Samfélagsmál
31. Október 2004
BSRB og Evrópuumræðan
Birtist í Morgunblaðinu 28.10.04.
Í síðustu viku var hér á landi staddur John Monks, forsvarsmaður breska Alþýðusambandsins en hann er jafnframt forseti ETUC (European Trade Union Confederation), Evrópusambands verkalýðsfélaga. Ég átti ásamt félögum mínum í BSRB og ASÍ góðan viðræðufund með honum. Þar sagði hann að sitt mat á þessari tilskipun væri að hún væri grafalvarleg fyrir velferðarsamfélagið og verkalýðshreyfinguna. Hann sagði að sér hefði komið á óvart hve fljótt tilskipunin hefði runnið í gegnum framkvæmdastjórn ESB. Framundan væri umræða í Evrópuþinginu í nóvember og síðan kæmi málið til kasta Ráðherraráðsins í vor, í mars eða apríl. Hvatti hann til kröftugrar umræðu um málið...
Í síðustu viku var hér á landi staddur John Monks, forsvarsmaður breska Alþýðusambandsins en hann er jafnframt forseti ETUC (European Trade Union Confederation), Evrópusambands verkalýðsfélaga. Ég átti ásamt félögum mínum í BSRB og ASÍ góðan viðræðufund með honum. Þar sagði hann að sitt mat á þessari tilskipun væri að hún væri grafalvarleg fyrir velferðarsamfélagið og verkalýðshreyfinguna. Hann sagði að sér hefði komið á óvart hve fljótt tilskipunin hefði runnið í gegnum framkvæmdastjórn ESB. Framundan væri umræða í Evrópuþinginu í nóvember og síðan kæmi málið til kasta Ráðherraráðsins í vor, í mars eða apríl. Hvatti hann til kröftugrar umræðu um málið...
27. Október 2004
Áhugaverður fundur BSRB um átakamál í Evrópusambandinu

Það er samdóma álit forsvarsmanna verkalýðshreyfingarinar að Þjónustutilskipun Evrópusambandsins, sem nú er í smíðum, getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir velferðarþjónustuna í Evrópusambandinu og á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, þar með á Íslandi. BSRB boðar á föstudag til fundar um þessa tilskipun með tveimur hlestu forystukonum EPSU, Samtaka starfsfólks í almannaþjónustu á hinu Evrópska efnahagssvæði. Önnur kvennnanna, Carola Fischbach-Pyttel, er framkvæmdastjóri EPSU, hin, Anne-Marie Perret, er varaformaður samtakanna.
Með Þjónustutilskipuninni verður...
26. Október 2004
Nýtt braggahverfi?
Sveinn Aðalsteinsson skrifar athyglisverða grein hér á heimasíðuna í dag. Hann færir okkur þær fréttir að á leðinni til landsins séu 1100 braggar, 900 frá Ungverjalandi og 200 frá Houston í Texas. Getur þetta virkilega verið rétt? Eitthvað minnir þetta á Kreppuna á fyrri hluta síðustu aldar nema hvað nú eru braggarnir tákngervingar atvinnustefnu þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur. Atvinnuleysi á Austurlandi er nú svipað og fyrir stóriðjuátak Framsóknarflokksins en inn hafa verið fluttir mörg hundruð fátækir verkamenn sem Alcoa og undirverktakar níðast á með skipulögðum hætti. Og nú eru braggarnir á leðinni til landsins...
18. Október 2004
Kröftug sveitarstjórnarráðstefna VG
...Einn fundarmanna hafði á orði að ólíkt væri komið fyrir sveitarfélögum annars vegar og fjármálafyrirtækjum hins vegar. Sveitarfélgin bráðvantaði um 5 milljarða til að rétta sig af en það væri minni upphæð en bankarnir hver um sig sýndi í hagnað á hálfu ári. Fyrir fáeinum dögum kom fram í fréttum að greiningardeild Íslandsbanka gerði ráð fyrir að árshagnaður fjármálafyrirtækja á þessu ári verði hátt í 70 milljarðar króna. Bankarnir mala gullið, sem nú streymir til þeirra úr margvíslegu braski heima og heiman. Sveitarfélögin sem annast margvíslega grunnþjónustu, sem er lífsnauðsynleg fyrir einstak linga, fjölskyldur og fyrirtæki, berjast hins vegar í bökkum. Er þetta ekki eitthvað öfugsnúið...?
7. Október 2004
Heimilið á að vera helgur reitur
...Bréfið frá Lögheimtunni var ekki langt en þar var skýrt kveðið að orði. Þar sagði, "Er yður hér með gert að rýma íbúðina innan 7 daga. Ef þér hafið ekki rýmt íbúðina fyrir þann tíma verður leitað atbeina dómstóla um útburð." Ég skal játa að á lífsleiðinni hef ég stundum skuldað hærri upphæðir en þessi hjón. En aldrei hef ég staðið frammi fyrir því að vera hótað að verða sviptur heimili mínu með aðstoð dómsvalds. Ég held að maður þurfi að upplifa þetta sjálfur til að skilja tilfinninguna til fulls. En er þetta ekki farið að minna óþægilega mikið á þá gömlu daga er Bogesen réð lögum og lofum og ómagar og fátækt fólk var með öllu réttlaust? ...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












