Beint á leiðarkerfi vefsins

Samfélagsmál

31. Desember 2007

RÁÐHERRAR UNDIR ÁHRIFUM?


Eins og fram hefur komið færði bankinn ráðherrunum  í ríkisstjórninni vínflösku að gjöf. Skál kæru vinir. Takk fyrir hið liðna. Væntum  áfram góðs samstarfs. Ráðherrarnir hafa verið spurðir  álits á þessari gjöf Landsbankans til ríkisstjórnar Íslands.  Viðskiptaráðherra sagði gjöfina „óheppilega". Jóhanna  var ekki búin að „opna" en sagði að þetta hefði engin áhrif. Hefði kassi kannski verið áhrifameiri...

30. Desember 2007

KOMUGJÖLDUM BREYTT


...Með öðrum orðum, fréttin fjallar í reynd um breytta kostnaðarskiptingu innan rukkunarkerfis heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa. Börn og unglingar koma til með að fá ókeypis, það er gott. En það eru hins vegar aðrir sjúklingar sem verða látnir borga brúsann! Ekki er um að ræða breytingu innan skattakerfisins, nei breytingarnar eru takmarkaðar við sjúklingahópinn, tilfærslan er innan hans! Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðisráðherra, þykir það vera ósköp hóflegt  að borga 3700 krónur sem aðgangseyri að slysa- og bráðamóttöku og ekkert að því að hækka þau gjöld. Einu sinni var þetta ókeypis. Er það ekki þannig sem við viljum hafa það?

24. Desember 2007

BETLEHEM Í DAG: UM ÞAÐ AÐ VERA STÓR EÐA SMÁR


...Ofsóknir Ísraela á hendur Palestínumönnum - sem nú beinast hvað harkalegast að Gaza svæðinu - eru einmitt sérstaklega óhugnanlegar fyrir hve úthugsaðar þær eru og hve framkvæmdin er  skipuleg....Eina ósk á ég íslensku ríkisstjórninni til handa þegar hún leggst á bæn síðdegis og minnist fæðingar Jesús Krists; nefnilega að hún hugleiði að vestrænir ráðamenn - við erum jú í þeim klúbbi - standa nú gagnvart undirokuðu fólki í Palestínu í sporum Pontíusar Pílatusar sem fyrir tæpum tvö þúsund árum hafði líf Krists í hendi sér. Hvernig fara þeir með vald sitt? Ætla valdamenn samtímans að sýna siðferðilega stærð eða verður smæðin þeirra hlutskipti...

23. Desember 2007

FJÁRMÁLARÁÐHERRA OG MORGUNBLAÐIÐ GERA LÍTIÐ ÚR MISSKIPTINGU


Á Íslandi hefur efnaleg misskipting aukist hröðum skrefum á undanförnum árum. Rök má færa að því að félagslegra áhrifa sé þegar farið að gæta og að við stefnum í átt að samfélagi mismununar á mörgum sviðum þjóðlífsins. Ýmsir hafa varað við þessari þróun og hefur Stefán Ólafsson, prófessor, staðið þar framarlega í flokki. Í hópi stjórnenda Morgunblaðsins er einnig að finna menn - að minnsta kosti mann - sem tekið hafa undir þessi varnaðarorð. Þess vegna voru Staksteinar Morgunblaðsins sl. fimmtudag  að mörgu leyti stílbrot. Þar er tekið undir furðulegar og óábyrgar vangaveltur Árna M. Mathíesen, fjármálaráherra, þar sem hann gerir því skóna að nú hljóti að ...

21. Desember 2007

HVAÐAN KEMUR DRIFKRAFTURINN?

Sigurður Gísli Pálmason...Þetta tel ég vera hárrétt mat hjá Sigurði Gísla Pálmasyni. Drifkrafturinn í íslensku samfélagi verður ekki skýrður með skírskotun til efnalegra gæða. Það er hið huglæga í tilverunni sem ræður úrslitum. Ég bjó um skeið í Edinborg í Skotlandi. Falleg borg, gott fólk og kröftugt. Í Edinborg bjó helmingi fleira fólk en á Íslandi öllu. Þó var Edinborg minni en Reykjavík. Íslendingum fer jafnt og þétt fjölgandi. Hvort skyldi eiga fyrir okkur að liggja, að stækka eða smækka? Þessar spurningar vöknuðu í huga mér þegar ég las viðtalið við Sigurð Gísla Pálmason, mann sem hefur peninga handa á milli en hefur ekki misst sjónar á mikilvægi hinnar  huglægu og menningarlegu víddar tilverunnar...

20. Desember 2007

TALAÐ AF ÞEKKINGU UM HEILBRIGÐISMÁL


...Ábendingar Rúnars Vilhjálmssonar í grein hans í Morgunblaðinu eiga heilmikið sammerkt með því sem fram kom hjá hinum virta fræðimanni Göran Dahlgren, margverðlaunuðum ráðgjafa um heilbrigðismál, í fyrirlestri sem hann á sínum tíma flutti hér á landi um heilbrigðismál á vegum BSRB. ..Annan greinarhöfund um heilbrigðismál langar mig til að nefna en það er Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðing á sviði heilbrigðisstjórnunar. Hann hrakti þá bábilju í grein sem hann birti í Morgunblaðinu 16. febrúar sl. að íslenska heilbrigðiskerfið væri óhagkvæmt:

17. Desember 2007

AUÐMENN ÍSLANDS OG ÁHERSLUR VERKALÝÐSHREYFINGAR


Í Morgunblaðinu hafa að undanförnu birst greinar eftir forsvarsfólk úr röðum BSRB sem hafa varað við vaxandi misskiptingu í íslensku samfélagi. Stundum hefur verið talað um að tvær eða fleiri þjóðir í landinu. Um helgina birtust tvær skýrar birtingarmyndir þessa. Annars vegar mátti finna hve gjörsamlega jarðsambandslaust þotuliðið úr auðkýfingastétt Íslands er orðið. Hins vegar birtist athyglisverð úttekt í Hjálmi, málgagni verkalýðsfélagsins Hlífar um launaþróun fiskverkafólks og alþingismanna sem er vísbending um vaxandi kjaragliðnun í þjóðfélaginu. Nánar að þessu tvennu...

25. Nóvember 2007

FYRIR FÓLKIÐ EÐA FJÁRFESTANA?

Birtist í Fréttablaðinu 24.11. 2007
Um miðja næstu viku fer fram á Alþingi önnur umræða um fjárlög, nánar tiltekið næstkomandi fimmtudag. Þá kemur í ljós að hvaða marki fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar verður breytt frá upphaflegum drögum. Ætla má að ríkisstjórnin komi saman til fundar nú yfir helgina til að ráða ráðum sínum um það efni. Mun hún hlusta á varnaðarorð Magnúsar Péturssonar, forstjóra Landspítala háskólasjúkrahúss?

21. Nóvember 2007

SKAMMSÝNI LÆKNAFÉLAGSINS


...Ef fram vindur sem horfir mun hið sama gerast á Íslandi og er að gerast víða í Evrópu. Einkapraksís-læknar taka sig saman, mynda samstæður, sem smám saman verða að einkareknum sjúkrahúsum. Sérstaða lækna sem starfsmanna fer síðan dvínandi, hagsmunir þeirra víkja fyrir hagsmunum fjárfestanna, sem reka hin nýju sjúkrahús. Þá kemur að því að bisnessmennirnir með læknagráðu, sem nú spóka sig á hvítum sloppum, fullir sjálfsöryggis, byrja að skilja harmagrát ræstitæknisins, sem var fluttur frá ríki yfir til verktakafyrirtækisins ISS. Getur verið að Læknafélag Íslands hafi ekki ...

9. Nóvember 2007

ER AÐFÖRIN AÐ HEILBRIGÐISKERFINU AÐ HEFJAST?


...Í fyrsta lagi hefur Pétri H. Blöndal, alþingismanni og sérstökum talsmanni einkavæðingar almannaþjónustunnar, verið falið að endurskipuleggja almannatryggingakerfið. Hann hefur lýst því yfir að hann vilji einfalda það kerfi. Gott og vel. Að því marki sem sú einföldun verður til að minnka álögur á sjúklinga, er það gott. En getur verið að þarna leynist einnig áform um að fara að rukka fólk sem leggst inn á sjúkrahús? ...Í öðru lagi segir okkur Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra að til standi að koma á einhvers konar bisnisskerfi í heilbrigðisþjónustunni. Allt eigi þar að ganga kaupum og sölum. Innkaupastofnun verði sett á laggirnar. Ósköp meinlaust segir ráðherra. Landspítalinn hafi verið að biðja um þetta. Ekki mikil róttækni í þessu. Við séum bara að gera eins og Svíar. Þetta segir heilbrigðisráðherra á forsíðu Fréttablaðsins í gær. Vandinn er hins vegar sá að...

3. Nóvember 2007

GEYSIR TILHEYRIR ÞJÓÐINNI... ENNÞÁ


Náttúruauðlindir Íslands tilheyra þjóðinni. Hið sama á við um náttúruperlur landsins, fossana, hverasvæðin, jöklana, fjöllin og firnindin. Einstaklingar hafa þó í tímans rás slegið eign sinni á auðlindir og náttúruperlur. Dæmin hræða. Kvótakerfið í sjávarútvegi hefur verið notað til þess að veita milljörðum á milljarða ofan niður í vasa tiltekinna aðila á kostnað sjómanna, fiskverkafólks og heilla byggðarlaga. Það er dapurlegt til þess að hugsa að ríkisstjórnir sem farið hafa með völdin á Íslandi undanfarin ár skuli hafa gert allt sem í þeirra valdi hefur staðið til þess að styrkja einkaeignarréttinn í sessi í stað þess...

20. Október 2007

SJÁLFSTÆÐIS/SAMFYLKINGARFLOKKUR Á FRJÁLSHYGGJU-STUTTBUXUM

...Kannski er Guðlaugi Þór vorkunn því hann var sjálfur áður fyrsti flutningsmaður sama frumvarps. Nú er hann hins vegar ekki bara á sínum frjálshyggjustuttbuxum heldur æðsti ábyrgðarmaður heilbrigðismála þjóðarinnar. Auðvitað má hann vita að ummæli hans eru nú skoðuð í því ljósi. Ráðherra var inntur eftir rökum fyrir afstöðu sinni. Rökin úr heilbrigðisráðuneytinu voru þessi: Ríkið á ekki að standa í smásöluverslun. Þetta eru lúnar hugmyndafræðilegar staðhæfingar en ekki rök, hvað þá þau skynsemisrök sem margir höfðu eflaust vonast til að heyra úr munni nýbakaðs ráðherra. Því miður var ekki gengið eftir frekari svörum. Ekki var spurt hvort vera kynni að í lagi væri að ríkið annaðist smásölu ef það tryggði neytedum hagstæðara verð og meira vöruúrval en ella yrði. Og ekki var gengið á ráðherrann varðandi þá ábyrgð sem honum er sérstaklega trúað fyrir ..

19. Október 2007

STÖNDUM VÖRÐ UM BARÁTTUFÓLK VERKALÝÐSINS

Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur birt árlega skýrslu sína um mannréttindabrot og ofsóknir á hendur verkalýðshreyfingunni í heiminum. Skýrslan tekur til 138 landa og kemur í ljós að verkalýðshreyfingin og forsvarsfólk hennar sætir sífellt meiri ofsóknum ár frá ári. Þannig voru 115 baráttumenn verkalýðsfélaga myrtir á árinu 2005 en 144 á árinu 2006. Verst er ástandið í Kolombíu. Stjórnvöld þar í landi staðhæfa að ástandið fari batnandi. „Það er lygi“ segir í skýrslu ITUC. Á síðasta ári hafi  78 baráttumenn verkalýðshreyfingarinnar í landinu verið myrtir, átta fleiri en árið áður. Þá eru ótaldir allir þeir sem sættu ofsóknum og hótunum eða „hurfu“ sporlaust. Í öðrum löndum er ástandið víða einnig slæmt og eru þar einkum nefnd lönd í Asíu og Afríku ...  Á meðal þróaðra iðnríkja eru nokkur lönd nefnd sérstaklega hvað varðar tilraunir til að hefta starf vekalýðsfélaga með því að setja...

10. Október 2007

ÞAKKIR TIL FRÉTTABLAÐISNS FYRIR UPPLÝSANDI VIÐTAL


Athyglisvert viðtal birtist í Fréttablaðinu 6. október síðastliðinn við þá Bjarna Ármannsson, stjórnarformann Reykjavik Energy Invest og Hannes Smárason, forstjóra FL Group, sem jafnframt var stjórnarformaður Geysir Green Energy. ( Reynadar veit enginn hver er stjórnarformaður hvar því efasemdir eru um lögmæti ákvarðana um samruna fyrirtækjanna og þar af leiðandi stöðu þessara manna.) Þeir Bjarni og Ármann segja í Fréttablaðs-viðtalinu að sameining félaganna hafi verið bæði skynsamleg og "rosalega spennandi."  Öllum er nú ljóst hvers vegna fjárfestingarbröskurum þykir það vera "rosalega spennandi" að eignast íslensk orkufyrirtæki enda kemur fram að þeir hugsa nú ...

7. Október 2007

NÝLENDUSTEFNAN Í ORKUMÁLUM


...Þarna gætu Íslendingar látið gott af sér leiða. Við myndum að auki hafa af þessu mikinn hag. Hann væri fólginn í því að tengjast rannsóknum og koma að framkvæmdum víðs vegar um heim. Vísindamenn okkar fengju vinnu við slík verk og styrkur okkar ykist. Þetta yrði raunverulegur ávinningur fyrir íslenskt samfélag til langs tíma litið. Í þessu eru hagsmunir þjóðarinnar fólgnir.
Aðkoma fjármálamannanna gengur þvert á þetta. Hún miðar að því einu að skapa þeim hagnað og helst að ná auðlindum annarra undir sig. Þetta er ný-nýlendustefna. Hugmyndin er á sú að við verðum hinir nýju nýlenduherrar, nokkuð sem þó gæti snúist upp í andhverfu sína! Það sem er alvarlegra er svo hitt að þegar...

5. Október 2007

ÞJÓFNAÐUR ALDARINNAR


Eignatilfærslur frá almenningi yfir til fjármálamanna í tengslum við einkavæðingu ríkiseigna á undanförnum árum hafa verið tröllauknar og hafa margir þar makað krókinn, jafnvel orðið milljarðamæringar og vilja nú ráðslagast ekki einvörðungu með íslenskt atvinnulíf heldur þjóðfélagið í heild sinni... Fyrst var sjávarauðlindin einkavædd, þá aðskiljanlegar arðvænlegar stofnanir og starfsemi sem áður skiluðu miklum fjármunum í almannasjóði... Og nú stendur fyrir dyrum að afhenda fjármagnseigendum fallvötnin og orkuna í iðrum jarðar. Einkavæðing orkugeirans snýst nefnilega um þetta. Allt útrásartalið er blekking. Ef þeir eru svona óskaplega brilljant í orkumálum Bjarni Ármannsson, Hannes Smárason og Ólafur Jóhann og félagar hans hjá Goldman Sachs, hvers vegna hella þeir sér ekki í verkin á eigin forsendum og með eigin peninga í eigin fyrirtækjum? Nei, sína peninga setja þeir aðeins inn í hin nýju fyrirtæki vegna teninginnar þeirra við opinberu veitufyrirtækin sem hafa aðgang að náttúruauðlindunum til að margfalda þá að verðgildi. Þetta gerist svona...

20. September 2007

ÍSLAND Í DAG EÐA ICELAND TODAY?


Á Íslandi í dag dásama menn útrásina svokölluðu og hrópa ferfalt húrra fyrir auðmönnum sem gefa milljarð „úr eigin vasa“ í Háskólann í Reykjavík.  Voru það ekki annars eitt þúsund milljónir sem Róbert Wessman var að láta af hendi rakna? Menntamálaráðherra segir að þetta sé framtíðin og rektor Háskóla Íslands tekur undir.  Sem bakrödd í þessum kór, sem nú syngur óð til auðmagnsins, birtist síðan bankastjóri Landsbanka Íslands á síðu 13 í mánudags-Mogga og segir okkur að það „kunni að reynast óhjákvæmilegt fyrir íslensk fjármálafyrirtæki að taka upp ensku sem vinnumál í höfuðstöðvum sínum á Íslandi“. Þannig gætu þau „ráðið útlendinga til starfa við ýmsa bakvinnslu…“ Hátt atvinnustig á Íslandi valdi bönkunum nefnilega erfiðleikum við að ráða hæfa Íslendinga til starfa.

9. September 2007

EFNT TIL UMRÆÐU UM EINKAREKSTUR Í HEILBRIGÐISKERFINU


...Í Viðskiptablaðinu hafa birst nokkrar greinar um þetta efni. Ég nefni tvær. Önnur er eftir Kenneth Rogoff. Hin er eftir Auðbjörgu Ólafsdóttur, annan af tveimur fréttastjórum Viðskiptablaðsins. Ég fagna þessari umræðu og hvet til framhalds. Æskilegt væri þó að málin yrðu skoðuð frá sem flestum sjónarhornum... Í þriðja lagi er mikilvægt að fá svör við eftirfarandi: Samkvæmt hvaða reglum eiga skattfínanseraðar einkastofur eða einkaspítalar að starfa? Mega þeir keppa á markaðsforsendum, með því að bjóða mismunandi verðlag fyrir þjónustu sína (einsog sumir læknar hafa krafist) eða verður ...

2. September 2007

HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Á ÁHORFENDABEKK

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, birtist á sjónvapsskjá þegar RÚV kynnti "háar hugmyndir" um byggingu risavaxinnar einkarekinnar heilbrigðisstofnunar í Garðabæ. Lýsingin á framkvæmdinni var lýsing á einkareknu sjúkrahúsi. Ég fekk ekki annað skilið. Hver skyldi svo eiga að fjármagna fyrirbærið? Við. Skattborgarar þessa lands eiga að borga. En hver ákveður hvað við komum til með að fjármagna? Við eða fulltrúar okkar? Nei, það gera verktakar. Þeir ákveða. Í áhorfendastúkunni situr Guðlaugur heilbrigðisráðherra. Hann var óskaplega ánægður í sjónvarpsfréttum. Sagði að í þessu fælust mikil tækifæri. Hann talaði um viðskiptavini. Það eru þeir sem við hingað til höfum kallað kransæða- og krabbameinssjúklinga. Nú þurfa þeir að ...

14. Júní 2007

GLAÐI SAMGÖNGURÁÐHERRANN

Birtist í Fréttablaðinu 13. júní 2007
Þetta er nú aldeilis stórkostlegt. Kristján Möller getur með öðrum orðum ákveðið í samráði við einstaka verktaka að fela þeim vegaframkvæmdir, jafnvel umráð yfir vegasamgöngum án þess að spyrja kóng eða prest. Hann bara ákveður þetta. En það er ekki nóg með það. Hann getur veitt fyrirtækjum heimild til að taka síðan gjald af vegfarendum til að borga brúsann. Eða halda menn að hér séu á ferðinni góðgerðastofnanir? Það þarf eftir sem áður að greiða fyrir...

23. Mars 2007

TIL MARKS UM SAMKENND ÍSLENDINGA AÐ ÞEIR HAFNI EINKVÆÐINGU HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNAR


Í könnun sem Háskóli Íslands, Lýðheilsustöð og Landlæknisembættið stóðu að, kemur í ljós að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna vill að heilbrigðisþjónustan sé hjá hinu opinbera. Í forsíðufrétt Morgunblaðsins um könnunina segir "MIKILL meirihluti landsmanna vill að hið opinbera komi fyrst og fremst að rekstri sjúkrahúsa (80,7%) og heilsugæslustöðva (76,2%) í stað þess að slíkar stofnanir séu reknar fyrst og fremst af einkaaðilum ..." Þetta eru stórmerkar niðurstöður og vil ég í því sambandi vísa í athugun sem gerð var á vegum BSRB fyrir nokkrum árum. Þar komu svipaðar vísbendingar fram, nefnilega að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna vilji opinbert kerfi og hafni einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar. Í könnun BSRB sem Félagsvísindastofnun HÍ framkvæmdi kom fram að hátt hlutfall þjóðarinnar var því fylgjandi að borga hærri skatta ef það mætti verða til þess að bæta heilbrigðisþjónustuna ...

6. Mars 2007

FITAN OG FÉLAGIÐ


... Þorgerður Katrín var óendanlega glöð við athöfnina í gær. Langþráðu takmarki var náð. Hún sagði að bjartir tímar væru framundan fyrir hið unga hlutafélag. Nú yrðu aldeilis hendur látnar standa fram úr ermum. Hvernig Ríkisútvarpið á að bera sig að í þessari nýju spennandi framfarasókn beið nýs stjórnarformanns að svara ... Hann sagði að það vildi gerast hjá stofnunum sem hefðu “ekki tök á” að hagræða að safnast vildi fyrir “fita”. Þessa fitu þyrfti “félagið” að skera af. Eflaust má hagræða [en] ... Það setur hins vegar að mér óhug þegar ég heyri hið nýja tungutak. Fólk sem ekki hugnast forstjórum kallast “fita”...

25. Febrúar 2007

ÚTRÝMUM FÁTÆKT Á ÍSLANDI !

Birtist í Morgunblaðinu 24.02.07.
...Á Íslandi hefur það viðhorf verið ríkjandi að fátækt eigi ekki að fyrirfinnast í okkar samfélagi – allur þorri þjóðarinnar hefur eindregið verið þeirrar skoðunar. Þess vegna vekur það jafnan mikla athygli þegar því er haldið fram að fátækt fari vaxandi. Ekki síst þykir það alvarlegt þegar á hinn bóginn er haldið á lofti fyrirvaralausum staðhæfingum um almenna kaupmáttaraukningu og bætt lífskjör. Hvað er hið rétta í þessu efni? Ég tel mjög brýnt að félagsvísindamenn kortleggi samfélagið hvað þetta varðar og vil koma á framfæri hugmynd um eina nálgun í rannsóknum af þessu tagi. Spurt verði: Hvort er ...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Samfélagsmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta