Samfélagsmál
28. Október 2005
BREIÐ SAMSTAÐA UM VATNIÐ

Á þessari auglýsingu, sem hér má sjá, er vakin athygli á ráðstefnu, sem sjö félagasamtök og stofnanir efna til, um mikilvægi vatns og hvernig með það er farið. Viðfangsefnið er skoðað frá mörgum sjónarhólum og fulltrúar stjórnmálaflokkanna skýra framtíðarsýn þeirra á vatnið. Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt áratuginn 2005 til 2015 sem áratug vatnsins og hvetja alla, ríkisstjórnir, stofnanir, samtök og ein
27. Október 2005
TILBOÐIÐ Í LANDMÆLINGAR ER VÍTI TIL VARNAÐAR
Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, lýsti því yfir sl. vor að hún vildi fylgja þeirri stefnu að Landmælingar kæmu ekki til með að annast verkefni, sem væru hugsanlega í samkeppni við önnur fyrirtæki. Þetta er að mínum dómi fráleit stefna og hefur það komið mér spánskt fyrir sjónir að forstjóri Landmælinga, Magnús Guðmundsson, skuli taka undir þessi sjónarmið (sbr. eftirfarandi í viðtali við DV 19.október “... ekkert nema gott þegar einkaaðilar vilja taka við starfsemi hins opinbera.” Þessu er ég ósammála og tel þetta vera misráðna afstöðu af hálfu forstjórans og ráðherrans ekki síður. Því með þessari stefnu...
26. Október 2005
BLAIR TEKINN Í BÓLINU
Breska stjórnin með Blair forsætisráðherra í broddi fylkingar hefur heldur betur verið tekin í bólinu. Margoft hefur hún staðhæft að einkaframkvæmd innan samfélagsþjónustunnar hafi gefið góða raun og vitnað í skýrslur máli sínu til stuðnings. Stærsta verkalýðsfélag Bretlands, Unison, fékk fræðimenn til að fara í saumana á meintum sönnunargögnum ríkisstjórnarinnar. Í ljós kom að þar stendur ekki steinn yfir steini. Ríkisstjórnin hefur nefnilega vitnað í gögn sem bæði eru ófullkomin og blekkjandi...Forsvarsmaður Unison, Dave Prentis, segir úttekt verkalýðshreyfingarinnar vera hrikalegan áfellisdóm yfir ríkisstjórninni, og hnykkir á: "Við höfum alltaf haldið því fram að einkaframkvæmd væri hrein sóun á peningum skattgreiðenda…
24. Október 2005
BARÁTTUANDINN ÓLGAR
Dagurinn í dag var stór dagur í jafnréttisbaráttu kvenna. Tugþúsundirnar, sem tóku þátt í fjöldagöngunni í Reykjavík og fjölsóttir baráttufundir um allt land undirstrikuðu samstöðu kvenna og þann ásetning þeirra að ná árangri í baráttu sinni fyrir jafnrétti. Loftmyndin af mannhafinu í Reykjavík var mögnuð. Hún er táknræn og verður án efa stimpluð inn í Íslandssöguna. Stemningin mun lifa og glæða baráttuandann um ókomna tíð...Það var gaman að fylgjast með því hvernig þessi stemning geislaði inn í fjölmiðlana. Þar var margt ágætt sagt. Halla Gunnarsdóttir, ung baráttukona, minnti okkur á eðli réttindabaráttunnur. Það er ekkert gefið, sagði hún. Það þarf að berjast fyrir umbótum en gleymum því heldur ekki, að það þarf baráttu til að verja það sem áunnist hefur...15. Október 2005
UM DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIMILI ALDRAÐRA: RÉTT SKAL VERA RÉTT
...Ég velti því fyrir mér hvort Morgunblaðið ætlaði að láta hér við sitja. Svo reyndist ekki og létti mér við það að sjá prýðilegt viðtal við Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóra á Grund í Morgunblaðinu sl. föstdag. Hvers vegna skyldi mér hafa létt? Vegna þess að það er orðið leiðigjarnt að fjölmiðlar hirði ekki um sannleiksgildi yfirlýsinga talsmanna mismunandi hagsmunaaðila. Ég leyfi mér að fullyrða að iðulega er ráðist í ýmsar framkvæmdir og skipulagsbreytingar án þess að málavextir séu kannaðir - eða öllu heldur, vegna þess að málavextir hafa ekki verið kannaðir til hlítar. Menn halda einfaldlega með tilteknum málstað eða tilteknum málsaðilum. Það hlýtur að vera hlutverk fjölmiðla að leiða fram staðreyndir í hverju máli. Þess vegna þótti mér gott að þetta mál yrði ekki skilið eftir með mörgum spurningum ósvöruðum og jafnvel röngum og villandi yfirlýsingum. Rétt skal vera rétt! Ég hvet alla áhugamenn um þetta málefni að...
10. Október 2005
MUN MORGUNBLAÐIÐ SJÁ LJÓSIÐ?
...Ég vil fá að vita afdráttarlaust hvort standi til að starfrækja hér Ríkisútvarp eða markaðsvætt hlutafélag eins og mér skilst hinn nýi þulur á fréttastofu Sjónvarps hvetji til, við mikinn fögnuð í Valhöll. Ef þetta yrði ofan á, hvað þá? Gæti það gerst að gegn 365 Daga samsteypunni yrði mynduð ný samsteypa Símans, Morgunblaðsins og RÚV hf.? Ekki þætti mér þetta sérlega eftirsóknarvert. Jafnvel þótt samsteypurnar yrðu tvær, þá yrði það penigavaldið – hinir nýju valdsmenn – sem öllu réðu. Á Íslandi hefur peningavaldið stóreflst á allra síðustu árum. Fjölmiðlasamsteypur eru bara ein grein af þessum mikla auðvaldsmeið, samþjöppuðu peningaveldi sem vill sölsa allt samfélagið undir sig, fjölmiðlana, fjármálastofnanir, rafmagnið og veitukerfið, heilbrigðis- og menntakerfið. Það er til fær leið til að komast hjá hringamyndun. Og hún er þessi...
5. Október 2005
EINKAREKIN HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA DÝRARI OG RANGLÁTARI
Bæklingur BSRB með erindi sænska fræðimannsins Görans Dahlgrens, Opinber eða einkarekin heilbrigðisþjónusta?, hefur vakið verðskuldaða athygli. Í bæklingnum er á skýran og fagmannlegan hátt fjallað um kosti og galla mismunandi rekstrarfyrirkomulags i heilbrigðisþjónustunni. Niðurstöður Dahlgrens eru mjög afdráttarlausar og á þá lund að einkarekin heilbrigðisþjónusta sé dýrari fyrir skattborgarann og óhagkvæmari fyrir samfélagið í heild sinni en heilbrigðisþjónusta rekin af opinberum aðilum. Dahlgren segir ekki vafa leika á því að einkarekstur aukin á mismunun og komi sérstaklega í koll tekjulágu fólki. Niðurstöður sínar styður Dahlgren með rannsóknum og óvéfengjanlegum staðreyndum.Dahlgren starfar nú sem gestaprófessor við háskólann í Liverpool í Englandi og er jafnframt ráðgjafi heilbrigðisráðherra víða um heim. Í formála að fyrrnefndum bæklingi BSRB, segir m.a.um þennan virta fræðimann...
2. Október 2005
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA VERÐI SKIPULÖGÐ AF ÞEKKINGU OG REYNSLU
Birtist í Morgunblaðinu 01.10.05
Á vegum ríkisstjórnarinnar fer nú fram stefnumótunarvinna um framtíð heilbrigðisþjónustunnar. Innan heilbrigðiskerfisins er einnig stöðug gerjun og má segja að þar sé allt á stöðugri hreyfingu. Umræðan um heilbrigðisþjónustuna, hér á landi sem annars staðar, er mjög hagsmunatengd, enda eru heilbrigðismál einn stærsti útgjaldaliður hverrar þjóðar. Þeir sem vilja hagnast á heilbrigðisþjónustunni, bæði fjármálamenn og ýmsar heilbrigðisstéttir, þrýsta mjög á um að hún verði markaðsvædd. Hafa þessir aðilar haft talsverðan árangur af erfiði sínu og hefur heilbrigðisþjónustan smám saman verið að þokast inn á markaðstorgið.
Á vegum ríkisstjórnarinnar fer nú fram stefnumótunarvinna um framtíð heilbrigðisþjónustunnar. Innan heilbrigðiskerfisins er einnig stöðug gerjun og má segja að þar sé allt á stöðugri hreyfingu. Umræðan um heilbrigðisþjónustuna, hér á landi sem annars staðar, er mjög hagsmunatengd, enda eru heilbrigðismál einn stærsti útgjaldaliður hverrar þjóðar. Þeir sem vilja hagnast á heilbrigðisþjónustunni, bæði fjármálamenn og ýmsar heilbrigðisstéttir, þrýsta mjög á um að hún verði markaðsvædd. Hafa þessir aðilar haft talsverðan árangur af erfiði sínu og hefur heilbrigðisþjónustan smám saman verið að þokast inn á markaðstorgið.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












