Beint á leiðarkerfi vefsins

Samfélagsmál

10. Desember 2003

5068 eru atvinnulausir !

Birtist í Fréttablaðinu 09.12.2003
Í morgun heyrði ég í ágætum kunningja mínum. Hann var að segja mér þau tíðindi að hann væri í fyrsta sinn á ævinni að skrá sig atvinnulausan og sækja um atvinnuleysisbætur. Þetta er maður með vinnufúsan huga og hendur og á enga ósk heitari en að ...

8. Desember 2003

Fákeppni og einokun á íslenskum lyfjamarkaði

Að undanförnu hefur farið fram mikil umræða í þjóðfélaginu um fákeppni, jafnvel einokun og óeðlilegt verðsamráð á ýmsum sviðum í efnahagslífinu, í verslun og þjónustu, olíusölu, í tryggingum, banka- og fjármálastarfsemi og nú síðast hafa sjónir manna beinst að lyfjum og fákeppni á sviði lyfjasölu. Í síðustu viku...

31. Október 2003

BSRB býður upp á GATS

Mikilvægustu samningaviðræður sem nú fara fram á alþjóðavettvangi tengjast svokölluðum GATS-samningi. Samningurinn fjallar um viðskipti með þjónustu (General Agreement on Trade in Services). Það er Alþjóða viðskiptastofnunin ( WTO) sem heldur utan um samningsferlið . Yfir því hefur hvílt óþægilega mikil leynd og hefur verkalýðshreyfingin um víða veröld reynt að fá henni aflétt og hafa áhrif á þróunina. Hér á landi hefur BSRB staðið í fararbroddi enda þar á bæ menn vel meðvitaðir um að með GATS samningnum er stefnt að markaðsvæðingu allrar samfélagsþjónustu.

30. Október 2003

Skýr skilaboð frá BSRB

Birtist í Fréttablaðinu 29.10.2003
Á meðal þeirra málaflokka sem fjallað var um á nýafstöðnu þingi BSRB voru húsnæðismál. Á því sviði hefur bandalagið markað skýra stefnu þar sem gert er ráð fyrir samvinnu ríkis, sveitarfélaga og lífeyrissjóðanna í landinu en eignir þeirra munu innan fjögurra ára nema um eitt þúsund milljörðum króna. Fráleitt er annað en að þessi sparnaður, sem samfélagið hefur komið sér saman um, verði nýttur í uppbyggileg verkefni. Þar er húsnæðiskerfið ofarlega á blaði. Reyndar hafa lífeyrissjóðirnir staðið sig sæmilega í seinni tíð að fjárfesta í húsbréfum. Slíkt forðar okkur frá kjararýrandi afföllum auk þess sem þetta er einhver öruggasta fjárfesting sem lífeyrissjóðirnir geta ráðist í. En lífeyrissjóðirnir þurfa að ganga lengra.

26. Október 2003

Vindarnir eru að snúast

Birtist í Morgunblaðinu 25.10.2003
Á fimmtudag urðu stórpólitísk tíðindi í heiminum. Yfirstjórn bresku járnbrautanna ákvað eftir ítarlega rannsókn að þjóðnýta viðhald og viðgerðir á breska járnbrautarkerfinu. Þetta þýðir að átján þúsund starfsmenn færast frá einkafyrirtækjum til ríkisins. Þetta er niðurstaða ríkisstjórnar sem hefur lýst því yfir að hún sé ríkisstjórn einkarekstrar alls staðar þar sem því verði við komið. Þetta er ríkisstjórn sem hefur lýst því yfir að hún sé ekki sósíalísk ríksisstjórn...

6. Október 2003

BSRB býður upp á vatn

Um heim allan er um það deilt hvort einkavæða eigi vatnið. Þessar deilur fara fram á löggjafarsamkundum, í sveitarstjórnum og annars staðar þar sem ákvarðanir eru teknar...

2. Október 2003

Hvort viltu samtryggingu eða einkatryggingu?

Birtist í Fréttablaðinu 30.09.2003
Nú ætla ég ekki að fella neinn áfellisdóm yfir tryggingafélaginu Samlíf, síður en svo. Fyrirtækið er einfaldlega að gera það sama og tryggingafyrirtæki af þessu tagi gera um heim allan. Spurningin sem við hins vegar stöndum frammi fyrir sem þjóð er áleitin. Ef við veikjum stoðir þess samhjálaparkerfis sem lýst er hér að framan þá höfum við fengið sterka vísbendingu um hvað tekur við...

21. September 2003

Almannaútvarp í þágu lýðræðis

Erindi á ráðstefnu NORDFAG í Munaðarnesi
Á nýafstöðnu þingi Starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsstöðvanna á Norðurlöndum (NORDFAG) var samþykkt ályktun þar sem áhersla var lögð á að efla útvarp í almannaeign. Ríkisútvarp þjónaði lýðræðinu ef það fengi að starfa sjálfstætt og á faglegum forsendum. Þetta voru skilaboð ráðstefnunnar...

11. September 2003

Forstjóri Stöðvar tvö hafi það sem sannara reynist

Birtist í Fréttablaðinu 10.09.2003
Ég efast ekki um að Stöð tvö er að fara í gegnum miklar þrengingar og staða forstjóra fyrirtækisins er án efa ekki öfundsverð. Hann bætir hana hins vegar ekki með því að fara með rangar fullyrðingar. Vonandi mun hann bera gæfu til þess að haga málflutningi sínum á heiðarlegri hátt en hann gerir í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag...

4. September 2003

Til hvers fjárfesta menn í sjónvarpsstöð?

Birtist í Fréttablaðinu 03.09.2003
Um daginn birtist frétt í Fréttablaðinu undir fyrirsögninni Stórfiskar án starfa og mynd af sex valinkunnum fréttamönnum. Athygli vakti að engin kona var í hópnum. Hins vegar hefur verið staðfest, og var skilmerkilega greint frá því í þessari frétt, að nokkrar fréttakonur á Stöð tvö hefðu einnig misst vinnuna, Bryndís Hólm, Margrét Stefánsdóttir og Ólöf Rún Skúladóttir. Síðan kom frétt um það á mánudag að Hulda Gunnarsdóttir væri einnig í þessum hópi.

14. Ágúst 2003

Hvers vegna fáum við ekki að heyra sannleikann?

Birtist í Morgunblaðinu 13.08.2003
Það væri fróðlegt að heyra Eamonn Butler og félaga hjá Adam Smith Institute, útlista hvernig þeir ætla að stórhækka laun en jafnframt ná 20%-40% sparnaði í starfsemi þar sem launin vega 70% af rekstrarkostnaði. Í Morgunblaðsviðtalinu vísar Eamonn Butler á stjórnunarvanda ... Á að bera þetta á borð fyrir starfsmenn íslensku heilbrigðisþjónustunnar? Heldur dr. Eamonn Butler að starfsfólk íslenskra sjúkrastofnana sé að snyrta á sér neglurnar í vinnunni?

14. Ágúst 2003

Verslunarráðið vísar veginn

Birtist í DV 13.08.2003
Er það gefið að samfélagslegt átak sé alltaf af hinu illa fyrir "fólkið sjálft"? Getur verið að þegar frjálshyggjumenn tala um "fólkið sjálft", á þennan hátt, þá sé skilgreining þeirra nokkuð þröng? Að "fólkið sjálft" rúmist kannski í sæmilega góðum fyrirlestrasal hjá Verslunarráði Íslands?

25. Júlí 2003

Björn Bjarnason setur heimsmet

Birtist í Fréttablaðinu 24.07. 2003
Björn Bjarnason stýrir Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu sem kunnugt er. Ekki veit ég hvernig verkaskipting er innandyra í ráðuneytinu, en ég gef mér að hermálin, ef til kæmi, yrðu dómsmálaráðuneytismegin. Fyrirgefning syndanna myndi hins vegar að öllum líkindum falla undir kirkjumál. Á hvoru tveggja sviðinu hefur Björn látið til sín taka að undanförnu. Hann vill stofna íslenskan her með myndarlegu aðalliði og yfir tuttugu þúsund manna varaliði. Hinn þátturinn í málatilbúnaði Björns, sem varðar syndaaflausnina, snýr að samráði olíufélaganna um olíuverð.

15. Júlí 2003

Um framtíð Ríkisútvarpsins

Birtist í DV 14.07.2003
Sá háttur hefur verið tekinn upp að birta leiðara DV nafnlausa líkt og tíðkast á Morgunblaðinu. Þannig er sá tími runninn upp að blaðið hafi skoðun. Í leiðara um sl. helgi viðrar DV skoðanir sínar á ljósvakafjölmiðlunum auk þess sem blaðið skilgreinir sinn skilning á framförum í efnahagslífinu. Fyrirsögn leiðarans gefur tóninn...

