Samfélagsmál
20. Október 2007
SJÁLFSTÆÐIS/SAMFYLKINGARFLOKKUR Á FRJÁLSHYGGJU-STUTTBUXUM
...Kannski er Guðlaugi Þór vorkunn því hann var sjálfur áður fyrsti flutningsmaður sama frumvarps. Nú er hann hins vegar ekki bara á sínum frjálshyggjustuttbuxum heldur æðsti ábyrgðarmaður heilbrigðismála þjóðarinnar. Auðvitað má hann vita að ummæli hans eru nú skoðuð í því ljósi. Ráðherra var inntur eftir rökum fyrir afstöðu sinni. Rökin úr heilbrigðisráðuneytinu voru þessi: Ríkið á ekki að standa í smásöluverslun. Þetta eru lúnar hugmyndafræðilegar staðhæfingar en ekki rök, hvað þá þau skynsemisrök sem margir höfðu eflaust vonast til að heyra úr munni nýbakaðs ráðherra. Því miður var ekki gengið eftir frekari svörum. Ekki var spurt hvort vera kynni að í lagi væri að ríkið annaðist smásölu ef það tryggði neytedum hagstæðara verð og meira vöruúrval en ella yrði. Og ekki var gengið á ráðherrann varðandi þá ábyrgð sem honum er sérstaklega trúað fyrir ..19. Október 2007
STÖNDUM VÖRÐ UM BARÁTTUFÓLK VERKALÝÐSINS
Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur birt árlega skýrslu sína um mannréttindabrot og ofsóknir á hendur verkalýðshreyfingunni í heiminum. Skýrslan tekur til 138 landa og kemur í ljós að verkalýðshreyfingin og forsvarsfólk hennar sætir sífellt meiri ofsóknum ár frá ári. Þannig voru 115 baráttumenn verkalýðsfélaga myrtir á árinu 2005 en 144 á árinu 2006. Verst er ástandið í Kolombíu. Stjórnvöld þar í landi staðhæfa að ástandið fari batnandi. „Það er lygi“ segir í skýrslu ITUC. Á síðasta ári hafi 78 baráttumenn verkalýðshreyfingarinnar í landinu verið myrtir, átta fleiri en árið áður. Þá eru ótaldir allir þeir sem sættu ofsóknum og hótunum eða „hurfu“ sporlaust. Í öðrum löndum er ástandið víða einnig slæmt og eru þar einkum nefnd lönd í Asíu og Afríku ... Á meðal þróaðra iðnríkja eru nokkur lönd nefnd sérstaklega hvað varðar tilraunir til að hefta starf vekalýðsfélaga með því að setja...10. Október 2007
ÞAKKIR TIL FRÉTTABLAÐISNS FYRIR UPPLÝSANDI VIÐTAL

Athyglisvert viðtal birtist í Fréttablaðinu 6. október síðastliðinn við þá Bjarna Ármannsson, stjórnarformann Reykjavik Energy Invest og Hannes Smárason, forstjóra FL Group, sem jafnframt var stjórnarformaður Geysir Green Energy. ( Reynadar veit enginn hver er stjórnarformaður hvar því efasemdir eru um lögmæti ákvarðana um samruna fyrirtækjanna og þar af leiðandi stöðu þessara manna.) Þeir Bjarni og Ármann segja í Fréttablaðs-viðtalinu að sameining félaganna hafi verið bæði skynsamleg og "rosalega spennandi." Öllum er nú ljóst hvers vegna fjárfestingarbröskurum þykir það vera "rosalega spennandi" að eignast íslensk orkufyrirtæki enda kemur fram að þeir hugsa nú ...
7. Október 2007
NÝLENDUSTEFNAN Í ORKUMÁLUM

...Þarna gætu Íslendingar látið gott af sér leiða. Við myndum að auki hafa af þessu mikinn hag. Hann væri fólginn í því að tengjast rannsóknum og koma að framkvæmdum víðs vegar um heim. Vísindamenn okkar fengju vinnu við slík verk og styrkur okkar ykist. Þetta yrði raunverulegur ávinningur fyrir íslenskt samfélag til langs tíma litið. Í þessu eru hagsmunir þjóðarinnar fólgnir.
Aðkoma fjármálamannanna gengur þvert á þetta. Hún miðar að því einu að skapa þeim hagnað og helst að ná auðlindum annarra undir sig. Þetta er ný-nýlendustefna. Hugmyndin er á sú að við verðum hinir nýju nýlenduherrar, nokkuð sem þó gæti snúist upp í andhverfu sína! Það sem er alvarlegra er svo hitt að þegar...
5. Október 2007
ÞJÓFNAÐUR ALDARINNAR

Eignatilfærslur frá almenningi yfir til fjármálamanna í tengslum við einkavæðingu ríkiseigna á undanförnum árum hafa verið tröllauknar og hafa margir þar makað krókinn, jafnvel orðið milljarðamæringar og vilja nú ráðslagast ekki einvörðungu með íslenskt atvinnulíf heldur þjóðfélagið í heild sinni... Fyrst var sjávarauðlindin einkavædd, þá aðskiljanlegar arðvænlegar stofnanir og starfsemi sem áður skiluðu miklum fjármunum í almannasjóði... Og nú stendur fyrir dyrum að afhenda fjármagnseigendum fallvötnin og orkuna í iðrum jarðar. Einkavæðing orkugeirans snýst nefnilega um þetta. Allt útrásartalið er blekking. Ef þeir eru svona óskaplega brilljant í orkumálum Bjarni Ármannsson, Hannes Smárason og
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












