Samfélagsmál
29. Júlí 2005
ÍSLENSK MÚNKHÁSENSTJÓRNMÁL
Öll rámar okkur eitthvað í hann Múnkhásen og sögurnar sem af honum voru sagðar, til dæmis þegar hann kvaðst hafa dregið sjálfan sig upp úr síki á hárinu. Gott ef asninn hans fylgdi ekki með knapa sínum við þessa dæmalausu björgun. Enginn stóð Múnkhásen framar í sjálfsblekkingu – nema ef vera skyldi að nú í byrjun 21. aldarinnar hafi Múnkhásen hinn þýski eignast verðugan keppinaut hér uppi á Íslandi. Að sjálfsögðu er það ríkisstjórnin okkar sem ég hef hér í huga; að hún keppi nú við Múnkhásen um hvor hafi gengið lengra í sjálfsblekkingu, hún eða Múnkhásen. Tilraunir íslensku ríkisstjórnarinnar við Múnkhásenmetið er margþættar og tengjast sölu Símans. Í fyrsta lagi að reyna að fá þjóðina til að trúa því að...
26. Júlí 2005
GOTT FRAMTAK GEGN ÁFENGISAUGLÝSINGUM

Nú veit ég ekki hvort allir áfengissalar eru svo vesælir ad brjóta landslögin. Sennilega er svo komið að undantekningarnar eru þeir sem virða landslög. Þeir ættu að njóta viðskipta okkar, hinir ekki. Auglýsingin hér að ofan fer nú víða um netið og er til marks um viðleitni þeirra sem vilja ekki láta óprúttna menn grafa undan landslögum og viðleitni samfélagsins til ad draga úr áfengisneyslu. Ég hvet alla til ad gaumgæfa þennan boðskap og senda þetta sem víðast.
22. Júlí 2005
VARNAÐARORÐ FRÁ STARFSMANNI REYKJAVÍKURBORGAR
Fyrir fáeinum dögum skrifaði ég grein hér á síðuna um fyrirhugaða sölu á Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar og hafði þar uppi efasemdir og varnaðarorð. Í tvígang hafa lesendur, svipaðs sinnis og ég, skrifað mér um þetta efni og nokkrir hafa haft samband. Nú síðast skrifar mér "fimmtugur borgarstarfsmaður". Telur hann það vera hið mesta glapræði að selja miðstöðina og færir greinargóð rök fyrir sínu máli. Augljóst er að hann ...
Vélamiðstöðin hefur aldrei verið baggi á Reykjavíkurborg og af henni hefur alla tíð verið hagnaður sem runnið hefur í borgarsjóð. Þá veit ég að enda þótt Reykjavíkurborg hafi nú látið "eignina" í söluútboð er ekki þar með sagt að Reykjavíkurborg þurfi að taka hvaða tilboði sem er. Enn er á það að líta, að hér hafa nú skapast aðstæður á fjármálamarkaði þar sem samþjöppun hefur keyrt úr hófi fram, tíu til fimmtán einstaklingar eru að sölsa undir sig nánast allar verðmætar eignir þjóðarinnar. Allt þetta gefur tilefni til að Reykjavíkurborg endurskoði áform um sölu Vélamiðstöðvarinnar....
Vélamiðstöðin hefur aldrei verið baggi á Reykjavíkurborg og af henni hefur alla tíð verið hagnaður sem runnið hefur í borgarsjóð. Þá veit ég að enda þótt Reykjavíkurborg hafi nú látið "eignina" í söluútboð er ekki þar með sagt að Reykjavíkurborg þurfi að taka hvaða tilboði sem er. Enn er á það að líta, að hér hafa nú skapast aðstæður á fjármálamarkaði þar sem samþjöppun hefur keyrt úr hófi fram, tíu til fimmtán einstaklingar eru að sölsa undir sig nánast allar verðmætar eignir þjóðarinnar. Allt þetta gefur tilefni til að Reykjavíkurborg endurskoði áform um sölu Vélamiðstöðvarinnar....
16. Júlí 2005
ASÍ Á HÁLUM ÍS
Félagar mínir í ASÍ hafa gert sig seka um sömu afglöp og iðulega henda hagvísindaspekinga svokallaða: Þeir tala í hagfræðilegum alhæfingum þegar þeir hvetja til "aðhalds í ríkisfjármálum". Í yfirlýsingu ASÍ frá 6. þessa mánaðar, segir m.a.: " ASÍ, OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Seðlabanki Íslands, SA og aðrir aðilar sem láta sig efnahagsmál varða hafa ítrekað bent á nauðsyn þess að stórauka aðhald í ríkisfjármálum. Skattalækkanir ríkisstjórnarinnar kalla að auki á viðbótarniðurskurð eigi þær ekki að valda aukinni þenslu." Hér stillir Alþýðusambandið sér upp með aðilum sem leynt og ljóst róa að því að þrengja að opinberri þjónustu og þröngva henni með sveltistefnu út á markaðstorgið. Þegar þangað er komið hefur hins vegar enginn fyrrgreindra aðila lengur áhyggjur af þensluvaldandi eyðslu. Ekki man ég eftir því að heyra Alþjóðagjaldeyrissjóðinn gagnrýna ...
15. Júlí 2005
HVERNIG SVARAR AKUREYRARBÆR ÁRNA?
Árni Guðmundsson, æskulýðsfulltrúi íHafnarfirði, formaður starfsmannafélagsins þar og stjórnarmaður í BSRB, skrifar athyglisverðan pistil fyrir fáeinum dögum um "forvarnarstefnu" Akureyrarbæjar. Hann gerir að umræðuefni samning bæjarins við Ölgerðina Egil Skallagrímsson um framlög til forvarna í bæjarfélaginu, 10 krónur af söluandvirði hverrar gosflösku skal nú renna til forvarna.
Sá hængur er á segir Árni, "að á sama tíma ...
Sá hængur er á segir Árni, "að á sama tíma ...
14. Júlí 2005
VÆRI EKKI RÁÐ AÐ ENDURSKOÐA ÁFORM UM SÖLU SÍMANS?
Það er svolítið sérstakt að koma inn á skrifstofur embættis Sáttasemjara ríkisins þessa dagana. Ein skrifstofuálman hefur frá því í vor verið lögð undir sýslunarmenn einkavæðingar Símans. Securitas-verðir gæta þess að óviðkomandi aðilar kássist ekki upp á þessa sölumenn þjóðareignarinnar...Síminn er eins auðveld bráð og hugsast getur fyrir fjármálabraskara. Þetta er stofnun sem ætlunin er að selja skuldlausa; stofnun sem gefur eigendum sínum margra milljarða arð á ári hverju. Kaupandinn mun að öllum líkindum geta tekið lán út á þennan gullkálf og látið hann síðan borga sig upp á tiltölulega skömmum tíma. Þetta er þekkt aðferð.
En hvað er ríkisstjórnin að hugsa? Hún vílar ekki fyrir sér að...
En hvað er ríkisstjórnin að hugsa? Hún vílar ekki fyrir sér að...
5. Júlí 2005
HVERS VEGNA VG FAGNAR SÉRSTAKLEGA FRUMKVÆÐI SÚÐVÍKINGA

Bæjaryfirvöld í Súðavík hafa tekið af skarið og ákveðið að leikskólinn þar í bæ skuli verða gjaldfrjáls. Um þetta hefur verið fjallað í fjölmiðlum sem eðlilegt er og þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hefur sent Súðvíkingum hamingjuóskir af þessu tilefni. Hvers vegna skyldi þingflokkurinn gera það? Ástæðan er tvíþætt. Í fyrsta lagi sýna Súðvíkingar frumkvæði og stíga mikilvægt framfaraspor sem ástæða er til að félagslega þenkjandi fólk gleðjist yfir. Í öðru lagi er þetta mál VG sérlega hugleikið því ...
4. Júlí 2005
BREYTT VIÐHORF TIL LANDMÆLINGA?
Þetta er titillinn (að undanskildu spurningamerkinu) á grein Sigríðar Önnu Þórðardóttur, umhverfisráðherra, í júníútgáfu Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands. Sigríður Anna segir Landmælingar vinna þarft verk. Vandinn sé hins vegar sá að síðustu misseri hafi "komið til árekstra milli Landmælinga Íslands og einkafyrirtækja sem bjóða landupplýsingar". Sigríður Anna segir að opinberir aðilar eigi að tryggja ...En hér er rétt að spyrja hvort þetta sé endilega gott fyrir skattgreiðendur og neytendur. Ég held ekki. Með þessari stefnu eru vaxtarsprotar ríkisfyrirtækjanna einfaldlega skornir af og þeim gert ókleift að þróast á "dínamískan hátt": Framfaraandinn er drepinn niður. Þjónkun við...
3. Júlí 2005
VARASAMT AÐ SELJA VÉLAMIÐSTÖÐ
Vélamiðstöð Reykjavíkur var sett á laggirnar árið 1964. Fyrir réttum þremur árum, í júlíbyrjun 2002 var stofnunin gerð að hlutafélagi í eigu Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar. Síðastliðið haust var ákveðið að selja hlutafélagið og er nú svo komið að það hefur verið auglýst til sölu. Ekki tel ég þetta vera skynsamlegt, sérstaklega við þær aðstæður sem nú eru uppi. Ástæðan er sú að jafnvel þótt einhver samkeppni kunni að verða fyrst í stað (sem þó er ólíklegt) með leigu á tækjum til sorphirðu og annarra verkefna sem Vélamiðstöðin sinnir fyrir borgarbúa, þá er sú hætta mjög raunverulega fyrir hendi að...Reykjavíkurborg er ekki skuldbundin að taka neinu tilboði sem berst. Við væntum þess að borgin muni hafa langtímahagsmuni borgarbúa í huga og jafnframt þær sérstöku aðstæður sem skapast hafa í fjármálalífinu. Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












