Beint á leiðarkerfi vefsins

Samfélagsmál

28. Nóvember 2002

BSRB vill tryggja persónuvernd

Birtist í Mbl. 26.11.2002
Aðalfundur BSRB sem haldinn var fyrir fáeinum dögum lagði áherslu á að settar verði reglur sem tryggi persónuvernd starfsmanna á vinnustöðum. Á mörgum vinnustöðum hefur hvers kyns eftirlit með starfsfólki færst í vöxt.

28. Nóvember 2002

Hvar eru frjálshyggjumennirnir þegar á reynir?

Birtist í DV 28.11.2002
Fyrst var deilt um það hvort gera ætti ríkisbankana að hlutafélögum. Það var gert og nú hefur verkið nánast verið fullkomnað með því að selja Landsbanka og Búnaðarbanka að undanskildum litlum hluta sem enn er í þjóðareign.

25. Október 2002

Jafnréttismál í brennidepli

Umræða um kvenfrelsismál er mjög brýn og þarf að fá mikið vægi. Í aðdraganda kosninga veltir fólk því eðlilega fyrir sér hvaða leiðir séu færar til að tryggja jafnræði með kynjunum í tengslum við komandi kosningar og að þeim afloknum. Reyndar eru teikn á lofti um að ekki sé mjög bjart framundan hvað þetta varðar.

22. Október 2002

Alþjóðleg hugmyndasmiðja á Íslandi

Íslenskir hugvísindamenn og fræðimenn sýndu það um helgina svo ekki verður um villst að þeir hafa burði til að gera Ísland að alþjóðlegri hugmyndasmiðju. Ég er ekki í nokkrum vafa um að ef rétt er að málum staðið getur íslenska háskólasamfélagið orðið eftirsóknarverður vettvangur fyrir fræðimenn og stjórnmálamenn víðs vegar að úr heiminum. Allir sem þekkja til ráðstefnuhalds vita að Ísland hefur mikið aðdráttarafl. Og þegar íslensk náttúra og íslenskt hugvit leggja saman er kominn kokteill sem margir munu vilja bergja á.

6. Júní 2002

Um bjartsýni og samábyrgð

Það er gott að vera bjartsýnn og það er gott til þess að vita að Íslendingar líti björtum augum til afkomu sinnar á næstu árum. Skoðanakönnun DV færir manni nú heim sanninn um að þeim hafi fjölgað sem trú hafa á framtíðina en hinum fækkað sem óttast að nú muni halla undan fæti.

23. Maí 2002

Það er verk að vinna í Reykjavík

Hver eru brýnustu úrlausnarefni í Reykjavík á komandi kjörtímabili? Að mínum dómi stendur tvennt upp úr. Annars vegar málefni aldraðra og hins vegar húsnæðismál. Í báðum þessum málaflokkum er þörf á stórátaki.

16. Maí 2002

R-listinn og hjúkrunarrými fyrir aldraða

Birtist í Mbl
Í Morgunblaðinu 14. maí ritar Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður og stjórnarformaður DAS grein sem ber heitið: „R-listinn,Vinstri grænir í samstarfi við fjárfesta Frumafls.“

3. Maí 2002

Sumargjöf Samlífs

Birtist í Mbl
Inn um bréfalúguna kemur tilboð um hvort ég vilji „…aðstoða einhvern sem mér þykir vænt um við að stíga fyrsta skrefið að mikilvægri tryggingavernd.“

15. Mars 2002

Siðlaus Sýn

Í kjarasamningum undangenginna áratuga hafa samtök launafólks lagt mikla áherslu á að tryggja réttindi fólks í veikindum.

13. Mars 2002

Verslunarráðið gegn hagsmunum neytenda

"Í mín eyru hafa verslunareigendur viðurkennt að þeir myndu aldrei geta haft eins lága álagningu og ÁTVR nema þá hugsanlega með því að hafa aðeins í boði allra vinsælustu tegundirnar."

4. Janúar 2002

Sóltúni óskað velfarnaðar

Undirritaður hefur nokkuð gagnrýnt ríkisvaldið fyrir þann samning sem á sínum tíma var gerður við Öldung hf. - samheiti fyrir fyrirtækin Aðalverktaka og Securitas - um að reisa og reka dvalarheimili fyrir aldraða í Sóltúni 2 í Reykjavík.

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

21. Maí 2012

UM LÝÐRÆÐI OG EIGNARRÉTT Í STJÓRNARSKRÁR-DRÖGUM

...Þar brást þú við fyrri færslu minni (auk annarra stjórnlagaráðsliða) sem ég birti hér neðst - en sólarhring síðar birti ég nefnilega þessa efnisathugasemd sem gaman væri að fá viðbrögð þín við: "Eins og Hjörtur Hjartarson lýsir hér að hér að ofan fyrir tæpnum sólarhring eru stór skref stigin í þágu beins lýðræðis sem Ögmundur kallar eftir og tel ég því fullsvarað og afstöðu Ögmundar misskilning - enda heldur forseti auk þess óskertum málskotsrétti. Hinu þarf líka að svara - sem Ögmundur segir um eignarrétt; hann virðist eins og fleiri ekki hafa áttað sig á merkilegu nýmæli í eignarréttarákvæðinu. Vissulega er rétt að 1. mgr. þess er óbreytt, orðrétt frá 72. gr. stjórnarskrárinnar (13. gr. frumvarpsins): "Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess ...
Gísli Tryggvason

21. Maí 2012

UM KÍNVERSK LANDSÖLUMÁL O.FL.

...Bara að láta Innanríkisráðherrann vita, að nú undir kvöld (bréfið barst 16/5), á síðustu metrunum fyrir Kristi Himmelfartsdag, berast þau tíðindi frá RÚV sjálfu, að nú vilji þeir loksins kveða Lilju með þér. Það var tími til kominn að sú vesæla fréttastofa rifi sig loks upp á rassgatinu og segði sannleikann, sem þú og við svo ótal mörg höfum alltaf vitað, þó sú fréttastofa þegi þunnu hljóði, sem ætíð, um samfylktu íslensku landsölumafíuna sem þú ert í stjórn með og hlýtur því að treysta ógesslega vel, en litlu verður Vöggur þó feginn á þessum síðustu og alverstu tímum og leyfum því RÚV að njóta þess, þegar fréttastofa þess segir amk. einu sinni sannleikann um Nubo og co...
Jón Jón Jónsson

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Samfélagsmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta