Samfélagsmál
31. Desember 2007
RÁĐHERRAR UNDIR ÁHRIFUM?

Eins og fram hefur komið færði bankinn ráðherrunum í ríkisstjórninni vínflösku að gjöf. Skál kæru vinir. Takk fyrir hið liðna. Væntum áfram góðs samstarfs. Ráðherrarnir hafa verið spurðir álits á þessari gjöf Landsbankans til ríkisstjórnar Íslands. Viðskiptaráðherra sagði gjöfina „óheppilega". Jóhanna var ekki búin að „opna" en sagði að þetta hefði engin áhrif. Hefði kassi kannski verið áhrifameiri...
30. Desember 2007
KOMUGJÖLDUM BREYTT

...Með öðrum orðum, fréttin fjallar í reynd um breytta kostnaðarskiptingu innan rukkunarkerfis heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa. Börn og unglingar koma til með að fá ókeypis, það er gott. En það eru hins vegar aðrir sjúklingar sem verða látnir borga brúsann! Ekki er um að ræða breytingu innan skattakerfisins, nei breytingarnar eru takmarkaðar við sjúklingahópinn, tilfærslan er innan hans! Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðisráðherra, þykir það vera ósköp hóflegt að borga 3700 krónur sem aðgangseyri að slysa- og bráðamóttöku og ekkert að því að hækka þau gjöld. Einu sinni var þetta ókeypis. Er það ekki þannig sem við viljum hafa það?
24. Desember 2007
BETLEHEM Í DAG: UM ŢAĐ AĐ VERA STÓR EĐA SMÁR

...Ofsóknir Ísraela á hendur Palestínumönnum - sem nú beinast hvað harkalegast að Gaza svæðinu - eru einmitt sérstaklega óhugnanlegar fyrir hve úthugsaðar þær eru og hve framkvæmdin er skipuleg....Eina ósk á ég íslensku ríkisstjórninni til handa þegar hún leggst á bæn síðdegis og minnist fæðingar Jesús Krists; nefnilega að hún hugleiði að vestrænir ráðamenn - við erum jú í þeim klúbbi - standa nú gagnvart undirokuðu fólki í Palestínu í sporum Pontíusar Pílatusar sem fyrir tæpum tvö þúsund árum hafði líf Krists í hendi sér. Hvernig fara þeir með vald sitt? Ætla valdamenn samtímans að sýna siðferðilega stærð eða verður smæðin þeirra hlutskipti...
23. Desember 2007
FJÁRMÁLARÁĐHERRA OG MORGUNBLAĐIĐ GERA LÍTIĐ ÚR MISSKIPTINGU

Á Íslandi hefur efnaleg misskipting aukist hröðum skrefum á undanförnum árum. Rök má færa að því að félagslegra áhrifa sé þegar farið að gæta og að við stefnum í átt að samfélagi mismununar á mörgum sviðum þjóðlífsins. Ýmsir hafa varað við þessari þróun og hefur Stefán Ólafsson, prófessor, staðið þar framarlega í flokki. Í hópi stjórnenda Morgunblaðsins er einnig að finna menn - að minnsta kosti mann - sem tekið hafa undir þessi varnaðarorð. Þess vegna voru Staksteinar Morgunblaðsins sl. fimmtudag að mörgu leyti stílbrot. Þar er tekið undir furðulegar og óábyrgar vangaveltur Árna M. Mathíesen, fjármálaráherra, þar sem hann gerir því skóna að nú hljóti að ...
21. Desember 2007
HVAĐAN KEMUR DRIFKRAFTURINN?
...Þetta tel ég vera hárrétt mat hjá Sigurði Gísla Pálmasyni. Drifkrafturinn í íslensku samfélagi verður ekki skýrður með skírskotun til efnalegra gæða. Það er hið huglæga í tilverunni sem ræður úrslitum. Ég bjó um skeið í Edinborg í Skotlandi. Falleg borg, gott fólk og kröftugt. Í Edinborg bjó helmingi fleira fólk en á Íslandi öllu. Þó var Edinborg minni en Reykjavík. Íslendingum fer jafnt og þétt fjölgandi. Hvort skyldi eiga fyrir okkur að liggja, að stækka eða smækka? Þessar spurningar vöknuðu í huga mér þegar ég las viðtalið við Sigurð Gísla Pálmason, mann sem hefur peninga handa á milli en hefur ekki misst sjónar á mikilvægi hinnar huglægu og menningarlegu víddar tilverunnar...
20. Desember 2007
TALAĐ AF ŢEKKINGU UM HEILBRIGĐISMÁL

...Ábendingar Rúnars Vilhjálmssonar í grein hans í Morgunblaðinu eiga heilmikið sammerkt með því sem fram kom hjá hinum virta fræðimanni Göran Dahlgren, margverðlaunuðum ráðgjafa um heilbrigðismál, í fyrirlestri sem hann á sínum tíma flutti hér á landi um heilbrigðismál á vegum BSRB. ..Annan greinarhöfund um heilbrigðismál langar mig til að nefna en það er Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðing á sviði heilbrigðisstjórnunar. Hann hrakti þá bábilju í grein sem hann birti í Morgunblaðinu 16. febrúar sl. að íslenska heilbrigðiskerfið væri óhagkvæmt:
17. Desember 2007
AUĐMENN ÍSLANDS OG ÁHERSLUR VERKALÝĐSHREYFINGAR

Í Morgunblaðinu hafa að undanförnu birst greinar eftir forsvarsfólk úr röðum BSRB sem hafa varað við vaxandi misskiptingu í íslensku samfélagi. Stundum hefur verið talað um að tvær eða fleiri þjóðir í landinu. Um helgina birtust tvær skýrar birtingarmyndir þessa. Annars vegar mátti finna hve gjörsamlega jarðsambandslaust þotuliðið úr auðkýfingastétt Íslands er orðið. Hins vegar birtist athyglisverð úttekt í Hjálmi, málgagni verkalýðsfélagsins Hlífar um launaþróun fiskverkafólks og alþingismanna sem er vísbending um vaxandi kjaragliðnun í þjóðfélaginu. Nánar að þessu tvennu...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