16. Júní 2003

Bifröst og Háskólinn í Reykjavík kynna kröfugerð

Birtist í Morgunblaðinu 15.06.2003
Hvers kyns mismunun á markaðstorginu er sem eitur í beinum allra sannra markaðssinna. Litið er á slíkt sem arfleifð liðins tíma. Hlutverk hins opinbera á samkvæmt þeirra kokkabókum að einskorðast við að setja almennar reglur og greiða síðan fyrir aðkeypta þjónustu. Í þessum anda eru nú settar fram, af hálfu rektora Viðskiptaháskólans á Bifröst og Háskólans í Reykjavík, hugmyndir um að gera Háskóla Íslands að sjálfseignarstofnun sem færa eigi yfir á torg markaðarins. Hugmyndin er sú að allir háskólar skuli sitja við sama borð gagnvart skattgreiðandanum. Komi nýir skólar fram á sjónarsviðið skuli skattpyngjurnar standa þeim opnar á sömu forsendum og þeim skólum sem fyrir eru.

29. Maí 2003

Popptíví kannar öryggisvörslu á Bessastöðum

Birtist í DV 28.05.2003
Fyrirsögnin hér að ofan vísar í fyrirsögn á fréttafrásögn í DV sl. laugardag. Þar segir frá tveimur ungum mönnum sem vildu kanna hvernig öryggisvörslu væri háttað á Bessastöðum, hversu nálægt þeir kæmust æðstu ráðamönnum þjóðarinnar. Þeir töldu sig komast býsna langt.

15. Maí 2003

Blair opnar pyngjur almennings fyrir fjárfestum

Miklar deilur hafa að nýju blossað upp í Verkamannaflokknum í Bretlandi út af því sem velferðarsinnarnir í flokknum kalla "ástarsamband Nýja Verkamannaflokksins við einkageirann". Sem kunnugt er reyna fjárfestar um víða veröld að þröngva sér inn í velferðarþjónustuna. Þeir vita sem er að þar eru unnin störf sem verða nauðsynleg um ókomna framtíð og ef vel er haldið á spöðunum af þeirra hálfu má hafa þaðan góðan hagnað. Af þessu hafa Íslendingar þegar haft nasasjón.

10. Maí 2003

Það verður kosið um heilbrigðismál

Birtist í Mbl. 10.05.2003
Í aðdraganda kosninganna hefur verið horft mjög til skattamála. Því miður hafa stjórnarflokkarnir og Samfylkingin sem boða minni tekjur ríkisins með skattatillögum sínum ekki verið krafðir nægilega svara um hvar þeir ætli að skera niður eða að hvaða marki þeir ætli að mæta niðurskurðinum með auknum þjónustugjöldum. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn hótar því að skera niður skatta sem nema rekstrarkostnaði Landspítalans og öllum lyfjaútgjöldum ríkisins og öllum greiðslum til sérfræðinga, þá er því ósvarað hverjir eigi að borga.

1. Maí 2003

Lyftum fólki til flugs...

Ávarp Ögmundar Jónassonar í Ólafsfirði 1. maí 2003
Góðir félagar.
Til hamingju með daginn.
Ef til vill þarf börn til að sjá mjög skýrt muninn á réttu og röngu. Alla vega hefði það ekki vafist fyrir neinum í barnaafmælunum sem ég sótti forðum daga að sjá að ekki gengi í afmæli þar sem gestirnir væru tuttugu, að tveir þeirra borðuðu átján sneiðar af afmæliskökunni og skildu aðeins tvær eftir handa öllum hinum. Þá hefði án efa orðið mikið uppistand í afmælinu, foreldrar kallaðir til og sennilega hefðu hinir gráðugu óþekktarormar fengið tiltal.

30. Apríl 2003

Þegar litið er hundrað ár til baka...

Ræða Ögmundar Jónassonar á fundi trúnaðarmanna SFR og St.Rv. 29. apríl 2003
Góðir félagar í BSRB.
Það er mér mikið ánægjuefni að ávarpa þennan glæsilega fund trúnaðarmanna SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkur. Þessi fundur ber vott um þann kraft sem er innra með þessum félögum.

29. Apríl 2003

Fríhöfn í þágu þjóðar

Birtist í Mbl. 28.04.2003
Keflavíkurflugvöllur er stærsta hliðið að landi okkar. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíð lagt áherslu á að þessi mikilvægi hluti af samgöngukerfi þjóðarinnar verði í almannaeign og lúti almannastjórn. Þingmenn flokksins töldu mjög óráðlega lagabreytingu sem núverandi ríkisstjórn gekkst fyrir um að gera flughöfnina í Keflavík að hlutafélagi. Væru menn á þeim buxum að markaðsvæða flughöfnina, bæri fremur að líta til þátta í innra starfi. Þar skyldu menn þó láta stjórnast af almannahagsmunum fremur en þröngum hagsmunum einstakra viðskiptafyrirtækja.

27. Apríl 2003

Er fyrirheitna landið fundið í einkavæddum ríkisbönkum?

Birtist í Fréttablaðinu 26.04.2003
Aðeins einn flokkur á Alþingi var fylgjandi því að þjóðin starfrækti ríkisbanka. Sá flokkur heitir Vinstrihreyfingin grænt framboð. Þetta vildum við gera til að stuðla að festu og öryggi á fjármálamarkaði auk þess sem okkur var það ekki kappsmál nema síður sé að losa ríkið við banka, sem aldrei höfðu verið ríkissjóði nokkur baggi, þvert á móti skilað eigendum sínum ómældum arði. Þar á ofan höfðu þeir verið landsbyggðinni mikil lyftistöng í áranna rás. Allir aðrir flokkar en VG töluðu fyrir því að með markaðsvæðingu ríkisbankanna hæfust nýir tímar.

7. Apríl 2003

Hver vill einkavæða Gvendarbrunnana?

Fyrir nokkrum dögum hlustaði ég á viðtal við kunnan og ágætan blaðamann í sjónvarpi. Hann sagðist ekki betur sjá og heyra en að "allir" væru komnir á þá skoðun að rétt væri að einkavæða innan grunnþjónustu samfélagsins. Vísað var í ályktanir Alþýðusambands Íslands þar sem talað væri um mikilvægi þess að tryggja mismunandi rekstrarform í heilbrigðiskerfinu og að allir flokkar væru á þessu máli – nema þá Vinstrihreyfingin grænt framboð.

27. Janúar 2003

Ellert leiðréttur

Ellert B. Schram er kominn á fullt í kosningabaráttuna. Veri hann velkominn. Í fjölmiðlum hafa menn verið að velta yfir því vöngum hvort Ellert muni segja sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir að hann tók ákvörðun um að setjast á lista Samfylkingarinnar í komandi Alþingiskosningum. Þetta kemur Ellert, Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni einum við.

19. Janúar 2003

Siðfræðistofnun fái Hlemm

Birtist í Mbl. 18.01.2003
Margar helstu þjóðþrifastofnanir og samtök þjóðfélagsins sækja rekstrarfé sitt í hagnað af spilakössum. Það á við um Háskóla Íslands, Rauða krossinn, Landsbjörg og SÁÁ.

7. Janúar 2003

Verður lokað á heilabilaða á Landakoti?

Birtist í Mbl. 6. 01.2003
Fyrir jólin berst okkur mikið blaðaefni og hætt við því að sitthvað áhugavert fari fram hjá okkur. Föstudaginn 19. desember birtist í Morgunblaðinu afar góð og upplýsandi grein eftir Hönnu Láru Steinsson félagsráðgjafa heilabilunareiningar LSH á Landakoti. Vonandi hefur greinin náð athygli sem flestra. Í henni er fjallað um skerðingu á þjónustu við aldraða með heilabilun og vakin athygli á því að ekki standi til að opna eftir áramótin deild fyrir slíka sjúklinga sem lokað var, tímabundið að sögn stjórnvalda, í ágúst síðastliðnum.

6. Janúar 2003

Enn einn stórsigur ríkisstjórnarinnar

Birtist í Fréttablaðinu 4. janúar
Um áramótin kom Valgerður Sverrisdóttir bankamálaráðherra fram í fjölmiðlum til að greina þjóðinni frá nýjustu sigrum ríkisstjórnarinnar. Nú var það salan á þjóðbankanum, Landsbanka Íslands, sem gladdi hjarta ráðherrans:

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Samfélagsmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta