Beint á leiðarkerfi vefsins

Samfélagsmál

18. Desember 2004

Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Birtist í Morgunblaðinu 17.12.04.
...Ástæða væri til að spyrja almennra spurninga um framtíð heilbrigðisþjónustunnar og framtíð einstakra heilbrigðisstofnana og deilda innan þeirra. Ég ætla hins vegar að þessu sinni að leyfa mér að afmarka spurningar mínar við öldrunarþjónustuna. Í ljósi nýlegra atburða sem átt hafa sér stað innan hennar vil ég beina tveimur spurningum til heilbrigðisráðherra og vænti ég þess að hann svari á opinberum vettvangi. Í fyrsta lagi...

17. Desember 2004

Hvað segja forsvarsmenn Sjáfstæðisflokksins í skatta- og heilbrigðismálum um þetta?

Fyrir réttri viku birtist merkilegt viðtal í Morgunblaðinu við dr. J. Lariviére, aðallyfjaráðgjafa hjá alþjóðadeild kanadíska heilbrigðisráðuneytisins en hér á landi sat hann fund Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Dr. J. Lariviére varaði mjög eindregið við einkavæðingu og sagði að við ættum að meta að verðleikum grunnþætti heilbrigðiskerfisins. Þeir tryggðu aðgang að opinberri heilbrigðisþjónustu. Hann bætti því við að um þetta væri nokkuð víðtæk samstaða.

16. Desember 2004

Lítilmagni leitar ásjár í útlöndum

...En viti menn, á meðan niðurstöðu EFTA dómstólsins er beðið hafa  Samtök banka og verðbréfafyrirtækja, sem stillt hafa sér upp sem lítilmagna í þessu tafli, leitað ásjár hjá kollegum í útlöndum. Okkur er sagt í fréttum að ákallinu hefði verið svarað: Evrópusamtök banka, með hvorki meira né minna en 4500 fjármála- og verðbréfafyrirtæki innanborðs, hafa ályktað í þá veru að ósanngjarnt og óeðlilegt sé að íslenskt samfélag reki Íbúðalánasjóð...

15. Desember 2004

Er verið að venja börnin við?

...Ég held að flestir geti verið sammála um að spilafíkn sé alvarlegt þjóðfélagsmein og einnig held ég að við hljótum að geta verið sammála um að  kappkosta beri að vernda börn og unglinga gagnvart þessari vá. Varla verður það gert með því að setja upp kassa á borð við þá sem er að finna í sundlaugunum í Laugardal. Í anddyrinu þar er að finna sölukassa sem líkjast spilakössum og er greinilega ætlað að höfða beint til barna. Þetta eru sölukassar eins og áður segir en sölumennskan gengur út á að börnin safni tilteknum fígúrum og ræður tilviljun ein hvað fellur í þeirra hlut hverju sinni. Markmiðið er að eignast allar fígúrurnar sem í boði eru. Þessir kassar eru merktir SÁÁ og veit ég ekki hvort Íslandsspil komi þar við sögu. Sú spurning sem upp úr stendur er hvort með þessu söluformi sé ekki  verið að venja börnin við spilakassa. Er þetta rétta leiðin til að byggja upp fólk, eins og staðhæft er á kössunum?

13. Desember 2004

Hugrenningar í kjölfar DV leiðara

Jónas Kristjánnsson, fyrrum ritstjóri DV skrifar reglulega leiðara í DV. Skrif hans eru jafnan beitt og vekjandi. Sérstaklega umhugsunarverður þótti mér leiðari hans síðastliðinn föstudag. Þar vék hann að hræringum á lánamarkaði og hugleiddi þær grundvallarbreytingar sem orðið hefðu í samfélaginu á síðustu árum. Fjármagn sem hefði verið af skornum skammti elti nú fólk á röndum eða með orðum Jónasar þá “ráfar” það “um banka og sjóði í leit að skuldurum.” Leiðari Jónasar ber yfirskriftina “Eign eða áskrift.” Hann sýnir fram á hvernig þjóðfélagið sé að breytast að því leyti að fólk sé hætt að...

9. Desember 2004

Stórmerkilegt framtak hjá BSRB


Frá undirritun samningsins: Inga Sigurðardóttir formaður Kvasir, samtaka símenntunarmiðstöðva, Birna Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri Framvegis, Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Elín Björg Jónsdóttir formaður fræðslunefndar BSRB.

BSRB og Framvegis miðstöð um símenntun, undirrituðu samning um tungumálafræðslu BSRB, í dag, fimmtudaginn 9. desember kl. 13.00. Við það tækifæri sögðust báðir samningsaðilar hugsa gott til samstarfsins. Fulltrúar Framvegis og Kvasir, samtaka símenntunarmiðstöðva sem munu annast kennsluna utan höfuðborgarsvæðisins, að þetta væri stórmerkilegt framktak hjá BSRB.

7. Desember 2004

En hvenær koma 90% lánin?

Íbúðalánasjóður er smám saman að sækja í sig veðrið. Það er vel. Ríkisstjórnin, eða öllu heldur félagsmálaráðherra hét því að hækka íbúðalán í 90%. Menn tóku það sem svo að 65% núverandi lánshlutfall yrði hækkað upp í 90% af verði venjulegrar íbúðar. Hámarksupphæð fyrir slík húsnæðislán er núna 11,5 milljónir. Sú upphæð er 65% af 17,7 milljónum. Það er algengt verð fyrir íbúðarhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu. Ef hækka á 11,5 milljónir upp í 90% af 17,7 milljónum – í samræmi við fyrirheit félagsmálaráðherra - yrði að heimila hækkun lána upp í tæpar 16 milljónir. Það var hins vegar ekki gert. Hámarkslán mega aðeins fara í 14,9 milljónir. Ríkisstjórnin hefur því enn ekki staðið við fyrirheit sín um 90% lán. 14,9 milljón króna hámarkslán sem nú eru í kortunum eru aðeins 84% af 17,7 milljónum, því viðmiðunarmarki sem nú er viðurkennt. 84% lán eru þannig orðin að veruleika, en ekki 90% lán. Eðlilegt er að spurt sé, hvenær koma 90% lánin?

6. Desember 2004

Morgunblaðið á lof skilið fyrir umfjöllun um spilafíkn

Allt frá því á laugardag hefur verið mjög athyglisverð umfjöllun í Morgunblaðinu um spilafíkn. Á laugardag birti blaðið bréf frá Ólafi M. Ólafssyni þar sem hann auglýsir eftir lögfræðingi til að taka mál sitt til Evrópudómstólsins. Ólafur tapaði öllum eigum sínu vegna þess að náinn venslamaður, sem hafði aðgang að bókhaldi hans, var haldinn spilafíkn. Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins var ítarlegt viðtal Skapta Hallgrímssonar við Ólaf ásamt ...

29. Nóvember 2004

Bankar leita "réttar" síns á samráðsvettvangi

Þarna eru fjórir bankastjórar. Einn úr KB banka, annar úr Íslandsbanka, sá þriðji úr Sparisjóðabankanum og sá fjórði úr Landsbankanum. Með öðrum orðum, þetta er samráðsvettvangur bankanna, þeirra aðila sem þykjast eiga hér í bullandi samkeppni. Þeir sammælast um að reyna að koma erfiðasta keppinaut sínum, þeim aðila sem best gætir almannahagsmuna, út af markaði! Er þetta sæmandi? Samræmist þetta lögum? Svari nú allir áhugamennirnir um frjálsa samkeppni.

28. Nóvember 2004

Vill Sjálfstæðisflokkurinn minnka íbúðarhúsnæði eða veikja Íbúðalánasjóð?

... Þetta þykist ég vita að sé ekki stefna félagsmálaráðherra. Spurningin er þá hvort það sé stefna Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn að minnka íbúðarhúsnæði landsmanna. Eða er einfaldlega verið að ganga erinda bankanna sem vilja Íbúðalánasjóð feigan og þess vegna þrengja alla möguleika hans til útlána ...

22. Nóvember 2004

Björn og leyniþjónustan

Lengi framan af hentu menn gaman að áhuga Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, á hermennsku. Það lá við að mönnum þætti þessi áhugi Björns barnalegur, svona í ætt við áhuga á tindátum og hermannaleik. Í fjölmiðlum birtust skopmyndir af Birni í hermannagalla með kaskeiti og medalíur. Nú eru menn hins vegar hættir að hlæja að Birni. Nú vita menn að...

11. Nóvember 2004

Íslandsbanki fær prik

Stöð 2 vakti athygli á því fyrir fáeinum dögum að Íslandsbanki krefðist þvagsýna og lífsýna af fólki sem sæktist eftir tilteknum lánveitingum hjá bankanum! Í kjölfar fréttar Stöðvar 2 tók ég málið upp á Alþingi og varð af þessu frekari umræða í þjóðfélaginu. Þetta leiddi síðan til þess að Íslandsbanki tók málið til endurskoðunar, átti fund með fulltrúum Öryrkjabandalagsins um málið, og var nú gefin út yfirlýsing að ofangreind skilyrði yrðu ekki sett fyrir lánveitingunum. Af þessu má draga eftirfarandi lærdóma...

8. Nóvember 2004

"Ríkið á ekki að gera það sem einstaklingar og fyrirtæki geta gert."

Staðhæfingin í fyrirsögninni hefur lengi verið viðkvæðið hjá ríkisstjórninni og reyndar markaðshyggjufólki almennt. Á þessari forsendu voru ríkisbankarnir m.a. hlutafélagavæddir og seldir. Nú er að komast reynsla á hvernig einkabanki án aðhalds frá bönkum í almannaeigu (þakka skyldi þó Íbúðalánasjóð)  bera sig að. Í gærkvöldi var eftirfarandi frétt á Stöð tvö undir fyrirsögninni, Lántakendur skili þvagsýni: "Þeir sem sækja um hundrað prósent íbúðalán hjá Íslandsbanka verða að taka ...

1. Nóvember 2004

Nú skiljum við!

Samkeppnisstofnun hefur veitt okkur innsýn í vinnubrögð á fákeppnismarkaði: Stórfellt svindl stundað af yfirvegaðri nákvæmni; lagt á ráðin um hvernig hægt væri að hafa sem mest af viðskiptavinunum, bæði hinum almenna kúnna og einnig stórkaupendum sem stóðu í þeirri trú að þeir væru að bjóða út verkefni á grimmum samkeppnismarkaði. Það sem þeir ekki vissu var að handan við borðið sammæltust fyrirtækin um hvert þeirra ætti að fá verkefnið hverju sinni og hvernig afrakstrinum, þ.e.a.s. ránsfengnum, yrði síðan skipt á milli hinna. Svona fara menn sem sagt að þegar þeir halda um taumana á einokunarmarkaði. Og nú hljótum við að skilja hvers vegna...

1. Nóvember 2004

Þeir eiga þakkir skildar sem sýna málefnalegan áhuga


...Þeir, sem boðið var að heyra röksemdir þeirra, sýndu málinu almennt mikinn áhuga. Utanríkisráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, aðilar á vinnumarkaði, þ.m.t. Verslunarráðið sendu fulltrúa á fundinn enda stórmál sem snertir okkur. Þá voru fulltrúar Evrópusamtakanna og Heimssýnar á svæðinu svo og stjórnmálamenn úr tveimur flokkum, Samfylkingunni og VG. Þingmennirnir tóku virkan þátt í umræðunni og sýndu henni verðugan áhuga. Miklivægt er að íslensk stjórnvöld sýni ekki andvaraleysi í þessu máli og reyndar öllum skuldbindingum okkar á alþjóðavettvangi. Allt of oft hefur það gerst að við fljótum sofandi að feigðarósi, vöknum þá fyrst upp með andfælum þegar allar ákvarðanir hafa verið teknar og allt um garð gengið. Eða skyldu menn hafa gleymt ...

31. Október 2004

BSRB og Evrópuumræðan

Birtist í Morgunblaðinu 28.10.04.
Í síðustu viku var hér á landi staddur John Monks, forsvarsmaður breska Alþýðusambandsins  en hann er jafnframt forseti ETUC (European Trade Union Confederation), Evrópusambands verkalýðsfélaga. Ég átti ásamt félögum mínum í BSRB og ASÍ góðan viðræðufund með honum. Þar sagði hann að sitt mat á þessari tilskipun væri að hún væri grafalvarleg fyrir velferðarsamfélagið og verkalýðshreyfinguna. Hann sagði að sér hefði komið á óvart hve fljótt tilskipunin hefði runnið í gegnum framkvæmdastjórn ESB. Framundan væri umræða í Evrópuþinginu í nóvember og síðan kæmi málið til kasta Ráðherraráðsins í vor, í mars eða apríl. Hvatti hann til kröftugrar umræðu um málið...

27. Október 2004

Áhugaverður fundur BSRB um átakamál í Evrópusambandinu

                                                                                                    
Það er samdóma álit forsvarsmanna verkalýðshreyfingarinar að Þjónustutilskipun Evrópusambandsins, sem nú er í smíðum, getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir velferðarþjónustuna í Evrópusambandinu og á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, þar með á Íslandi. BSRB boðar á föstudag til fundar um þessa tilskipun með tveimur hlestu forystukonum EPSU, Samtaka starfsfólks í almannaþjónustu á hinu Evrópska efnahagssvæði. Önnur kvennnanna, Carola Fischbach-Pyttel,  er framkvæmdastjóri EPSU, hin, Anne-Marie Perret, er varaformaður samtakanna.
Með Þjónustutilskipuninni verður...

26. Október 2004

Nýtt braggahverfi?

Sveinn Aðalsteinsson skrifar athyglisverða grein hér á heimasíðuna í dag. Hann færir okkur þær fréttir að á leðinni til landsins séu 1100 braggar, 900 frá Ungverjalandi og 200 frá Houston í Texas. Getur þetta virkilega verið rétt? Eitthvað minnir þetta á Kreppuna á fyrri hluta síðustu aldar nema hvað nú eru braggarnir tákngervingar atvinnustefnu þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur. Atvinnuleysi á Austurlandi er nú svipað og fyrir stóriðjuátak Framsóknarflokksins en inn hafa verið fluttir mörg hundruð fátækir verkamenn sem Alcoa og undirverktakar níðast á með skipulögðum hætti. Og nú eru braggarnir á leðinni til landsins...

18. Október 2004

Kröftug sveitarstjórnarráðstefna VG

...Einn fundarmanna hafði á orði að ólíkt væri komið fyrir sveitarfélögum annars vegar og fjármálafyrirtækjum hins vegar. Sveitarfélgin bráðvantaði um 5 milljarða til að rétta sig af en það væri minni upphæð en bankarnir hver um sig sýndi í hagnað á hálfu ári. Fyrir fáeinum dögum kom fram í fréttum að greiningardeild Íslandsbanka gerði ráð fyrir að árshagnaður fjármálafyrirtækja á þessu ári verði hátt í 70 milljarðar króna. Bankarnir mala gullið, sem nú streymir til þeirra úr margvíslegu braski heima og heiman. Sveitarfélögin sem annast margvíslega grunnþjónustu, sem er lífsnauðsynleg fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki, berjast hins vegar í bökkum. Er þetta ekki eitthvað öfugsnúið...?   

7. Október 2004

Heimilið á að vera helgur reitur

...Bréfið frá Lögheimtunni var ekki langt en þar var skýrt kveðið að orði. Þar sagði, "Er yður hér með gert að rýma íbúðina innan 7 daga. Ef þér hafið ekki rýmt íbúðina fyrir þann tíma verður leitað atbeina dómstóla um útburð." Ég skal játa að á lífsleiðinni hef ég stundum skuldað hærri upphæðir en þessi hjón. En aldrei hef ég staðið frammi fyrir því að vera hótað að verða sviptur heimili mínu með aðstoð dómsvalds. Ég held að maður þurfi að upplifa þetta sjálfur til að skilja tilfinninguna til fulls. En er þetta ekki farið að minna óþægilega mikið á þá gömlu daga er Bogesen réð lögum og lofum og ómagar og fátækt fólk var með öllu réttlaust? ...

28. September 2004

Ásmundur og sparigrísinn

Einhver skemmtilegasti morgunverðarfundur sem ég hef lengi sótt var haldinn í morgun á Grand Hótel í Reykjavík á vegum Tryggingastofnunar ríkisins. Ásmundur Stefánsson, ríkissáttasemjari, tróð upp nánast eins og poppstjarna við góðar undirtektir. Fagnaðarerindi Ásmundar var þvert á það sem legið hefur í loftinu um framtíð aldraðra. Samkvæmt útreikningum hans yrðu þeir ekki baggi á samfélaginu. Öðru nær! Framtíð aldraðra er björt í framtíðarboðskap Ásmundar Stefánssonar. Þessu veldur lífeyriskerfi Íslendinga sem byggir á kröftugri ...

27. September 2004

Eru fréttamenn Ríkisútvarpsins í álögum?

Fjárfesting Símans í Skjá einum hefur vakið athygli og viðbrögð. Fyrir fáeinum dögum sat stjórnarformaður Símans, Rannveig Rist, fyrir svörum um þetta efni í Kastljósi Sjónvarps. Hún kvað það vera eðlilega fjárfestingu fyrir símafyrirtæki sem vildi tryggja flutning um dreifikerfi sem það hefði upp á að bjóða að fjárfesta í sjónvarpsstöð. Ekki var hún þó að öllu leyti fjarri hugleiðingum Markúsar Arnar Antonssonar, útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, sem fram komu í viðtali við Fréttablaðið sl. sunnudag. Rannveig sagði nefnilega að ekki vekti fyrir Símanum að...

25. September 2004

Áfellisdómur yfir einkavæðingu

Sænska Samkeppnisstofnunin hefur gefið út skýrslu um afleiðingar markaðsvæðingar í Svíþjóð. Skýrsluna er að finna á vef BSRB undir erlendu efni. Fyrirsögnin á þessari frétt BSRB er "Frjálsar" verðhækkanir í Svíþjóð. Inngangur fylgir af hálfu BSRB þar sem saman eru teknar niðurstöður skýrslunnar. Þær hljóta að túlkast sem hrikalegur áfellisdómur á einkavæðingarstefnuna í Svíþjóð. Það er full ástæða til að hvetja fólk til að kynna sér efni þessarar skýrslu...

14. September 2004

Samfylkingin í Hafnarfirði og einkavæðingin

...Síðan segir formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar: "Mér finnst ekki viðeigandi að bæjarfélag standi með óbeinum hætti að svo víðtækum uppsögnum eins og hér verður um að ræða og það er ekki hægt að skýla sér bak við eitthvað fyrirtæki út í bæ í þeim efnum. Hafnarfjarðabær er verkkaupi og ber auðvitað sem slíkur siðferðilegar skyldur á gerðum verktakans."  Undir þessi ummæli skal hjartanlega tekið. Einkavæðing ræstinga hefur nánast alltaf leitt af sér fækkun starfsmanna, meira álag og minna kaup. Þess vegna er ádrepa formanns Starfsmannafélags Hafnarfjarðar fullkomlega réttmæt og fráleitt annað ...

11. September 2004

Okkur ber skylda til að veita aðhald

Birtist í Morgunpósti VG 10.09.04.
Á ráðstefnu sem Vinstrihreyfingin grænt framboð efndi til fyrir nokkru síðan flutti Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri í Reykjavík, mjög gott erindi sem er mér minnisstætt. Minnisstæðust er mér sú staðhæfing hennar að þeir sem byggju við erfiðustu lífskjörin og væru að auki án stuðnings frá fjölskyldu eða nánum vinum, auðnaðist síður en öðrum að nýta sér þá félagsþjónustu sem þó væri í boði og þeir ættu rétt á. Þetta var opinská og heiðarleg yfirlýsing og laus við það sem því miður einkennir alltof oft umræðu um félagsleg vandamál, að menn hlaupi strax í vörn og neiti að viðurkenna og ræða vandamálin. Það sem felst í þessari staðhæfingu Láru er að þrátt fyrir að félagsþjónustan í Reykjavík sé um margt góð og öflug þá sé það engu að síður svo...

10. September 2004

Það á ekki að eiga sér stað að efnalítið fólk sé borið út

Birtist í Morgunblaðinu 09.09.04.
...Félagsþjónustan í Reykjavík er að sönnu öflug og gerir marga hluti mjög vel. Varla er hún þó hafin yfir gagnrýni. Að sjálfsögðu ekki. Það er henni meira að segja lífsnauðsyn að hafa aðhald og það er okkar allra að veita það aðhald. Ég efast ekki um ...

8. September 2004

Minniháttar leiðrétting við meiriháttar mál

Blaðamaður á DV sýnir í dag hvers hann er megnugur í rannsóknarblaðamennsku. Honum þótti miður að fá ekki viðtal við öryrkjann, sem styr hefur staðið um í fjölmiðlum síðustu daga eftir að ég vakti máls á því að hann hefði verið borinn út með lögregluvaldi í síðustu viku. Blaðamaður reyndi að fá viðtal við manninn en hann neitaði. Sagt var að það væri misráðið því viðtal við DV kæmi honum eflaust til góða. Þá var tekinn upp næst besti kostur, að banka upp hjá nágrönnum og kanna hvort þeir hefðu eitthvað misjafnt um hann að segja. Svo reyndist vera. Ekki veit ég hvort rétt og satt er sagt frá. Hins vegar get ég staðfest að fullyrðingar DV um sjúkdóm mannsins eru ekki réttar – því miður. Betur væri að hann...

7. September 2004

Spurningar til yfirvalda í Reykjavík

Birtist í Morgunblaðinu 06.09.04.
...Engu að síður voru, áður en læknisrannsókn fór fram, gerðir út af örkinni menn til að loka fyrir rafmagn í íbúð mannsins. Af hálfu borgarinnar hefur enginn grennslast fyrir um afdrif þessa einstaklings eftir að hann var rekinn á dyr. Af þessu tilefni óska ég eftir að eftirfarandi verði upplýst opinberlega...

5. September 2004

Reykjavíkurborg rekur fátækt fólk á dyr

...Ekki síst vildi ég fá að vita hvort það hafi oft átt sér stað, að krabbameinssjúkur öryrki til margra ára hafi verið borinn út með lögregluvaldi. Þetta gerðist síðastliðinn föstudag. Málið er mér skylt því ég hafði viku áður, tveimur dögum áður en bera átti manninn út, skrifað borgaryfirvöldum ... svohljóðandi bréf ...  

3. September 2004

Kraftaverkamenn á hverju strái

...En varðandi hjólið og fólkið sem er að finna það upp var sú tíðin að 4,2% vextir ofan á vístölubindingu þóttu háir vextir. Þannig tók ég mín lán í byrjun níunda áratugarins með 2,25% vöxtum ofan á vísitölu...

2. September 2004

Eiga skatthirslurnar að standa öllum opnar?

Birtist í Morgunpósti VG 31.08.04
...Ég heyri ekki betur en Sjálfstæðisflokkurinn sé farinn að tala fyrir því að nýr háskóli á Vestfjöðrum verði einkarekinn. Láta menn sér til hugar koma, að ef þetta yrði ofan á, að sá skóli yrði einhvern tímann sviptur réttindum jafnvel þótt einhverjum þætti ástæða til slíks í menntamálaráðuneytinu? Halda menn kannski að þá væri til staðar á Ísafirði nægilega öflugur keppinautur sem gæti tekið við rekstrinum? Sjá menn ekki að þetta er rugl? Í þessum skilningi er er enginn...

30. Ágúst 2004

Bankar í hagsmunabaráttu

Birtist í Morgunblaðinu 28.08.04.
...Mikilvægt er að fylgjast vel með þessum vendingum á húsnæðismarkaði og í húsnæðiskerfi landsmanna. Hér eru geysilegir hagsmunir í húfi. Bankarnir hafa sýnt að þeir kunna að hugsa um sinn hag. Almenningur þarf að hugsa um almannahag. Þetta tvennt fer nefnilega ekki alltaf saman...

23. Ágúst 2004

Þegar markaðslausnir eru andstæðar skynsemi og þjóðarhag

Birtist í Morgunpósti VG 21.08.04
...bárust umsagnir fjölmargra hagsmunaaðila, þar á meðal frá Félagi íslenskra skipstjórnarmanna. Í umsögn félagsins þótti mér mælt af miklum hyggindum auk þess sem mjög eftirtektarverður þjóðhagslegur samanburður var gerður af þeirra hálfu á milli sjóflutninga annars vegar og land- og loftflutninga hins vegar. Almennt lýsti félagið sig „fylgjandi þeirri stefnu að samgöngumál séu skipulögð sem samstæð heild í stað þeirrar tilhögunar sem áður var, að líta á hvern hinna þriggja þátta samgangna sem afmarkaðar stærðir, skipulagslega og hagrænt“. Hér koma síðan tvö samanburðardæmi ...

19. Ágúst 2004

Hagsmunaaðili ráðleggur sér til hagsbóta

Hins vegar hefur einkaframkvæmd þjónað hagsmunum fjárfesta sem fengið hafa opinbera starfsemi í sína umsjá. Og hverjir skyldu nú vera harðdrægastir á þessum markaði? Það er einmitt ráðgjafinn og einkaframkvæmdaraðilinn  Nýsir hf. Í gær var sagt frá því að Nýsir hefði keypt Egilshöllina, íþróttamannvirkið í Grafarvogi.  Í gögnum frá fyrirtækinu kemur fram að það hefur nú fengið til einkaframkvæmdar fjöldann allan af opinberum stofnunum. Nýsir hf er eigandi og rekstraraðili fasteigna...

15. Ágúst 2004

Skynsemin notar öll skilningarvit

Birtist í Morgunblaðinu 14.08.04
...Hvað skyldi fá menn til að segja þvílíkt og annað eins? Að öllum líkindum blanda af vanahugsun og hugmyndafræði. Þröng pólitísk hugmyndafræði leyfir bara eina nálgun við lausn úrlausnarefna. Hægri sinnaðir menn nú um stundir telja ekkert koma annað til greina við lausn úrlausnarefna en að beita markaðslausnum – undir öllum kringumstæðum. Markaðnum megi stýra að einhverju takmörkuðu leyti, en hann skal vera grunnurinn. En ef svo skyldi fara að neytandanum er ekki boðið upp á val og ef...

9. Ágúst 2004

Hvaða nefndarlaun þola ekki dagsljósið?

...Nefndarmönnum hafði ekki nægt að þiggja há nefndarlaun heldur réðu þeir sjálfa sig til þess að vera sjálfum sér til ráðgjafar – að sjálfsögðu á himinháum töxtum sjálfstætt starfandi lögfræðinga. Er það þessum mannskap sem verið er að hlífa ...

7. Ágúst 2004

Eimskipafélagið – einkavæðing og gamall Morgunblaðsleiðari

Birtist í Morgunblaðinu 04.08.04.
Fyrir nokkru síðan fór Jón Bjarnason fyrir okkur þingmönnum VG og flutti þingsályktunartillögu um að rækileg úttekt yrði gerð á strandsiglingum við Ísland með það fyrir augum að efla þær. Þingmálinu var vísað til ríkisstjórnarinnar. Hún hefur hins vegar ekkert aðhafst í málinu eftir því sem ég kemst næst. Hins vegar hef ég fyrir satt að Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra hafi ekki verið skemmt þegar honum voru færð tíðindin af ákvörðun Eimskipafélagsins nú. Einu sinni var talað um Eimskipafélagið sem óskabarn þjóðarinnar og talsmönnum þess varð tíðrætt um ábyrgð þegar um heildarhagsmuni þjóðarinnar væri að ræða. Ekki þekki ég félagslega samvisku Eimskipafélagsins í gegnum tíðina til að ...

31. Júlí 2004

Auglýsingabann í þágu brennivínssala?

...Þetta er fullkomið stílbrot hjá ÁTVR sem fram til þessa hefur sýnt ábyrgð enda ástæðan fyrir einkarekstrinum m.a. sú að opinbert þjónustufyrirtæki gangi ekki eins hart fram í auglýsingamennsku og einkafyrirtæki í leit að hámarksgróða. Með þessu er ÁTVR að grafa undan eigin tilverurétti. Hinn aðilinn sem ég vil nefna er Reykjavíkurborg sem lætur bjórfyrirtæki nota strætóskýlin til að auglýsa bjór og fara þannig á bak við landslög. Ég gladdist því mjög þegar ég frétti að Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi hyggist taka málið upp og krefjast endurskoðunar á auglýsingasamningi við viðkomandi aðila...

9. Júlí 2004

Panikviðbrögð – í máli og myndum

Stjórnarmeirihlutinn er örvinlaður – í panik. Stjórnarþingmenn reyna að „leiðrétta“ ummæli sín aftur í tímann. Þar er frægastur af endemum Björn Bjarnason, sem kallaði fyrir mánuði þá stefnu sem ríkisstjórnin fylgir nú blekkingar og brellur. Hann varð síðan uppvís að því að reyna að breyta þessum ummælum á heimasíðu sinni. Í sama stíl er reynt að falsa frásagnir af mótmælum almennings. Þetta er ekkert nýtt. Útifundir hafa oft verið tilefni til æfinga af þessu tagi.Vilji menn gera lítið úr málstað er venjan sú að teknar eru myndir, helst með gleiðlinsu úr mikilli fjarlægð. Vefþjóðviljinn spreytir sig á fölsunum í dag og birtir meðfylgjandi mynd sem væntanlega er tekin í upphafi útifundar, sem Þjóðarhreyfingin boðaði í hádeginu á Austurvelli í gær, en þó ekki af sjálfum fundinum heldur á bak við hann...

8. Júlí 2004

Ný skýrsla um einkaframkvæmd í Bretlandi – vaxandi efasemdir

Á sama tíma og fréttir berast frá íslenskum sveitarfélögum um áhuga á einkaframkvæmd berast varnaðarorð frá Bretlandi um ágæti þessarar aðferðar við rekstur á stofnunum og verkefnum á vegum hins opinbera. Bresku verkalýðssamtökin, Unison, hafa birt ítarlega skýrslu um einkaframkvæmd sem vakið hefur mikla umræðu í Bretlandi. Einkaframkvæmd (Private Finance Initiative, PFI) byggir á því að einkaaðilar reisa og reka opinberar stofnanir á borð við skóla, sjúkrahús og fangelsi. Þeir sjá um fjármögnun en ríki eða sveitarfélög ábyrgjast greiðslur iðulega áratugi fram í tímann. Á undanförnum 12 árum hafa verið gerðir samningar af þessu tagi (563 samningar, 451 þegar í framkvæmd) að verðmæti 36 milljarða sterlingspunda ...

30. Júní 2004

Sjálfstæðisflokkurinn, Morgunblaðið, forsetaembættið og framtíð þess

Morgunblaðið hefur lengi verið langöflugasta og stærsta dagblað á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn er að sama skapi stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Báðir aðilar voru hins vegar smáir í sér í nýafstöðnum forsetakosningum. Reyndar var smæð þeirra slík að almennt rak fólk í rogastans. Stærð getur verið huglæg. Styrkur Sjálfstæðisflokksins hefur að nokkru leyti legið í þeirri ímynd hans að hann sé stór og búi í krafti stærðar yfir festu og stöðugleika. Sama gildir um Morgunblaðið. Þegar sú ímynd er brotin þá láta afleiðingarnar ekki á sér standa. Framferði Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins mun smækka báða aðila til lengri tíma litið. Þeir létu ...

30. Júní 2004

Steig hann á tær forstöðumanna kaupfélagsins?

Kristján Hjelm sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Hólahrepps fær góðar umsagnir þeirra sem DV leitaði til í athyglisverðri fréttaumfjöllun blaðsins um málefni sparisjóðsins. Undir verkstjórn Kristjáns hafa umsvif sparisjóðsins stóraukist og sjóðurinn á alla lund dafnað. Kristján þykir og mikill og einarður sparisjóðsmaður og hefur það því vakið furðu manna að hann sé nú þvingaður til að láta af störfum. Velta menn því fyrir sér hvað hann hafi unnið sér til óhelgi. Gæti það verið að hann hafi ...

29. Júní 2004

Enn atlaga að sparisjóði - lagasetning verði könnuð

Í DV í dag er slegið upp á forsíðu átökum um Sparisjóð Hólahrepps og tilraunum forsvarsmanna Kaupfélags Skagfirðinga að ná sjóðnum undir sig. Nokkra athygli vakti í tengslum við SPRON málið í upphafi árs og lagabreytingar í kjölfarið að kaupfélagsstjórinn á Sauðárkróki, sem jafnframt er stjórnarformaður VÍS, Þórólfur Gíslason, beitti sér í nafni kaupfélagsins við Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis að gerðar yrðu breytingar á lögum sem auðvelduðu  kaupfélaginu yfirtöku á Sparisjóði Hólahrepps. Um þetta...

17. Júní 2004

Norrænir kratar eru stoltir af að hafa stundað einelti

Í flugvél fékk ég í hendur bók eftir Johan Ehrenberg, sem ber áhugaverðan titil: Sósíalisminn, vinur minn. Ekki gafst tóm til að lesa alla bókina en á nokkrum stöðum var borið niður. Er réttlætanlegt að verja lýðræðið með ólýðræðislegum aðferðum? Þannig spyr höfundur. Hann vitnar í sjálfumglaða grein, sem Sten Anderson, fyrrverandi utanríkisráðherra Svía og framkvæmdastjóri Sósíaldemokrataflokksins sænska, skrifaði í Aftonbladet 1998, eða öllu heldur...

14. Júní 2004

Mikilvæg viðskipti fyrir búlgörsku þjóðina?

Í Svíþjóð þar sem ég er staddur þessa dagana hefur mikið verið fjallað um Búlgaríu í aðdraganda þess að Búlgarir og Svíar háðu kappleik í knattspyrnu. Búlgarir riðu ekki feitum hesti frá þeirri viðureign. Þetta var þó bara saklaus fótboltakeppni. Öðru máli gegnir um viðureign Búlgara við erlenda fjármálamenn. Þar er meiri alvara á ferðum. Í grein sem birtist í Svenska Dagbladet í dag segir að erlendir "fjárfestar" fari nú mikinn í Búlgaríu og hugsi þar...

9. Júní 2004

Harmur Umhverfisstofnunar

Birtist í Morgunblaðinu 08.06.04.
Í lokin vil ég beina þeim tilmælum til umhverfisráðherra, Sivjar Friðleifsdóttur, að hún skýri afstöðu sína til þessa máls. Það er nefnilega svo, að umhverfisráðherra ber ábyrgð á þessari tilraun til skoðanakúgunar. Þessu máli er ekki lokið, það eitt er víst...

30. Maí 2004

Ruslfæðisauglýsingar bannaðar í Bretlandi – prófmál í uppsiglingu?

Það er ágætt framtak hjá bresku stjórninni að vilja stemma stigu við matarvenjum sem eru þjóðinni sannanlega mjög skaðlegar. Þetta gæti hins vegar orðið skemmtilegt pólitískt prófmál. Bretar eiga að vísu ekki stjórnarskrá en einhvers staðar hefði verið sagt að íhlutun af þessu tagi í markaðinn bryti í bág við stjórnarskrá, eignarréttinn, jafnræði á markaði, meðalhóf og öll þessi hugtök sem ...

27. Maí 2004

Markaðslögregla gegn íslensku lýðræði

Það er sjálfsagt að taka þessum gestum vel einsog öllum þeim sem sækja land okkar heim, sýna þeim Gullfoss og Geysi og þess vegna Bláa Lónið. Það þarf hins vegar að segja þeim kurteislega en ákveðið, að sjálfir ætli Íslendinggar að ákveða hvernig þeir reki sitt Ríkisútvarp og aðrar almannastofnanir í þessu landi. Rannóknarvinna þeirra á þessu sviði sé afþökkuð. Það er ekki þessara gestkomandi manna að “skera úr” um hvað er rétt og hvað rangt í starfsemi íslenska Ríkisútvarpsins og hvernig sú stofnun er fjármögnuð. EES - smningarnir sem við höfum undirgengist eru að sönnu takmarkandi á ýmsum sviðum. En við skulum ekki gleyma því, að ...

21. Maí 2004

Ríkisstjórnin fær rauða spjaldið!

 
Mynd Stefán Karlsson Fréttablaðinu

Á fjölmennum útifundi á Austurvelli sl. miðvikudag var ríkisstjórn Íslands sýnt rauða spjaldið. Í knattspyrnunni þýðir þetta brottvísun af velli. Nýjustu tilefnin eru að sjálfsögðu Fjölmiðlafrumvarpið og frumvarp um réttindaskerðingu hjá starfsmönnum ríkisins, en sem kunnugt er stendur til að auðvelda forstöðumönnum stofnana ríkisins að reka fólk skýringarlaust! Þetta á að gera þvert á vilja allra heildarsamtaka launafólks. Fundurinn á Austurvelli beindist gegn ólýðræðislegum vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar en til stuðnings lýðræðinu.

21. Maí 2004

Hvers vegna við ekki getum samþykkt Fjölmiðlafrumvarpið

Fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar er vanreifað. Það krefst miklu meiri og dýpri umræðu og framar öllu þarf að ræða framtíðarskipan fjölmiðla heildstætt, m.a. með tilliti til þeirrar framtíðar sem menn ætla Ríkisútvarpinu, áður en ákvarðanir eru teknar um frekari skref. Andstaða mín við þetta frumvarp byggir á þessu. Hún byggir einnig á því að ég tel að hætta sé á því að frumvarpið sé alls ekki til þess fallið að  ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Þvert á móti tel ég hættu á hinu gagnstæða: Frumvarpið, ef af lögum verður,  muni veikja þá fjölmiðla sem nú eru starfandi og draga þannig úr fjölbreytni.

7. Maí 2004

Er forsætisráðherra að ofsækja Baug?

Frá mínum sjónarhóli þarf hvorki Baugur né oddviti Sjálfstæðisflokksins á neinni meðaumkun að halda og fær hana ekki frá mér. Og vegna þess að spurt er um ofsóknir á hendur Davíð Oddssyni og stjórnarmeirihlutanum, vil ég segja að þessar spurningar eru framhjá marki. Forsætisráðherra er ekki að ofsækja Baug. Og Baugur er ekki að ofsækja forsætisráðherra. Davíð Oddsson og stjórnarmeirihlutinn eru hins vegar að ...

7. Maí 2004

Varað við einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar!

Einn merkasti fræðimaður samtímans á sviði heilbrigðismála, sænski prófessorinn Göran Dahlgren, hélt fyrirlestur í vikunni um kerfisbreytingar í heilbrigðismálum og framtíðarsýn á því sviði. Göran Dahlgren var stjórnandi í sænska heilbrigðismálaráðuneytinu og hefur verið ráðgjafi sænsku ríkisstjórnarinnar en einnig ríkisstjórna í þróunarríkjum í Asíu og Afríku. Hann hlaut norrænu Lýðheilsuverðlaunin árið 2003 fyrir afburðaþekkingu, efnistök og nýja sýn á viðfangsefnið. Dahlgren varar mjög eindregið við markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins og varar einnig við gjaldtöku úr vasa sjúklinga en hún muni leiða til aukinna byrða á þá sem síst skyldi.

3. Maí 2004

Mikilvæg umræða um fjölmiðlafrumvarp

Í þjóðfélaginu hefur kviknað mikil umræða um fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Ég tel mjög mikilvægt að þessi umræða fái að dafna og þróast en verði ekki kæfð niður með því að keyra frumvarpið í gegnum þingið með offorsi. Helgi Guðmundsson, hinn eini sanni hágé, spyr í pistli hér á síðunni í dag hver sé afstaða þingflokks VG til frumvarpsins. Ólína beinir einnig áleitnum spurningum til okkar um afstöðu Framsóknar til málsins...

29. Apríl 2004

Fráleitt að afgreiða fjölmiðlafrumvarp í vor!

...Það væri til marks um grófa misbeitingu valds að knýja fram afgreiðslu þessa þingmáls fyrir þinglok í vor. Það er hins vegar ástæða til að hafa af því áhyggjur, að sú gæti orðið niðurstaðan. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins láta það óþægilega oft viðgangast að vera settir í aumkunarvert hlutverk, svipað því, sem er hlutskipti fulltrúa á málamyndaþingum í einræðisríkjum: Að hlýða foringjanum skilyrðislaust. Við slíkar aðstæður eru menn ekki pólitískir skákmenn, heldur taflmenn. Þeir tefla ekki. Það er teflt með þeim. Og Framsókn, já vesalings Framsókn. Hér ...

23. Apríl 2004

Spyrjið Gunnar Birgisson!

Í viðtali Morgunblaðsins við Sigfús Jónsson, forstjóra Nýsis, kemur fram sú hugmynd að setja varðskipin í einkaframkvæmd. Þessi hugmynd er borin undir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra í Morgunblaðinu í dag. Björn segist aldrei hafa hugleitt þetta, en þó þyki honum þessi hugmynd "ekki fjarlægari en margt annað".  Ekki fjarlægari en hvað Björn? Eins og til dæmis að bjóða út embætti dómsmálaráðherra? Það er greinilegt að Björn Bjarnason, ráðherra talar hér samkvæmt gömlu forriti. Björn veit sem er, að allt ...

21. Apríl 2004

Um ábyrgð og ábyrgðarleysi á markaði

Þessi spurning gerist mjög áleitin eftir því sem fram líða tímar. Sífellt algengara virðist , ekki síst á meðal yngri "athafnamanna" að þeir telji sig ekki bera neina ábyrgð gagnvart öðru en eigin pyngju eða pyngju sameigenda sinna í fyrirtæki. Á þetta eitt beri að einblína. Bjórframleiðendur skirrast ekki við að brjóta niður viðleitni samfélagsins til að hefta áfengisneyslu með banni við auglýsingum, tryggingafélög rífa göt á samtryggingakerfið ef þau telja sig þar eygja hagnaðarvon og nú síðast reyna bankarnir að grafa undan húsnæðiskerfi landsmanna...

19. Apríl 2004

Kaliforníumenn gegn misnotkun lífeyrissjóða í þágu einkavæðingar

Lífeyrissjóðir fara nú ört vaxandi víða um heim og eru orðnir mjög fyrirferðarmiklir í fjármálalífinu. Hér á landi eru eignir lífeyrissjóðanna komnar yfir 700 milljarða og ef fram heldur sem horfir eru líkur á að eignir þeirra verði yfir 1000 milljörðum fyrir lok árs 2007. Lífeyrisjóðirnir þurfa að finna öllu þessu fjármagni farveg og hef ég oft ...

8. Apríl 2004

Verslunarráðið brillerar aftur – og aftur

Birtist í Morgunblaðinu 07.04.04
Nú síðan kom skýrsla  í haust um að fækka mætti ríkisstofnunum um 30! Þetta þótti ekki í frásögur færandi, enda menn orðnir ýmsu vanir. En viti menn þessi skýrsla Verslunrráðsins dúkkar nú upp á Alþingi sem þingsályktunartillaga, flutt af þingmönnum úr Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu, með Bjarna Benediktsson í broddi fylkingar. Ekki er okkur sagt hvaða ...

6. Apríl 2004

Harmafregn frá Verslunarráði Íslands

Þeim sem kynnt hafa sér frumvarp ríkisstjórnarinnar um vatnsveitur óar við þeirri opnun sem þar er að finna á einkavæðingu Gvendarbrunnanna og annarra vatnsveitna í landinu. Enda þótt vatnsveitur skuli vera að meirihluta til í eigu samfélagsins, ríkis eða sveitarfélaga, samkvæmt frumvarpinu, þá geta einkaaðilar engu að síður náð ráðandi hlut. Dæmi um þetta eru svokallaðir kjölfestufjárfestar í hlutafélögum. Þegar danski Landssíminn var seldur á sínum tíma þá fékk bandarískt fyrirtæki, Ameritec minnir mig að það hafi heitið, ráðandi hlut sem byggði þó aðeins á rúmlega 30% eignarhlut.

1. Apríl 2004

Mikilvæg umræða um spilafíkn

Birtist í Morgunblaðinu 31.03.04
Sú spurning vaknar í mínum huga hvort engu máli skipti hverjir það eru, sem fjármagna mannúðina? Ef það er nú svo, sem ég tel vera, að upphæðirnar komi að stærstum hluta frá fólki sem ekki er sjálfrátt gerða sinna, er m.ö.o.haldið spilafíkn, hefur lagt eigið líf og fjölskyldu sinnar í rúst og er jafnvel í sjálfsvígshugleðingum fyrir vikið – þá hlýtur það breyta viðhorfi okkar til þessarar leiðar til fjáröflunar. ...

22. Mars 2004

Verkalýðshreyfingin minnir á vatnið

Í seinni tíð hefur verið tekist á um eignarhald á vatni og hefur verkalýðshreyfingin reynt að verja almannahagsmuni gegn ásælni fyrirtækja og fjárfesta að komast yfir drykkjarvatnið og gera það að verslunarvöru. Hér á landi hefur BSRB öllum samtökum framar ...

20. Mars 2004

Málstofa um menntamál: Beðið um skóflu og kaðal en fá teskeið og tvinna

Ingólfur varpaði fram þeirri spurningu hvort menn teldu unnt að fyrirskipa fjölbreytni. Hann kvað svo ekki vera. Hins vegar réði skipulagsformið hver tilhneigingin yrði í því efni. Tók hann dæmi, sem mér þótt frumlegt og skemmtilegt. Hann gagnrýndi þá afstöðu kennara að vilja búta árið niður þar sem allir ættu samleið, innan skólans, t.d. í frí og úr fríum. Hvers vegna ekki láta nemendur koma inn í skólann á mismunandi tímum, til dæmis hæfu sex ára börn nám í grunnskóla þann mánuð sem þau fylla sex ár? Þessi aðkoma að skólanum á mismunadi tímum sem þó er miðuð við einstaklinginn, mun að öllum líkindum stuðla að því að...

2. Mars 2004

"Æskilegt að Síminn verði að einhverju leyti í eigu Íslendinga"

Birtist í Fréttablaðinu 01.03.04
Við erum held ég nokkuð mörg úti í þjóðfélaginu sem kunnum ráð við þessu. Fyrir það fyrsta átti aldrei að gera Póst og síma, þessa ágætu þjónustustofnun að vöru á markaði, eins og núverandi stjórnendur skilgreina hana. Hitt er svo einnig til umhugsunar hvort yfirleitt eigi að stilla "vörunni" út í söluglugga. Er það með öllu illt að þjóðin fái áfram að njóta þess milljarða arðs sem kemur  frá Landssíma Íslands?...

22. Febrúar 2004

Síðbúnar áhyggjur Ingibjargar Sólrúnar og Björns Bjarnasonar

Sumir fjölmiðlar hafa slegið upp sem stórfréttum nú síðustu daga, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og varaþingmaður Samfylkingarinnar, telji að Íslendingar hafi hlaupið á sig með því að sækja ekki um undanþágu frá raforkutilskipun Evrópusambandsins. Ingibjörg Sólrún kveikir á þessu árinu á eftir öðrum borgarstjórnmálamanni Birni Bjaransyni, dómsmálaráðherra og borgarstjórnarmanni en það var einnig uppsláttarfrétt á sínum tíma þegar Björn vaknaði um síðir til vitundar um klaufagang ríkisstjórnarinnar í þessu ...

19. Febrúar 2004

Vill Verslunarráðið innræta krabbameinssjúklingum kostnaðarvitund?

Birtist í Morgunblaðinu 18.02.04
En ef svo skyldi vera að Verslunarráðið hafi ekki haft krabbameinssjúklinga sérstaklega í huga, við hverja var þá átt? MS sjúklinga, sykursjúka, ofnæmissjúklinga, flogaveika, heilaskaddaða, hjartveika, langveik börn eða fólk sem þjáist af gláku? Auðvitað er Verslunarráð Íslands að tala til ...

19. Febrúar 2004

Verslunarráð Íslands nær árangri

Birtist í Fréttablaðinu 18.02.04
Fyrir fáeinum dögum efndi Verslunarráð Íslands til fundar með fréttamönnum og var tilefnið að kynna stefnu samtakanna  í heilbrigðismálum. Í stuttu máli gengur þessi stefna út á að ...

13. Febrúar 2004

Íslendingar vilja borga fyrir góða heilbrigðisþjónustu

Birtist í Fréttablaðinu 11.02.04
Viltu borga fyrir heilbrigðisþjónustuna með sköttum á meðan þú ert heilbrigður eða viltu bíða og borga úr eigin vasa þegar þú ert orðinn veikur? Það hefur margoft sýnt sig að meirihluti Íslendinga vill borga á meðan hann er frískur...

13. Febrúar 2004

Íslenskir bjórframleiðendur grafa undan lögum

Árni Guðmudsson benti á það í fyrrnefndum sjónvarpsþætti að kannanir sýndu að bjórauglýsingarnar að undanförnu væru farnar að skila sér í aukinni bjórdrykkju unglinga. Hann sagði að siðferðilegt markmið laga um þessi efni væru alveg skýr: Að koma í veg fyrir áfengisauglýsingar. Ég tek heilshugar undir með honum og hvet alla til að sniðganga þá framleiðendur sem grafa undan landslögum með því að skáskjóta sér framhjá þeim...

6. Febrúar 2004

SA, almannaþjónustan og opinberir starfsmenn

Ég ætla einnig að láta liggja á milli hluta hvernig SA virðist hafa hrapað að niðurstöðu varðandi fjölgun opinberra starfsmanna en í Vefriti fjármálaráðuneytisins eru fullyrðingar SA hvað þetta snertir hraktar. Ekki hef ég orðið var við að fjölmiðlar sýndu þessum leiðréttingum sama áhuga og röngum fullyrðingum SA á sínum tíma. Um þetta má lesa nánar á vefsíðu BSRB
Víkjum stuttlega að þremur þemum í þessari umræðu....

29. Janúar 2004

Atvinnuleysi og örorkubætur

Birtist í Fréttablaðinu 28.01.2004
Allt var þetta fyrirsjáanlegt þegar ákvörðun var tekin um stóriðjframkvæmdirnar við Kárahnjúka fyrir rúmu ári. Það sem ekki var fyrirsjáanlegt var að fyrstu fórnarlömdin yrðu hjúkrunarfólk á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og blórabögglar síðan fólk með skerta starfsorku sem ekki á annars kost en fá stuðning úr almannatryggingakerfinu...

28. Janúar 2004

Það er hægt að afskrifa hlutabréf en ekki þjóðina

Á þessa leið mælti Haraldur Steinþórsson, talsmaður Félags hjartasjúklinga á baráttufundi í Austurbæ í gær. Þessi gamli baráttujaxl, fyrrverandi varaformaður BSRB til margra ára, vandaði ríkisstjórninni ekki kveðjurnar í frábærri tölu sinni á fundinum en honum  var stefnt gegn niðurskurði ríkisstjórnarinnar á Landspítala – Háskólasjúkrahúsi. Haraldur sagði að þjóðin  stæði einhuga að baki heilbrigðisþjónustunni, það hefði margoft sýnt sig. Hin fjölmennu samtök sjúklinga í landinu hefðu einnig sýnt í verki samstöðu um að stuðla að uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar. Ríkisstjórnin gengi nú gegn þjóðarviljanum og mætti segja með sanni að með aðgerðum sínum væri hún að innleiða dauðarefsingu...

15. Janúar 2004

Heildarsamtök að baki trúnaðarmönnum á Landspítala háskólasjúkrahúsi


Fulltrúar stærstu heildarsamtaka launafólks í landinu komu á fund trúnaðarmanna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í dag til að mótmæla stórfelldum niðurskurði á sjúkrahúsinu, sem mun verða þess valdandi að hátt í 300 einstaklingar munu missa vinnuna. Niðurskurðurinn mun skerða þjónustu verulega. Einar Oddsson, formaður Starfsmannaráðs LSH stýrði fundinum en...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Samfélagsmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta