ÞJÓFNAÐUR Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSI
Nú stendur til að selja Landssímann. Fyrirtækið
Morgan Stanley hefur verið fengið til verksins.
Svona rétt til málamynda. Það afhjúpaði Morgunblaðið í
eftirminnilegri frétt í upphafi vikunnar undir fyrirsögninni
Davíð og Halldór handsala samkomulag.
Íslendingar þekkja vel þessa aðferðafræði í málum sem ganga í
berhögg við vilja þjóðarinnar. Félagarnir tveir ákveða. Síðan er
þingflokkunum stillt upp við vegg. Svo klæða menn sig upp á og
steðja í Þjóðmenningarhúsið. Það er hálf dapurlegt til þess að
hugsa að öll verstu myrkraverk ríkisstjórnarinnar eru kynnt þar.
Þetta er fallegt hús með merka sögu. Ef til vill er það þess vegna
sem menn með slæma samvisku leita þar athvarfs. Það gerði
Einkavæðingarnefnd þegar hún boðaði sölu Símans í
byrjun vikunnar. Gráðugir fjárfestar biðu utandyra. Þeir vita að
þeirra menn hafa að venju unnið sitt verk vel: Hannað formúlu sem
tryggir vildarvinunum bitann góða. En þjóðin, samkvæmt öllum
skoðanakönnunum, er þessu hins vegar andvíg. Hvernig væri að taka
undir með Jóni Bjarnasyni alþingismanni sem fer í
farabroddi þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns
framboðs og krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um söluna? Með
því móti væri hægt að forða stórslysi. Með þjóðaratkvæðagreiðslu
væri hægt að koma í veg fyrir þjófnað. Sala Símans í
óþökk þjóðarinnar er nefnilega ekkert annað en þjófnaður. Sjá
nánar HÉR.