndarstöðinni ehf verður boðið upp á...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Samfélagsmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta