Samfélagsmál
26. Maí 2006
FORSÆTISRÁÐHERRA OG LITLA STÚLKAN MEÐ ELDSPÝTURNAR

Í gær fjallaði ég hér á síðunni um verðlaunaveitingar Halldórs Ásgrímssonar til fyrirtækja sem veita fátæku fólki styrki og sýna þannig miskunnsemi. Umfjöllunin hefur fengið sterk viðbrögð frá fólki sem heyrt hafði í útvarpi eða lesið í blöðum um þakkarskjölin sem forsætisráðherra afhenti og fengið sömu tilfinningu fyrir framgöngu ráðherrans og ég. Einn lesandi sendi mér úrklippu úr Mogga þar sem skilja mátti að það væri Halldór sem væri að veita viðurkenningu fyrir góðgerðastarf fyrirtækja en ekki Fjölskylduhjálpin, sbr. eftirfarandi...
25. Maí 2006
ÖLMUSUFORSÆTISRÁÐHERRANN
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, og formaður Framsóknarflokksins, kom fram í fréttum í vikunni í tilefni þess að Fjölskylduhjálpin hafði fengið hann til að afhenda 50 fyrirtækjum sérstakt viðurkenningarskjal fyrir að aðstoða fátækt fólk með peninga- og matargjöfum. Þessi athöfn fór fram í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík. Forsætisráðherra lýsti mikilli ánægju yfir þessari athöfn. Halldór Ásgrímsson sagði að í þjóðfélaginu færi skilningur nú vaxandi á því, á meðal ríka fólksins, að því beri að veita hinum snauðu ölmusu! Svona eins og í Ameríku þar sem góðu auðjöfrarnir gefa fátæklingunum af örlæti sínu. Fjölskylduhjálpin úthlutar matvælum, fatnaði, ungbarnavörum o.fl. til þurfandi fólks, einstæðra mæðra, forsjárlausra feðra, öryrkja, eldri borgara og efnalítilla fjölskyldna. Þetta er vissulega gott framtak. En hvað með þá sem búa til fátæktina? Þar vísa ég í...21. Maí 2006
RAUÐI KROSSINN FJALLAR UM FÁTÆKT - ER SAMFÉLAGSLÍMIÐ AÐ GEFA SIG?
...Nokkrir aðilar höfðu verið fengnir til að bregðast við skýrslu Rauða krossins. Þeir nálguðust viðfangsefnið frá mismunandi sjónarhólum en rauður þráður í máli þeirra var fátæktin, mismununin og einagrunin. Enn eitt. Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, sagði einkennandi að fátækt fólk sem ætti í mestum erfiðelikum "byggi við veik félagsleg tengsl". Það væri með öðrum orðum eitt á báti. Þetta staðfestu flestir fyrirlesara. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, reið á vaðið með frábæru erindi, sem bar heitið, Sá veit gjörst hvar skórinn kreppir sem hefur hann á fæti...Bragi sagði það vera umhugsunarefni, að hér værum við með niðurstöður úr könnun mjög sambærilegar niðurstöðum fyrir rúmum áratug og ekkert hefði breyst. Þetta vekti siðferðilegar spurningar: Lítur þjóðfélagið á fátækt sem hlutskipti þessara hópa, "örlög sem ekki verði umflúin og því engin ástæða til að bregðast við?" ...Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, rak lestina...Hann kvað það vera daglegt brauð að hann hitti öryrkja sem brotnuðu saman yfir eymd sinni. Hann sagði að við værum að nálgast úrslitastundu: "Rotnandi burðarbitar samfélagsins eru að gefa sig." Hinir fátæku væru að gefast upp á samfélagi sínu. Búast mætti við andfélagslegri hegðun í vaxandi mæli. Þetta yrðu "ekki kurteisleg samskipti" að hætti verkalýðshreyfingar, "sem bæði um lögregluleyfi til að fá að mótmæla"...18. Maí 2006
LANDSPÍTALI VINNUR TIL VERÐLAUNA OG LÝSIR SÍÐAN YFIR NEYÐARÁSTANDI
Hvað á maður eiginlega að halda eftir að Landspítalinn Háskólasjúkrahús fær lof og prís frá ríkisstjórninni fyrir afburða góða frammistöðu einn daginn en fáeinum dögum síðar er lýst yfir neyðarástandi á sömu stofnun? Enn mátti heyra óminn af hástemmdum yfirlýsingum Sivjar Friðleifsdóttur, heilbrigðisráðherra, þar sem hún lýsti því yfir að spítalinn hefði náð stórkostlegum árangri, átti vart orð til að lýsa hrifningu sinni yfir ráðdeildarsemi forsvarsmanna sjúkrahússins, þegar hún mætti að nýju í fjölmiðlana til að segja þjóðinni að sem betur fer væri til neyðaráætlun fyrir sjúkrahúsið og hafi nú verið gripið til hennar! Reksturinn væri með öðrum orðum kominn í slíkar ógöngur að grípa þyrfti til neyðarúrræða. Ekki ætla ég að gera lítið úr árangri stjórnenda sjúkrahússins í bókhaldskúnstum og hagræðingu við erfiðar aðstæður. Neyðarástandið á Landspítalanum er ...Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












