ÁTVR EINKAVÆTT BAKDYRAMEGIN
Birtist í Morgunblaðinu 1. apríl 2006
Á Íslandi hefur verið nánast þverpólitísk sátt um stefnu í
áfengismálum. Hún hefur gengið út á að hafa hemil á markaðsöflum
við sölu og dreifingu á áfengi. Þess vegna er ÁTVR - Áfengis og
tóbaksverslun ríkisins til. Annað veifið hafa ungir
frjálshyggjumenn, einkum innan Sjálfstæðisflokksins en þó einnig
innan annarra flokka, tekið upp baráttu fyrir afnámi ÁTVR. Þegar
það hefur ekki tekist, m.a vegna andstöðu innan eigin flokka þessa
fólks, hefur verið reynt að stíga smærri skref og koma léttvíni og
bjór inn í almennar matvöruverslanir. Einnig þetta hefur mætt
mikilli andstöðu. Til hvaða bragðs er þá gripið? Þá er einfaldlega
farið bakdyramegin að málinu. Fram hefur komið að Árni Mathiesen
fjármálaráðherra hafi nú kynnt, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, í
báðum stjórnarflokkunum, frumvarp um að gera ÁTVR að hlutafélagi!
Samkvæmt formúlunni verður þá fyrst sagt að ekki standi til að
selja hlutaféð en það þó síðan gert að nokkrum tíma liðnum. Þetta
er aðferðin. Hún er lúaleg.
Síðan er náttúrulega hitt sem að þessu máli snýr, að fyrir fjármálaráðherra og ríkisstjórn vakir að hafa réttindi af starfsfólki, ráðningarkjör og lífeyrisrétt. Það vefst ekki fyrir stjórnarmeirihlutanum á Alþingi að hygla sjálfum sér í lífeyrisréttindum. En þegar kemur að starfsmönnum ríkisins almennt þá er annað uppi á teningnum. Menn setur hljóða.